Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1971, Page 44

Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1971, Page 44
tannslíður og cndurfesta tannarinnar er þar með tryggð. Djúpir, þröngir pokar í blóðríkum lieinvef eru bezt falln- ir til „curettasje“. En svo einföld, ósveigjanleg og „akademisk“ er með- ferð ekki ævinlega. Aldur sjúklingsins og mikilvægi tann- arinnar skiptir að sjálfsögðu öllu máli. Tap tannar get- ur valdið mikilli röskun og sjúklingnum ærnum kostnaði. Hægt er að láta tönnina standa, svo fremi sem það ekki ógnar stoðvef nágrannatanna hennar, ef liægt er að eyða „subjectivum“ einkennum, þótt ekki sé um algjöra lækn- ingu að ræða þ.e. útrýmingu beinpokans. Framkvæmd- ar eru þær aðgerðir, sem við verður komið: „curettasje“ o.s.frv. og eftirlit baft með tönninni. Brugðið getur til ‘ beggja vona með endingu slíkrar tannar, oftast fer ástand hennar versnandi þar til um síðir að draga verður tönn- ina. Meðferð þessi er þó talin réttlætanleg af mörgum. Þá er tanndráttur við hafður, þegar sjúklingurinn get- ur með hægu rnóti verið án tannarinnar eða aðgengilegt er að bæta missi bennar. COMPLICATION Sérstaka gát skal bafa á ástandi tannkvikunnar. Samfara annars stigs (partiell) og þriðja stigs (total) tannldofsbólgu, er oft að finna sjúklegar breytingar í tannkvikunni eða hún er „nekrotisk". Þá má búast við því, að kirurgisk opnun geti leitt til ertingar í tannkviku, sjúklegra breytinga og „nekrosu“ hennar. Rótfylling er því hyggileg (profylaktisk) eða nauðsynleg að aðgerð af- staðinni. Ætíð er hætta á tannátu í „subpulpala“ veggnum og þeim mun frekar, eftir því sem erfiðara er að halda svæð- inu hreinu. PROGNOSA Batahorfur ráðast af afstöðu sjúklings og viðhorfi 42

x

Árbók Tannlæknafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Tannlæknafélags Íslands
https://timarit.is/publication/739

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.