Árdís - 01.01.1933, Side 22
20
Gleymum þvi ekki að börnin sjá hlutina í öðru ljósi en við. Það
er okkur virðist hversdagslegt og Jítils um vert, eins og til dæmis
sníkju-jurtin gula, er fjötrar haustblómið gullinsprota, er í þeirra
augum heil saga sjálfs-afneitunar og hetjuskapar. Ef þeim er sögð
sú saga efast eg ekki um að þau myndu þá og þegar ásetja sér að
verða gullin-sproti en ekki sníkju-jurt.
“Mikil eru verkin Guðs en meiri eru þó verkin mannanna,” er
haft eftir gömlum karli er hann kom í stórborg og sá skýja-brjóta
og önnur mannvirki. Við brosum að þessu, en það er einmitt
þessi efnishyggja er við þurfum af alefli að vinna á móti hjá börn-
unum okkar. Við þurfum að kenna þeim að elska stjörnuljósið
meira en raflýstu borgargöturnar, og fuglasönginn betur en hið hása
garg útvarpsins, og bezt getum vér gert þetta ef vér elskum þessa
hluti sjálf.
Er eg var barn heima á fslandi, var mér sagt að til væri óska-
steinn. Ef eg fyndi hann myndu allar mínar óskir ujjpfyllast. Eg
leitaði mikið að óskasteininum á sjávarströnd íslands. Eg fann
hann aldrei. En öldurnar sungu mér um tign, mátt og mildi höf-
undar tilverunnar, söngva er eg hef aldrei gleymt. Gömul kona sagði
mér að fjögra-blaða smári væri hamingju merki. Iíg leitaði að hon-
um. Eg man ekki hvort eg fann nokkurn, en ilmurinn af smáblóm-
unum, litprýði þeirra og hin leyndardómsfulla bygging, fyltu mig
lotningu fyrir honum er hafði gert þau svo fagurlega.
Eg hlustaði á sumar-gaukinn á vorin og um leið heyrði eg
söng allra hinna smáfuglanna og lijarta mitt fyltist gleði. Fugla-
söngurinn á íslandi á vorin er svo þrunginn af gleði. Við undrumst
það eigi er við hugsum til þess að smáfuglarnir, er þangað koma,
eru þá nýkomnir af ferðinni löngu yfir Atlantshafið, úfið og geig-
vænlegt. Efalaust eru þeir að þakka handleiðsluna yfir hafið og
þess vegna er söngurinn svo innilegur.
Látum okkur senda börnin okkar út til náttúrunnar til að
leita að óskasteininum, fjögra-blaða smáranum og til að hlusta á
sumargaukinn. Alt er þau finna og heyra mun hafa áhrif til góðs
og fylla þau lotningu fyrir því, sem fegurst er og bezt.