Árdís - 01.01.1933, Page 34

Árdís - 01.01.1933, Page 34
32 kvæmari hátt en við nú gjörum, og þannig fengið stund til að lesa, ræða, og i'lytja erindi um fróðleg og uppbyggileg málefni, án þess þó að lengja fundartímanum. Nú veit eg að einhver muni segja að við scum svo óvanar við svoleiðis starf, að okkur sé ekki til neins að reyna það. En eg veit að við gætum gert mikið í þessa átt, ef við létum ekki feimni og vanal'estu aftra þvi. Það ætti að vera ein af meginreglum okkar, að skorast aldrei undan að reyna að gera það sem félagssystur okkar treysta okkur til, og biðja okkur um, einmitt á þessu sviði starfsins. Ljósin okkar mega ekki sifelt vera falin undir mælikerum. Tækist okkur með þessari vinnuaðferð, ofurlítið að auðga anda vorn, má reiða sig á að litlu ljósin okkar myndu skína bjartar en ella yfir nágrenni vor, heimili, og sérstaklega yfir blessuð börnin og unglingana, sem Guð hefir falið okkur til uppeldis. Það, að við kynnuin okkur sem bezt velferðarmál þeirra, er þeim lifsspurs- mál. Þess vegna leyfi eg mér að nefna kristileg uppeldismál, sem það viðfangsefnið sem við ættum, helzt og fremst að taka til alvar- legrar íhugunar, hvað svo sem öðru líður. Það var sú tíð að fólk gat verið í ró og næði með börnin sín á heimilunum sínum, og haldið -þeiin frá solli og illum áhrifum fyrir- hafnarlítið. Nú er öldin önnur. Nú vitum við hvað greiðar sam- göngur, og fjörugt félagslíf gerir mikið erfiðara fyrir í þessu efni. Eigum við þá að standa hjá, og láta ráðast hvort börnin okkar sog- ast inn í glauminn og hringlandann eða ekki? Nei, og aftur nei. Nú er brýnni þörf en nokkurntíma áður til að setja sig inn i kringum- stæðurnar, hefjast svo handa, og með Guðs hjálp, reyna að forða “óvitringunum ungu” frá hættum sein þeir eygja ekki sjálfir. Þess vegna er það að mér finst nauðsyn krefjast þess að við tökum þetta mál upp á dagskrá vora,—lesum um það á fundum vorum, spjöll- um um það, rannsökum það og gerum það að brennandi áhuga- máli félaganna. Við erum hér samankomnar á fyrsta þingi Hins Sameinaða Kvenfélags Hins Evangeliska Lúterska Kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi. Stofnun samhandsins hefir verið rædd töluvert, og eru sumar raddir með, sumar á móti sambandinu. Fyrir mitt leyti er eg því eindregið hlynt. Gagnsemi þess ætti eftir mínum skilningi að vera margfökl. Væri nú svo, að framvegis ætli starf kvenfélaganna að vera steyiit í sama móti og hingað til, og aðal starfið að vera fólgið i fjár- söfnun, þá væri sambandið ekki svo nauðsynlegt, því að fjármál hvers félags eru að verða þess einkamál. En eigi framtíðarstarfið að vera víðtækara og á hærra sviði, er öðru máli að gegna. Þá yrði viðfangsefni félaganna almenningsmál, sem næðu langt út fyrir umhverfi hvers félags, og gætu því verið sameiginleg öllum félög- unum. Þau mál myndu hafa styrk af sambandinu. Það er haft fyrir satt að “mönnunum muni annaðhvort aftur á bak ellegar nokk-

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.