Árdís - 01.01.1933, Side 44
42
Kristindóms námsskeið út í sveit
Eftir
Þjóðbjörgu Henrickson
Frá því að Robert Raikes á Englandi fann hvöt til að safna
unglingum af strætum borgar sinnar og kenna þeim um Jesú Krist,
hefir skilningur hugsandi manna, sífelt vaxið með það hve dýrmætt
er að innræta barninu trú og elsku á frelsara sinn.
Robert Raikes, sem kallaður var “faðir sunnudagsskólans,”
safnaði að sér hóp verkamanna og stofnaði hinn fyrsta sunnudags-
skóla—Krist skóla—og margur unglingur kom þar er myndi annars
hafa í'arið á inis við alt það, er leiddi til þekkingar og skilnings á
frelsara sínum. Það frækorn, er þar var sáð, hefir leitt af sér
ómælandi blessun—fagurt tré er hefir lireiðst út um allan kristinn
heim. í dag er sunnudagsskólinn eitt hið allra sterkasta afl til
hjálpar kristinni kirkju.
Eitt kristið lilað álítur af 84 prósent af innrituðum meðlimum
prótestanta kirkjunnar í dag, liafi einhverntíma verið lærisveinar
i sunnudagsskóla.
Ef barnshjartað er tengt frá því fyrsta við frelsarann þarf
einskis að kvíða.
Skyldu forehlranna gagnvart barni sínu er ekki gengt nú á
þann sama hátt og fyrrum. Barninu er ekki innrætt þekking á heil-
agri ritning og þýðing alls þess er leiðir til stofnun kristinnar kirkju,
við kné móður sinnar. Kröfur nútíðarlífsins eru slíkar að örðugt
er að halda uppi heimilis tilsögn í trúarlegum efnum er tíðkaðist
fyr á kristnum heimilum.
Annriki og hringiða þessa tíma veldur því að kristindóms upp-
fræðsla er algerlega—oft eingöngu—höfð um hönd sem eitt starf
kirkjunnar. Almennust er sú aðferð að stofnsetja fræðsluskóla—
sunnudagsskóla—og er jiessi stofnun orðin sterkur hlekkur í upp-
eldi hvers kristins unglings.
Áhrif sunnudagsskólans eru meiri en mælt verða.
Barnshjartað er urdirstaða kirkjulífs hvers héraðs og ef undir-
staðan er ekki á öruggum grundvelli—á kletti Jesú Krists—verður
lítið um framtíð kirkjulífs jiess héraðs.
Barnshjartað er móttækilegur jarðvegur. Kristur sagði:
“Leifið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, jiví
þeirra er himnaríki.”