Árdís - 01.01.1933, Side 49
47
1. A6 fundurinn láii í ljósi þakklæti sitt til Miss Olafsson og
Miss Bergson fyrir starf þeirra, er lýsir fórnfýsi og dugnaði, með
því að risa á fætur.
2. í öðru lagi, að þingið taki til umræðu og geri ákvörðun um
að færa út þetta starf og senda fjórar stúlkur næsta ár—tvær á sama
svæði og áður, og aðrar tvær á nýtt svæði. Að erindrekar haldi
þessari hugmynd vakandi heima fyrir til að glæða áhuga, svo fjórir
sjálfboðar fáist fyrir næsta ár.
Tillagan var studd af Mrs. B. Bjarnason. Fyrsti liður samþyktur
með því að allir stóðu á fætur. Eftir umræður um annan lið gerði
Mrs. Backman þá breytingar uppástungu að þingið feli framkvæmd-
arnefnd, í samráði við skólanefnd, að sjá um framkvæmdir. Studd
af Mrs. Jóhannesson. Samþykt.
Næsta mál á dagskrá var Heimilisgiiðsþjónustiir\
Málið var innleitt af Mrs. H. Olson. Benti hún á að lelagið
“rl'he American Altar League” væri reiðubúið að senda hlöð til þeirra
sem óskuðu eftir, blöð, sem útskýra þá aðferð, er félagið aðhyllist.
Eftir nokkrar umræður bar Mrs. G. M. Bjarnason fram eftirfylgjandi
tillögu. Mrs. W. Pétursson studdi:
“Þingið skorar á kvenfélögin að taka þetta mál fyrir að nýju
og lofa næsta þingi að vita hvaða l'ramkvæmdir hafa orðið á árinu. Og
ennfremur biður þingið presta kirkjufélagsins að útvega hin áminstu
hjálparrit “American Allar League.” ”
Var tillagan samþykt.
Næst var rætt um bindindismál. Var málið innleitt al' Mrs.
C. P. Paulson. Margar konur tóku þátt í umræðum um bindindi.
Mrs. Pétursson, Baldur, Man., benti á hlaðið “The Northern Messen-
ger.” Gerði Mrs. G. M. Bjarnason uppástungu, studda af Mrs. G.
Jóhannesson, að sameinaða kvenfélagið kaupi sýnishorn af þessu
hlaði og útbýti ineðal kvenfélaganna. Samþykt.
Mrs. G. M. Bjarnason var endurkosin erindreki félagsins að mæta
á l'undi “The Manitoba League Against Alcoholism.” Samþykt var
að borga árstillag til þessa l'élags.
Næst bauð forseti utanfélagskonum að taka lil máls. Var hoðið
þegið af: Mrs. Gillis, Glenboro, Man.; Mrs. G. Freeman, Upham,
N. Dak.; og Mrs. W. H. Paulson, Leslie, Saslc. Fóru þær allar lol'-
samlegum orðum um starf hins sameinaða kvenfélags, er þær sögðust
vera að kynnast í fyrsta sinn á þessu þingi.
Næst fór fram eftirfylgjandi skemtiskrá: Piano solo, Mrs. H.
Helgason; Erindi, “Barnið og náttúran,” Mrs. S. Guttormsson; Vocal
solo, Mrs. A. Hope.