Árdís - 01.01.1950, Page 28

Árdís - 01.01.1950, Page 28
26 ÁRDÍ S Guðrún bauð mér að lítast um hvar sem mér sýndist, svo ég fór í stóru stofuna á öðru gólfi sem er borð og setustofa í einu lagi og rúmar um hundrað manns. Báran hefir gefið bláa stóla, í samræmi við nafn sitt, borð og legubekki í minningu um Johannes Jónasson sem stundaði læknisstörf á frumbýlings árunum. Á veggnum er listaverk eftir Emil Walters. Hér sátu nokkrar konur, sumar að prjóna aðrar að lesa, allar svo vel búnar að ég hélt þetta væri einhver tillidagur. — Nei, þær sögðu það væri engin hátíð, þær væru svona búnar hversdagslega. Ég hafði orð á því við Jóhönnu hvað hárið hennar væri fallegt. „Ekki er það mér að þakka“ segir hún „Blessuð Ólína sér um að þvo á okkur hárið og hjálpa þeim sem ekki geta greitt sér“. „En Pálína hefur farið í snirtistofu" segi ég „lokkarnir hennar gráu sýna það“. „Já“, segir hún „ég fékk stúlku til að koma að gefa mér Tony wave“ (Pálína Thorðarson, frá Upham, var áður yfirsetukona í þessari bygð og mörgum kunn.) „Ertu að halda þér til fyrir ein- hverjum karlinum hérna“ sagði ég. „Kann vera“, svarar hún kankvís. „Bara að þú værir ekki altaf að flækjast hér“. Ég spyr Þuríði hvert hún viti hver hann sé „Líklega sá sem á nýja bílinn“, segir hún. „Allar kepptumst við að komast í framsæt- ið, en það verður líklega hún Begga matreiðslukona, allir hafa matar ást á henni.“ (Kristbjörg Ásmundson matreiðslukona.) Svo berst talið að því hve gaman var á öskudaginn þegar allir karlar voru látnir bera ösku — annan eins öskudag höfðu þær ekki lifað síðan á íslandi — líka var minnst á hve skemtilegt hefði verið á íllviðrisdögum í vetur að hlusta á Björn og Guðríði Thor- finnson — þarna kom Björn með bók í hendi, honum tekst svo snildarlega að skemta fólkinu — auk kvæða kann hann svo mörg sönglög, hann les manna best og segir svo vel sögur að unun er á að hlusta. — Ég spyr eftir Bjarna og er sagt að um þetta leyti sé hann að finna í eldhúsinu, þar sé hann að þurka diska. — Svo hitti ég Bjarna. Hann var búinn að þurka upp. „En hvað þú ert orðin spik feitur“ segi ég. — Samsinnir hann það og segist aldrei hafa átt eins gott á ævi sinni.“ Nú kemur Siggi með póstinn. Honum var gefin taska í jólagjöf til að bera póstinn í. Mér þykir vænt um að Siggi er á Borg. Hann er uppáhald allra í byggðinni. Siggi Johnson á engin náin skyldmenni, en prúðmenni eins og hann á alla að. Það er tilhlakk þegar hann útbýtir póstinum á Borg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.