Árdís - 01.01.1950, Page 46

Árdís - 01.01.1950, Page 46
44 ÁRDÍS töku kirkjuþingsins í Argyle, sem var eitt hið fjölmennasta þing, er Kirkjufélagið hefir háð, og þótti sú móttaka fara Argyle byggð svo vel úr hendi að orð var á haft. Frú Bentína vildi jafnan leysa verkefnin af hendi eins virðulega og myndarlega og kostur var á. Ég minnist þess, hve hún sómdi sér vel við hlið síns mikla á- gætismanns í kirkjunni; hve handtak þeirra beggja var hlýtt og brosið innilegt þegar þau heilsuðu sóknarbörnum sínum, og hve þau fögnuðu innilega gestum, sem til kirkjunnar komu. Já, ég minntist þessa, þegar ég sá hana ganga eina upp að prédikunar- stólnum í kirkjunni í Glenboro fyrir nokkrum vikum síðan. Hún hafði blóm í fanginu frá hinum gömlu vinum sínum, sem safnast höfðu saman til að fagna henni. „Þetta hljóta að vera þung spor fyrir hana“, hugsaði ég. „Mun þetta ekki buga þessa tilfinninga- næmu konu?“ — Hún sneri sér að okkur og leit yfir hópinn, og hún viknaði, — en svo lagði hún hendina á stólinn, þar sem maður hennar hafði staðið svo oft og flutt fögur huggunar- og blessunar- orð. Hún rétti úr sér: „Ég er hér aðeins hálf, vinir mínir, eins og þið vitið, en samt fagna ég því, að eiga þess kost, að hitta ykkur aftur og finna sömu tryggðina og ástúðina í minn og okkar garð eins og fyrr“. — Þarna stóð hún, þrekmikil og tíguleg kona, og talaði við okkur, gömlu vinina sína, blaðalaust, í hálftíma. Aldrei hefi ég dáðst að henni eins og þá“. ------☆------ Bentína Björnsdóttir giftist séra Friðrik Hallgrímssyni Sveins- sonar biskups árið 1900 og fluttist með honum það sama ár til Útskálaprestakalls; þar fæddust elztu dætur þeirra, frú Ellen Marie Hallgrímsson og frú Þóra Sólrún Fawdry. Árið 1903 fékk séra Frið- rik köllun frá söfnuðunum í Argyle. Þar dvöldu þau 22 ár og þar fæddust yngri börn þeirra: Hallgrímur Friðrik Hallgrímsson, frú Guðrún Ágústa Dewar-Brown og frú Esther Bentína Jackson. Þau hjón urðu frábærlega vinsæl og þótti Argyle-búum mikið fyrir því þegar þeir urðu að sjá á bak þeim, en séra Friðrik var kjörinn prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík og tók við því em- bætti árið 1925. Þar starfaði hann það sem eftir var æfinnar við mikinn orðstýr. Heimili þeirra þar, sem annarsstaðar, var rómað fyrir risnu og myndarskap, og þótti Vestur-íslendingum, sem voru á ferð á ís- landi, sérstaklega gott að koma þangað. Þeim var jafnan fagnað þar af mikilli ástúð, því aldrei brást tryggð þessara mætu hjóna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.