Árdís - 01.01.1950, Page 52
50
ÁRDÍS
MARÍA G. ÁRNASON
Árdís telur sér það heiður að birta mynd af þessari mikilhæfu lconu, ;eni
margar íslenzkar konur hafa kynst aÖ nokkru gegn um ljóÖ þau er birst hafa
eftir hana I Islenzkum blööum. Hér meö fylgir einn frumsaminn sálmur, enn-
fremur hin ágæta þýðing hennar á „Crossing the Bar“ — og einnig minningar-
orð skrifuð af sóknarpresti hennar og áður birt í Sameiningunni. — Ritstj.
Við kross þinn Jesú krýp ég hér
Við kross þinn Jesú krýp ég hér
því kraftur minn á þrotum er
og bölið synda brjóst mitt sker
Guð, blessað lamb. Ég kem, ég kem.
Ég hrekst um lífsins sorga sjó
og sál mín hvergi finnur ró.
En þinn fyrir kross sem bót mér bjó
Guð, blessað lamb. Ég kem, ég kem.
Ég er sem haustsins bliknað blað
sem bera stormar djúpi að.
En þitt fyrir svita blóðugt bað
Guð, blessað lamb. Ég kem, ég kem.
Ég kem til þín því önd mín á
ei annað neitt sem treysta má
þú ert mitt bjarg og borgin há
Guð, blessað lamb. Ég kem, ég kem.
Þú faðminn breiðir móti mér
þín miskun Drottinn grunla.us er.
Með hvert eitt sár sem brjóst mitt ber
Guð, blessað lamb. Ég kem, ég kem.
Þú huggar friðar hjartað þjáð
mitt hjálpráð dýrst í lengd og bráð.
Alt hefur bætt þín blessuð náð
Guð, blessað lamb. Ég kem, ég kem.