Árdís - 01.01.1951, Page 49

Árdís - 01.01.1951, Page 49
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna 47 Guðrún Þjóðbjörg Bíldfell 1899—1950 Guðrún Bíldfell var fædd í borginni Seattle í Bandaríkjun- um, 19. júlí, 1899. Foreldrar henn- ar voru heiðurshjónin, Ögmund- ur Jónsson Bíldfell, frá Bílds- felli í Grafningi í Árnessýslu og Sigríður Jónsdóttir Jónatansson- ar frá Haukafelli í Norður-Múla- sýslu. Barn að aldri fluttist Guð- rún með foreldrum sínum til Winnipeg þar sem heimili hennar var til dauða dags. Guðrún var meðal kvenmaður á hæð og fjörmikil, augun dökk og leiftrandi, hárið þétt og fíngert og sat eins og glæsileg kóróna yfir andlitssvip hennar, sem var í senn fríður, gáfulegur, góðlegur og kvenlegur en þó þróttmikill. Æfisaga þessarar merku konu verður ekki sögð hér, því það hefir verið rækilega og vel gjört og svo leyfir rúmið í Árdís það ekki, en á eitt eða tvö einkenni vil ég benda, því bæði eru þau lærdómsrík og eftirtektarverð. Innan við tvítugs aldur hafði hún myndað sér fasta lífsskoðun. Lífið er vanalega leikandi og hyllingakent á því tímabili æfinnar, en frá því var hún undantekning. Mér er enn í fersku minni sam- tal, sem að ég átti við Guðrúnu Bíldfell á námsárum hennar, eða réttara sagt, á skólaárum hennar, því að námsár hennar voru jafn mörg aldursárunum. Hún var altaf að nema, að læra og að þroskast andlega. Ég spurði hana hvað hún ætlaði sér á sviði mentunarinnar, hvort að hún væri að hugsa um að nema læknis- fræði, lögfræði eða einhver önnur fræði. Hún horfði alvarlega á mig dálitla stund og segir svo ákveðið: „Nei, ég veit að þeim stöð- um eru samfara hærri laun, ef að vel gengur, en ég hugsa ekki um launin fyrst eða fremst. Ég er að hugsa um hvar þörfin er brýnust og hvar ég get orðið að sem mestu liði — það er við Guörún pjóðbjörg BíldfeJl
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.