Árdís - 01.01.1951, Page 55
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna
53
Þessi síðustu ár kom hún í sóknarkirkju sína hvenær sem hún
mátti og heilsa hennar leyfði — oft af veikum mætti, — því heilsan
var veil síðari æviárin. — En mitt í önnum hinna fyrri daga —
þegar börnin hennar voru á bernskualdri — og ærnar annir að-
kallandi — gekk hún ásamt manni sínum og börnum þeirra í guðs-
hús, — og ásamt honum þjónaði hún í söngflokk safnaðarins, en
þar hafði hann um hríð forustu með höndum — og einnig á Sunnu-
dagaskóla; en alt starf safnaðarins, vöxtur þess og viðgangur var
þeim báðum til æviloka einkar hjartfólgið. —
Á kyrlátan og praktískan hátt bar hún heill og heiður safnaðar
síns fyrir brjósti og innti mikla þjónustu af hendi í þarfir hans
með fúsum og glöðum hug.
í Selkirk-bæ innti hún af hendi aðalskyldur ævidags síns með
festu, skyldurækni og ráðnum huga. Eiginmanni sínum var hún
mikil og trúföst stoð á langri samfylgd þeirra; en börnum sínum
skilningsrík og sönn móðir, er bar hag allra þeirra er Guð hafði
gefið henni til að elska og annast fyrir brjósti. —
Hún hafði þá skapgerð og lyndiseinkunnir að vöggugjöf þegið
er ávann sér affarasæla og trygga vini — og átti því djúp ítök í
margra hjörtum. Fáorð var hún við fyrstu kynningu, alvarleg og
háttprúð, en átti mikla hjartahlýju — til þeirra er hún tók trygðir
við — og varð sannur og trúr vinur er treysta mátti.
í hinu eldra kvenfélagi Selkirk safnaðar hafði hún starfað
lengur en nokkur önnur kona — og var heiðurs-lífstíðar meðlimur
félagsins. Þar hafði hún innt af hendi margþætt störf — verið til-
lögugóð og gætin — ógleymanleg starfssystir; — fylgja henni fram
á veg hjartfólgnar þakkir starfssystra hennar, — fyrir vel unnin
störf með gleði af hendi leyst, — á hinum mörgu hjáliðnu árum.
Við burtför hennar er nú autt sæti er áður var vel skipað; —
söknuður í hugum ættmenna hennar, vina og samferðafólks, jafn-
fiamt þakklæti fyrir liðinn dag og unnin störf — og örugga von
um endurfundi á eilífðarströndum — er „Ættmennahópurinn allur
að ættlandi kærleikans snýr“.
S. Ólafsson