Morgunblaðið - 18.01.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.01.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is SVO gæti farið að samtök skógarbænda þyrftu að keyra milljón trjáplöntur á haugana í vor. Samningar voru gerðir um kaup á plöntum í fyrra og við þá verður að standa. Hins vegar er útlit fyrir að skógarbændur hafi ekki bolmagn til að koma þeim í jörð vegna kostnaðar. Björn B. Jónsson, framkvæmdastjóri Suður- landsskóga og Landssamtaka skógareigenda, segir að niðurskurður á fjárveitingum nemi um 20% í öllum fjórðungum nema á Austurlandi, en skógarverkefnið þar hafi staðið betur að vígi. Auk þess glími skógarbændur við óðaverðbólgu eins og aðrir. „Þetta er gríðarmikill niðurskurður og að mörgu leyti er erfitt að mæta honum,“ segir Björn B. Jónsson. „Á síðasta ári gerðu lands- hlutaverkefni í skógrækt samninga um kaup á um fjórum milljónum trjáplantna eftir útboð hjá Ríkiskaupum. Samningar eru undirritaðir og bú- ið að framleiða plöntur sem bíða vorsins í geymslum hjá framleiðendum. Í þessum lið er ekki hægt að skera niður um krónu og bitnar niðurskurðurinn því af tvöföldu afli á gróð- ursetningunni. Við eigum ekkert val og verðum að taka plönt- urnar sem við verðum einhvern veginn að losna við aftur. Mér finnst líklegra að við keyrum þessar milljón plöntur á haugana heldur en að við finnum kaupanda að þeim í þessu árferði en það verður að sjálfsögðu kannað.“ Björn segir að plönturnar verði ekki gefnar því það raski markaðnum og stöðu framleiðenda. Missa samningsbundnar tekjur Á öllum svæðum verði færra fólk við störf heldur en síðustu ár en sums staðar hafi starfs- menn boðist til að minnka starfshlutfall til að halda vinnunni. Niðurskurðurinn bitni á mörg hundruð bænd- um því laun þeirra lækki verulega milli ára. Samningar hafi verið gerðir til a.m.k. 10 ára og margir bændur reikni með föstum árlegum tekjum af skógræktinni en verði nú að sæta 20- 30% skerðingu. Þá geti skólafólk sem komi í heimabyggð á sumrin ekki gengið að störfum við skógrækt eins og áður. Milljón trjáplöntur á haugana  Skógarbændur hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að gróðursetja í vor allar þær plöntur sem samið var um fyrir kreppu  Niðurskurður bitnar á mörg hundruð bændum víðs vegar um land Í HNOTSKURN »Um 80% af fjárframlögumríkisins fara í launakostn- að bónda, starfsmanna og plöntuframleiðanda. »Plöntukaup nema 35-40%kostnaðar, laun bónda eru svipað hlutfall. Um 20% eru annar kostnaður. »Nær 800 bændur og land-eigendur víða um land eru þátttakendur í landshluta- verkefnum í skógrækt og skjólbeltaræktun. »Markmið stjórnvalda umskógrækt nást ekki í ár. Morgunblaðið/Kristinn Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is NÝIR tímar eru framundan í Fram- sóknarflokknum, líkt og almennt á Íslandi. Þetta var meginþemað hjá mörgum sem tóku til máls í almenn- um umræðum á flokksþingi Fram- sóknar í gær og lögð var rík áhersla á að flokksmenn gengju samhentir út af þinginu undir nýrri forystu. Fundurinn fór rólega af stað og svo virtist sem ákveðins spennufalls gætti eftir mikla Evrópuumræðu daginn áður. „Ég er mjög bjartsýn, við erum að svara kalli tímans,“ sagði Siv Frið- leifsdóttir og áréttaði að flokkurinn stæði á miklum tímamótum. Allt betra en íhald og afturhald Hafliði Jósteinsson sagði að ís- lenskt samfélag ætti ekki lengur að líða það að hafa blaðrandi fólk inni á Alþingi sem talaði heilmikið en segði ekki neitt. Vísaði hann til Samfylk- ingarinnar og fór heldur ekki blíðum orðum um Sjálfstæðisflokkinn: „Hristum af okkur ok hinnar bláu krumlu,“ sagði Hafliði. Þórir Ingþórsson sagði flokkinn hafa rekið af leið og að nú þyrfti að stýra honum í rétta átt. „Allt er betra en íhald og afturhald,“ sagði Þórir og lagði áherslu á að Ísland gengi í Evrópusambandið þar sem það væri miklu ódýrara og hagstæð- ara en leið einangrunar. Nýir tímar framundan  Framsóknarmenn leggja áherslu á að ganga samhentir út af flokksþinginu  Nýr formaður verður kosinn í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Halló Karl Gunnlaugsson heilsar hér upp á hjónin Guðrúnu Þorkelsdóttur og Jón Helgason, fyrrverandi landbúnaðarráðherra. ELDRI drengurinn sem slasaðist þegar hann var ásamt yngri bróður sínum að útbúa heimatilbúna sprengju úr flugeldi í Grindavík sl. föstudag fór í umfangsmikla augn- aðgerð og aðgerð á höndum aðfara- nótt laugardags. Samkvæmt upplýsingum frá lækni á augndeild Landspítalans er líðan drengsins eftir atvikum og var búist við að hann yrði útskrif- aður yfir á barnadeild spítalans í gær. Áverkar yngri drengsins voru minni og var hann útskrifaður sl. föstudag. Að sögn læknisins er sér- lega hættulegt að taka svonefndar vítisskottertur í sundur þar sem þær geta sprungið hvenær sem er, jafnvel þótt ekki sé verið að bera að púðrinu opinn eld. Drengurinn fór í augn- aðgerð ÚTFLUTNINGUR Eimskips á bú- slóðum hefur aukist talsvert miðað við sama tíma í fyrra. „Útflutning- urinn um þessar mundir er svip- aður og hann er almennt yfir sumarmán- uðina,“ segir Heiðrún Jóns- dóttir, fram- kvæmdastjóri lögfræði- og samskiptasviðs Eimskips. Að sögn Heið- rúnar hefur fyrirspurnum um bú- slóðaflutninga fjölgað verulega að undanförnu. „Það er mikið hringt og spurt um flutninga á búslóðum til útlanda, einkum til Norður- landanna. Fólk er greinilega að kynna sér málin. Miðað við fjölda fyrirspurna mætti ætla að einhver skriða flutninga sé að fara af stað.“ Sáralítið hefur hins vegar verið að gera í innflutningi á búslóðum, að því er Heiðrún greinir frá. Anna Guðný Aradóttir, markaðs- stjóri hjá Samskipum, segir að fyr- irspurnum um flutning á búslóðum til útlanda hafi fjölgað gífurlega frá sama tíma í fyrra. „Okkur finnst þetta vera ákveðin vísbending. Við merkjum hins vegar ekki enn aukn- ingu í bókunum.“ ingibjorg@mbl.is Aukinn út- flutningur á búslóðum VINNUBRÖGÐUM heilbrigðis- ráðherra við undirbúning að sam- einingu heilbrigðisstofnana er harðlega mótmælt í ályktun sem Herdís Á. Sæmundardóttir lagði fram ásamt fleirum á flokks- þinginu í gær. Í ályktuninni segir að ljóst sé að þjónusta skerðist á einstaka svæðum og kostnaður sjúklinga aukist, t.d. vegna langra ferðalaga. Dýrari og lakari heilbrigðisþjónusta EINAR Gíslason lagði fram ályktun á framsóknarþinginu í gær þess efnis að Alþingi yrði leyst upp og skipuð neyðarstjórn. Henni yrði síðan falið að semja nýja stjórn- arskrá, sem yrði lögð í þjóðar- atkvæði og kosið til þings í fram- haldinu. „Þeir sem komu þjóðinni í þessa klípu eru ekki hæfir til að dæma eigin verk,“ sagði Einar. Neyðarstjórn og þingið heim ENGIN meiðsl urðu á fólki þegar kviknaði í bif- reið eftir bílveltu skammt frá Hítará á Snæfells- nesvegi sl. föstudag. Samkvæmt upplýsingum frá Bifreið alelda eftir veltu við Hítará lögreglunni í Borgarnesi voru tveir farþegar í bílnum auk ökumanns þegar hann missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann valt á hlið- ina og endaði utan vegar. Fólkinu tókst að komast út úr bílnum af sjálfsdáðum og slapp allt án meiðsla. Bíllinn brann til kalda kola.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.