Morgunblaðið - 18.01.2009, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.01.2009, Qupperneq 4
4 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009  Argentína stóð fast á sínu, landið gat ekki borgað. Að endingu var gert samkomulag við þá lán- ardrottna sem áttu 76 prósent af ríkisskuldabréfum landsins um að greiða á bilinu 25 til 35 prósent af nafnvirði þeirra á mun lengra tíma- bili en áður var áætlað. Á meðal þeirra sem ríkið skuldaði var Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF). Ekki var þó veittur afsláttur á lán- um sjóðsins. Samið við lánardrottna um niðursettar skuldir  Argentína fór í gegnum mikla efnahagskreppu sem náði hámarki á árunum 1999 til 2002. Snemma á tíunda áratugnum, áður en krepp- an skall á, var talað um „efnahags- undrið Argentínu“ og erlent fjár- magn streymdi inn í landið, ekki ósvipað því og gerðist á Íslandi á síðustu árum. Efnahagskreppan í Argentínu  Landið lenti í vanskilum með erlendar skuldir sínar í byrjun árs 2002, samtals um 141 milljarð dala, eftir að erlent fjármagn flúði frá Argentínu í hrönnum án þess að nokkuð kæmi inn í staðinn. Arg- entína neitaði að borga af erlendum lánum og lýsti því í raun yfir gjald- þroti. Í kjölfarið var gjaldmiðilinn, arg- entíski pesóinn, settur á flot, en hann hafði áður verið bundinn við bandaríska dalinn. Gengi hans hrundi hins vegar með þeim afleið- ingum að verðbólga rauk upp, fimmtungur vinnufærra manna varð atvinnulaus og milljónir manna færðust undir fátækramörk. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) veitti landinu himinhá lán til að verja gengi pesóans en allt kom fyr- ir ekki. Vanskil leiddu af sér flótta erlends fjármagns  Argentína þurfti að endur- fjármagna erlendar skuldir sínar en lenti í stökustu vandræðum með það. Kröfuhafar landsins, sem voru meðal annars hrægamma- sjóðir sem höfðu keypt rík- isskuldabréf á niðursettu verði, heimtuðu á sama tíma að þeim yrði greitt samstundis. Argentína átti hins vegar nánast ekkert laust fé og gjaldeyrisvaraforði seðla- banka landsins var nánast upp- urinn. Í kjölfarið varð Argentína nokkurs konar úrhrak á alþjóð- legum fjármálamörkuðum. Þrátt fyrir að efnahagsástand landsins lagaðist eilítið voru skuldir þjóð- arinnar samt sem áður þær hæstu sem hafa verið í vanskilum, um 93 milljarðar dala, og Argentína gat með engu móti greitt þær án þess að fórna nauðsynlegum innviðum í stjórnkerfi sínu. Kröfuhafar heimtuðu greiðslur af lánum Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is Þ ær skuldir sem ríkissjóður hefur stofnað til á undanförnum mánuðum eru miklar. Ef skuldirnar sem eru óháðar bankahruninu eru lagðar saman við þær sem hafa skapast vegna þess reiknast Morgunblaðinu til að sam- tals sé um að ræða 2225,6 milljarða króna auk þeirra lána sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) og ýmsar vinaþjóðir ætla að veita okkur, samtals 643,6 milljarða króna, til að efla gjald- eyrisvaraforða Seðlabankans og til útgáfu rík- isverðbréfa. Samtals er því um brúttókostnað upp á 2869,2 milljarða króna að ræða. Í raun má skipta þessum skuldum í þrennt. Í fyrsta lagi núverandi skuldir ríkisins án tillits til þeirra skulda sem bankahrunið mun hafa í för með sér, í annað stað kostnað vegna endur- fjármögnunar á nýju bönkunum þremur og Seðlabankanum og að lokum lántökur vegna beinna áhrifa af bankahruninu. Núverandi skuldir ríkissjóðs aðeins brot Á þriðjudag var tilkynnt að skuldir ríkissjóðs utan þeirra sem stofnað verður til vegna banka- hrunsins séu 653 milljarðar króna. Stærsti hlut- inn, 335 milljarðar króna, er innlendar skuldir. Þar er um að ræða útgefin ríkisbréf, ríkisvíxla og spariskírteini. Erlend langtímalán ríkisins eru samtals sögð 318 milljarðar króna. Til viðbótar við þessar skuldir bætist 154 millj- arða króna halli á fjárlögum ársins 2009 sem þarf að fjármagna með skuldabréfaútgáfu. Í 5. grein fjárlaganna er Árna Mathiesen fjármálaráðherra veitt heimild, fyrir hönd ríkissjóðs skattgreið- enda, til að að taka lán upp á 160 milljarða króna vegna þessa halla. Endurfjármögnun kerfisins Samkvæmt bráðabirgðaefnahagsreikningi nýju bankanna þriggja þarf ríkið að leggja þeim til samtals 385 milljarða króna í nýtt eigið fé. Sú upphæð er þó ekki meitluð í stein og gæti auð- veldlega orðið hærri þar sem mat á eignum og skuldum nýju bankanna liggur enn ekki fyrir. Auk þess er ljóst að ef bönkunum gengur illa að innheimta viðskiptakröfur sínar á fyrirtæki og heimili í landinu mun ríkið þurfa að leggja þeim til enn meira fjármagn. Seðlabankinn þurfti einnig á endurfjármögnun að halda. Hann átti veðlánakröfur upp á 345 milljarða króna sem ljóst var að myndu ekki inn- heimtast nema að litlum hluta. Ríkið greip inn í á mánudag og tilkynnti að það myndi kaupa kröf- urnar af Seðlabankanum á 270 milljarða króna og greiddi fyrir með skuldabréfi. Mismunurinn, 75 milljarðar króna, skrifast sem tap á Seðlabank- ann. Ljóst þykir að ríkið reiknar ekki með því að innheimta mikinn hluta af veðlánunum því í rík- isreikningi ársins 2008 er áætlað tap vegna þeirra skráð um 220 milljarðar króna. Þá er tap Seðlabankans vegna skortsölu áætlað um 35 milljarðar króna og enn er alls óljóst hversu mik- ið fæst greitt fyrir danska bankann FIH Er- hvervsbank sem Seðlabankinn tók í veð fyrir 83,6 milljarða króna láni til Kaupþings í byrjun októ- ber. Miklar lántökur vegna bankahruns Að síðustu þarf íslenska ríkið að fá lánað vegna beinna afleiðinga af bankahruninu. Þar ber fyrst að nefna alls 5,1 milljarðs dala lán, 643,6 millj- arða króna, til að efla gjaldeyrisvaraforða Seðla- bankans og vegna útgáfu ríkisverðbréfa. IMF mun sjálfur lána okkur 265 milljarða króna til þessara gjörða. Auk þess ætla Danir, Svíar, Norðmenn, Finnar, Færeyingar, Pólverjar og Rússar að lána okkur samtals 378,6 milljarða króna í sama tilgangi. Við þetta allt saman bætast lánveitingar vegna Icesave- og Edge-netreikninganna sem Íslend- ingar hafa samþykkt að ábyrgjast fyrir trygg- ingasjóð innstæðueigenda. Sú upphæð er áætluð um 695 milljarðar króna. Enn er ósamið um lána- skilmála þeirra lána. Til að mæta þeim afborg- unum verða eignir gamla Landsbankans seldar en fyrir liggur að hluti kostnaðarins mun lenda á skattgreiðendum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Yfirvofandi skuldasúpa  Reikningur skattgreiðenda vegna bankahrunsins er vel á þriðja þúsund milljarða króna  Eignir gömlu bankanna verða seldar á móti  Óljóst hversu mikið lendir á þjóðinni Morgunblaðið/Ómar Seðlabankinn Íslenska ríkið tilkynnti í vikunni að það hefði keypt veðkröfur Seðlabankans. Fjármálaráðherra, Árni Mat- hiesen, sagði nýverið að hann vonaðist til þess að heildar- skuldir Íslands yrðu komnar niður í um þúsund milljarða eftir fjögur ár. Í fjárlögum kemur fram að vaxta- gjöld ríkisins verði 86,9 milljarðar króna á árinu 2009. Heildartekjur ríkissjóðs á þessu ári eru áætlaðar um 402 milljarðar króna og því fer tæplega fjórða hver króna, um 22 prósent af heildarútgjöldum, sem kemur í ríkiskassann í það að greiða vexti af lánum. Á fjárlögum ársins 2008 var áætlaður vaxta- kostnaður 21,8 milljarðar króna, eða 4,6 prósent af heildartekjum ríkissjóðs. Hann varð þó tæp sjö prósent á endanum eftir endur- skoðun og er viðbótin að mestum hluta tilkomin vegna lántöku í kjöl- far bankahrunsins. Á þessum töl- um sést hversu hratt vaxtakostn- aðurinn hefur aukist á undanförnum mánuðum. Enn á þó eftir að reikna með flestum þeim lánum sem ríkið þarf að taka í kjöl- far bankahrunsins. Því skiptir miklu máli að vel takist til þegar samið er um lánakjör. Aðeins byrjunin Samkvæmt aðgerðaráætlun Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) fyrir Ísland mun samanlagður halli rík- issjóðs fram til ársins 2011 verða 470 milljarðar króna. Þennan hallarekstur á að fjármagna með útgáfu skuldabréfa innanlands. Sé gert ráð fyrir því að bréfin beri fimm prósent vexti, sem er varlega áætlað, mun vaxtakostnaður þeirra á tímabilinu verða um 280 millj- arðar króna. Þá verður lán IMF til Íslendinga til styrkingar gjaldmiðlinum með 4,5 prósent breytilegum vöxtum. Ef sú prósentutala myndi haldast óbreytt allan lánstímann væru ár- legar vaxtagreiðslur vegna þeirra um 29 milljarðar króna. Heildarlántökukostnaður vegna viðbótarlána þeirra ríkja sem hafa samþykkt að lána Íslandi það sem upp á vantar liggur þó ekki fyrir. Enn er ósamið um lánaskilmála og vaxtakostnað þeirra lána sem íslenska ríkið þarf að ábyrgjast vegna Icesave- og Edge-reikning- anna. Ekki hefur tekist að semja við sameiginlega sendinefnd Breta, Hollendinga og Þjóðverja um lánakjör þó að samkomulag sé um heildarupphæðina, um 695 milljarða króna. Erfitt er að áætla vaxtakostnað vegna þessa þar sem viðræðunum er enn ekki lokið en ljóst er að hann verður umtals- verður. Þegar hefur komið fram að það muni taka þrjú til fjögur ár að selja eignir Landsbankans til að mæta þessum skuldum og þrátt fyrir að þær seljist allar á við- unandi verði muni kostnaður skattgreiðenda samt vera að minnsta kosti 150 milljarðar króna auk vaxtagreiðslna. Miklu máli skiptir hvernig semst um lánakjör

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.