Morgunblaðið - 18.01.2009, Qupperneq 8
8 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
E
kki eru nema tveir dagar þar til Bar-
ack Obama tekur við embætti
Bandaríkjaforseta. Hann hefur haft
tvo og hálfan mánuð til að undirbúa
sig, leggja línurnar og velja ein-
staklinga í ráðherrastóla og helstu embætti í Hvíta
húsinu. Allt hefur þetta gengið áfallalaust að
mestu. Obama hefur yfirleitt verið hrósað við skip-
un í embætti. Val hans á fólki þykir henta til þess
að sameina demókrata og má nefna að fjórir ein-
staklingar, sem sóttust eftir því að vera í framboði
fyrir hönd demókrata verða meðal hans nánustu
samstarfsmanna. Skiptir þar mestu ákvörðun
hans um að setja utanríkismálin í hendur Hillary
Clinton, sem veitti honum harða keppni í forkosn-
ingunum og fyrirfram var talin sigurstranglegri.
Gagnrýndi hún Obama harðlega vegna reynslu-
leysis, sérstaklega í utanríkismálum. Hinir eru
Tom Vilsack, sem gaf kost á sér en dró sig til baka
áður en forkosningarnar hófust. Hann verður
landbúnaðarráðherra. Bill Richardson verður við-
skiptaráðherra og Joe Biden varaforseti.
Val hans á Clinton er reyndar snjallt að því leyti
að ætli hún að láta taka mark á sér í embætti verð-
ur hún að fylgja forsetanum að málum. Á hinn
bóginn skapar það henni ágæta vígstöðu að erfitt
yrði fyrir Obama að láta hana fara án þess að það
skaðaði flokkinn.
Þá sýnir Obama repúblikönum þá
virðingu að hann lætur Robert Ga-
tes sitja áfram í stóli varnar-
málaráðherra. Hann ætlar að
leggja áherslu á heilbrigðismál og
það mun án efa hjálpa honum að
koma erfiðum breytingum í gegn-
um þingið að einn af leiðtogum
demókrata þar, Tom Daschle,
verður heilbrigðisráðherra. Val
hans á Steven Chu, sem árið 1997
fékk nóbelsverðlaunin í eðlisfræði, í
embætti umhverfisráðherra hefur gef-
ið honum trúverðuleika í augum
umhverfissinna.
Einbeiting
og staðfesta
Verðandi forseti
þykir hafa sýnt
sömu einbeitinguna
og staðfestuna við
undirbúning valda-
tökunnar og hann
gerði í kosninga-
baráttunni. Hann
setur sér markmið
og lætur ekki slá
sig út af laginu,
sama hvað á dyn-
ur. Það skýrir
hins vegar ekki til
hlítar þann mikla
velvilja, sem fylgir
honum. Samkvæmt
skoðanakönnun, sem
CNN birti á aðfangadag
eru 82% Bandaríkja-
manna ánægð með það hvernig Obama hefur stað-
ið að undirbúningnum fyrir að taka við. Það er
fimmtán prósentustigum meira en bæði George
W. Bush og Bill Clinton þegar þeir settust í for-
setastól og hefur því verið haldið fram að enginn
verðandi forseti hafi haft slíkan meðbyr frá því að
byrjað var að gera slíkar kannanir. Nýtur
Obama til dæmis næstum því helmingi
meira trausts í efnahagsmálum en Clinton
gerði áður en hann settist í embætti í
janúar 1993.
Obama er nokkur vandi á höndum nú
þegar hann tekur við. Miklar vonir eru
bundnar við hann en hann verður að
gæta þess að byggja ekki upp slíkar
væntingar að almenningur verði óþol-
inmóður skili breytingar sér ekki sam-
stundis.
Aðstoðarmenn Obama hafa sagt
fjölmiðlum að hann hafi farið
rækilega yfir það hvernig
Franklin D. Roose-
velt hóf sitt
fyrsta kjör-
tímabil. Roose-
velt var kosinn
á tímum
kreppu og lagði
sérstaka
áherslu á að
koma miklu í
verk fyrstu
hundrað dagana
í embætti. Að-
gerðum sínum
fylgdi hann eftir með reglulegum ávörpum til
bandarísku þjóðarinnar. Mun Obama ætla að efna
til samræðna við Bandaríkjamenn með svipuðum
hætti. Hann vill koma því til skila að mikið liggi við
og þingið verði að hafa hraðar hendur en þó ekki
vera það svartsýnn að það grafi undan mörkuðum
og dragi kraft úr almenningi.
Hann hefur sagt að hann hafi undirbúið sig fyrir
innsetningarræðuna með því að lesa skrif Abra-
hams Lincolns.
Reyndar hafa aðstoðarmenn Obama sagt að
tempra þurfi væntingar almennings allt frá því að
hann sigraði í kosningunum í nóvember og það er
engin furða. Hann erfir tvö stríð frá Bush, annað í
Afganistan, hitt í Írak, svimandi fjárlagahalla –
hann er tvöfalt meiri en í fyrra og þá var líka sett
met – og efnahagslíf í upplausn.
Endurreist traust til ríkisvaldsins?
Obama segir að „aðeins ríkisstjórnin geti rofið
vítahringinn sem er að lama efnahagslífið“. En
hvað þýðir það? Ronald Reagan sagði á sínum
tíma að ríkisvaldið væri ekki lausnin á vandanum,
ríkisvaldið væri vandinn. Meira að segja Bill Clin-
ton lýsti yfir því um miðbik forsetatíðar sinnar að
tími ríkisbáknsins væri liðinn.
Ekki eru þó allir þingmenn á því að lausnin á
efnahagsvandanum sé að dæla peningum linnulítið
út í efnahagslífið. Efasemdarraddirnar eru hávær-
ari í röðum repúblikana, en þær heyrast einnig hjá
demókrötum. En eru þessir þingmenn tilbúnir að
standa uppi í hárinu á vinsælum forseta? Stuðn-
ingurinn við Obama nær nefnilega ekki til flokks-
félaga hans á þingi. Aðeins 41% þingmanna demó-
krata nýtur velþóknunar kjósenda samkvæmt
könnun Politico/Allstate í árslok og 24% repúblik-
ana. Samkvæmt sömu könnun studdu þá 63%
Bandaríkjamanna Obama og 79% áætlun hans um
að örva efnahagslífið.
Obama hyggst leggja áherslu á að kynna áætl-
anir sínar og aðgerðir rækilega fyrir almenningi
og lítur hann og hans nánustu aðstoðarmenn svo á
að það hafi mistekist hrapallega hjá Bush-
stjórninni. Obama hefur meðbyrinn. Spurningin
er hvernig honum tekst að nýta hann.
Nýr forseti í meðbyr
Nýr forseti tekur við völdum í Bandaríkjunum með mikinn stuðning almennings Tvær
styrjaldir, svimandi fjárlagahalli og alþjóðlegur efnahagsglundroði bíða Baracks Obama
Eftirlíking Vaxmynd
af Barack Obama,
verðandi Bandaríkja-
forseta, hefur nú verið
komið fyrir í vaxmynda-
safni Madame Tussauds í
New York.
Reuters
Minjagripir Alsiða er að bollar, nælur og fleira séu á boðstólum til að kynna frambjóðendur, en menn
minnast þess ekki að jafn mikið hafi verið framleitt og nú af slíkum varningi eftir að kjöri var náð.
Þegar Elizabeth Alexander fékk í
mars 2007 verðlaun, sem veitt
eru ljóðskáldum sem búa yfir ein-
stökum hæfileikum en ekki hafa
hlotið viðurkenningu á landsvísu,
hefur hana sennilega ekki grunað
að tæpum tveimur árum síðar
myndi hún fara með ljóð við inn-
setningu næsta forseta Bandaríkj-
anna í embætti.
Verðandi forsetar hafa ekki gert
mikið af því að kalla til ljóðskáld
þegar þeir hafa svarið embættis-
eið. John F. Kennedy gerði það
fyrst og leitaði þá til hins virta
skálds Roberts Frosts. Frost orti
nýtt ljóð í tilefni af athöfninni, en
20. janúar 1961 var hvasst og sól-
in endurkast-
aðist af ný-
föllnum snjó
þannig að
skáldið gat ekki
lesið textann.
Þess í stað fór
Frost, sem þá
var 86 ára gam-
all, með gamalt
ljóð eftir minni.
Haft hefur
verið á orði að það hafi verið eins
gott því að ljóðið sem hann orti
hafi verið svo uppskrúfað og upp-
hafið að það hafi verið á skjön við
megnið af hans kveðskap.
Bill Clinton kallaði skáldkonuna
Mayu Angelou til þegar hann tók
við embætti 1993 og þegar seinna
kjörtímabil hans hófst 1997 fékk
hann Miller Williams til að yrkja.
Athygli vekur að aðeins demó-
kratar hafa fengið ljóðskáld til að
kveða við innsetningu sína, en þó
er hermt að repúblikanar séu alls
ekki frábitnir hugmyndinni. Því
má bæta við að Kennedy veitti
Clinton innblástur og Obama er
iðulega líkt við Kennedy.
Elizabeth Alexander kennir við
Yale-háskóla. Hún er 46 ára göm-
ul og því af sömu kynslóð og
verðandi forseti, sem hún hefur
þekkt í tíu ár. Jafnréttisbarátta
blökkumanna er henni í blóð bor-
in, ef svo má segja. Móðir hennar
er prófessor og kennir sögu
blökkukvenna. Faðir hennar var
ráðgjafi Lyndons B. Johnsons,
þegar hann var forseti, í jafnrétt-
ismálum kynþátta í Bandaríkj-
unum.
Alexander kann að meta að
hafa fengið þetta tækifæri og ótt-
ast ekki að viðhöfnin í kringum
innsetninguna beri skáldskap-
argáfuna ofurliði. Hún kveðst bera
mikla virðingu fyrir Obama og
umgengni hans við tunguna. „Mál
hans er mjög auðugt og nákvæmt,
en aldrei ýkjukennt,“ segir hún og
bætir við: „Ég mun taka það mér
til fyrirmyndar.“
Ljóðskáld á stalli við innsetninguna
Elizabeth
Alexander
George W. Bush, fráfarandi for-
seti, virðist hafa gert sitt besta til
að greiða fyrir valdaskiptunum.
Þegar stjórn Clintons fór frá völd-
um voru unnin ýmis skemmdarverk
í Hvíta húsinu og meðal annars
fjarlægðir allir hnappar með stafn-
um W af lyklaborðum. Starfslið
Bush hefur hins vegar lagt kapp á
að aðstoða arftaka sína þótt ljóst sé
að þeim muni fylgja nýjar og gjör-
ólíkar áherslur. Sennilega ráða þar
miklu þau gríðarlegu vandamál
sem bíða nýs forseta, bæði heima
fyrir og erlendis.
Haldnir hafa verið reglulegir
fundir með liðsmönnum Obama og
um þúsund manna hópi í kringum
hann hefur verið veittur aðgangur
að viðkvæmum upplýsingum.
Einnig hafa liðsmenn fráfarandi
og verðandi stjórna hist til að æfa
viðbrögð við árás hryðjuverka-
manna. Ástæðan er sú að hryðju-
verkamenn leita iðulega færis þeg-
ar andstæðingurinn er óviðbúinn
og vilja menn ekki láta koma aftan
að sér á meðan á valdaskiptunum
stendur.
Bush greiðir fyrir
valdaskiptum
Ný stjórn
ætlar að örva
efnahaginn
með á milli 700
og 1.000 millj-
örðum dollara.
Obama hyggst leggja mikla áherslu
á að efla innviði Bandaríkjanna,
endurnýja vegakerfið og gera upp
opinberar byggingar og skóla um
allt landið til samræmis við kröfur
nútímans.
Ýta á undir atvinnu og neyslu,
meðal annars með því að gefa fyr-
irtækjum, sem fjölga störfum,
skattaafslátt og lækka skatta þorra
vinnandi manna. Sömuleiðis á að
bæta hag atvinnulausra.
Fjárfrekar aðgerðir til að
örva efnahagslífið
Obama hefur
heitið því að 10%
af því rafmagni,
sem Bandaríkja-
menn nota, verði
framleitt með
endurnýjan-
legum orkugjöf-
um árið 2012 og
sú tala verði
komin upp í 25% árið 2025. Hann
ætlar að draga úr útblæstri gróð-
urhúsalofttegunda um 80% fyrir
2050. Einnig hefur hann hug á að
setja útblásturskvóta líkt og gert
hefur verið í Evrópusambandinu og
er ráðgert að hægt verði að versla
með heimildirnar.
Margt lofar góðu í áætlunum
Obama, en hafa verður í huga að
við rótgróna og öfluga sérhags-
muni verður að etja.
Sérhagsmunir geta hindr-
að áform í orkumálum
Samkvæmt áformum Obama um
að kveðja bandarískt herlið skipu-
lega brott frá Írak færi síðasti her-
maðurinn heim í sumar. Andstaða
hans við Íraksstríðið átti ekki lítinn
þátt í velgengni hans í forkosning-
unum. Obama hyggst hins vegar
fjölga hermönnum í Afganistan.
Obama ætlar að loka fangelsinu í
Guantanamo á Kúbu þar sem grun-
aðir hryðjuverkamenn hafa verið
geymdir og iðulega sætt illri með-
ferð og verið pyntaðir. Hann hefur
sagt að verði því ekki lokið innan
tveggja ára hafi stjórn sín brugðist.
Írak, Afganistan og end-
urreisn mannréttinda