Morgunblaðið - 18.01.2009, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 18.01.2009, Qupperneq 18
18 Samfélagsmál MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 Polarolje Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarma starfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verlsun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, og Melabúð Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Fiskbúðinni Trönuhrauni Sími 555 2992 og 698 7999 V ið ákváðum að kort- leggja nemendahóp- inn fyrir um þremur árum og niðurstaðan var að upp undir helmingur nemenda var með við- bótargreininguna einhverfu. Og þá förum við að skoða hvað við getum gert til að bæta kennslu og þjón- ustu fyrir nemendur skólans,“ seg- ir Dagný Annasdóttir, skólastjóri Öskjuhlíðarskóla. Í framhaldinu var ákveðið að efla úrræði fyrir einhverfa í skól- anum og hluti af því var að setja upp sértaka skynörvunaraðstöðu við skólann. „Börn með einhverfu hafa í flestum tilfellum skertar skynstöðvar,“ útskýrir Dagný. „Þau geta haft truflað sjónskyn, heyrnarskyn, jafnvægisskyn, sárs- aukaskyn eða bragðskyn sem gerir það að verkum að þau skynja heiminn ekki eins og við hin.“ Í skynörvunaraðstöðunni er unnið með ólíkar skynstöðvar og reynt að skapa róandi andrúmsloft til að draga úr áreitum. Þar fá börnin tækifæri til að kynnast ólíkum áferðum efna, þau eru nudduð til að örva snertiskynið, róandi hljóð og tónlist er spiluð og útbúnaður á borð við hengirúm og vatnsrúm er nýttur til að þjálfa upp jafnvæg- isskyn, svo eitthvað sé nefnt. Einhverfir um helming- ur nemenda Fyrir ári var einnig komið á fót stöðu ráðgjafaþroskaþjálfa við skólann, að sögn Dagnýjar. „Hann veitir kennurum og foreldrum ein- hverfra nemenda ráðgjöf auk þess að sinna ráðgjöf á landsvísu.“ Mál í myndum Aðallega eru notaðar þrjár að- ferðir við þjálfun nemendanna í skólanum að sögn Dagnýjar. Svo- kallað TEACCH-kerfi gengur fyrst og fremst út á skipulögð vinnubrögð þar sem dagsskipulag nemandans er sett upp á mynd- rænan hátt, þannig að hann sjái auðveldlega hvað dagurinn ber í skauti sér. „Sem dæmi um dags- skipulag í skóla er: samverustund, tónmennt, sund, frímínútur, há- degismatur og frístundarheimili. Þá veit barnið að hverju það geng- ur og óvissan veldur ekki óöryggi vegna þess að öryggi er grundvall- aratriði í daglegu lífi einhverfra barna.“ Í skólanum er einnig unnið með PECS sem er myndrænt boð- skiptakerfi ætlað þeim sem eiga erfitt með mál og frumkvæði í samskiptum. Það byggist á mynd- um sem barnið raðar upp í „setn- ingar“ og kemur þannig til skila löngunum sínum og vilja. Þriðja aðferðin sem unnið er með í skólanum er atferlisþjálfun sem miðar að því að gera barnið sem sjálfstæðast og fá það til að taka sem mestan þátt í daglegu lífi. „Við erum búin að vera með ráðgjafa frá ABC-skólanum í Sacramento í Bandaríkjunum síð- an í ágúst,“ segir Dagný en sá skóli kemur við sögu í heimild- armyndinni um sólskinsdrenginn Kela. Í ABC-skólanum er unnið með einhverf börn frá unga aldri en um 40% þeirra útskrifast þaðan út í hefðbundna skólakerfið. „Na- talie vinnur að því að setja upp heildstæða atferlisþjálfun fyrir einhverfa nemendur hjá okkur og veitir líka starfsfólki ráðgjöf. Við reiknum með því að hún verði hjá okkur fram á vor en það hefur komið mjög vel út að hafa hana í fullu starfi.“ Dagný bætir því við að ráðgjafinn hafi komið til lands- ins í gegnum Margréti Dagmar Ericsdóttur, sem gerði myndina, en í fyrravetur vann hann í Hjalla- skólanum þar sem Keli sótti skóla. Fleiri aðferðir eru notaðar í Öskjuhlíðarskóla og t.a.m er unnið með svokallaðar félagsfærnisögur í því skyni að kenna börnum á ákveðnar aðstæður í lífinu, s.s. hvað þau geti gert ef þau týna for- eldrum sínum í verslunarmiðstöð. Þá segir Dagný haldna reglulega teymisfundi með foreldrum og öll- um þeim sem koma að barninu, s.s. í heilsdagsskóla, skammtímavistun og liðveislu í því skyni að samrýma vinnubrögð þessara aðila. Skaðandi hegðun Loks bætir Dagný við að í vetur hafi verið lögð áhersla á að end- urmennta starfsfólk í því hvernig megi draga úr áráttukenndri og óæskilegri hegðun. „Ef við náum því hefur heilmikið áunnist. Við er- um með börn sem skaða sjálf sig og líka börn sem skaða aðra. Allir starfsmenn okkar eru því nú á námskeiði þar sem þeir læra hvernig megi fyrirbyggja slíkt og hvernig hægt sé að færa ein- stakling úr óæskilegri aðstöðu yfir í betra umhverfi.“ Öskjuhlíðarskóli er heildstæður grunnskóli, með börn frá 1. og upp í 10. bekk og er fyrst og fremst ætlaður nemendum sem eru með þroskahömlun eða undir 70 í greindarvísitölu. Flestir hafa þó einhverjar við- bótarhamlanir því með stefnu um skóla án aðgreiningar fara flest þau börn sem eru með „væga þroskahömlun“ í al- mennu grunnskólana og geta blómstrað þar að sögn Dagnýj- ar. „Við sjáum að aldurs- samsetningin hjá okkur er eins og öfugur pýramídi – það eru aðeins 8 nemendur í fyrsta og öðrum bekk til samans en þau eru hins vegar 18 sem útskrifast í vor. Þannig að þeim smáfjölgar alltaf upp allan grunnskólann.“ FJÖLGAR EFTIR ÞVÍ SEM ÞAU ELDAST Dagný segir aðferðirSomu Mukhopadhyayvið að kenna mál- lausum börnum með einhverfu að tjá sig vera mjög athygl- isverðar en þær koma við sögu í kvikmyndinni um Sólskins- drenginn. Þær sýni að leggja megi meiri áherslu á að kenna börnum í gegnum heyrn. „Hingað til höfum við kannski verið upptekin af því að kenna einhverfum börnum á sjónræna sviðinu. Þarna kemur hins veg- ar í ljós að til eru einstaklingar sem blómstra og ná tökum á tungumálinu og félagslegri færni með því að fá kennslu sem byggist á heyrnræna svið- inu. Það opnast heil ný veröld fyrir þá.“ En væru möguleikar á því að fá slík úrræði hingað heim? „Mér finnst allt koma til greina sem gagnast barninu í að þroskast og dafna,“ svarar hún. Til að slíkt gæti orðið þyrfti að fá ráðgjafa til lands- ins sem þróaði aðferðina og staðfærði fyrir íslenska skóla. „Jafnframt þyrftum við að þjálfa ákveðinn hóp starfs- manna sem hefði trú á þessu og væri tilbúinn að leggja á sig þessa vinnu. Hann þyrfti líka að skuldbinda sig til að taka að sér þetta verkefni í ákveðinn tíma til að sjá hvort ávinningur yrði af þessari aðferð eða ekki.“ Kennt í gegnum heyrn Skynörvun Í sérstakri aðstöðu í Öskjuhlíðarskóla er unnið með ólíkar skyn- stöðvar og reynt að skapa róandi andrúmsloft til að draga úr áreitum. Morgunblaðið/Golli Skólastjórinn „Mér finnst allt koma til greina sem gagnast barninu í að þroskast og dafna,“ segir Dagný Annasdóttir í Öskjuhlíðarskóla. Fjórar sérdeildir fyrir einhverfbörn eru reknar við grunn-skóla á höfuðborgarsvæðinu, auk sérdeildar á Akureyri. Þær eru við Digranesskóla, Fellaskóla, Hamraskóla og Langholtsskóla, en Bjarnveig Bjarnadóttir veitir síðast- nefndu deildinni forstöðu. Deildin gegnir einnig ráðgefandi hlutverki fyrir aðra grunnskóla. Við hana eru í ár níu nemendur auk þess sem tí- undi nemandinn tengist deildinni. Að sögn Bjarnveigar tengjast nemendur sérdeildarinnar allir al- mennum bekkjum í Langholtsskóla en fara mismikið út í þá eftir getu hvers og eins. „Sum eru talsvert mikið úti í bekk og einn okkar nem- enda er svo til alfarið úti í bekk. Flest börnin verða læs en það er ein- staklingsbundið og í samvinnu við foreldrana hvaða fög við leggjum áherslu á. Þau sem geta mest fara í gegnum öll fög eins og aðrir nem- endur en stundum þurfum við svolít- ið að forgangs- raða.“ Þegar nemand- inn er ekki úti í bekknum fær hann sérkennslu á deildinni þar sem farið er yfir það sem hentar betur að kenna honum einslega eða í litlum hóp. „Aðferðin sem við styðjumst við er skipulögð vinnubrögð sem komin er úr TEACCH-hugmyndafræðinni,“ útskýrir Bjarnveig. „Það má segja að hún byggist á mannúðarsálfræð- inni þar sem virðing fyrir ein- staklingnum og fötluninni er höfð í hávegum. Við álítum sumsé ekki að við getum „læknað“ þessa fötlun enda er hún ekki sjúkdómur. Að- ferðin gengur mikið út á skipulag og sjónrænar vísbendingar með því að útbúa töflu yfir það hvernig dag- urinn verður hjá nemandanum.“ Deildin er einnig með það sem kallað er „öfug blöndun,“ að Bjarn- veigar sögn. „Þá koma nemendur úr bekknum til nemanda í sérdeild og læra þar með honum. Þetta skiptir miklu máli félagslega. Krakkarnir sjá þá oft nýja hlið á einhverfa nem- andanum, því hann talar jafnvel meira og hefur meiri samskipti við þá inni á sérdeildinni en úti í bekkn- um.“ Aðspurð segir hún foreldra yf- irleitt mjög ánægða með þjónustuna, enda byggist hún töluvert á sam- vinnu við þá. „Það eru fleiri sem vildu koma börnunum sínum hingað en komast að. Þetta eru almennt litl- ar deildir því það er ekki talið æski- legt að nemendurnir séu fleiri en átta eða svo. Við erum með um 7,5 stöðugildi enda þurfa flestir nem- endurnir fylgd þegar þeir fara út í bekk og þá er einhver úr sérdeild- inni með þeim.“ Bjarnveig Bjarnadóttir Virðing fyrir einstaklingnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.