Morgunblaðið - 18.01.2009, Side 24

Morgunblaðið - 18.01.2009, Side 24
gamlársdag lék Sigmundur Ernir aðalhlutverkið í þessari mynd, sjálfan sirkusstjóra valdsins. Leik- stjórinn var Ari Edwald en fram- leiðandinn 365 eða réttara sagt Baugur. Handritið fór að vísu úr böndum og tökur klikkuðu.    Skoðum þetta aðeins nánar, því þetta er dálítið merkilegt. Eins og allir muna mættu fjölmiðlarnir fyr- ir nokkrum vikum á borgarafund á skemmtistaðnum NASA, um miðj- an nóvember. Þetta var á margan hátt átakanlegur fundur, því hann staðfesti hyldýpið sem er á milli þeirra sem stjórna fjölmiðlunum og almennings í landinu. Í stað þess að vera drjúgir með sig, eins og þeirra er háttur, voru fjölmiðla- menn flestir hverjir bljúgir og við- urkenndu hver um annan þveran að það væri til fólk í landinu og báðust velvirðingar á því að þeir hefðu ekki tekið eftir því fyrr. Meira að segja Sigmundur Ernir brá sér í frjálslyndan gír og sagðist myndu fækka drottning- arviðtölum við ráð- herra og stjórn- málamenn; þeir hefðu hvort eð er 24 Skoðun MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 HAGFRÆÐIDEILD HÁSKÓLA ÍSLANDS www.hag.hi.is Hagfræðideild HÍ – Málstofa í efnahagsmálum Mánudaginn 19. janúar kl. 12:00-14:00, Hátíðasalur HÍ Hvaða gjaldmiðil eiga Íslendingar að nota í framtíðinni? Willem H. Buiter, Prófessor í stjórnmálahagfræði við London School of Economics Í fyrirlestrinum mun Willem Buiter fjalla um þá kosti sem Íslendingar hafa í gjaldmiðilsmálum. Hann mun fjalla um kosti og ókosti þess að hér verði áfram sjálfstæður gjaldmiðill. Einnig mun hann skoða þá valkosti sem fyrir hendi eru, svo sem einhliða upptaka annars gjaldmiðils, innganga í Evrópusambandið og upptaka evru. Buiter hefur gegnt stöðu prófessors við Princeton, Yale og Cambridge; verið aðalhagfræðingur EBRD í London og setið í vaxtaákvörðunar- nefnd Englandsbanka (Monetary Policy Committee). Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis. BARNINU LÍÐUR BETUR& NÁTTÚRAN BLÓMSTRAR • Glæný og gullfalleg bók um gömlu góðu gildin. • Hagnýtar uppástungur um „grænt“ uppeldi, sparnað og hollustu. • Góð leiðsögn fyrir þá sem vilja draga úr neyslu en auka um leið lífsgæði barna. Á tilboði hjá Eymundsson. sjálft sig svo sjálfsagt að við förum smám saman að líta á það sem eðlilegt. Það sveipar sig skikkju tungumálsins, og lög- um og reglum. „Ég gerði ekkert ólög- legt,“ segja lögbrjót- arnir, þegar ekki eru lengur til nein lög yfir lögbrot þeirra. Þá segjum við siðleysi, en þurfa lögin ekki að ná yfir siðleysið? Annars er ekkert gagn í þeim og þau bara orðaleppur til að firra menn ábyrgð. Á Íslandi lét viðskiptalífið afnema flest þau lög sem því fannst vera því fjötur um fót. Til þess beitti það fyrir sig frjálshyggjunni og stofnun sem heitir Viðskiptaráð. Annaðhvort hafði Viðskiptaráð þessi tök á lög- gjafanum eða löggjafinn svaf á vaktinni. Í einni af stefnuyfirlýs- ingum Viðskiptaráðs segir: „Rök- semdir gegn opinberri reglusetn- ingu og eftirliti á fjármagnsmarkaði eru meira sann- færandi en röksemdir með slíkum opinberum afskiptum. Miklu skyn- samlegra væri að láta markaðs- aðilum það eftir að setja sér eigin reglur og framfylgja þeim.“ Og um árangurinn af þessari stefnu segir: „Athugun Viðskiptaráðs sýnir að Alþingi fór í 90% tilfella að hluta eða öllu leyti eftir tilmælum ráðs- Eftir Einar Má Guðmundsson Þ egar Englendingar segja að einhver hafi enskt skopskyn, engl- ish sense of humor, þá meina þeir að við- komandi hafi gott skopskyn, góðan húmor. Þetta er auðvitað bara málvenja, og ekkert um hana að segja sem slíka, og Englendingar hafa fínan húmor, ef út í það er farið. Engu að síður birtist í þessari málvenju ævaforn hroki, hroki sem er vaxinn inn í tungumálið, þegar hin fornu stór- veldi telja jafnvel kímnigáfuna sér- eign sína. Þegar Finnar tala um finnskan húmor eiga þeir aðallega við sjálfa sig og eru hálfafsakandi því kímnigáfa Finna er kaldhæðin og byggist oft á því að þegja og láta sér fátt um finnast. Vond veð- ur, myrkur, hörmungar koma þar oft við sögu. Það talar heldur eng- inn um albanskt skopskyn eða rúmenskt skopskyn með svipuðum hætti og þegar Englendingar tala um enskt skopskyn og Zúlúmaður myndi aldrei segja við þig, ef hon- um fyndist þú fyndinn, að þú hefð- ir zúlúskt skopskyn, zulu sense of humor. Hér er aðeins eitt af hinum fín- gerðu blæbrigðum hrokans, en við erum stöðugt minnt á þennan hroka, hrokann sem er afsprengi valdsins og sjálft valdið. Hroki byggist á valdi, ef ekki raunveru- legu þá ímynduðu. Þetta vald gerir ins.“ Samkvæmt þessu má líta svo á að Viðskiptaráð hafi framið hér eins kon- ar valdarán en án þess að nokkur tæki eftir því. Í Chile þurfti herfor- ingjabyltingu og fas- istastjórn til að koma þessu kerfi á, frjáls- hyggjukerfinu, en á Íslandi runnu þessar hugmyndir smurðar í gegnum Alþingi án þess að nokkuð stæði í vegi fyrir þeim. Enginn löggjafi til að sjá hvert þetta myndi leiða okkur. Nei, frekar að löggjafinn væri í vinnu hjá Viðskiptaráði, enda níu- tíu prósent af málum þess sam- þykkt og stjórn þess skipuð langri röð af fólki sem er nátengt hruninu. Samt telur þetta fólk sig enga ábyrgð bera á hruninu, ekki ef marka má framsöguerindi þess og svör á borgarafundinum í Há- skólabíói hinn 12. janúar síðastlið- inn. Þvert á móti hefur Við- skiptaráð yfir sér þetta kryddsíldaryfirbragð, lýðræðislegt, en umfram allt frjálslynt og yf- irborðskennt. Á bak við þetta er hin alþjóðlega frjálshyggja og spilling hennar og er það ekki fyrst og fremst hún, hin alþjóðlega frjálshyggja, sem ungað hefur út stjórnleysingjum um allan heim, bæði grímuklæddum og grímulaus- um? Þeir þurfa ekki annað en að banka á gluggann á Hótel Borg og Kryddsíld Stöðvar tvö breytist á augabragði í það leikhús fáránleik- ans sem hún í rauninni er. Áður en kaplarnir voru skornir í sundur vorum við stödd í bíómynd eftir Luis Bunuel. Hún fjallaði um yf- irstétt sem hefur ekki hugmynd um heiminn fyrir utan og heldur bara áfram að skemmta sér og læt- ur sem ekkert hafi í skorist. Á ekkert að segja, nú myndu raddir fólksins heyrast. Allt þetta geta menn séð í myndbrotunum sem hafa verið klippt saman um borg- arafundina. Kannski hefur Sig- mundur Ernir haldið að þetta myndi falla í kramið. Eða þetta var til marks um að um þær mundir var Baugsfáninn að roðna og kall- aðist Rauðsól um hríð og líktist merki Samfylkingarinnar. Fólkið í salnum kinkaði kolli og hugsaði: Batnandi mönnum er best að lifa. En þetta stóð ekki lengi yfir. Stuttu seinna kom einn ráðherrann fram og sagði að hér væri mis- skilningur á ferð, þetta væri ekki fólkið í landinu, og fjölmiðlarnir kinkuðu kolli og sneru sér aftur að merkilegri málum en fólkinu í landinu. Ráðherrarnir mættu aftur í drottningarviðtöl og keisarinn var kominn á sinn stað ásamt hinum bráðsnjöllu vefurum valdsins. Ef við lítum á þetta í örlítið víð- ara samhengi blasir við sú stað- reynd að á bak við allan fjölbreyti- leikann, sem nútíminn hefur skreytt sig með á þessu söguskeiði frjálshyggjunnar, hefur í raun búið ótrúleg einsleitni. Lýðræði fjöl- miðlanna hefur hreiðrað um sig í yfirborðskenndum lífsstílsþáttum og öll frjálsu skoðanaskiptin verið merkilega ófrjáls, eins og dæmin sanna með ýmsum uppljóstrunum Kryddlegin Baugshjörtu Einar Már Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.