Morgunblaðið - 18.01.2009, Síða 26

Morgunblaðið - 18.01.2009, Síða 26
Við endimörk þess að vera manneskja Á rennsli í Borgarleikhúsinu er verið að æfa skiptingar á milli atriða. Þess vegna er kveikt á meðan leikarar hlaupa um sviðið í nærfötum. Svo eru ljósin slökkt – og kveikt á ný. Ingvar Sigurðsson les dagblað og drekkur gin af stút. Smám saman kárnar gamanið. Pétur Blöndal ræðir við hann um leik- ritið Rústað eftir Söruh Kane, sem hann segir eitt það „svakalegasta“ sem hann hafi fengist við á leiksviðinu. Morgunblaðið/Golli Rústað Ingvar Sigurðsson fer með aðalhlutverk í áleitnu verki, sem stendur undir nafni, í Borgarleikhúsinu. persónurnar eru ekki klisju- kenndar í heimsku sinni eða ill- mennsku heldur verða þær fórn- arlömb aðstæðna." – Táknmyndirnar eru sterkar? „Þegar líður á verkið verða þær meira áberandi og kannski er það óhjákvæmilegt þegar persónur eru komnar að endimörkum þess að vera manneskjur, þá verður að draga upp meira abstrakt myndir – til þess að áhorfendur afberi ljótleikann." Hugrakkur hópur – Hvernig fer ljúfur maður eins og þú að því að leika svona hrotta? „Þessi leikhópur og allir aðstand- endur eru alveg einstök ljúfmenni; við erum svo miklir ljúflingar að það skipti engu máli hvað við lásum verkið oft, okkur varð alltaf um og ó, og í fyrstu yfirferðum vorum við hálfskekin og skjálfandi þegar við fórum í gegnum það." Ingvar leggur áherslu á mál sitt: „En það góða við okkur öll er að við erum heldur ekki rög; þetta er hugrakkur hópur. Maður verður bara að bíta jaxlinn og má ekkert hlaupa undan, heldur reyna að ganga hreint til verks og heiðarlega og vera höfundinum trúr. Enda sér maður betur og betur hvílíkur snill- ingur Sarah Kane; það er ekki á hvers manns valdi að búa til leikrit með svona mikilli innri sögn – með öllu því sem stendur á milli línanna. En í einkalífinu hefur hún verið trufluð af sjálfri sér og lífinu." – Örlög hennar voru sorgleg. „Já, hún skrifaði fimm leikrit og framdi sjálfsmorð. Hún gerði fyrst tilraun til sjálfsmorðs, sem hefði að öllum líkindum virkað, hún gleypti 185 pillur af einhverju tagi, en ein- hver kom henni til bjargar á síðustu stundu. Stuttu síðar svipti hún sig lífi á spítalanum, slapp undan gæslu og hengdi sig." – Eru skírskotanir í líf hennar í leikritinu? „Leikhópurinn hefur skoðað ævi hennar í sameiningu og Kristín fætt okkur á nýsiefni. Kane ólst upp við skrýtnar andstæður, fjölskyldan var mjög trúuð en samt voru foreldrar hennar blaðamenn gulu pressunnar. Og ef maður rýnir í ævi hennar þá er eins og hún leiti inn í sjálfa sig eftir öllum persónum leikritsins. Ég leik t.d. blaðamann og auðvelt að geta sér til um að hún þekki heim blaða- mannsins í gegnum foreldra sína, þennan …" Hann halllar sér aftur. „Hvað á maður að kalla þessa blaðamenn?" Stutt þögn. „Hann lifir í firrtum kjaftasögu- heimi blaðamannsins, sem hún virð- ist þekkja mjög vel. Þegar leikritið var frumsýnt í Bretlandi árið 1995 og Sarah Kane varð í einu vetfangi umtalaðasta manneskja í menning- arlífi þjóðarinnar, þá benti hún á að þetta væri bara leiksýning og hún rataði á forsíður blaðanna, en fólk kippti sér minna upp við raunveru- lega harmleiki, fregnir af því færu inn um annað eyrað og út um hitt. En þegar leiksýning endurspeglaði raunverulega harmleiki fólks, öll Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is V arstu á rennslinu?" spyr leikarinn Ingvar Sig- urðsson þegar hann tekur á móti blaða- manni á heimili sínu. – Já, svarar blaðamaður. Það kemur andartaksþögn. „Fyrirgefðu," segir hann síðan. Þetta er ekkert venjulegt leikrit, Rústað eftir Söruh Kane, og þarf næstum því að biðjast afsökunar á því sé það fært á fjalirnar. Atburðarásin á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu áleitin í meira lagi og víðsfjarri andrúmi notalegrar borðstofu leikarahjóna í Vest- urbænum. Handrit liggur opið á borðinu, börnin „í sinni veröld" í her- bergjunum, rólegt yfirbragð Ingv- ars, tveir rjúkandi kaffibollar. Það fer eftir verkefnum hversu mikið af undirbúningi Ingvars fer fram á heimilinu. „Ég undirbý mig mestmegnis einn fyrir bíómyndir, þá móta ég persónuna meira sjálfur, en í leikhúsinu er rýmri tími og skyn- samlegra að vinna persónuna með leikhópnum; það má segja að í þessu leikverki og það á reyndar alltaf við, að karakterinn sem maður leikur er alls ekki manns einkamál. Hann mótast að miklu leyti af hinum per- sónum leiksins, það er okkar hlut- verk að hlusta á hver annan og stilla okkur saman. Fórnarlömb aðstæðna Leikstjóri Rústað er Kristín Ey- steinsdóttir, sem fékk Grímuna fyrir bestu leikstjórn í fyrra fyrir Þann Ljóta „Hún er ung og kappsöm," segir hann brosandi. „Og óþolinmóð – sem er æðislegt! Það er það góða við að vera ungur, sérstaklega þegar hæfileikarnir eru til staðar; hefur gott auga fyrir formi og sans fyrir tímasetningum. Það auðvelt fyrir gamlan hund eins og mig að setja út á aðferðina og segja liðinu að slaka aðeins á. En þó að kapp sé best með forsjá, þá er fagmennskan slík, að það hvarflar ekki að mér." Ingvar heyrði fyrst af þessu um- deilda leikriti árið 2003. „Breskur vinur minn henti bókinni í mig, bað mig að lesa hana og sagði beinlínis við mig: „Ef þú ert til í að leika Ian, í Blasted, þá er ég til í að leikstýra þér." Þá var þetta orðið tæplega tíu ára gamalt verk og ég man að þegar ég las það, þá fannst mér það ógeðs- legt. Ég er ekkert hrifinn af „in your face"-ógeðsverkum, kannski vegna þess að oft verða stælarnir leikritinu yfirsterkari, og einhverju er klínt framan í mann sem maður hefur engan áhuga á og nær engum tengslum við. Eftir fyrsta lestur spurði þessi vinur minn hvort ég væri til í að leika hlutverkið og ég sagðist ekki geta hugsað mér það. En mér varð sífellt hugsað til leikritsins, ég las það aftur og aftur, og sá að það fjallaði ekki um andstyggilegheit persónanna, kúgun eða svívirð- ingu, heldur fyrst og fremst um ástina og þörfina að tengjast. Það er svo mikil ástarþrá í verkinu og 26 Leikhús MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 Endurmenntun efnir til námskeiðs um samtímaleikritun í samvinnu við Borgarleikhúsið í tilefni af sýningu á Rústað eftir Söruh Kane og leik- lestri á öllum leikritum sem hún skrifaði í kjölfarið, en það eru Ást Fedru, Hreinsun, Þrá og 4:48 geðtruflun. „Því hefur verið haldið fram að áhrif leikskáldskapar Söruh Kane á leikritun síðasta áratugar megi bera saman við þá miklu umsköpun sem leikrit Samuels Becketts, Beðið eftir Godot, olli er það var frumsýnt árið 1953,“ segir í lýsingu námskeiðsins. „Sarah Kane (1971) olli straumhvörfum í leikritun strax með fyrsta leikriti sínu, Rústað (Blasted), sem frumsýnt var í Royal Court- leikhúsinu í London 1995. Lundúnabúar tóku andköf þegar þessi 24 ára stúlka vogaði sér að senda frá sér svo harkalegt leikrit þar sem myrk- ustu hliðum manna var lýst á ógnvekjandi hátt. Í óhugnaðinum blasir hins vegar við ófullnægð þrá eftir hlýju, mýkt, friðsemd og mannúð.“ Þá segir að Sarah hafi komið eins og stormsveipur inn í heim sam- tímaleikritunar og rústað viðteknum hugmyndum um leikritun með vægðarlausum og beinskeyttum leikritum. Una Þorleifsdóttir listahá- skólakennari fjallar á námskeiðinu almennt um Söruh Kane, einkenni verka hennar og áhrif þeirra á leikritun og leikhúsið almennt. Magnús Þór Þorbergsson leiklistarfræðingur tekur síðan sérstaklega fyrir hvernig „in-yer-face“-bylgjan, sem fylgdi í kjölfar Blasted, náði fótfestu í Berlín og víðs vegar um Evrópu. Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri fjallar svo um Rústað og uppfærslu Borgarleikhússins á því verki og beinir sjónum að aðferðafræði leikhópsins og ræðir inntak, fagurfræði og þá heimspeki sem liggur að baki uppsetningunni. SAMTÍMALEIKRITUN RÚSTAÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.