Morgunblaðið - 18.01.2009, Side 33

Morgunblaðið - 18.01.2009, Side 33
lækkana og afnáms gjaldeyrishafta hefjist núna í upphafi ársins. Spurður hvenær þetta fer af stað segist Geir ekkert geta sagt um það ná- kvæmlega. Allt bendi til að fljótlega á árinu verði hægt að lækka vextina. Losa um gjaldeyrishöftin sem fyrst „Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fer yfir málin með okkur núna um miðjan febrúar en lækkun stýrivaxta og afnám gjaldeyrishafta spila sam- an. Æskilegast væri að geta losað um þessi gjaldeyrishöft sem fyrst, en það er ekki hægt að tímasetja það. Einnig væri æskilegt að byrja að lækka stýrivextina og gera það síðan nokkuð hratt en þetta er háð því að við náum mark- miðum okkar varðandi verðbólguna. Bæði at- vinnulífið og heimilin bíða eftir að þetta ferli hefjist. Við gerum okkur vel grein fyrir því að óþreyjan er mikil en þetta eru vandmeðfarin mál.“ Fram kom í Viðskiptablaði Morgunblaðsins síðasta fimmtudag að skuldir þjóðarinnar væru komnar yfir 2.000 milljarða króna. Forsætis- ráðherra segist ekki bera brigður á þær tölur en bendir jafnframt á óvissuna sem ríkir enn um hvort eða hve miklar kröfur falli á ríkið vegna Icesave og nýju bankanna. Þessi staða geti breyst töluvert ef ríkið ákveði að selja bankana þegar færi gefist. „Eitt af því sem unnið hefur verið að í sam- ráði við IMF er að setja þessar skuldir í sam- hengi við gjaldþol okkar og möguleika á að standa í skilum. Ríkissjóður er vel innan þeirra marka sem við ráðum við og margar þjóðir eru skuldugri en þetta, þrátt fyrir allt,“ segir Geir og bendir jafnframt á að ríkið muni ekki endi- lega nýta sér allar þær lánaheimildir sem hafi boðist. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er búinn að inna af hendi fyrstu greiðslu, um 830 milljónir doll- ara, en Geir segir nær ekkert hafa verið dregið á það fé. Jafnframt sé eftir að ganga endanlega frá lánasamningum við þær þjóðir sem heitið hafi lánafyrirgreiðslu. „Vonandi þurfum við ekki að nota þessi lán, þetta er eins og að vera með ónotaðan yfirdrátt.“ Nýlega var boðað að skipt yrði um banka- stjóra Nýja Landsbankans. Spurður hvort á næstunni megi reikna með frekari ákvörðunum um að skipta út stjórnendum banka og eftirlits- stofnana með fjármálakerfinu vill forsætisráð- herra engu svara um það. Bendir á að ráðning bankastjóra sé í höndum bankaráðanna. „Við höfum fengið úrvalsfólk til að sitja í bankaráð- unum og verðum að treysta því að það taki skynsamlegar ákvarðanir um þessi atriði. Ýms- ar breytingar hafa verið gerðar en gæta þarf að því að breytingar innan bankanna grafi ekki undan möguleikum þeirra á að starfa með eðli- legum hætti, þannig að fagþekking glatist ekki.“ Þegar talið berst að mögulegum breytingum á ráðherraskipan innan ríkisstjórnarinnar vill Geir heldur ekki tjá sig að svo stöddu. Misskiln- ings hafi gætt í umræðunni um að landsfundur Sjálfstæðisflokksins tengist mögulegum breyt- ingum í ríkisstjórn. Árið 2009 verður mjög erfitt „Við höfum ekki dregið dul á það að árið 2009 verður mjög erfitt. Ef vel gengur gæti árið 2010 orðið auðveldara, sérstaklega þegar líður fram á árið. Þetta fer mikið eftir því hver þróunin verður í alheimsbúskapnum. Það er ekki okkur í hag að öðrum gangi illa. Gríðarlegir erf- iðleikar eru framundan víða um lönd,“ segir Geir og nefnir bankakerfið í Bretlandi sem dæmi. Þar hafi gífurlegum fjárhæðum verið dælt inn í bankana án þess að það hafi haft mik- ið að segja. Nýr forseti Bandaríkjanna, Obama, hafi jafnframt kynnt umfangsmiklar áætlanir til að örva hagkerfið og á meginlandi Evrópu sé stöðugt verið að grípa inn í hjá bönkunum. „Þetta er ekkert venjulegt ástand. Þegar þetta skall á okkur hér í september af fullum þunga voru fjármálastofnanir okkar ekki undir það búnar. Meðal annars vegna þess að þær höfðu hegðað sér gáleysislega, tekið mikla áhættu og ekki sýnt þá ábyrgð sem þarf í þess- ari starfsemi. Ríkiskerfið greip því miður ekki inn í óhóflega stækkun bankakerfisins, það er hið gremjulega í þessu máli, ekki að við skyld- um hafa verið með opið bankakerfi og allt sem því fylgdi á Evrópska efnahagssvæðinu. Það var í sjálfu sér eðlilegt og ekki hægt að kenna þeirri stefnu um enda bætti hún lífskjörin hér stórlega í mörg ár. En þarna ætluðu menn sér um of og því voru menn óviðbúnir þegar fjár- málaóveðrið skall á okkur. Þegar þarna var komið sögu, um mánaðamótin september- október, var staðan sú að við vorum ekki fær um að bjarga þessu kerfi. Ekki bætti svo úr skák hvernig Bretar höguðu sér, bæði með beitingu hryðjuverkalaganna og hvernig starf- semi Kaupþings í Bretlandi var tekin yfir sem að stofni til var 100 ára gamall breskur banki. Sú staða kom okkur gersamlega í opna skjöldu, við töldum að Kaupþing myndi lifa þetta af, al- veg fram á síðustu stundu,“ segir Geir að end- ingu. reykurinn hverfur Morgunblaðið/Kristinn sætisráðherra frá því að neyðarlögin voru sett 6. október. Hann segir tíma uppbyggingar framundan. 33 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 Morgunblaðið/Árni Sæberg 8. desember Mótmælin harðna. Handtökur í Alþingishúsinu eftir læti á þingpöllunum. Morgunblaðið/Júlíus 16. desember Mótmælendur reyndu að brjóta sér leið inn í húsakynni Fjármálaeftirlitsins. Morgunblaðið/Júlíus 17. desember Jón Gerald mætti í Landsbank- ann. Tryggvi Jónsson hætti síðar störfum. Morgunblaðið/Ómar 22. desember Fjárlögin fyrir 2009 samþykkt á Alþingi með 157 milljarða króna halla. Morgunblaðið/Júlíus Gamlársdagur Piparúða beitt í mótmælum við Kryddsíldarþátt Stöðvar 2 á Hótel Borg. Ljósmynd/Hugi Hlynsson 3. janúar Friðsöm mótmælastaða hefur verið reglulega á Ráðhústorginu á Akureyri. Ljósmynd/Stöð 2 13. janúar Mótmælendur komust mjög nærri ráðherrum við Alþingi og hindruðu för þeirra. aftur traust stjórnenda fyrirtækja, almennings og umheimsins á íslenska hagkerfinu og stjórn- kerfinu. „Þá dugar ekkert að allir sitji sem fast- ast. Það þarf augljóslega að skipta um stefnu og fólk og í raun hefur ekkert gerst í þeim efnum. Það hlýtur að vera einn eðlilegur liður í endur- uppbyggingunni að þeir sem voru við stjórnvöl- inn þegar skútan strandaði stigi til hliðar og hleypi öðrum að. Ekki er hægt að ætlast til þess að þeir sem strönduðu skútunni geti siglt henni áfram, og hvað þá að menn séu til í að leggja mikið á sig til að vinna með þeim,“ segir Gylfi og vísar þar til stjórnenda bankanna, stjórnvalda og embættismanna. Hann vísar einnig til stjórnenda sumra fyrirtækja. „Fyrirtækjablokkir og fáir auðmenn stjórnuðu mjög miklu á Íslandi og þeir eru ekki alveg horfnir af sjónarsviðinu.“ Flest til staðar En telur hann raunverulega hættu á því að íslenska bankakerfið komist aftur í þrot? Um þann möguleika hafa verið fluttar fréttir og m.a. vísað til gífurlegrar skuldaaukn- ingar þjóðarbúsins. Um þetta segir Gylfi að skuldirnar séu vissulega miklar og staða bank- anna ennþá veik en afar ólíklegt sé að þeir geti hrunið aftur. Tölur um bankana séu allar lægri en þær voru fyrir hrunið. „Ég get ekki útilokað nein áföll en sé samt ekki í hendi mér hvað það ætti að vera. Við eigum eftir að fá fleiri slæmar fréttir, eins og hvað verður um þær eigur viðskiptabankanna sem á eftir að gera upp. Eins og stemn- ingin er á mörkuðum almennt þá eru litlar líkur á mörgum góðum fréttum. Við getum fengið slæmar fregnir af því hvernig fjármögnun hins opinbera gengur en það verður aldrei áfall af þeirri stærðargráðu sem við fengum yfir okkur síðastliðið haust.“ Gylfi ítrekar að þótt höggið í október hafi verið gríð- arlegt, og fá dæmi séu um slíkt á Vesturlöndum á síðari tímum, þá sé ekkert í kort- unum sem sé óviðráðanlegt. Vissulega sé framundan risavax- ið verkefni og margt af því hundleiðinlegt og fúlt, eins og gjaldþrot, uppsagnir og skatta- hækkanir. „Við eigum að geta siglt í gegnum þetta. Þrátt fyrir öll ósköpin er ennþá allt til staðar sem var á Íslandi fyrir hrunið; auðlindirnar, inn- viðirnir, mannvirkin og meira og minna allt fólk- ið. Við höfum því alla burði til að reka öflugt hagkerfi en það þarf að fara fyrst í gegnum mjög leiðinlega fjárhagslega endurskipulagn- ingu áður en hjólin geta farið að snúast sæmi- lega lipurlega aftur. Við þurfum að skipta um stefnu og fólk við stjórnvölinn og ég óttast það ekkert. Það er fjöldinn allur af hæfileikaríku, velmenntuðu og ungu fólki sem getur leyst þá af hólmi sem strönduðu skútunni,“ segir Gylfi. Kominn tími á konur Nefnir hann í því samhengi að íslenskt við- skipta- og stjórnmálalíf hafi vannýtt eina auð- lind, þ.e.a.s. konur. „Rannsóknir hafa löngum sýnt að konur eru alla jafna síður áhættusækn- ar en karlar. Eitt af því sem kom okkur í vand- ræði var að hagkerfinu var meira og minna stýrt af frekar áhættusæknum karlmönnum. Því getur verið tími til kominn að þeir stígi til hliðar og hleypi fleiri konum að sem eru með önnur sjónarmið og aðrar lausnir,“ segir Gylfi. ldu skútunni í strand

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.