Morgunblaðið - 18.01.2009, Qupperneq 41
Minningar 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009
✝ Sigríður Sigurð-ardóttir fæddist á
Grund á Langanesi
22. apríl 1917. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Sundabúð á Vopna-
firði 9. desember síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Sig-
urður Sigvaldason, f.
á Þorsteinsstöðum í
Sauðaneshreppi
11.10. 1872, d. 10.2.
1937, og Aðalbjörg
Jónasdóttir, f. á Hlíð
á Langanesi 18.12. 1878, d. 19.4.
1930. Systkini Sigríðar voru: Sig-
urbjörg, f. 1905, d. 1981; Helga, f.
1906, d. 1950; Gunnlaugur, f. 1908,
d. 1973; Sigvaldi, f. 1919, d. 1998;
Jónas, f. 1912, d. 2005; og Matt-
hildur, f. 1914, d. 2001. Sigríður
ólst upp hjá föðursystur sinni
Hólmfríði Sigvaldadóttur og manni
hennar Jónasi Pálssyni í Kverk-
ártungu í Skeggjastaðahreppi.
Sigríður giftist 3. ágúst 1947
Gunnlaugi Antonssyni, f. 22.4.
1908, d. 15.7. 1976. Þau eignuðust
8 börn, þau eru: 1) Jónas Pálsson,
f. 29 .8. 1946. 2) Hólmfríður Aðal-
björg, f. 9. 11. 1947. Maki Sigurður
Kristjánsson, f. 1.2. 1946, d. 19.6.
1976. Börn hennar eru: a) Krist-
rún, f. 8. 8. 1969, maki Dofri Jóns-
son, f. 15.5. 1972. Þau eiga fjögur
börn. b) Fanney, f. 21.2. 1970, maki
Orri Árnason, f. 7.2. 1969. Þau
skildu. Þau eiga tvö börn. c) Krist-
ján, f. 1.2. 1971, maki Herdís Lilja
Jónsdóttir, f. 20.8. 1972. Þau eiga
tvö börn. d) María Lena Ólafs-
1982. 6) Matthildur Guðrún, f.
17.7. 1953. Maki Steinar Hilm-
arsson, f. 16.8. 1948. Þau skildu.
Börn þeirra eru: a) Gunnþórunn,
f. 1.6. 1974, maki Geir Vilhjálms-
son, f. 3.4. 1971. Þau eiga tvo
syni. b) Hilma, f. 2.10. 1976, maki
Rúnar Þór Konráðsson, f. 9.5.
1979. Þau eiga tvær dætur. c)
Gunnlaugur, f. 2.10. 1976. d) Þór-
halla Kolbrún, f. 31.8. 1982, maki
Baldur Örn Gunnarsson, f. 31.7.
1980. Þau eiga eitt barn. 7) Unnur
Elínborg, f. 22.3. 1955. Maki Indr-
iði Þóroddsson, f. 6.5. 1948. Börn
þeirra eru: a) Þórunn, f. 20.7.
1975, maki Halldór Gunnar Jón-
asson, f. 13.2. 1964. Þau eiga þrjú
börn. b) Sigríður Ósk, f. 2.3. 1979,
maki Krzysztof Krawczyk, f. 28.5.
1977. Þau eiga tvo syni saman en
Sigríður Ósk á einn son fyrir. c)
Þröstur, f. 14.2. 1982. d) Sig-
urlaug, f. 22.4. 1989, maki Friðrik
Óli Atlason, f. 8.1. 1984. 8) Sigrún
Björg, f. 21.10. 1958. Maki Björg-
vin Sveinbjörnsson, f. 10.5. 1958.
Börn Sigrúnar úr fyrri sambúð
eru: Stefán Smári, f. 14.5. 1988,
og Linda Kristbjörg, f. 3.10. 1989,
Jónsbörn.
Sigríður var einn vetur í hús-
stjórnarskólanum á Hallormsstað.
Hún var kaupakona í Jökuls-
árhlíð, Vopnafirði og Gríms-
stöðum á Fjöllum þar sem hún
kynntist manni sínum Gunnlaugi
Antonssyni. Sigríður og Gunn-
laugur bjuggu á Melavöllum á
Langanesströnd frá 1950. Sigríð-
ur fluttist síðan að Hafnargötu 11
á Bakkafirði og bjó þar fram í júlí
síðastliðinn er hún veiktist.
Dvaldi hún síðustu fjóra mán-
uðina á Sundabúð á Vopnafirði.
Sigríður var jarðsungin frá
Skeggjastaðakirkju 18. desember.
dóttir, f. 8.11. 1983.
3) Kristinn Bjartmar,
f. 23.12. 1948. Maki
Anna María Helga-
dóttir, f. 30.11. 1957.
Börn þeirra eru:
Sandra, f. 10.2. 1986,
maki Gísli Tryggvi
Gíslason, f. 22.10.
1986, og Sindri Már,
f. 8.4. 1989. Börn
Önnu Maríu af fyrra
hjónabandi: Jón Örv-
ar, f. 25.7. 1976, Þór-
dís, f. 12.5. 1978, og
Helga María, f. 9.5.
1981, Gíslabörn. 4) Helgi Sig-
urður, f. 20.4. 1950. Maki Guðný
Benediktsdóttir, f. 18.9. 1952.
Börn þeirra eru: a) Sigurbjörg
Jóna, f. 25.1. 1971, maki Nils
Kjartan Guðmundsson, f. 14.8.
1975. Þau eiga eitt barn. b) Guð-
rún Sigríður, f. 26.7. 1973, maki
Elín Yngvadóttir, f. 3.1. 1975. Þær
eiga eitt barn. c) Arnar, f. 1.8.
1974, maki Erla Kaja Emilsdóttir,
f. 6.10. 1976. Þau eiga fimm börn.
d) Eydís Huld, f. 25.3. 1980. 5) Al-
dís Emilía, f. 23.11. 1951. Maki
Barði Helgason, f. 7.6. 1945, d.
16.7. 1999. Börn hennar eru: a)
Gunnar Hreinn Hauksson, f. 12.5.
1968, maki Arnheiður Helga Ingi-
bergsdóttir, f. 25.5. 1973. Þau eiga
fjögur börn. b) Gunnlaugur Jóns-
son, f. 18.1. 1973, maki Ósk Lauf-
ey Óttarsdóttir, f. 13.4. 1979. Þau
eiga tvö börn. c) Sigrún Alla
Barðadóttir, f. 14.10. 1980, maki
Viggó Ingimar Jónasson, f. 17.3.
1979. Þau eiga eitt barn. d) Sigríð-
ur Steinunn Barðadóttir, f. 9.4.
Sjá, dagar koma, ár og aldir líða,
og enginn stöðvar tímans þunga nið.
Þessar hendingar þjóðskáldsins
koma upp í hugann þegar horft er á
eftir samferðafólkinu sem hefur ver-
ið stór og veigamikill hluti af lífi
manns undangengna áratugi. Já,
tíminn niðar áfram og enginn stöðv-
ar framrás hans. Í fáum orðum vil
ég minnast tengdamóður minnar,
Sigríðar Sigurðardóttur frá Mela-
völlum, sem jarðsungin var frá
Skeggjastaðakirkju fimmtudaginn
18. desember sl.
Ég er ekki frá því að ég hafi verið
með dálítinn hnút í maganum þegar
ég kom í Melavelli í fyrsta sinn. En
það varði ekki lengi því gestrisni og
hlýjar móttökur Siggu, eins og hún
var oftast kölluð, ásamt góðlegu,
hlýju og glettnislegu viðmóti Gunn-
laugs tengdaföður míns, sem ég því
miður átti allt of stutta samleið með,
greiddu fljótt fyrir góðum kynnum
sem óhætt er að segja að aldrei hafi
borið skugga á.
Sigga var ekki mikið fyrir að ber-
ast á eða flíka tilfinningum sínum.
Hæglát og dagfarsprúð kona með
ríka réttlætiskennd. Hún gat orðið
hvöss á svip fyndist henni mönnum
eða málleysingjum vera misboðið.
Hún hafði ákveðnar skoðanir á
mönnum og málefnum og var ekkert
að liggja á þeim ef svo bar undir. Oft
var stutt í glettni og gamansemi.
Reglumanneskja var hún en eftir að
við fórum að búa fannst henni sjálf-
sagt að við færum að skemmta okk-
ur þegar færi gafst og var þá alltaf
tilbúin að passa börnin fyrir okkur
þegar þau voru lítil.
Einu sinni sem oftar vorum við að
fara á ball og Sigga kom til að vera
hjá börnunum. Meðferðis hafði hún
prjónana sína í svartri handtösku,
en svo vildi til að Unnur átti aðra
nákvæmlega eins. Eftir að hafa
spjallað um stund teygir hún sig í
prjónatöskuna en sér þá að innihald-
ið er ekki prjónadótið heldur eitt-
hvað sem við ætluðum að hafa með
okkur á ballið. Fer hún þá að skelli-
hlæja við tilhugsunina um svipinn á
mér þegar ég færi að taka upp
prjónana á ballinu. Skemmti hún sér
vel yfir þessu.
Eftir að ég fór að vera hér á
Bakkafirði í fastri vinnu, en þá
bjuggum við í sveitinni, var ég dag-
legur gestur í kaffi á Hafnargötunni
hjá Siggu og Jónasi. Alltaf var
heimabakað brauð á borðum og ætl-
ast til að ég væri heimagangur hjá
þeim. Þegar við svo fluttum hingað á
Bakkafjörð fyrir tveimur árum tal-
aði hún um það við Unni hvort henni
væri ekki sama þótt ég héldi áfram
að koma til hennar í morgunkaffi og
það hef ég gert flesta virka morgna
síðan. Þegar ég kom ekki sagði hún
oft næst þegar ég kom: „Hvað
varstu að þvælast í gær?“ Síðustu
mánuðina sem hún var heima sagði
hún stundum þegar ég kom: „Ég er
komin á fætur og þú ert kominn.
Stendur þig bara vel núna.“
Sigga var vel meðvituð um gildi
þess að hreyfa sig og á meðan hún
gat fór hún út að ganga og þegar
það var ekki hægt lengur notaði hún
morgunleikfimina í útvarpinu til að
hreyfa sig. Eldhússtörfin notaði hún
líka til að halda sér í formi og til að
hafa eitthvert hlutverk. En vinnu-
dagurinn var orðinn langur og henn-
ar langa dagsverki er nú lokið. En
eftir standa ljúfar minningar sem ég
og mín fjölskylda öll geymum fyrir
okkur.
Hvíl í friði.
Indriði Þóroddsson.
Látin er öldruð vinkona mín, södd
lífdaga eftir langan vinnudag. Okkar
kynni hófust þegar ég var barn og
hún kaupakona hjá foreldrum mín-
um í Ytri-Hlíð í Vopnafirði. Hún
giftist síðar Gunnlaugi og þau
byggðu upp bú á Melavöllum í
Bakkafirði sem ekki hefur verið
auðvelt á þeirri tíð. Þau áttu átta
börn á tólf árum. Oft var margt í
heimili þegar bættust við sumar-
börn, sem send voru í sveitina.
Stundum brá hún á það ráð að senda
til veiða í ána í von um silung í mat-
inn og bjargaðist þá máltíðin. Allt
var unnið og nýtt heima til matar
eins og var í sveit í þá daga. Vann
hún allan fatnað á börnin, ekki var
hlaupið í búðir. Hún sagði mér að
sjálf hefði hún ekki farið til Bakka-
fjarðar í sjö ár meðan börnin voru
lítil.
Eftir að hún missti mann sinn bjó
hún með börnum sínum um árabil
þar til hún flutti til Bakkafjarðar og
hélt heimili með Jónasi syni sínum
þar til áfallið kom og hún var flutt á
sjúkradeild á Vopnafirði. Hún var
aldrei heilsuhraust en þrautseigjan
þeim mun meiri. Aldrei kvartaði hún
þótt hún fatlaðist á öxl og fleira bag-
aði. Hélt áfram að hekla fín milli-
verk í sængurver handa afkomend-
um, síðast langömmubörnum, og var
á síðasta ári að ljúka við handa einu
væntanlegu. Sagðist hún verða að
hafa handavinnu. Hún gaf allt jafn-
óðum.
Við kynntumst svo náið þegar við
fórum saman í ferðir með Ferða-
félagi Vopnafjarðar. Hún gat þá far-
ið að skoða sig um og var mikill
náttúruunnandi og tók margar
myndir. Oft bauð hún barnabörnum
með í þessar ferðir að sýna þeim
náttúruna og landið. Seinna kom
hún oft til mín og dvaldi okkur til
ánægju. Var hún þá að sinna erind-
um á Vopnafirði, s.s. læknisheim-
sóknum o.fl. Ekki var hún gráðug að
taka lyf nema af brýnni þörf. Alltaf
hugsaði hún um að gefa jóla- og af-
mælisgjafir og var ég þá að aðstoða
hana við það. Ég undraðist hvað hún
mundi eftir öllum og einnig aldr-
inum á börnunum.
Hún fór á seinni árum í sumar-
ferðir með eldri borgurum á Egils-
stöðum og Vopnafirði og naut þess
þótt heilsan leyfði það varla. Eins
dvaldi hún stundum í sumarbúðum
viku í senn við Vestmannsvatn.
Hún var sérstök húsmóðir, allt í
röð og reglu og fínt. Var hún einnig
ávallt vel til fara.
Hún bakaði með kaffinu og sá um
eldamennsku fram að áfallinu.
Margir komu líka í kaffi til hennar
og urðum við einnig þess aðnjótandi.
Var hún að baka þegar hún fékk
áfallið og var flutt á sjúkradeild á
Vopnafirði þannig að það var hennar
síðasta verk.
Hún var orðin mjög veik undir
það síðasta, þráði hvíldina. Hún
hafði rænu annað slagið og vissi að
hverju fór og bað dóttur sína fyrir
kveðju til Bakkafirðinga. Ég náði að
kveðja hana síðasta kvöldið áður en
hún dó.
Kveðjur hennar til Bakkfirðinga
voru fluttar við útför hennar við
Skeggjastaðakirkju 18. desember sl.
Ég kveð þessa öldnu heiðurskonu
með þökk og blessun Guðs.
Samúðarkveðjur sendi ég til fjöl-
skyldu hennar.
Minningin lifir um mæta konu.
Hvað er hel?
Öllum líkn, sem lifa vel,
engill, sem til lífsins leiðir,
ljósmóðir, sem hvílu breiðir.
Sólarbros, er birta él,
heitir hel.
(Matth. Joch.)
Valgerður Friðriksdóttir.
Sigríður Sigurðardóttir
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN SUMARLIÐADÓTTIR,
Heiðarhorni 6,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðviku-
daginn 14. janúar.
Leifur S. Einarsson,
Oddný Guðbjörg Leifsdóttir, Björn Ólafsson,
Leifur Gunnar Leifsson, Brynja Hjaltadóttir,
Bryndís María Leifsdóttir, Friðrik Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur sonur minn, bróðir okkar og mágur,
GUNNAR ÓLAFUR SKARPHÉÐINSSON
frá Þingeyri,
Hátúni 10,
Reykjavík,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnu-
daginn 11. janúar, verður jarðsunginn frá
Þingeyrarkirkju föstudaginn 23. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Björgunarsveitina Dýra á Þingeyri eða
Rauðakrossdeild Dýrafjarðar.
Guðrún Markúsdóttir,
Sigríður Skarphéðinsdóttir, Skarphéðinn Ólafsson,
Njáll Skarphéðinsson, Pálína Baldvinsdóttir,
Guðbjörg Skarphéðinsdóttir, Hilmar Pálsson,
Bjarki Skarphéðinsson, Sigrún Lárusdóttir.
✝
Okkar hjartkæra
RAGNHEIÐUR BENEDIKTSDÓTTIR,
Ragna,
frá Erpsstöðum,
Laugavegi 39,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 11. janúar, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 20. janúar kl. 13.00.
Halldóra Benediktsdóttir, Arndís Lilja Níelsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTRÚN H. JÓNSDÓTTIR,
Hlynsölum 1,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn
20. janúar kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega bent
á líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Steingrímur Jónasson,
Bjarney Kolbrún Garðarsdóttir,
Tryggvi Garðarsson,
Rósa Steingrímsdóttir, Stefán Hjörleifsson,
Jón Þór Steingrímsson, Sheida Keshtkar,
Rebekka Stella, Tryggvi Þór, Ástþór, Silja, Harpa,
Steingrímur Kolbeinn, Róbert Ingi, Andri Snær.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ODDNÝ GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skógarbæ,
áður Lautasmára 12,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 11. janúar.
Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 19. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra
barna.
Vilborg Pétursdóttir, Sigurður Haraldsson,
Guðmundur Pétursson, Elsa Jónsdóttir,
Sigríður Pétursdóttir, Heiðar Vilhjálmsson,
Hendrik Pétursson, Marianne Hansen,
Halldóra Pétursdóttir, Jóhann Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.