Morgunblaðið - 18.01.2009, Síða 42

Morgunblaðið - 18.01.2009, Síða 42
42 Minningar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 ✝ Gylfi Magnússonfæddist í Reykja- vík 5. maí 1930. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi 14. desember síð- astliðinn Foreldrar hans voru Margrét Jónsdóttir, f. á Stóra- Hálsi í Grafnings- hreppi 26.11. 1906 , d. 31.1. 1985 og Guð- mundur Magnús Ólafsson, f. í Eyvík í Klausturhólasókn í Árnessýslu 2.8. 1901, d. 12.5 1973. Gylfi átti fjögur systk- ini sem öll eru á lífi. Þau eru: Ás- laug Hulda, f. 10.2 1928, Hjördís, f. 12.4 1933, Jón Heiðar, f. 22.5 1936 og Rúnar, f. 27.4 1946. Gylfi kvænt- ist 13.11. 1954 Huldu Dagmar Magnúsdóttur, f. í Reykjavík 3.8 1926. Foreldrar Huldu voru Guð- rún Ragnheiður Brynjólfsdóttir, f. í Miðhúsum í Biskupstungum 20.8. 1886, d. 11.6. 1976 og Magnús Gísla- son, f. á Melum í Kjós 18.8. 1872, d. 11.9. 1943. Synir Gylfa og Huldu eru: 1) Magnús, f. 20.12 1951, kvæntur Dagrúnu Gröndal, f. 6.9. 1953. Börn þeirra eru: a) Hulda Dagmar, f. 2.6. 1974, dóttir hennar er Írena Þöll Arnarsdóttir, f. 25.12. 1998, og b) Berglind Ósk, f. 15.4 1978. 2) Gylfi, f. 24.11 1955, kvænt- ur Sigrúnu Ásmundsdóttur, f. 25.4 1958. Börn þeirra eru: a) Jóhanna, f. 9.5 1980, sambýlismaður Jón Ágúst Garðarsson, f. 7.2 1980, dótt- ir þeirra er Aníta Eik, f. 6.11. 2004. b) Ólafur Gylfi, f. 18.9. 1983, unn- usta Helga Margrét Haraldsdóttir, f. 30.12. 1985, og Arna Björk, f. 12.7. 1996. 3) Örn, f. 25.6 1960, kvæntur Sveinbjörgu Brynjólfsdóttur, f. 31.8. 1962. Dóttir þeirra er Brynja, f. 13.5. 1995. Gylfi fluttist ungur að árum með fjöl- skyldu sinni í Þing- vallasveit, að Mjóa- nesi, þar sem hann ólst upp. Á unglings- árum fluttist hann í Hafnarfjörð til þess að stunda nám við Flensborg- arskólann, en þaðan útskrifaðist hann sem gagnfræðingur og hlaut verðlaun fyrir góðan námsárangur. Að námi loknu fór hann fljótlega út á vinnumarkaðinn og fór snemma að vinna sjálfstætt sem verktaki við jarðvinnu og gatnagerð. Eftir að hafa árum saman starfað sem sjálf- stæður verktaki, seldi hann rekst- urinn og hóf störf sem verkstjóri hjá Breiðholti hf. Síðar gerðist hann verkstjóri hjá Húsnæðisnefnd Reykjavíkur og starfaði hann þar uns hann fór á eftirlaun. Gylfi og Hulda voru gift í 58 ár. Þau hófu búskap á Sogavegi, en lengst af bjuggu þau á Seltjarn- arnesi með viðkomu á Álftarnesi og í Grafarvogi. Síðustu átta ár hafa þau búið á Naustabryggju í Reykja- vík. Útför Gylfa fór fram frá Áskirkju 22. desember, í kyrrþey að ósk hins látna. Jæja, þá er hann loksins búinn að fá hvíldina. Eftir löng og ströng veikindi lést pabbi aðfaranótt 14. desember sl. Mig langar að minnast og kveðja hann með þessum skrif- um. Í minningu var pabbi hinn sterki og skynsami maður í fjölskyldunni sem alltaf var hægt að leita til og fá góð ráð og var hann boðinn og bú- inn til að hjálpa eins og unnt var. Stóran hluta af starfsævinni starf- aði hann sem verktaki og síðar verkstjóri við byggingarfram- kvæmdir að uppbyggingu verka- mannabústaða í Breiðholti og öðr- um hverfum í Reykjavík er fylgdu á eftir. Hæfni hans til verkstýringar kom sér vel í fjölskyldunni, hvort sem einhver var að fara að flytja eða þurfti að mála, þá tók pabbi alltaf að sér að undirbúa, kalla til mannskap og tryggt var að gengið yrði í verkið og allir hjálpuðust að. Pabbi var ötull að hvetja mann til verka og ekki var ég hár í loftinu þegar pabbi réð mig í mína fyrstu sumarvinnu. Þá hafði pabbi keypt gamla skurðgröfu og kom henni fyrir ekki langt frá þar sem við bjuggum, gerði svo samning við mig um að snurfusa og mála tækið. Þarna hamaðist ég lungann úr sumrinu, móður minni til mikillar armæðu þar sem málningin fór að miklu leyti á sjálfan mig og fötin og lenti því á henni að þrífa en pabbi hafði gaman af þessu og var dug- legur að hrósa mér fyrir verkið. Þegar ég var að kaupa mína fyrstu bíla og íbúð þá tók maður pabba með til að skoða og meta og alltaf hvatti hann mann áfram og brúaði tímabundið það sem upp á vantaði ef hann mat að fjárfestingin væri raunhæf. Tafl og bridge voru hans áhuga- mál, oft var erfitt fyrir hann að finna tíma til að sinna sínum hugð- arefnum og þegar maður hugsar til þess í dag hvað hann náði góðum árangri í skákinni og keppnisbrids þar sem lítill tími var til að sinna hugðarefninu því vinnudagur var langur. Utanumhald heimilisins var hjá mömmu og leystu þau verka- skiptinguna farsællega og var hjónaband þeirra farsælt og gott veganesti út í lífið fyrir okkur bræður. Rökrænar þrautir voru ætíð spennandi viðfangsefni. Það voru góðar stundir á jólum að leysa skákþrautir og myndaþrautir sem komu út fyrir jól. Nú varð maður fyrir síðustu jól að treysta á eigið hyggjuvit! Ég man þegar Taflfélag Seltjarnarness var stofnað á átt- unda áratugnum hvað ég var stolt- ur af pabba að hann skyldi flytja sig yfir til okkar frá TR og með því sýna sinn stuðning við uppbygg- ingu á ungu félagi. Pabbi hefur verið sjónskertur í nokkur ár og því ekki getað sinnt sínum hugðarefnum. Íþróttum fylgdist hann alltaf vel með og þá sérstaklega handbolta. Þar var hann vel inni í öllum málum, það var ánægjulegt að sitja með honum í desember og fylgjast með undan- úrslitaleik í handboltanum. Hann var vel inni í hlutunum og þekkti vel til leikmanna. Við leiðarlok eru orð fátækleg en minningar góðar sem munu lifa áfram með okkur. Örn. Elsku afi minn, þú hefur kvatt þennan heim. Á þessari stundu hlýnar mér um hjartarætur því margar góðar minningar rifjast upp. Minning mín um þig er og verður alltaf falleg. Þú varst eini afi minn og ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem afa, ég hefði ekki getað óskað mér betri afa. Mín fyrsta minning er þegar þið amma voruð ný flutt á Álftanesið, þar áttuð þið virkilega fallegt og kærleiksríkt heimili. Samband ykk- ar ömmu var einstakt, þið voruð svo samhent og samstiga í lífinu og fjöl- skyldan var ávallt í fyrirrúmi. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til ykkar því við sátum aldrei auðum höndum, þið áttuð stóran og glæsilegan garð það sem við gátum gleymt tíma og stund í leik. Taflmaður varstu mikill, elsku afi og voru þær ófáar stundirnar sem þú eyddir með okkur barnabörn- unum við taflborðið. Þú kenndir okkur mannganginn, þegar við höfðum náð góðum tökum á honum kenndirðu okkur ýmis brögð, svo sem heimaskítsmát. Aldrei var tafl- ið langt undan og í minningunni varst þú ávallt við taflborðið. Mér er sérstaklega minnistæð sú hefð sem þú og synirnir höfðu komið ykkur upp á aðfangadagskvöld, að tefla eftir að við höfðum lokið við að opna gjafirnar. Þú og pabbi teflduð oft saman og það er greinilegt hvaðan skákáhugi hans er upprun- inn. Áhuginn á skák smitaðist því ég fór síðar að æfa skák, ég var mjög stolt af því að eiga afa og pabba sem góða skákmenn. Á unglingsárunum þegar ég tók mín fyrstu skref út á vinnumark- aðinn á sumrin, fékk ég að vinna með þér, þú varst góður verkstjóri og allir þeir sem unnu undir þinni stjórn báru mikla virðingu fyrir þér. Það var virkilega gaman að hafa kynnst þessari hlið á þér í þessi fimm sumur sem ég starfaði með þér. Mér þykir afskaplega vænt um að þú hafir fengið að kynnast dótt- ur minni Anítu Eik, þú sýndir henni alltaf svo mikinn áhuga og fylgdist vel með hvað var um að vera í lífinu hjá henni. Ég veit að þú ert á góðum stað núna og að þér líður vel þar, hvíl þú í friði, elsku besti afi. Þín, Jóhanna. Ástkær afi minn er látinn. Sökn- uðurinn teymir mig á vit minning- anna. Minninga frá minni yndislegu barnæsku sem elsku afi átti svo rík- an þátt í. Minningar um litla stelpu sem ólst upp við ótæmandi ást, hlýju og gleði. Ég vildi óska að ég gæti, þó ekki væri nema örstutt augnablik, orðið aftur þessi litla stelpa og hjúfrað mig upp að afa mínum. Heyrt hann hlæja að blaðrinu í mér og séð skilningsríkt brosið þegar ég nota bækurnar hans fyrir stiga, byggi borg úr spil- unum hans eða dreg alla taflmenn- ina hans með mér í bað. Ég loka augunum og sé fyrir mér húsið á Lindarbrautinni. Afi situr í stólnum sínum, niðursokkinn í krossgátu, og amma raular lagstúf í eldhúsinu. Amma biður mig að segja pabba að maturinn sé tilbúinn. Hún hefur alltaf átt það til að segja „pabbi þinn“ þegar hún talar um afa, enda má eiginlega segja að ég hafi verið svo lánsöm að eiga tvo pabba. Mér finnst eins og þarna hafi alltaf verið sumar, alltaf verið sól. Ég var mik- ill gaur og þau voru ófá tárin sem þurrkuð voru af rauðum kinnunum og ófáir plástrarnir sem settir voru á hrufluð hnén. Ég hlýt að hafa reynt verulega á þolrifin þó bæði afi og amma hafi ávallt tekið öllu með stakri ró. Þolinmæði þeirra átti sér engin takmörk. Afi var kletturinn sem allt gat lagað og öllu gat bjargað. Hann var hetjan. Ég man hvað mér fannst gaman þegar hann læsti lyklana sína inn í geymslunni. Þá var það ég sem skreið inn um gluggann, opnaði hurðina og var hetjan. Það kom líka fyrir að ég læsti lyklana inni í geymslunni, bara svo ég gæti kom- ið og bjargað afa. Ég óx úr grasi en var samt alltaf stelpan hans afa. Það var alveg sama hvaða gloríur ég fékk í koll- inn, hann hafði alltaf trú á mér. Alltaf stóð hann við bakið á mér tilbúinn að hjálpa mér þegar mér mistókst, leiða mig þegar ég villtist og styðja mig þegar ég hrasaði og datt. Ef ég bara gæti fundið faðm- lagið hans einu sinni enn. Það var dásamlegur tími er ég og dóttir mín bjuggum hjá afa og ömmu í Krana- dalnum. Það var allt gert til að sem best færi um okkur og það fór sannarlega vel um okkur. Við grip- um iðulega í spil á kvöldin og alltaf vann afi. Svo þegar hjónakornin voru gengin til náða, heyrði ég tíst- ið og pískrið í þeim fram. Mér fannst það dásamlegt. Að geta hlegið saman eftir öll þessi ár og pískrað eins og spenntir unglingar, var eitt af því sem gerði sambandið þeirra svo fallegt. Afi minn var sterkur persónu- leiki sem endurspeglaðist í nærveru hans. Hann var rólegur, traustur, sterkur og skynsamur. Hann var ávallt yfirvegaður og sanngjarn. Þá sjaldan sem hann ávítaði mig, þá vissi ég að ég átti það skilið. Þegar hann hrósaði mér, þá vissi ég líka að ég átti það skilið. Hann var virðulegur í framkomu en undir niðri kraumaði þó kímnin og fallega brosið hans var aldrei langt undan. Hann var bókstaflega gæddur öll- um þeim kostum sem unnt er að koma fyrir í einni manneskju. Hann var besti afi sem nokkur stelpa get- ur mögulega átt. Elsku afi minn, takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og allt sem þú kenndir mér. Ég mun alltaf elska þig. Hulda Dagmar Magnúsdóttir. Gylfi Magnússon Okkur langar að minnast ömmu okkar, Sigurlaugar Ingunnar, þar sem hún hefði orðið níræð í dag, eða Laugu í Hrauni með nokkrum orðum. Í minningunni sem stelpuskottur Sigurlaug Ingunn Sveinsdóttir ✝ Sigurlaug IngunnSveinsdóttir fæddist í Vinaminni á Blönduósi 18. janúar 1919. Hún lést í Kjarnalundi á Ak- ureyri 21. desember síðastliðinn og var út- för hennar gerð frá Glerárkirkju 9. jan- úar. var fátt eins notalegt og að koma í Hraun til ömmu og afa. Þær voru ófáar stundirnar sem við sátum á eldhús- bekknum og grömsuð- um aftur og aftur í gegnum glingrið og gersemarnar sem voru geymdar í hinum ýmsu krukkum og skálum í eldhúsglugganum. Ein- hver hafði á orði að það væri bekkjarbúskapur hjá Laugu í Hrauni, og virðist sá búskapur hafa fylgt nokkr- um af systrunum úr Hrauni. Það voru ófá skiptin sem við feng- um að bjóða ömmu upp á hárgreiðslu þar sem hún leiðbeindi okkur um réttu handtökin við rúllurnar, og var hún alltaf jafn ánægð með útkomuna. Amma var snillingur þegar kom að handavinnu og liggja ófá meistara- stykki eftir hana, t.d. púðar, teppi, út- saumsmyndir o.fl. Verk hennar bera merki um listræna hæfileika og næmt auga fyrir litasamsetningu. Eftir standa mikilfengleg verk eftir hana, sem við fáum að njóta.Við ætlum að gera orð langömmubarnanna að okk- ar: „Amma er núna glöð að hitta afa aftur.“ Elsku amma, við þökkum þér fyrir samfylgdina í gegnum árin. Guðrún Ágústa, Sigríður Ingunn, Sigurlaug Ingunn og fjölskyldur. ✝ Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, GUÐBJÖRNS E. GUÐJÓNSSONAR fv. kaupmanns, Engjateigi 5, Reykjavík. G. Hafsteinn Guðbjörnsson, Maj-Britt Kolbrún Hafsteinsdóttir, Hilmar Guðbjörnsson, Sveinbjörg Einarsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vinarhug og samúð við andlát og útför ÓLAFAR BENEDIKTSDÓTTUR menntaskólakennara. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Anna Pálsdóttir, Ragnhildur Pálsdóttir. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall ástkærs föður okkar, afa og langafa, ÞÓRÐAR KR. JÓHANNESSONAR skipstjóra frá Gauksstöðum, Garði, til heimilis á Álfaskeiði 64, Hafnarfirði, sem lést sunnudaginn 21. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar og til lækna, hjúkrunar- og starfsfólks á krabbameins-, hjartadeild og bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut. Einar Þórðarson, Bergljót Jóhannsdóttir, Matthildur Þórðardóttir, Lárus Einarsson, Jóhannes Þórðarson, Margrét Sigmarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.