Morgunblaðið - 18.01.2009, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.01.2009, Blaðsíða 43
Minningar 43 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 ✝ Jakobína Krist-mundsdóttir fædd- ist í Vestmannaeyjum 19. október 1918. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni í Reykja- vík 18. desember síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Krist- mundur Jónsson bif- reiðastjóri frá Ytri- Skógum, f. 10.9. 1889, d. 8.8. 1968 og Guð- laug Sigurðardóttir húsfrú frá Rauðafelli, Austur-Eyjafjöllum, f. 24.3. 1888, d. 22.3. 1983. Jakobína var eina barn þeirra hjóna. Jakobína giftist 1943 Bjarna K. Bjarnasyni vélstjóra, f. 4.9. 1911, d. 8.3. 1985. Þau slitu samvistum 1963. Börn þeirra eru 1) Guðlaug f. 17.11. 1943. Maki, Gísli Svavarsson, f. 15.2. 1943, d. 8.9. 2001. Í sambúð með Jóni T. Ágústssyni f. 25.4. 1936. Börn hennar eru a) Svavar f. 30.4. 1961, fyrrverandi kona hans er Agnes Guð- mundsdóttir f. 8.11. 1961, börn þeirra eru Birgir Þór f. 18.9. 1982, dætur hans eru Ásdís Birta f. 11.6. 2006 og Aníta Sóley f. 1.8. 2008. Berglind Ósk f. 27.3. 1987, og Brynjar Örn f. 26.4. 1988. Sambýliskona Svavars er Katarína Hörnfeldt, börn þeirra eru Emil An- dor f. 2.2. 2003 og Tinna f. 19.3. 2005. b) Guðlaug Rún f.10.3. 1975, maki Árni Gunnar Ragnarsson f. 15.10. 1974, sonur þeirra er Hlynur Snær f. 11.8. 2002. c) Bjarni Jakob f. 13.9. 1976, maki Bylgja Rún Stefánsdóttir f. 8.9. 1980, sonur þeirra er Stefán Ingi f. 19.10. 2006. 2) Bjarni f. 28.3. 1945, fyrrverandi kona hans er Margrét Eyjólfsdóttir f. 30.8. 1946. Sonur hennar og uppeldisbróður Bjarna er Guðbjartur f. 13.11. 1965. Barns- móðir Bjarna er Hildur Hilm- arsdóttir f. 4.11. 1941, dóttir þeirra er Guðlaug Ingibjörg f. 21.5. 1980, maki Ellert Guðjónsson f. 15.10. 1980. 3) Kristmundur f. 9.10. 1954. Jakobína ólst upp í Skógum í Vestmannaeyjum. Hún fór mjög ung til Reykjavíkur og lærði hár- greiðslu, sem var fátítt í þá daga. Hún varð meistari í þessari grein og starfaði við þá iðn þar til hún gifti sig 1943. Þá færðust störf hennar inn á heimilið. Jakobína átti við mik- ið heilsuleysi að stríða. Hún flutti til Vestmannaeyja eftir skilnað og lát föður síns og hélt þar heimili með móður sinni fram að gosi 1973. Þá fluttu þær mæðgur til Reykjavíkur. Jakobína eyddi síðustu árum sínum á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þar sem sérstaklega vel var hugsað um hana. Útför Jakobínu fór fram í kyrr- þey. Ó, minning þín er minning hreinna ljóða, er minning þess, sem veit hvað tárið er. Við barm þinn greru blómstur alls hins góða. Ég bið minn guð að vaka yfir þér. (Vilhjálmur frá Skáholti.) Kæra mamma, nú er komið að leið- arlokum. Ég ætla að kveðja þig með nokkrum orðum. Minningarnar hrannast upp en ég tel bara upp fá- einar. Þú varst fallegasta kona sem ég hef séð. Það átti enginn eins fal- lega mömmu og ég, alltaf svo fín og hárið í lagi, snyrtileg varstu svo af bar. Þú passaðir líka upp á að ég væri fín. Ég man þegar þú varst að krulla á mér hárið, þú lagaðir líka hárið á vinkonum mínum. Ég man þegar við fórum í bíó saman, sáum sömu mynd- ina oft, ég man um hvað hún var. Lagið í myndinni var Ave María. Ég man eftir jólunum með ykkur pabba. Ég man þegar við vorum að fara með mjólkurbátnum til Vestmannaeyja. Já, það var oft mjög gaman hjá okk- ur. Þú varst bara ung kona þegar vondur sjúkdómur lagði stein í götu þína. En þú varst svo dugleg, hugs- aðir um ömmu, hélst heimili með henni eftir að afi dó. Síðan kom gosið í Eyjum og þið fluttust til Reykjavík- ur. Ykkur leið bara vel hér í borginni. Það var gott að koma til ykkar í Síðu- múlann. Fyrir um það bil tíu árum greindist þú með Alzheimer. Það var mjög erfitt fyrir alla. Þú hvarfst þér sjálfum og okkur hvarfst inn í höfuð þitt dyr eftir dyr luktust og gátu ei opnast á ný þú leiðst hægt á brott gegnum opnar bakdyr bústaður sálarinnar er hér enn en stendur auður sál þín er frjáls líkami þinn hlekkjaður við líf sem ekki er hægt að lifa þú horfðir framhjá mér tómum augum engin fortíð engin framtíð engin nútíð við fengum aldrei að kveðjast. (T.F.B. - þýð. Reynir Gunn- laugsson.) Síðustu árin þín voru í Sóltúni þar sem var hugsað um þig eins og prins- essu. Þar fórstu alltaf reglulega í hár- greiðslu, alltaf jafn falleg og fín. Þökk sé starfsfólkinu í Sóltúni. Hversu langt sem lífið okkur ber lifir bernskuminning helguð þér. Héðan skal þér fylgja á guðs þíns fund fögur þökk frá margri ljúfri stund. (H.Sv.) Kæra mamma, takk fyrir minning- arnar. Hvíldu í friði, Guð geymi þig. Þín dóttir, Guðlaug. Elsku amma Bína. Þegar við sátum hjá þér í Sóltúni síðustu dagana sem þú lifðir fórum við systkinin að rifja upp gamlar minningar um þig frá því við vorum yngri. Minningarnar eru margar og langar okkur að rifja upp nokkrar þeirra sem okkur þykir hvað mest vænt um. Við komum oft í heimsókn til þín í Síðumúlann, bæði þegar Lauga amma bjó hjá þér og einnig eftir að hún lést. Þú tókst ávallt á móti okkur með bros á vör og ekki var verra að fá að njóta þeirra kræsinga sem þú hafði upp á að bjóða. Standa þá hæst í minningunni appelsínur með sykur- molum, pylsur, lakkrís og matarkex sem við dýfðum í kaffi. Á jólunum var alltaf rosalega spennandi að koma til þín því þú áttir langflottasta jólatré sem við höfðum nokkurn tímann augum litið. Þú hafð- ir það uppi á stórum pappakassa sem þú skreyttir með bómul og tréð sjálft, sem var plasttré, var skreytt með marglitum jólakúlum og seríu. Í kjallaranum í Síðumúlanum var prentsmiðja og smíðaverkstæði en þar gátum við fengið allan þann pappír sem við vildum til að teikna og lita á og spýtukubbana sem við feng- um gefins notuðum við sem bíla eftir að búið var að teikna á þá dekk og glugga. Ef við fengum gefins þykkan pappír var hann notaður í litla báta sem litu út eins og litlar seglskútur, límdar saman með glæru límbandi sem við létum svo sigla um í sturtu- botninum hjá þér fullum af vatni. Það var margt leyfilegt þegar við fórum til ömmu. Í húsinu á móti íbúð- inni þinni var Síðumúlafangelsið og var ófáum stundum eytt við gluggann í stofunni þar sem við fylgdumst spennt með ferðum til og frá fangels- inu. Þú hafðir nú alveg jafn gaman af því og við. Þar sem þú áttir ekki bíl var strætó í miklu uppáhaldi hjá þér en þú lést þér ekki nægja að ferðast frá A til B heldur var strætó notaður í skoðunarferðir um Reykjavík og var okkur systkinunum þá oftar en ekki boðið með í bíltúr. Ekki þýddi fyrir mig að ferðast með þar sem ég átti það til að stökkva út á hverju götu- horni bílveikur og grænn í framan en Gulla fór ófáar ferðirnar með þér um Reykjavík. Þegar þú fluttir í Austurbrún hitti Gulla þig nær daglega um tíma. Þeg- ar hún kom í heimsókn að morgni til bauðstu henni ávallt að leggja sig að- eins með þér áður en þið fenguð ykk- ur að borða. Þegar búið var að fá sér næringu var ýmist spilað olsen olsen eða lagður kóngakapall. Fljótlega eftir að þú fluttir í Austurbrún fór að bera á því að minnið brygðist þér og smátt og smátt hættir þú að þekkja okkur. Þegar hjúkrunarheimilið Sól- tún var opnað varst þú með fyrstu íbúum sem fluttust þar inn. Þrátt fyr- ir að þú hafir greinst með Alzheimer og hafir lítið sem ekkert þekkt þína nánustu síðustu árin var alltaf stutt í brosið. Það var alveg sama á hvaða tíma við komum til þín, þú sast ávallt í rólegheitunum, sönglandi Öxar við ána, brostir til okkar og hlóst þegar við töluðum við þig. Þannig munum við minnast þín. Elsku amma Bína. Við minnumst þín með hlýhug í hjarta og þökk fyrir þær góðu stundir sem við áttum með þér. Guð veri með þér Bjarni Jakob og Guðlaug Rún. Með sárum söknuði kveðjum við þig, elsku amma, langamma og langa-langamma. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku amma. Við viljum þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með þér, stundir sem nú eru varðveittar í minningunni. Takk fyrir allt. Svavar Gíslason og fjölskylda. Elsku Bína mín. Nokkur kveðju- og þakkarorð til þín þegar þú nú hefur kvatt okkur. Margs er að minnast og er mér þakk- læti til þín efst í huga fyrir það hvað þú varst alltaf góð við mig og dreng- inn minn, sem þú tókst sem þitt barnabarn. Alltaf vildir þú vita um Bjart og fjölskylduna, hvar hann væri í heiminum núna. Ógleymanleg er nóttin þegar við Baddi og Bjartur komum til þín og ömmu í Skógum vesturí og sögðum ykkur að farið væri að gjósa og að við yrðum að fara í land. Við vissum nú ekki alveg þá hvernig við ætluðum að komast en hugsuðum um það eitt að gera ykkur ekki hræddar, en þið voruð auðvitað bara rólegar, hugsuðuð bara um Bjart, barnið. Tíminn sem þú áttir, Bína mín, með ömmu í Síðumúlanum var góður og þú hugsaðir vel um hana. Í dag hugsa ég um þennan tíma, um hvað þú hugsaðir vel um ömmu og Bóbó og reyndar okkur öll hin í fjölskyldunni, þú sem varst með þennan hræðilega sjúkdóm, sem svipti þig þeirri lífs- hamingju sem þér var ætluð. En þú barst þig alltaf með reisn og varst alltaf svo falleg. Gleðin þín í lífinu var að þú áttir þrjú góð börn, sem allt gerðu til hjálpar, og svo þessi fínu barnabörn og barnabarnabörn. Bína mín, ég er svo þakklát fyrir að hafa getað verið með þér á áttræð- isafmælisdaginn og eiga allar góðu minningarnar í hjartanu. Þökk fyrir allt og guð geymi þig, þín Magga. Innilegar samúðarkveðjur til Lau- lau, Badda og Bóbó og fjölskyldna þeirra Margrét, Bjartur og fjölskylda. Jakobína Kristmundsdóttir Mér er ljúft og skylt að minnast föðursystur minnar Ólafar Bene- diktsdóttur sem lést hinn 30. des sl. Ég minnist hennar fyrst á síðari ár- um seinni heimsstyrjaldarinnar, þeg- ar hún bjó á efri hæð á Skólavörðustíg 11a í húsi foreldra sinna sem bjuggu á neðri hæðinni. Þar bjó hún ásamt Guðjóni Kristinssyni fyrri eiginmanni sínum og dóttur þeirra Guðrúnu, sem fæddist 1941 en lést á sl. ári eftir erfið veikindi. Á þessum árum átti ég heima á Laugavegi 18, en fjölskylda okkar flutti þaðan árið 1948 en þá var ég tíu ára. Þar sem ég var þremur árum eldri og reyndari en Guðrún litla frænka mín fékk ég stundum það verk að passa hana. Oftast héldum við okkur í garðinum á Skólavörðustíg en ég minnist þess enn að hafa farið með Guðrúnu að sýna henni kolakranann Ólöf Benediktsdóttir ✝ Ólöf Benedikts-dóttir, mennta- skólakennari, fæddist í Reykjavík 10. októ- ber 1919. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 30. desem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 9. janúar. við höfnina. Spennandi leiksvæði var í og við ko- labinginn. Ég fékk litlar þakkir þegar ég skilaði Guðrúnu heim og við bæði þakin kolaryki. Ekki er hægt að nefna Ólöfu án þess að nefna Guðrúnu tvíbura- systur hennar en þær voru eineggja tvíburar og svo líkar á yngri ár- um að nánir ættingjar áttu erfitt með að þekkja þær í sundur. Þær voru afar nánar meðan báðar lifðu, en Guðrún lést fyr- ir 12 árum. Þær systur voru mér hlýjar og um- hyggjusamar alla ævi og vildu alltaf fá koss á kinnina þegar við hittumst. Seinni maður Ólafar var Páll Björnsson hafnsögumaður og eignuð- ust þau dæturnar Önnu og Ragnhildi. Ólöf átti langan og farsælan feril sem menntaskólakennari við Mennta- skólann í Reykjavík. Það gladdi hana þegar gamlir nemendur hennar sýndu henni þakklæti fyrir árangurs- ríka kennslu. Að leiðarlokum vil ég þakka Ólöfu fyrir velvildina og ræktarsemina sem hún sýndi mér og mínum alla tíð. Afkomendum hennar og fjölskyldu bið ég allrar blessunar. Benedikt Sveinsson. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, EUFEMIU KRISTINSDÓTTUR, Ebbu, Garðatorgi 17, Garðabæ. Kristján Haraldsson, Halldóra S. Magnúsdóttir, Eysteinn Haraldsson, Finnborg Laufey Jónsdóttir, Sigurbjörn K. Haraldsson, Ingibjörg Sigurbergsdóttir, Einar Haraldsson, Jóhanna K. Guðbjartsdóttir, Haraldur Axel Haraldsson, Sigrún Ásta Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Haraldsdóttir, Snorri Olsen, Margrét Ásdís Haraldsdóttir, Hlynur Rúnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR frá Gvendareyjum, síðast til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Brynja Bergsveinsdóttir, Theodór Aðalsteinn Guðmundsson, Sigurður Bergsveinsson, Helga Bárðardóttir, Lára Bergsveinsdóttir, Guðmundur Guðjónsson, Alma Bergsveinsdóttir, Guðni Magnússon, Freyja Bergsveinsdóttir, Guðlaugur Þór Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.