Morgunblaðið - 18.01.2009, Side 48
48 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
3 6 2 5
2 5 7 4
6 8 2 3
3 5 4 7
5 4 8 9
4 9 7 2
7 9 6 8
1 6 5 9
3 9 1 6
2 7 1 9 5
1 3
5 9 8
8 6 3
6 8 1 3 9 7
1 5 2
6 8 5
1 7
9 2 4 1 3
5 8 4 6
9 4 3 7 2
4 3 9
5 9 1 7
7 1
1 5 8 6
7 5 3
9 5 3 1 7
1 4 6 3
6 9 2 4 1 8 5 7 3
3 8 4 7 2 5 6 1 9
7 5 1 3 9 6 8 2 4
4 7 8 9 6 2 1 3 5
9 1 6 5 3 4 2 8 7
2 3 5 8 7 1 9 4 6
5 4 3 1 8 9 7 6 2
1 2 9 6 4 7 3 5 8
8 6 7 2 5 3 4 9 1
5 8 2 1 6 4 7 3 9
6 4 3 2 7 9 5 1 8
7 9 1 3 8 5 6 4 2
4 1 7 5 3 8 9 2 6
3 2 6 9 1 7 8 5 4
9 5 8 4 2 6 1 7 3
1 7 4 6 9 2 3 8 5
8 6 5 7 4 3 2 9 1
2 3 9 8 5 1 4 6 7
5 3 2 4 1 9 8 6 7
6 8 1 5 2 7 3 9 4
7 4 9 3 8 6 5 2 1
3 1 8 7 6 2 4 5 9
9 7 6 1 5 4 2 8 3
2 5 4 8 9 3 7 1 6
1 2 7 9 4 5 6 3 8
4 9 5 6 3 8 1 7 2
8 6 3 2 7 1 9 4 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist töl-
urnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 18. janúar,
18. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Varir hins réttláta vita,
hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra
er eintóm flærð. (Ok. 10, 32)
Víkverji er mjög ánægður meðþjónustu um borð í flugvélum
Icelandair. Þegar Víkverji fór til
London á dögunum nýtti hann sér
reyndar ekki tæknibúnað um borð til
að horfa á kvikmyndir eða hlusta á
tónlist. Eftir á að hyggja botnar Vík-
verji ekkert í hugsunarleysi sínu en
hefur sér til afsökunar að þetta var
morgunflug og Víkverji er alllangt frá
sínu besta fyrir klukkan ellefu á
morgnana og hefur þá mjög takmark-
aða orku í að horfa á langar kvik-
myndir. Víkverji hugsaði því mest um
það á leið til áfangastaðar hversu gott
væri að flugtíminn væri ekki mjög
langur.
x x x
Íbakaleiðinni, í kvöldflugi, horfðiVíkverji hins vegar á eina og hálfa
kvikmynd. Þar sem hann er gríð-
arlega mikill kvikmyndaaðdáandi
ljómaði hann allan tímann þótt mynd-
irnar væru nokkuð frá því að falla
fullkomlega að smekk hans.
x x x
Sú fyrri var nýjasta Indiana Jones-myndin sem Víkverja fannst líða
fyrir of mikið tæknibrölt. Samt var
Harrison Ford nokkuð flottur og svo
var Cate Blanchett í myndinni og
Víkverji dáir hana. Þess vegna var
þetta allt í góðu lagi. Seinni myndin
var Dreamgirls sem var alveg þokka-
leg og þá sérstaklega vegna leiks
Jennifer Hudson sem fékk Ósk-
arsverðlaun fyrir leik sinn. Vélin lenti
áður en þeirri mynd lauk en Vikverji
vonast til að geta lokið áhorfi næst
þegar hann flýgur með Icelandair.
x x x
Víkverji hefur löngum verið nokk-uð flughræddur en fann nær
ekkert fyrir þeirri hræðslu í heim-
ferðinni þar sem mestur tíminn fór í
kvikmyndaáhorf. Hann mun sann-
arlega nýta sér góða þjónustu Ice-
landair í næstu flugferðum sem von-
andi verða sem flestar. Víkverji veit
nefnilega fátt skemmtilegra en að
koma til útlanda og af því hann er
vanafastur flýgur hann alltaf með
sama flugfélagi. Það er því býsna gott
að vita til þess að það fyrirtæki veitir
góða þjónustu. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 feiknaafls, 8
náirnir, 9 drolla, 10
greinir, 11 hryssan, 13
sleifin, 15 mjó ísræma,
18 snaginn, 21 ber, 22
ófríða, 23 flíkarræksni,
24 fylki í Svíþjóð.
Lóðrétt | 2 org, 3 sigruð,
4 skynfæra, 5 blaðs, 6
slepja, 7 fornafn, 12 fag,
14 ótta, 15 smáfiskur, 16
æra af víni, 17 kátt, 18
orðrómur, 19 málm-
blanda, 20 líffæri.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hrauk, 4 freta, 7 iðkar, 8 öldur, 9 pár, 11 aurs,
13 þrár, 14 ólæti, 15 háll, 17 ljúf, 20 sig, 22 iðjan, 23 eik-
in, 24 afræð, 25 tarfa.
Lóðrétt: 1 heita, 2 akkur, 3 karp, 4 fjör, 5 endar, 6 aðr-
ar, 10 áræði, 12 sól, 13 þil, 15 hrina, 16 lýjur, 18 jakar,
19 finna, 20 snið, 21 gert.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. d3 Be7
5. 0-0 0-0 6. He1 d6 7. a4 h6 8. a5 a6 9.
h3 Rh7 10. Rc3 Kh8 11. Rd5 f5 12. Bd2
f4 13. Bc3 Rg5 14. b4 Rxf3+ 15. Dxf3
Bg5 16. Had1 Re7 17. Rxe7 Dxe7 18.
d4 Bf6 19. He2 Bd7 20. dxe5 Bxe5 21.
Bxe5 Dxe5 22. Bd5 c6 23. Bc4 Hf6 24.
Hed2 Be8 25. Db3 f3 26. g3 Dxe4 27.
Hxd6 Hxd6 28. Hxd6
Staðan kom upp á opna Hastings-
mótinu sem lauk fyrir skömmu í Eng-
landi. Guðmundur Kjartansson (2.284)
hafði svart gegn enska stórmeist-
aranum Stewart Haslinger (2506).
28. …Bf7! svartur vinnur nú óumflýj-
anlega mann vegna þess að eftir 29.
Bxf7 De1+ verður hvítur mát í tveim
leikjum. 29. Dc3 Dxc4 30. Hxh6+ Kg8
31. Dxc4 Bxc4 32. Hh4 Be6 og svartur
innbyrti vinninginn 24 leikjum síðar.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Gölturinn Zia.
Norður
♠32
♥KD7
♦Á109
♣ÁD764
Vestur Austur
♠KG94 ♠1087
♥32 ♥10965
♦D54 ♦876
♣10985 ♣G32
Suður
♠ÁD65
♥ÁG84
♦KG32
♣K
Suður spilar 6G.
„Allir spilarar eru geltir inn við
beinið,“ sagði Victor Mollo og átti
við þá áráttu okkar að stela samn-
ingum af makker. Sennilega er þetta
ekki alveg rétt metið hjá skáldinu,
en Zia Mahmood er alla vega göltur.
Hann vakti á 1G í suður, gagngert
til að tryggja sér sagnhafasætið.
Norður lyfti í 4G og Zia í sex.
Lauftían út.
Það dugir í tólf slagi að finna ♦D,
en ef ekki má svína í spaða til vara.
Tveir möguleikar, en Zia fann þann
þriðja. Hann spilaði hjarta þrisvar
og endaði í borði, en vestur henti
spaða í þriðja hjartað. Þetta var leg-
an sem Zia var að leita að. Hann tók
♣Á-D og sendi vestur inn á fjórða
laufið. Þar með var fimmta laufið
frítt og síðan varð vestur að gefa úr-
slitaslaginn á spaða eða tígul.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur í mörgu að snúast og
skalt fá fólk í lið með þér til að leggja
hönd á plóg því þá gengur allt eins og í
sögu. Markmið þitt er að bæta lífsleikni
viðkomandi.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Allir vilja vera hamingjusamir og
komast hjá þjáningum, sem þýðir að við
eigum meira sameiginlegt en það sem
sundrar okkur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Vertu var um þig, því það er
einhver draugagangur í gangi sem bein-
ist að þér og þínum störfum. Nú er rétti
tíminn fyrir þig til þess að söðla alveg
um.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú trúir sjálfur að þú sért tilbú-
inn til að taka næsta skref hvað skap-
andi vinnu varðar. Heimboðunum ætti að
vera farið að rigna yfir þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú vilt gera lítils háttar breytingar
heima fyrir en skalt ekki hefja þær fyrr
en þú hefur tekið allt inn í dæmið.
Sinntu vinum og vandamönnum sér-
staklega.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert friðsæll og í góðu jafnvægi
og hefur því góð áhrif á alla í kringum
þig. Notið tækifærið og talið við aðra um
sameiginlegar eignir og leiðir til úrbóta.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú sérð ekki fram úr önnunum og
þarft að komast frá í smátíma. Hvaðeina
sem viðkemur heimilinu mun gleðja þig.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur mikla þörf fyrir að
gera breytingar í einka- og fjölskyldulíf-
inu. En svo lengi sem fyrirætlanir þínar
eru einlægar færðu án efa hjálp.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þarft að taka á honum
stóra þínum í dag því náinn vinur mun
aldeilis reyna á þolrifin. Allir hafa gott af
tilbreytingu svo skelltu þér út á lífið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Taktu þátt í umræðunni, en
mundu að ef þú vilt ná eyrum annarra
þarft þú að vanda framkomu þína og
málfar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Sambönd við ólíklegasta fólk
munu færa þér mikla velgengni. Planaðu
starfsframa þinn eða hlúðu að mannorð-
inu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú getur haldið samstarfs-
mönnum þínum á tánum án þess að vera
með hávaða eða læti. Taktu bara tillit til
annarra.
18. janúar 1930
Hótel Borg tók til starfa þegar
veitingasalirnir voru opnaðir,
en gistihúsið var tekið í notkun
í maí. Hótelið var sagt „meiri
háttar gisti- og veitingahús“ en
það var reist „vegna vænt-
anlegrar gestakomu, mikillar
og virðulegrar“ til Alþing-
ishátíðarinnar, sagði í Árbók-
um Reykjavíkur.
18. janúar 1969
Eldur kom upp á Korpúlfs-
stöðum. Miklar skemmdir urðu
á húsinu og hluti af skjalasafni
borgarinnar brann.
18. janúar 1986
Flugfreyjur gleymdust þegar
vél Flugleiða fór frá Reykjavík
til Egilsstaða. Vélin var yfir
Þingvöllum þegar þetta kom í
ljós og var henni snúið við til
Reykjavíkur og flugfreyjurnar
sóttar.
18. janúar 2003
Vefútgáfa Íslendingabókar var
opnuð almenningi. Á fyrstu
klukkustundinni sóttu þrjú
þúsund manns um aðgang og
tugir þúsunda næstu daga. Í Ís-
lendingabók eru upplýsingar
um 95% Íslendinga síðustu
þrjár aldir og helming allra frá
landnámi.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Drífa Árna-
dóttir, bóndi og
söngkona, er
fimmtug í dag,
18. janúar. Hún
er til heimilis að
Uppsölum í
Skagafirði. Drífa
er að heiman á
afmælisdaginn.
50 ára
VERALDLEGIR hlutir eru ekki ofarlega á óska-
lista Páls Rósinskrans söngvara yfir gjafir í tilefni
35 ára afmælisins í dag. Helst vill hann ást og kær-
leik, eins og hann orðar það, en íslenskir ullar-
sokkar koma þó til greina og þá gjarnan til þess að
styrkja innlenda framleiðslu. Á yngri árum þótti
honum mest gaman af því að fá leikfangabíla.
Daginn vill hann helst hafa bara fyrir sig og kon-
una. „Hana langaði til þess að halda veislu en ég
vil hafa þetta kósí. Ég hélt stóra veislu þegar ég
varð þrítugur. Það komu 150 manns og hljómsveit
spilaði fyrir dansi. Það var góður matur á borðum,
villibráð og alls konar réttir,“ segir Páll sem sjálfur veiðir sér stund-
um til matar. Hann vonast til þess að fá góðan mat í dag en hefur ekki
ákveðið hvort hann borði heima eða að heiman. „Kannski konan komi
manni á óvart.“
Að sögn Páls er alltaf eitthvað um að vera hjá honum í tónlistar-
bransanum en hann söng í gærkvöld lag eftir Einar Val Scheving í
Söngvakeppni Sjónvarpsins. „Þetta var ættjarðarsöngur,“ segir Páll
sem gjarnan vill bregða sér í íslenska ullarsokka í kjölfarið.
ingibjorg@mbl.is
Páll Rósinkrans söngvari 35 ára
Í ullarsokka eftir sönginn
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is