Morgunblaðið - 18.01.2009, Side 49

Morgunblaðið - 18.01.2009, Side 49
Velvakandi 49 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009 Litli Svalur ' DUPUIS HELDURÐU AÐ HANN SÉ ENNÞÁ REIÐUR ÚT Í ÞIG SÍÐAN ÞÁ? HANN ER AÐ MINNSTA KOSTI ALVEG HÆTTUR AÐ TAKA Í HÖNDINA Á MÉR BLÓM ERU SVO VITLAUS EN NÚ HALDA ÞAU AÐ ÞAÐ SÉ RIGNING ÞAÐ ER SVO GAMAN AÐ RUGLA ÞAU SJÁÐU! ÞAÐ ER SÓL OG HEIÐUR HIMINN! TILRAUNIN FÓR ÚRSKEIÐIS OG KALVIN HEFUR BREYST Í RISASTÓRA FLUGU FLUGAN SVEIMAR UM GLORSOLTIN, Í LEIT AÐ ROTNANDI HOLDI HVAÐA DÝRLEGI FNYKUR ER ÞETTA? FLUGAN FÆRIR SIG NÆR BRÁÐINNI ÉG ER GLOR- SOLTINN EKKI VERA ÓGEÐSLEGUR, KALVIN. FARÐU BARA ÚT MEÐ RUSLIÐ EINS OG ÉG BAÐ ÞIG KALVIN, ÉG SKRÁÐI ÞIG Í SUNDKENNSLU! ÉG VIL EKKI LÆRA AÐ SYNDA! ÞAÐ ER OF SEINT AÐ KVARTA SKRÁÐIR ÞÚ LÍKA HOBBES? NEI, ÞAÐ MÁ EKKI BLEYTA HANN AF HVERJU EKKI! ÞVÍ ÉG ER LENGI AÐ ÞORNA OG Á MEÐAN LYKTA ÉG FURÐULEGA Kalvin & Hobbes Kalvin & Hobbes Kalvin & Hobbes ÞESSUM gæsum finnst Bónus-brauðið hið mesta góðgæti og bítast um það á Tjörninni þar sem velviljaður maður reynir að skipta þessu jafnt á milli. Morgunblaðið/Valdís Thor Gæsirnar á Tjörninni Góð þjónusta í Fönix MIG langaði til að benda ykkur á góða þjónustu. Ég taldi að uppþvottavél mín væri ónýt og fór í Fönix þar sem ég vissi að til voru sams konar vélar. Ég fékk frábæra þjónustu hjá Þórhalli versl- unarstjóra Fönix. Í stað þess að grípa tækifærið og selja mér nýja vél, kom hann með ráðleggingar varðandi vélina mína og nánast lagaði hana í gegnum síma. Vélin þarf í viðgerð en fyrir brot af því sem hefði kostað að kaupa nýja. Þetta kallar maður góða þjónustu. Góð þjónusta og góðar vörur. Hulda Magnúsdóttir. Yndislegar móttökur HVAÐ get ég gert að gagni? Í öllu krepputalinu og með allar neikvæðu fréttirnar glymjandi í eyrunum velti ég fyrir mér hvað ég gæti gert. Jú, ég fann mér verkefni inni í skáp. Tók fram alla garnafganga sem ég átti og prjóna barnahúfur og vettlinga. Sníki líka afganga hjá vinkonunum og einu sinni í mánuði ætla ég að heimsækja Mæðrastyrksnefnd og færa henni afraksturinn. Ég fel þeim það verkefni að gefa áfram þá hluti sem ég framleiði og vona að einhvers staðar komi þeir að góðum notum. Ég heimsótti þær í dag í ann- að skiptið og móttökurnar voru ekki af verri endanum. Þú ert yndisleg, takk fyrir. Ef til vill eru fleiri sem vildu gera eitthvað en vantar bara hugmyndina en hér er hún komin. Kveðja, Öryrki. Ríkisstjórnin fái frið HVAÐA tilgangi þjón- ar að garga, meiða, og eyðileggja? Mér sýnist ríkisstjórnin róa líf- róður að bjarga land- inu. Látið hana í friði. Hvernig er hægt að ætlast til að hvergi sé skorið niður, þegar peningar eru engir, og miklu minna en það. Sigríður Björnsdóttir. St. Jósefsspítali ÉG hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa legið á St. Jósefsspítala í Hafn- arfirði í tvö skipti. Sjúkrasaga mín er löng. Ég hef legið á mörgum spít- ölum þannig að ég þekki samanburð- inn. Í stuttu máli sagt ber St. Jós- efsspítali gjörsamlega af. Hlýjan og umhyggjan tekur öllu öðru fram. Það verður engum til framdráttar að leggja niður þá framúrskarandi starfsemi sem þar fer fram. Ég skora á yfirvöld að skoða málið bet- ur og hugsa sinn gang. Björg Cray Hauksdóttir. Að axla ábyrgð MÉR leikur forvitni á að vita hvað það þýðir að axla ábyrgð. Því í mín- um huga er orðatiltækið „að axla ábyrgð“ að standa sig í sínu starfi eða sinni vinnu í staðinn fyrir að segja af sér og flýja. Fólk hrópar þessa dagana að þessi og hinn eigi að segja af sér og axla ábyrgð. Gaman væri að heyra hvaða skýringu fólk hefur á þessu hugtaki. Þórunn Lárusdóttir.        Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Bólstaðarhlíð 43 | Þorrablótið verður 23. janúar kl. 17. Þorramatur frá Lárusi Loftssyni. Þorvaldur Halldórsson, Ragn- ar Bjarnason og Þorgeir Ástvaldsson skemmta. Elín Metta 13 ára les þjóð- sögu. Happdrætti og fjöldasöngur. Skráning í s. 535-2760 fyrir 21. jan. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- að í Ásgarði, Stangarhyl 4, í kvöld kl. 20. Caprí-tríó leikur. Félagsheimilið Gjábakki | Þorrablót Gjábakka og FEBK verður laugardaginn 24. jan kl. 19, húsið opnað kl. 18.30. Fjöl- breytt dagskrá, m.a. syngur Guðrún Gunnarsdóttir við undirleik Valgeirs Skagfjörð, happdrætti og Haukur Ingi- bergsson spilar fyrir dansi. Óbreytt miðaverð frá í fyrra. Skráning í síma 554-3400 Háteigskirkja | Félagsvist á morgun kl. 13. Stund og fyrirbænir í kirkjunni á mið- vikudag kl. 11, súpa kl. 12. Brids á föstu- dag kl. 13. Brids-aðstoð fyrir dömur kl. 13. Hraunbær 105 | Leikhúsferð sunnudag- inn 1. febrúar á Fólkið í blokkinni í Borg- arleikhúsinu. Skráning og frekari uppl. á skrifstofu eða í síma 411-2730, fyrir 23. jan. Verð 3500, með rútu. Hæðargarður 31 | Skráning stendur yfir á ættfræðinámskeiðið. Kynning á sam- starfi við World Class miðvikud. 21. feb. kl. 13, Ólafur Snorri þjálfari mætir. Þorra- blótið föstud. 6. febrúar kl. 12. Tangó- ævintýri þriðjudag og föstudag kl. 18. Uppl. í s. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Félagið býður fólk á öllum aldri velkomið í leikfimi í Kópa- vogsskóla kl. 17-18. Uppl. í síma 564- 1490, 554-2780 og 554-5330. Korpúlfar, Grafarvogi | Bútasaumur á Korpúlfsstöðum annan hvern mánudag kl. 13.30. Ganga frá Egilshöll alla mánu- daga kl. 10. Vesturgata 7 | Þorrablót verður föstu- daginn 6. feb. Veislustjóri Árni Johnsen, Sigurgeir Björgvinsson verður við flyg- ilinn, þorrahlaðborð, Jóhannes Krist- jánsson eftirherma, KK syngur og fjölda- söngur. Guðmundur Haukur Jónsson syngur og leikur fyrir dansi. Happdrætti, uppl. og skráning í síma 535-2740. Vitatorg, félagsmiðstöð | Þorrablót verður 23. janúar. Þorrahlaðborð, Sen- jóríturnar syngja, lesin þjóðsaga, gam- anmál, og leynigestur. Hljómsveitin Vita- torgsbandið leikur fyrir dansi. Uppl. í s. 411-9450.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.