Morgunblaðið - 18.01.2009, Qupperneq 56
,magnar upp daginn
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009
Myndskreytingar í íslenskum barnabókum 2008
Verið velkomin í Gerðuberg
í dag sunnudag kl. 15
„Heyrðist eins og harpan væri að gráta“
Sýning á brúðum Leikbrúðulands úr Völsungasögu
Í Boganum: Úr högum og heimahögum
Málverkasýning Huga Jóhannessonar
Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16
Leiðsögn fyrir hópa. Netfang: gerduberg@reykjavik.is s. 575 7700
Dimmalimm - Íslensku myndskreytiverðlaunin
afhent fyrir bestu myndskreyttu barnabókina 2008
- S.V., MBL
B A F T A
TILNEFNINGAR11
®
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Fimmtudagur 22. janúar kl. 19.30
Trommur og dans
Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba
Einleikarar: Colin Currie og Pedro Carneiro
Farncis Poulenc – Les biches, balletsvíta
Áskell Másson – Crossings, konsert fyrir slagverk
Igor Stravinskíj – Petrúska
Vinafélagskynning á Hótel Sögu kl. 18.00
Mörgum eru eflaust minn-isstæðir tónleikar kon-gósku hljómsveitarinnar
Konono N°1 á Listahátíð í Reykja-
vík vorið 2007. Sveitin sú lék í opn-
unarteiti Listahátíðar og hélt síðan
almagnaða tónleika í Listasafni Ís-
lands, Hafnarhúsinu.
Sú var tíðin að tónlist frá Kongó
naut hylli um alla Vestur-Afríku
og kongóskar stjörnur voru gríð-
arlega vinsælar.
Á síðustu áratugum hefur þó
heldur hallað undan fæti í takt við
stjórnmálaólgu og stríðsátök sem
hafa verið viðvarandi frá því í upp-
hafi tíunda áratugar síðustu aldar,
en undanfarin ár hafa geisað í
Kongó átök sem menn hafa kallað
afrísku heimsstyrjöldina, enda
hafa svo mörg lönd Afríku dregist
inn í þau grimmilegu átök.
Gróskan til fólksins
Gróskan í tónlistinni hefur færst
frá hótelum og dansklúbbum og út
til fólksins. Konono N°1 er gott
dæmi um það, hljómsveit sem var
svo fátæk að hún smíðaði ekki bara
hljóðfæri sjálf úr rusli heldur líka
hljóðnema (tálgaðir) og hátalara
(úr riðstraumsrafalseglum).
Músíkin sem sveitin lék var líka
langt frá rúmbu og soukous vel-
megunaráranna; mögnuð blanda
af vesturkongóskri leiðslutónlist
og kongóskri rúmbu, skæld og
brotin vegna takmarkana hljóð-
kerfisins.
Á síðasta ári vakti önnur kon-
gósk hljómsveit talsverða athygli.
Sú heitir Kasai Allstars og er
áþekk Konono N°1 að sumu leyti,
en líka töluvert frábrugðin henni.
Tuttugu og fimm manna
hljómsveit
Kasai Allstars starfar í Kinshasa
líkt og Konono N°1, tuttugu og
fimm manna sveit sem varð til upp
úr fimm hljómsveitum frá Kasai-
héraði í suðvesturhluta Kongó
(heimahérað kongósku frelsishetj-
unnar Patrice Lumumba sem myrt
var af Belgum).
Þótt Kasai sé eitt hérað búa þar
margar þjóðir og hljómsveitin er
skipuð tónlistarmönnum fimm
þjóða; Songye, Lulua, Tetela, Luba
og Luntu. Að sögn hafa þessi þjóð-
arbrot sum eldað saman grátt silf-
ur, en sveitin varð til fyrir tilstilli
belgísks útgefanda og óhætt að
segja að stofnun hennar hafi verið
heillaráð.
Tónleikar með sveitinni eru víst
mikið sjónarspil, því af listamönn-
unum tuttugu og fimm eru fjórtán
dansarar sem dansa þjóðlega
dansa þjóðarbrotanna, en marga
þeirra hafa kristnir trúboðar reynt
að banna í þeirri viðleitni sinni að
útbreiða McDonalds-menninguna.
Leiðtogi sveitarinnar Mputu
Ebondo „Miamor“ lýsir því svo að
þegar Kongómönnum var snúið til
kristinnar trúar hafi þeim líka ver-
ið bannað að spila þjóðlega tónlist,
sem væri djöfulleg, og hljóðfæri
sem notuð voru við slíka iðju voru
brennd eða send á evrópsk söfn.
Tónleikar sveitarinnar eru því að
vissu leyti andóf gegn vestrænum
menningarfasisma að sama skapi
og þeir eru hylling kongóskrar
menningar.
Að því sögðu er tónlistin líka
birtingarmynd vestrænna áhrifa
því rafmögnuð hljóðfæri, aðallega
likembe, eru áberandi í tónlistinni
og líkt og með Konono N°1 skiptir
bjögun talsverðu máli í heildar-
hljómi sveitarinnar.
Fjölbreytt og flókin
Að vissu leyti er ósanngjarnt að
bera þessar sveitir saman því tón-
list Konono N°1 er öllu leiðslu-
kenndari og beinskeyttari, nánast
ekkert nema slagverk og likembe
á löngum köflum, en Kasai Allstars
notar mun fleiri hljóðfæri, raf-
mögnuð sem órafmögnuð, og fyrir
vikið er tónlistin fjölbreyttari og
flóknari, en ekki síður skemmtileg.
Sveitin sendi frá sér sína fyrstu
plötu á síðasta ári, alla jafna kölluð
In The 7th Moon, en heitir fullu
nafni In The 7th Moon, The Chief
Turned Into A Swimming Fish and
Ate the Head of His Enemy By Ma-
gic.
Það kemur ekki á óvart að plat-
an sú hafi víða verið talin með
bestu plötum ársins, hún á það svo
sannarlega skilið. Belgíska fyr-
irtækið Crammed gefur plötuna út
í Congotronics-útgáfuröð sinni en
sú er ætluð fyrir nútímalega kon-
góska tónlist. Skífa Konono N°1
kom einmitt líka út í þeirri röð.
Kongóskt sjónarspil
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Þjóðleg Kongóska hljómsveitin Kasai Allstars sameinar hugmyndir úr ýmsum áttum.
Á síðasta ári vakti kongóska hljómsveitin Kasai
Allstars talsverða athygli. Tónlistin á fyrstu plötu
sveitarinnar er kongósk og alþjóðleg í senn.
HIN krúttlega Lily Allen hefur látið það uppi að hún hafi
hætt að vinna með upptökustjóranum Mark Ronson því
hún vildi ekki hljóma eins og Amy Winehouse.
Ronson, sem vann að fyrstu plötu Allen, Alright, Still,
var settur á höggstokkinn vegna þess að Allen var
áhyggjufull yfir samanburði á milli hennar og annarra
breskra kvensöngvara.
„Ég mun örugglega vinna með honum aftur. Ég vildi
bara ekki gera það í þetta skiptið því Mark hefur mjög
retro tilfinningu fyrir því sem hann er að gera,“ sagði Al-
len í viðtali við breska MTV.
„Ég vildi aðskilja mig frá Duffy, Adele og Amy Wine-
house vegna þess að þær eru svo frábærar í því sem þær
gera – það yrði asnalegt af mér að fylgja þeim eftir.“
Önnur plata Allen, It’s Not Me, It’s You, kemur út 9.
febrúar.
Áhyggjufull yfir samanburði
Krúttleg Lily Allen sendir brátt frá sér sína aðra plötu.