Morgunblaðið - 18.01.2009, Page 59
Menning 59FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2009
NÝR FRÉTTASKÝRINGAÞÁTTUR
HEFST Í KVÖLD
KL. 19.40
ANNAÐ OG MEIRA
LEIKKONAN Kate Winslet vill ekki vera kölluð kvik-
myndastjarna.
Hinn tvöfaldi Golden Globe-sigurvegari segist lifa
venjulegu lífi, án einkaþotna, kokka eða einkaþjálfara.
„Vinsamlegast ekki kalla mig kvikmyndastjörnu. Mér
líður ekki eins og kvikmyndastjörnu og ég held að ég hagi
mér ekki sem slík. Ég á ekki mína eigin flugvél, ég er
ekki með kokk eða einkaþjálfara.
Fyrir mér er ég aðeins kvikmyndastjarna þegar ég er
við stórar verðlaunahátíðir eða á mikilvægum glæsi-
viðburðum. Það mætti líkja þessu við hatt sem ég ber og
um leið og viðburðinum er lokið tek ég hann niður. Þá
verð ég aftur ég sjálf og mamma, og það er forgangur
minn,“ segir Winslet sem er gift leikstjóranum Sam Men-
des. Hún segir þau lifa rólegheitalífi með börnum sínum,
syninum Joe og Miu sem er dóttir Winslet frá fyrra
hjónabandi.
Er bara venjuleg
Stjarna Kate
Winslet var
kvikmynda-
stjarna á Gol-
den Globe.
Venjuleg Winslet með syni sínum.
SUNDANCE-kvikmyndahátíðin var
sett í Park City í Utah í Bandaríkj-
unum á fimmtudaginn, en hátíðin
var fyrst haldin árið 1978. Sundance
er stærsta hátíð sinnar tegundar
sem haldin er í Bandaríkjunum, en á
henni eru eingöngu myndir eftir
óháða kvikmyndagerðarmenn. Veitt
eru verðlaun í fjölmörgum flokkum á
hátíðinni, en bæði venjulegar kvik-
myndir og heimildarmyndir eru
gjaldgengar. Opnunarmynd hátíð-
arinnar að þessu sinni er ástralska
kvikmyndin Mary and Max eftir
Adam Elliot.
Sundance
hátíðin sett
Hress Adam Elliot, leikstjóri opn-
unarmyndarinnar Mary and Max.
REUTERS
Tveir góðir Geoffrey Gilmore,
stjórnandi Sundance, og leikarinn
Robert Redford, stofnandi hátíð-
arinnar, á setningarhátíðinni.
LEIKKONAN Rachel Griffiths,
sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í
sjónvarpsþáttunum Brothers & Sis-
ters sem voru sýndir á RÚV, á von á
sínu þriðja barni.
Hin 40 ára Griffiths, sem er ástr-
ölsk að uppruna, og eiginmaður
hennar, Andrew Taylor, eiga fyrir
þriggja ára dóttur, Adelaide Rose,
og fimm ára son Banjo Patrick sem
er nefndur eftir ástralska ljóðskáld-
inu Andrew Barton „Banjo“ Pater-
son.
Ólétt Rachel Griffiths á Golden
Globe hátíðinni 11. janúar.
Þriðja á
leiðinni