Morgunblaðið - 20.01.2009, Side 26

Morgunblaðið - 20.01.2009, Side 26
26 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009 Sudoku Frumstig 3 9 1 6 6 8 9 2 7 5 2 6 1 1 6 5 7 9 3 4 9 8 9 1 6 7 2 3 3 6 4 7 4 7 3 2 3 4 8 6 1 5 9 2 7 2 3 9 1 4 6 9 1 3 2 6 1 9 7 4 8 2 3 4 1 7 2 5 7 8 3 1 7 3 6 2 4 6 8 7 1 4 5 2 3 6 1 9 7 5 8 2 8 5 3 2 1 8 7 6 4 5 9 2 3 9 4 6 2 3 1 7 8 5 3 5 2 9 8 7 4 6 1 7 3 9 5 6 2 1 4 8 8 2 1 4 9 3 5 7 6 5 6 4 7 1 8 3 9 2 4 1 3 8 7 6 2 5 9 2 7 8 3 5 9 6 1 4 6 9 5 1 2 4 8 3 7 9 2 5 6 7 1 3 4 8 3 6 4 8 2 5 7 1 9 1 8 7 9 3 4 5 2 6 8 5 3 4 1 7 6 9 2 4 7 9 2 6 3 8 5 1 6 1 2 5 9 8 4 3 7 5 4 6 1 8 2 9 7 3 2 3 8 7 4 9 1 6 5 7 9 1 3 5 6 2 8 4 2 8 1 5 3 6 9 4 7 3 4 6 9 7 2 5 8 1 7 5 9 1 8 4 3 6 2 8 9 3 7 2 5 6 1 4 1 6 7 4 9 3 2 5 8 4 2 5 6 1 8 7 9 3 6 7 2 8 4 9 1 3 5 5 1 8 3 6 7 4 2 9 9 3 4 2 5 1 8 7 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 20. janúar, 20. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Jesús horfði á þá og sagði: „Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en fyrir Guði. Guð megnar allt.“ (Mk. 10, 27.) Barack Obama mun í dag sverjaembættiseið sem 44. forseti Bandaríkjanna. Langt er síðan meiri væntingar hafa fylgt nokkrum manni inn í embætti í hinum frjálsa heimi og vonandi ber Obama gæfu til að standa undir þeim, alltént að einhverju leyti. Fyrsti forsetinn, George Wash- ington, tók við embætti 30. apríl 1789. Innsetningin átti raunar að fara fram 4. mars, samkvæmt stjórnarskrá, en töf varð á henni. Árið 1937 var dagsetningunni breytt og allar götur síðan hefur forseti Bandaríkjanna svarið embættiseið 20. janúar. Forseti hæstaréttar Bandaríkj- anna hefur umsjón með athöfninni og mun John G. Roberts hljóta eldskírn sína í því hlutverki í dag. Forveri hans, William Rehnquist, hafði umsjón með fimm síðustu at- höfnum. Flestum athöfnum stýrði þó John nokkur Marshall, níu talsins á árunum 1801 til 1833. x x x Margir bíða ávarps Obamas aðathöfn lokinni með eftirvænt- ingu en ávörpin hafa verið af öllum stærðum og gerðum gegnum tíðina. Ávarp Washingtons, þegar hann tók öðru sinni við embættinu, var styst, aðeins 135 orð, en langorðastur var William Henry Harrison, sem mælti 8.495 orð af vörum 1841. 31 degi síð- ar var hann allur. Ræða Johns F. Kennedys, sem Obama er oft líkt við, árið 1961 var sú fjórða stysta í sögunni, 1.364 orð. Thomas Jefferson kom á þeirri hefð eftir athöfnina 1805 að fara fylktu liði frá þinghúsinu niður Pennsylvania Avenue að Hvíta hús- inu. Farið var á hestvögnum og síðar bílum þangað til Jimmy Carter bryddaði upp á þeirri nýjung árið 1977 að ganga. Eftirmenn hans hafa allir leikið þetta eftir en þó aðeins farið hluta leiðarinnar á tveimur jafnfljótum af öryggisástæðum. Aðeins einu sinni hefur forsetinn ekki farið niður Pennsylvania Avenue eftir embættistökuna, það var Ronald Reagan 1985. Ástæðan var sú að óhemju kalt var í veðri. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 drenglunduð, 8 landræmur, 9 aðdrótt- anir, 10 tóm, 11 fátækar, 13 líkamshlutann, 15 iðja, 18 sanka saman, 21 ber, 22 skattur, 23 styrk- ir, 24 hagkvæmt. Lóðrétt | 2 formæðrum, 3 ýlfrar, 4 lánaði, 5 tarfi, 6 baun, 7 göfugra, 12 peningur, 14 fugl, 15 dæld, 16 fíflin, 17 hella, 18 hvell, 19 álitleg, 20 siga. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 þvoði, 4 flimt, 7 asinn, 8 rolan, 9 ask, 11 grun, 13 órór, 14 efast, 15 barm, 17 trog, 20 eta, 22 umboð, 23 sumar, 24 skipa, 25 akrar. Lóðrétt: 1 þvarg, 2 okinu, 3 inna, 4 fork, 5 illur, 6 tínir, 10 skart, 12 nem, 13 ótt, 15 baugs, 16 rebbi, 18 rímur, 19 gærur, 20 eðla, 21 aska. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2 Bb7 12. Bc2 He8 13. a4 Bf8 14. Bd3 c6 15. b3 Dc7 16. Bb2 g6 17. Dc2 Hac8 18. Bf1 Db8 19. Had1 Bg7 20. g3 Ba8 21. axb5 axb5 22. b4 Bf8 23. Db3 h6 24. dxe5 Rxe5 25. c4 bxc4 26. Rxc4 Rfd7 27. Rfxe5 Rxe5 28. Rxe5 dxe5 29. Hd7 He7 30. Hed1 Hce8 31. Bc4 Kg7 32. Df3 c5 Staðan kom upp í Heimsbikarmóti FIDE sem lauk fyrir nokkru í Elista í Rússlandi. Búlgarski stórmeistarinn Ivan Cheparinov (2.696) hafði hvítt gegn rússneska kollega sínum Ev- geny Alekseev (2715). 33. Dxf7+! Hxf7 34. Hxf7+ Kh8 35. Hdd7 og svartur gafst upp enda fátt til varnar eftir t.d. 35. …He7 36. Hdxe7 Bxe7 37. Hxe7. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sniðug litaríferð. Norður ♠43 ♥762 ♦K10963 ♣652 Vestur Austur ♠G10986 ♠752 ♥1083 ♥DG94 ♦Á75 ♦84 ♣D8 ♣K1097 Suður ♠ÁKD ♥ÁK5 ♦DG2 ♣ÁG43 Suður spilar 3G. Suður opnar á tveggja-laufa alkröfu og segir síðan 2G við 2♦ til að sýna grandskiptingu með 23-24 punkta. Norður á ekki mikið, en gerir skyldu sína og lyftir í 3G. Útspilið er ♠G. Suð- ur spilar ♦D í öðrum slag og vestur dúkkar. Hvað svo? Úr því að vestur dúkkaði ♦D þá mun hann dúkka tígulinn aftur. Sem þýðir að sagnhafi fær ekki nema tvo slagi á litinn og þarf þá aukaslag á lauf til að ná upp í níu. Sá slagur skilar sér vanda- laust ef laufið liggur 3-3, en háspil ann- að í vestur er líka möguleiki. Sagnhafi bíður með tígulinn og spilar ♣Á og litlu laufi. Vestur fær á ♣D og sækir vænt- anlega spaðann áfram. Sagnhafi spilar næst ♦G, yfirdrepur með kóng (vestur dúkkar auðvitað) og notar innkomu blinds til að spila laufi AÐ gosanum heima. Það er níundi slagurinn. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú gætir neyðst til að fallast á málamiðlanir því aðrir eru þér andsnúnir. Vertu raunsær í peningamálunum. (20. apríl - 20. maí)  Naut Tækifæri, sem þú hefur þegar hafn- að í vinnunni, munu koma upp að nýju. Veittu aðstoð með bros á vör. Verkefnin liggja fyrir og er ekki eftir neinu að bíða. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þær hindranir sem verða á vegi þínum eru til þess fallnar að sigrast á þeim en ekki til þess að stöðvast við. Láttu óþolinmæði annarra ekki hagga þér heldur gefðu þér tíma til ákvörðunar. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú þarft að læra að hafa betri stjórn á skapi þínu, þar sem þér hættir einkum til að særa þá sem nærri þér standa. Láttu þá ekki slá þig út af laginu. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Litlu, varkáru skrefin sem þú tekur til þess að bæta starfsaðstöðuna leiða til stórfelldra breytinga. Gerðu þitt besta en varastu að móðga aðra í leiðinni. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er freistandi að rifja upp ein- faldari og auðveldari tíma. Gættu þess að ofmetnast ekki og taktu gagnrýni vel og njóttu betur þess sem þú átt nú þegar. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Mál skipast svo í þína þágu að það veldur þér ánægjulegri undrun. Farðu að eigin smekk og hugsaðu ekki um hvað öðrum finnst. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú hefur haft nóg að starfa að undanförnu en sérð nú fram á að eiga tíma aflögu fyrir þig. Gakktu beint til verks og gerðu hreint fyrir þínum dyr- um. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú tekur eftir hvernig allt hreyfist, og að það hreyfist ekki endilega fram á við. Láttu þér ekkert bregða þótt útlitið hafi breyst. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú munt sennilega flytja eða skipta um starf á næstunni, og hugsar mikið um það. Eftir öll þau grettistök sem þú hefur lyft í lífinu, er ekki nema von að leitað sé til þín. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þér er gefið að taka eftir hlut- um sem fara framhjá öðrum. Breyttu um aðferð og vertu ögn þolinmóðari. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þótt þér finnist hlutirnir aldrei ganga nógu hratt fyrir sig verður þú að venja þig af eilífum aðfinnslum við sam- starfsmenn þína. Gerðu það sem þú getur en ekki kaupa húsmuni í dag. Stjörnuspá 20. janúar 1957 Samtök íþróttamanna kusu Vilhjálm Einarsson „íþrótta- mann ársins 1956“, en hann hafði unnið til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum. Þetta var í fyrsta sinn sem kjörið fór fram, en Vilhjálmur hlaut tit- ilinn alls sex sinnum í röð. 20. janúar 1976 Bresk herskip sigldu út fyrir 200 mílna mörkin eftir að Ís- lendingar höfðu hótað að slíta stjórnmálasambandi við Breta. Deilur höfðu staðið eft- ir útfærslu landhelginnar í október 1975. 20. janúar 1989 Sjóvátryggingafélag Íslands og Almennar tryggingar sam- einuðust undir heitinu Sjóvá- Almennar tryggingar hf. 20. janúar 1991 Skíðaskálinn í Hveradölum brann. „Eldurinn breiddist út með ógnarhraða,“ sagði Morg- unblaðið og taldi tjónið nema tugmilljónum. Nýtt hús var byggt ári síðar. 20. janúar 2002 Guðni Tyrfingsson arkitekt og danskir samstarfsmenn hans unnu fyrstu verðlaun í hug- myndasamkeppni um skipulag tónlistarhúss, ráðstefnu- miðstöðvar og hótels við höfn- ina í Reykjavík. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Bryndís Anna Bjarnadóttir, Urðarholti 5, Mosfellsbæ, er fertug í dag, 20. janúar. Hún ætl- ar að eyða deg- inum í rólegheit- um heima í dag. 40 ára „ÉG er að búa til flugvél úr legókubbunum sem ég fékk í afmælisgjöf,“ segir Sigríður Mjöll Sigurð- ardóttir sem er fjögurra ára í dag og mátti vart vera að því að spjalla við blaðamann, svo spennt var hún yfir byggingu flugvélarinnar. „Ég hélt stóra afmælisveislu í Réttinni í Úthlíð á sunnudag- inn fyrir alla fjölskylduna mína og ég borðaði bleika köku,“ segir Sigríður sem var afskaplega ánægð með hversu vel var mætt til veislunnar, þar voru margar ömmur og afar, frænkur og frændur á öllum aldri. „Ég fékk mjög flotta dúkkukerru frá pabba mínum og ég fékk líka tjald,“ segir Sig- ríður sem er í leikskólanum Álfaborg í Biskupstungum og þar segir hún það vera reglu að afmælisbörn fái kórónu og hún komi sjálf með ís til að bjóða hinum krökkunum í tilefni dagsins. Sigríður hlakkar mikið til að komast í alvöru skóla, enda er hún dugleg að læra bók- stafina og kann auk þess að skrifa marga þeirra. Henni finnst ágætis hugmynd að verða kannski vísindakona eða galdrakona þegar hún er orðin stór, en hún er líka alveg til í að verða slökkviliðskona. „Einu sinni kom slökkviliðið í heimsókn í leikskólann og við fengum að prófa hjálmana þeirra. Það var mjög gaman.“ khk@mbl.is Sigríður Mjöll Sigurðardóttir fjögurra ára Verðandi slökkviliðskona Nýirborgarar Reykjavík Kári Freyr fæddist 23. desember kl. 0.57. Hann vó 3.890 g og var 50 cm langur. For- eldrar hans eru Ásta Dan Ingibergsdóttir og Andri Sigurðsson. Reykjavík Egill fæddist 28. október kl. 19.43. Hann vó 4.375 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Hildur Guðjóns- dóttir og Arnar Snæberg Jónsson. Reykjavík Freyja Mjöll fæddist 8. nóvember. Hún vó 2.890 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Gunnar Ingi Hall- dórsson og Þorbjörg Hall- dórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.