Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009 ● TAP af reglu- legri starfsemi breska bankans Royal Bank of Scotland á árinu 2008 kann að verða allt að 8 milljarðar punda, eða um 1.500 milljarðar íslenskra króna. Þar til við- bótar er hugsanlegt að viðskiptavild bankans, vegna kaupa á hollenska bankanum ABN Amro, að fjárhæð um 20 milljarðar punda, verði afskrifuð. Frá þessu var greint í tilkynningu frá bank- anum í gær. Ef þetta verður niður- staðan yrði það mesta tap eins fyrir- tækis í sögu Bretlands. Hlutabréf bankans féllu um rúmlega 60% í kjölfar þessara frétta í gær. gretar@mbl.is Mesta tap á Bretlandi Gordon Brown                  !        " #          $      ÞETTA HELST ... FRÉTTASKÝRING Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is TVEIR stórir samningar, sem voru ávísun á mikinn fjárhagslegan ávinning án áhættu, voru gerðir við útvalda viðskiptavini Kaupþings vikurnar áður en bankinn fór í þrot. Annar samningurinn var í eigu Ólafs Ólafssonar, sem var annar stærsti hluthafinn í bankanum. Kaupþing lánaði félögum á hans vegum í fyrstu 125 milljónir evra, jafnvirði 21 milljarðs króna, þegar samningnum var komið á. Þýski Deutsche Bank, sem einnig var aðili að samningnum, lánaði félögum Ólafs aðrar 125 milljónir evra. Fyr- ir samtals 250 milljónir evra var fjárfest í ákveðnum skuldabréfa- vafningum (Credit Linked Note). Félögin sem tengjast Ólafi heita Harlow Equities SA og Partridge Management Group. Allt lánið til Kaupþings Vegna ákvæða í samningnum þurfti Kaupþing að leggja fram við- bótartryggingar til þýska bankans fyrir Ólaf þegar skuldatrygg- ingarálag á Kaupþing hækkaði eftir fall Lehman Brothers 15. septem- ber á síðasta ári. Bankinn þurfti tvisvar til viðbótar að leggja fram viðbótartryggingu, síðast á mánu- deginum þegar Alþingi samþykkti neyðarlögin svokölluðu. Á þeim tímapunkti var öll áhætta vegna þessa samnings komin til Kaup- þings, sem hafði þurft að reiða fram samtals 250 milljónir evra eða um 42 milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins gat Ólafur ekki tapað á þessum samningum. Kaupþing bar áhættuna þar sem Deutsche Bank hafði tryggingar fyrir sínum lánum. Ólafur hefði hins vegar notið ávinn- ings af samningnum, sem búið var að reikna út að væri 60 milljónir evra. Til stóð að greiða stærstan hluta af áætluðum hagnaði samningsins út fyrirfram, um 50 milljónir evra. Það náðist ekki því Kaupþing féll. Annar samningur til Alveg eins samningur var gerður sameiginlega við þrjú önnur félög, sem voru í eigu viðskiptavina Kaup- þings. Skúli Þorvaldsson fjárfestir var stærstur í einu félagi, Kevin Stanford og Karen Millen áttu annað félag og það þriðja var í eigu við- skiptavinar Kaupthing Singer & Friedlander í London. Félögin sem um ræðir eru Charbon Capital, Trenvis Ltd. og Polly Beach SA. Með sama hætti og í tilviki Ólafs endaði öll fjármögnun samningsins í fangi Kaupþings eða 250 milljónir evra. Viðkomandi viðskiptamenn áttu að njóta ávinnings af fjárfest- ingunni án þess að bera áhættuna. Ekki fyrir lánanefnd Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru öll þessi lán greidd út áður en þau voru afgreidd í lána- nefnd bankans. Vegna þess hve áhættan var stór á valda aðila þurfti að samþykkja þessar lánveitingar í lánanefnd stjórnarinnar. Vikuna áð- ur en Kaupþing féll var lagður fyrir langur listi af óafgreiddum málum, sem mörg hver höfðu þó þegar verið afgreidd. Þar á meðal voru lán vegna ofangreindra samninga. Lánin voru því veitt án formlegs samþykkis. Í lánanefnd stjórnar á þessum tíma sátu Sigurður Einarsson, stjórnarformaður, Bjarnfreður Ólafsson og Gunnar Páll Pálsson ásamt Hreiðari Má Sigurðssyni for- stjóra. 120 milljarðar úr hirslunum Í Morgunblaðinu í gær mátti sjá lista yfir þessi félög og fjárhæðir sem fluttar voru til þeirra úr Kaup- þingi fyrir hrun, meðal annars til að mæta veðkalli Deutsche bank. Til viðbótar þessum 84 milljörðum króna sem greiddir voru úr bankan- um fyrir 8. október fóru um 29 millj- arðar til félags í eigu Robert Tchenguiz og 6,4 milljarðar til Sjeiksins Al-Thani. Samtals fóru því um 120 milljarðar króna úr hirslum Kaupþings vikurnar fyrir fallið. Þeir sem Morgunblaðið hefur rætt við segja það furðulega ákvörðun stjórnenda bankans að hreinsa lausafé út úr bankanum á sama tíma og fjármálafyrirtæki börðust fyrir lífi sínu. Milljarðalán án trygginga  Ólafur Ólafsson, annar stærsti hluthafi Kaupþings, fékk tugi milljarða að láni án trygginga  Lán afgreidd til útvalinna viðskiptavina áður en þau voru tekin fyrir í lánanefnd Kaupþings %& '& '&        ()$*+,&&-./01           !  "  # $ +2 %+,&&-0,3 +2 %+,&&-0,3  & '(  *   +  , $-   .  * # / 0$ $  1  2% +,&&-03 &45,,,6 -4+&,    2% +,&&-0, 3 2% +,&&-0 3 3./&&4 72 89 /  2% +,&&-03 &45,,,6 -4+&,  2% +,&&-0, 32% +,&&-0 3 3./&&4 72 89 / ● ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR hefur ákveðið að halda útlánsvöxtum sínum óbreytt- um. Ákvörðun þessi var tekin í kjölfar útboðs á íbúðabréfum. Lán með upp- greiðsluákvæði verða áfram 4,9% en 5,4% af íbúðalánum án uppgreiðslu- ákvæðis. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs bygg- ist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 16. janúar 2009 ásamt vegnum fjármagnskostnaði upp- greiðslna svonefndra ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,44%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%. Óbreyttir vextir hjá Íbúðalánasjóði Fjármögnun Kaupþings í tengslum við kaup sjeiksins frá Katar á 5% í bankanum er ekki hluti af þessum lánveitingum. Hins vegar stóð til að sjeik Al- Thani myndi fá samskonar samning og fyrirheit um fjár- hagslegan ávinning og lýst er hér á síðunni. Var meðal annars búið að greiða félagi í hans eigu, Brooks Trading Ltd, 50 milljónir dollara vegna þess. Sú upphæð, ásamt 50 millj- ónum evra sem fóru til Deutsche Bank, var greidd sama dag og Seðlabanki Íslands ákvað að veita Kaupþingi lán upp á 500 milljónir evra gegn veði í danska bankanum FIH. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins var greiðslan til sjeiksins fyrirframgreiddur hagnaður vegna væntanlegs samnings. Það hefur ekki feng- ist staðfest. Sigurður Einarsson, fyrrv. stjórnarformaður Kaupþings, sagði í yfirlýsingu í gær að engir fjármunir hefðu farið úr Kaup- þingi vegna fjármögnunar á kaupum sjeiksins. Hins vegar fóru 50 milljónir dollara til sjeiksins sem hann notaði í tilbúnum gjaldeyris- viðskiptum við Kaupþing Lúx- emborg til að hagnast og losna undan persónulegri ábyrgð vegna hlutabréfakaupanna. Eins hafði Kaupþing keypt bréfin af fjárfestum en fékk enga greiðslu á móti frá sjeiknum. Milljarðar til sjeiks LANDSVAKI, dótturfélag Lands- bankans sem rekur peningamark- aðssjóði bankans, gæti þurft að bera ógreiddar skattskuldir gamla Landsbankans. Þessar skuldir fyr- irtækisins munu þó ekki hafa áhrif á eignir sjóðseigenda, enda standa þær sjálfstætt. Skattskuldirnar eru til komnar þar sem Landsvaki, sem dóttur- félag gamla Landsbankans, var samskattað með bankanum ásamt öðrum dótturfélögum. Ógreiddur tekjuskattur gamla bankans, sem nú er farinn í þrot, var umtals- verður. Hugsanlega falla skuldir bankans á dótturfélögin en það er óvíst á þessari stundu. Tryggvi Tryggvason, nýr framkvæmda- stjóri Landsvaka, segir að stjórn- endur fyrirtækisins vinni með stjórnvöldum að lausn málsins. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er verið að skoða þann valkost að færa rekstur peninga- markaðssjóðanna í nýtt félag en málið er örlítið snúið því Landsvaki hefur sérstakt leyfi hjá Fjármála- eftirlitinu [FME] til þess að reka verðbréfasjóði og það getur tekið langan tíma að fá nýju leyfi út- hlutað. Hefur fyrirtækið óskað eftir flýtimeðferð hjá FME, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Tryggvi vill ekki staðfesta þetta. Ekki fékkst uppgefið í gær hversu há skuldin er. Ekki er mögulegt að sækja fjármagn í sjóðina til þess að standa straum af opinberum gjöld- um og eiga því umræddar skuldir ekki að hafa áhrif á viðskiptavini. thorbjorn@mbl.is Skattskuldir lenda mögulega á Landsvaka Morgunblaðið/Brynjar Gauti Vandræði Ógreiddir skattar gamla Landsbankans gætu lent á Landsvaka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.