Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009 SVEFNLYFINU Imovane var oftast ávísað á lands- menn á árinu 2007. Alls fengu 20.130 landsmenn ávísun á lyfið, eða 65 á hverja þúsund íbúa. Þetta má sjá í skýrslu landlæknisembættisins sem kallast Ávísanir á lyfseðils- skyld lyf á Íslandi 2007. Konur taka heldur lyf en karlar Tæplega 72% landsmanna fengu ávísun á lyf, sem er svipað hlutfall og þrjú árin á undan. 65% karla og 79% kvenna. Kristján Oddsson, aðstoðarlandlæknir, segir konur sækja meira til lækna, sem skýri kynjamismuninn. „Það er ein skýringin. Þá er til dæmis getnaðarvarn- arlyfjum og hormónalyfjum nær eingöngu ávísað til kvenna.“ Margar konur beri einnig mikla ábyrgð bæði á vinnu og heimili. Þær séu taldar opnari með sín vandamál á meðan karlar leiti síður lækninga, en samkvæmt skýrslunni taka konur einnig heldur þunglyndislyf en karlar eftir tvítugt. Sjá má að á milli þrítugs og sextugs taka konur um helmingi meira af þunglyndislyfjum en karlar. Notkun þunglyndislyfja eykst með aldrinum og á aldursbilinu 85-89 ára taka rúmlega 200 af hverjum þús- und körlum og um 260 konur þunglyndislyf. Munur milli landshluta Athygli vekur að sjá má mikinn mun á lyfjaávísunum milli landshluta. Þannig skera Austurland og Suðurnes sig úr og ávísa minnst af lyfjum. Kristján bendir á að á Austurlandi voru á árinu 2007 margir karlmenn í verka- mannavinnu, sem geti skýrt hve fáir þar fengu ávísun á lyf miðað við annars staðar á landinu. Á Suðurnesjum búi margt ungt fólk og líklegt sé að það sæki í einhverjum mæli læknisþjónustu til Reykjavíkur. Langmestu er hins vegar ávísað af lyfjum á Norðvest- urlandi. Kristján segir að taka verði niðurstöðum skýrsl- unnar með fyrirvara því ávísanir á vistmenn öldrunar- heimila séu ekki alltaf teknar með í útreikningana. Það sé gert á Norðvesturlandi, sem skýri muninn. „Skýringin er því aldurssamsetning og hvernig skráningin er en ofan í hana hefur ekki verið kafað í þessari skýrslu.“ gag@mbl.is Svefnlyf vinsælast lyfja  Svefnlyfi oftast ávísað á landsmenn árið 2007  Um 72% landsmanna fengu ávísað lyfjum  Yfir 20% fólks á aldrinum 85-89 ára taka þunglyndislyf Í HNOTSKURN »Imovane var oftast ávísaðá Íslandi árið 2007 en hins vegar var blóðfitulækkandi lyfjum mest ávísað. »Blóðfitulækkandi lyf sitjaí 2., 4. og 5. sæti yfir þau lyf sem oftast var ávísað á landsmenn. » 65% karla og 79% kvennafengu ávísun á lyf. »Milli þrítugs og sextugstaka konur helmingi meira af þunglyndislyfjum en karlar. ALÞINGI kemur saman á morgun eftir jólaleyfi. Þingfundur hefst kl. 13.30 á óundir- búnum fyrir- spurnartíma. Samkvæmt upp- lýsingum frá Al- þingi verða fimm ráðherrar við- staddir fyrir- spurnartímann. Þeir eru Geir H. Haarde forsætisráðherra, Þorgerð- ur Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, Þórunn Svein- bjarnardóttir umhverfisráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra. Samkvæmt dagskránni á m.a. að ræða lagafrumvarp viðskiptaráð- herra um vátryggingastarfsemi, lagafrumvarp félags- og trygginga- málaráðherra um greiðslur til líf- færagjafa, þingsályktunartillaga Ögmundar Jónassonar um áhrif markaðsvæðingar á samfélagsþjón- ustu og lagafrumvarp Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur um kynja- hlutföll í stjórnum fjármálafyr- irtækja. silja@mbl.is Alþingi kemur saman Þingið Af þaki Alþingishússins Byrjað á óundirbún- um fyrirspurnartíma RADDIR fólksins hafa boðað til mótmælastöðu við Alþingishúsið í dag kl. 13.00. Í fréttatilkynningu frá Röddum fólksins kemur fram að með þessu móti vilji samtökin verða við óskum almennings um að standa fyrir háværum en friðsamlegum mótmælum í miðri viku. „Fólk er hvatt til að hafa með sér söngbækur, sleifar, potta og pönnur, hrossabresti og flautur og allt hvað- eina sem nota má til að framleiða há- vaða. Gera má ráð fyrir að mót- mælastaðan taki rúman klukkutíma. Íslendingar verða að vekja þingheim af þyrnirósarsvefni. Nauðsynlegt er að lýðræðiskjörnir fulltrúar fólksins hætti að hunsa kröfur mikils meiri- hluta þjóðarinnar. Stjórnir Seðla- bankans og Fjármálaeftirlitsins verða að víkja tafarlaust og ríkis- stjórnin verður að segja af sér og boða til kosninga hið fyrsta,“ segir í tilkynningu. silja@mbl.is Boða mótmæli með hávaða Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is NORÐURLÖNDIN gætu átt með sér mun öflugra og árangursríkara samstarf innan Evrópusambandsins en utan ef þau kysu svo. Reynslan sýnir að ESB hafi sýnt fullan skiln- ing á nánu samstarfi Norður- landanna allt síðan Danir gengu inn í sambandið. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Alyson Bailes, gestaprófessors við Háskóla Íslands, á fyrsta fundi í fundaröð Samfylk- ingarinnar um Evrópumálin. Á þess- um fyrsta fundi var sjónum beint að friðar- og öryggismálum ESB. Í máli sínu gerði Bailes hin svo- nefndu mjúku völd ESB að umtals- efni. Benti hún á að eðli, uppruni og gildi ESB leyfði ekki að hervaldi væri beitt í árásarskyni. Mjúku völd- in fælust hins vegar í efnahags- áhrifum og óáþreifanlegum hlutum eins og góðri ímynd, miklum áhrifum og trausti almennings sem ESB nýti í miklum mæli. Að sögn Bailes eru margir haldnir þeirri ranghugmynd að aðild að ESB þýði sjálfkrafa andstaða gegn NATO og Bandaríkjunum. Minnti hún á að 21 af 27 aðildarríkjum ESB væru líka aðilar að NATO. Þórunn Sveinbjarnardóttir um- hverfisráðherra gerði norðurslóða- stefnu ESB að umtalsefni á fund- inum. Minnti hún á að á norður- slóðum væru öryggismál umhverfis- mál og öfugt. Benti hún á að norður- skautið hefði fengið aukið hernaðarvægi að undanförnu þar sem margir vildu slá eign sinni á þau auðæfi sem þar væri að finna, þ.e. stærstu ónýttu olíu- og gasauðlindir veraldar. Borgaraleg uppbygging Árni Páll Árnason þingmaður gerði utanríkisstefnu ESB að um- talsefni. Minnti hann á að þar sem ESB væri friðarbandalag en ekki hernaðarbandalag legði það mikla áherslu á borgaralega uppbyggingu á vettvangi friðargæslu, sem kall- aðist mjög vel á við áherslu íslenskra stjórnvalda. Sagði hann ESB stuðla að góðum grannatengslum þjóða auk þess sem það væri öllum ríkjum opið sem aðhylltust lýðræðislegar reglur og vinnubrögð. Eva Bjarnadóttir, framkvæmda- stjóri Ungra jafnaðarmanna, ræddi friðarhlutverk ESB. Sagði hún að- ferðir ESB til að viðhalda friði aðrar en þekktust víða þar sem í stað þess að byggja á hernaðarmætti væri byggt á lýðræði, samskiptum og jafnræði ríkja. Morgunblaðið/Golli Skrafað um Evrópu Fundarstjórinn Guðríður Arnardóttir (önnur frá vinstri) ásamt þremur frummælenda, þeim Evu Bjarnadóttur, Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra og Árna Páli Árnasyni þingmanni. Samstarf Norður- landa gæti eflst Í stað hernaðarmáttar er byggt á lýðræði og samskiptum Í HNOTSKURN »Í Evrópusambandinu erunú 27 ríki með nærri 500 milljónir íbúa. »Alls 21 af 27 aðildarríkjumEvrópusambandsins eru í NATO. »Evrópusambandið varstofnað sem frið- arbandalag á sínum tíma. ÖSSUR Skarp- héðinsson, iðn- aðarráðherra og starfandi utanrík- isráðherra, segir á bloggsíðu sinni að stjórnvöld í Ísrael hafi tilkynnt utan- ríkisráðuneytinu að ekkert verði af komu ísraelska menntamála- ráðherrans. Sex ráðherrar Ísraels- stjórnar hafi verið gerðir út af örkinni til að hafa áhrif á skoðanir ríkis- stjórna á loftárásunum á Gasasvæð- inu. „Ég tók þá ákvörðun sem starf- andi utanríkisráðherra að frábiðja mér heimsókn ísraelska ráðherrans við þær aðstæður að loftárásir ísr- aelska hersins gengu yfir Gasasvæð- ið, þar sem 100 börn hafa dáið á viku. Með því vildi ég undirstrika harða fordæmingu íslenskra stjórnvalda,“ skrifar Össur. annaei@mbl.is Afboðar komu sína Össur Skarphéðinsson ÁRIÐ 2008 var metár í kjötsölu en alls seldust 25.833 tonn af kjöti sem svarar til 81,5 kg á íbúa og er það að því er fram kemur á vef Bænda- blaðsins tveimur kg meira á mann en árið áður. Mest reyndist aukning vera í sölu á kindakjöti. Alls seldust 7.481 tonn af kindakjöti í fyrra og er það 7,8% aukning frá 2007. Er salan sú mesta frá því árið 1993 er sölutölur voru 8.088 tonn. Hefur kindakjötið nú aftur náð þeirri stöðu að vera vin- sælasta kjöttegund landsmanna. Laufey Ólöf Lárusdóttir, varafor- maður Landssamtaka sauðfjár- bænda, telur kreppuna eiga sinn þátt í þessu enda hafi aukningin í sölu á kindakjöti verið mest í haust. Mikið um að fólk keypti heila og hálfa kindaskrokka „Hún varð líka mjög sterk krafan um að kaupa íslenskt og það var óvenjumikið um að fólk tæki slátur og keypti heila og hálfa kinda- skrokka,“ segir Laufey. Sauðfjárbændur geti ekki verið annað en ánægðir með þessa þróun sem gefi vissulega nokkurt tilefni til bjartsýni. „En annars fellur út- flutningsskyldan á kindakjöti niður í ár þannig að maður veit svo sem ekki hvernig mál eiga eftir að þróast. Það getur vel farið svo að kindakjöt eigi eftir að hríðfalla í verði.“ annaei@mbl.is Kindakjötið í sókn í kreppunni Morgunblaðið/ÞÖK Sauðkindin Meira er nú um að fólk kaupi heilu og hálfu skrokkana. BROT 89 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá fimmtu- degi til mánudags. Vöktuð voru 8.590 ökutæki og vekur lögreglan athygli á að mjög lítill hluti öku- manna eða 1% ók á ólöglegum hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km á klst. en hámarkshraði er 70 km. Alls fóru 127.200 öku- tæki um göngin í desember sem er 2,7% samdráttur frá sama tíma í fyrra. Fáir á ólögleg- um hraða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.