Morgunblaðið - 20.01.2009, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.01.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009 Eftir því sem lengra líður frábankahruninu verður gagn- rýnin á stjórnvöld hvassari. Gylfi Magnússon hagfræðingur kom fram á Austur- velli á laugardag og sagði að teikna þyrfti upp nýtt hagkerfi á Íslandi með nýj- um leikstjórn- endum og nýjum leikreglum: „Um flesta þætti þess er líklega breið samstaða. Flestir vilja bæði öflugan einkageira og opinberan geira. Sá síðarnefndi heldur uppi velferðarkerfi og tryggir öllum aðgang að góðri menntun og heilsugæslu. Hið op- inbera setur reglurnar og sér til þess að þeim sé fylgt.“     Gylfi tók einkageirann fyrir næst:„Einkageirinn skapar verð- mæti og skatttekjur. Hann þarf að losna við meinsemdir útrásarvík- inga, með öll sín eignarhaldsfélög, „Group“, bókhaldsbrellur, vogaðar stöður, skattaskjól, eigna- og stjórnunartengsl, pólitísk tengsl og hvað þetta nú allt saman heitir. Þetta er hluti af því sem fara þarf á öskuhauga sögunnar. Ekkert af þessu skapaði nein raunveruleg verðmæti.     Í stað þess getur komið blómlegtatvinnulíf með fleiri og smærri fyrirtækjum, dreifðara en einfald- ara eignarhaldi, meiri valddreif- ingu, meira gagnsæi, hraustlegri samkeppni, meiri nýsköpun, fleiri tækifærum fyrir alla. Opið, sann- gjarnt og heilbrigt efnahagslíf.“     Næst tók Gylfi fyrir hugarfarið:„Sú hugmyndafræði sem kom okkur í núverandi stöðu er andlega gjaldþrota. Þeir sem fóru fyrir henni þurfa að víkja strax af svið- inu og láta öðrum eftir uppbygg- inguna. Hvort sem þeir eru í stjórn- málum, stjórnkerfinu, fyrirtækja- rekstri, fara fyrir hagsmunasam- tökum eða voru bara í klappliðinu.“ Gylfi Magnússon Gjaldþrota hugmyndafræði                      ! " #$    %&'  (  )                 *(!  + ,- .  & / 0    + -                       12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                   !   :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? "      #      "                                   *$BC                      !   " #  *! $$ B *! $ %&'   % (  ! ) *! <2 <! <2 <! <2 $ '   +  , - . ! /  C2 D                <7       $%          &% %     !   " #  <   '  ( "   )    " *" "   !  +" #         " * ,   -# %     !   " #  01  !22  ! ) 3(! )! +  , Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR ÚTLIT er fyrir að mörg sveitarfélög skili fjár- hagsáætlun fyrir árið 2009 með halla, vegna sam- dráttar tekna og aukins kostnaðar. Aðeins eitt sveitarfélag er þó í meðferð hjá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, Bolungarvíkurkaupstað- ur. Fjárhagsstaða Bolungarvíkurkaupstaðar er slæm. Erfiður rekstur var á árinu 2007 og erf- iðlega hefur gengið að fjármagna mikla fjárfest- ingu sem byrjað var á í fyrra, endurbætur á fé- lagsheimili Bolvíkinga. Elías Jónatansson bæjarstjóri sem leiðir meirihluta sem tók við á síð- asta ári segir að félagslega íbúðakerfið hafi valdið bænum miklum búsifjum. Fólki var að fjölga þeg- ar stofnað var til kerfisins og þegar aftur fór að fækka reyndi á innlausnarskyldu sveitarfélagsins. Bærinn sat uppi með á fimmta tug íbúða sem ekki var hægt að leigja eða selja nema fyrir hluta af kaupverði. Aðalsjóður bæjarins á nú um 400 millj- ónir inni hjá þessu kerfi og reiknast Elíasi til að bærinn beri um 700 milljóna króna bagga vegna félagslega íbúðakerfisins. Bolungarvíkurkaup- staður skuldaði tæpan milljarð í lok ársins 2007 og búast má við því að skuldirnar séu nú 1,2 til 1,3 milljarðar kr. Í Bolungarvík eru liðlega 900 íbúar. Vegna alvarlegrar fjárhagsstöðu sveitarfé- lagsins eru stjórnendur þess og fulltrúi frá eft- irlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga að fara í gegnum allan rekstur og skera niður þann kostnað sem unnt er. Tillögurnar verða lagðar fyrir bæj- arstjórn í næstu viku. Jafnframt hefur verið sam- þykkt að leggja sérstakt 10% álag á útsvar sem þýðir að Bolvíkingar greiða í ár 14,61% útsvar sem er hið hæsta á landinu. Unnið er að fleiri aðgerð- um. Markmiðið er, að sögn Elíasar, að jafnvægi komist á reksturinn á næsta ári. helgi@mbl.is Bolungarvík í gjörgæslu Miklar annir framundan hjá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga BORGARSTJÓRI afhenti Freyju Haraldsdóttur í síðustu viku styrk úr minningarsjóði Gunnars Thor- oddsen, fyrrverandi borgarstjóra og forsætisráðherra. Freyja hefur þrátt fyrir fötlun lát- ið drauma sína rætast og um leið opnað augu almennings fyrir því að það felist tækifæri í fötlun. Hún er 22 ára að aldri og stundar nám í þroskaþjálfafræði við menntasvið Háskóla Íslands. Í nóvember gaf hún út bókina Postulín ásamt Ölmu Guðmundsdótttur og fjallar bókin um líf Freyju og viðhorf. Með hjálp frá fjölskyldu og vinum tekur Freyja virkan þátt í daglegu lífi. Hún hefur heimsótt fyrirtæki, stofnanir og alla framhaldsskóla landsins og haldið fyrirlestra þar sem hún lýsir því hvernig er að vera fötluð og hvernig samfélagið oft og tíðum bregst við fötluðu fólki. Freyja sagðist afar þakklát, styrkurinn myndi koma sér vel og hún myndi nýta hann til þess að halda áfram fræðslufyrirlestrum sínum sem hún segir mikilvægt til þess að opna augu fólks fyrir mál- efnum fatlaðra. Fyrirlesari Freyja sýnir fólki að það getur látið drauma sína rætast. Vill opna augu fólks fyrir málefnum fatlaðra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.