Morgunblaðið - 16.02.2009, Page 5
Fréttir 5INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
„SÓLARGEISLARNIR voru eins og risavaxinn foss sem steyptist niður
úr dökkum skýjunum. Ljósaleikurinn magnaði upp Skrúðinn og Vatt-
arneshornið, en varðskipið lónaði yst í Reyðarfirðinum,“ sagði Helgi
Garðarsson, ljósmyndari á Eskifirði sem tók þessa mynd í nýliðinni
viku. Hann sagði sólstafina sem lýstu upp vetrarmorguninn hafa verið
stórkostlega sjón.
Sólstafir myndast þegar sólin skín gegnum göt í skýjaþykkninu og
geislar hennar ná að lýsa upp loftið í samanburði við dekkri bak-
grunn, segir á Vísindavef Háskóla Íslands. Sólstafirnir stefna í raun-
inni allir frá einum punkti á himninum, punktinum þar sem sólin væri
ef við sæjum hana en það gerum við sjaldnast þegar sólstafir eru á
lofti. aij@mbl.is
Geislarnir eins
og risavaxinn foss
Ljósmynd/Helgi Garðarsson
FJÖLDI þinglýstra kaupsamninga á
höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku,
eða frá föstudegi til fimmtudags, var
39 samningar. Vikuna þar áður var
fjöldinn 34 samningar.
Heildarveltan á fasteignamarkaði
á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku
var 1.129 milljónir króna og meðal-
fjárhæð samnings 28,9 milljónir,
samanborið við heildarveltu upp á
893 milljónir vikuna á undan og með-
alfjárhæð um 26,3 milljónir.
Kaupsamningum fjölgaði því
nokkuð í síðustu viku frá vikunni á
undan og meðalfjárhæð var einnig
hærri. Fjöldi samninga í síðustu viku
var þó töluvert undir því sem var á
svipuðum tíma í fyrra og það sama á
einnig við um meðalfjárhæð samn-
inga. Í febrúarmánuði í fyrra var að
jafnaði þinglýst yfir 100 kaupsamn-
ingnum á höfuðborgarsvæðinu á
viku og meðalfjárhæð samnings var
um 35 milljónir króna. Samdráttur í
fjölda er því yfir 60% og nafnverð
samninga hefur að jafnaði lækkað
um 17% milli ára. gretar@mbl.is
Enn lítil sala
á fasteigna-
markaði
SÍÐASTLIÐINN
föstudag var hald-
in vígsluhátið í
nýjum húsakynn-
um málmiðnaðar-
fyrirtækisins
Héðins að Gjá-
hellu 4, Hafnar-
firði. Eru hin nýju
húsakynni fyrir-
tækisins í iðnað-
arhverfinu
skammt frá álverinu í Straumsvík.
Samkvæmt upplýsingum frá Guð-
mundi S. Sveinssyni, framkvæmda-
stjóra Héðins, þá kostaði hið nýja
hús í kringum einn milljarð króna.
Segir hann að ekki hafi reynst nauð-
synlegt að taka háar fjárhæðir að
láni til byggingarinnar. Það stafi af
því að reksturinn hafi gengið vel í
gegnum árin og fyrirtækið hafi því
átti nokkuð fyrir upp í byggingar-
kostnaðinn.
Útgerðin og stóriðjan
„Passað hefur verið upp á við-
skiptavinina og starfsmennina,“ seg-
ir Guðmundur. „Það hefur skilað sér
í góðum rekstri Héðins. Þá hefur
ekki mikið verið tekið út úr fyrirtæk-
inu.“
Að sögn Guðmundur er stærstur
hluti verkefna Héðins fyrir útgerð-
ina í landinu og fyrir stóriðjuna. Seg-
ir hann að mikið sé að gera hjá fyr-
irtækinu á báðum þessum sviðum.
Vélsmiðjan Héðinn var stofnuð
fyrir 87 árum, eða árið 1922. Starfs-
menn eru tæplega hundrað talsins.
gretar@mbl.is
Héðinn
þurfti ekki
há lán
Málmiðnaðarfyrirtækið
er flutt í Hafnarfjörð
Guðmundur S.
Sveinsson