Morgunblaðið - 16.02.2009, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
Orðsending til skilanefnda og lögmanna.
Önnumst fjármálaþýðingar · Afar snör handtök.
Tilboð í öll verkefni · bafþýðingaþjónusta.is.
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
um kjör vegna framboða til trúnaðarstarfa í VR, skv. 20. gr.
laga félagsins.
Allsherjaratkvæðagreiðslan mun hefjast 23. febrúar nk. og
henni lýkur kl. 12:00 á hádegi þann 11. mars 2009.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.vr.is eða
með því að hringja á skrifstofu VR í síma 510 1700.
Kjörstjórn VR
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
MIKIL verðmæti hafa á undanförn-
um árum og áratugum orðið til í
skógarreitum bænda og félaga víða
um land. Unnið hefur verið að und-
irbúningi trygginga á þessum verð-
mætum, en sú vinna hefur strandað
á því að lög um Viðlagatryggingu Ís-
lands ná ekki yfir skóga. Á vegum
skógarbænda hefur einnig verið
unnið að öryggismálum ýmiss konar
í samvinnu við Brunamálastofnun,
slökkvilið og Neyðarlínuna.
„Við höfum unnið að því með
Sjóvá-Almennum að koma upp
brunatryggingum á skógunum,“
segir Björn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka skógarbænda. „Það
starf hefur gengið mjög vel, en
nauðsynlegt er að breyta lögum um
viðlagatryggingu svo þau nái yfir
skógana. Með tryggingum á skóg-
lendi færi hluti iðgjalds inn í viðlag-
artrygginguna.
Það er brýnt fyrir skógarbændur,
til dæmis ef náttúruhamfarir eyði-
leggja skóga, að ganga sem fyrst frá
þessum tryggingamálum. Okkur er
sagt að ekki sé hægt að viðlaga-
tryggja skóga á Íslandi því lögin
segi að eingöngu sé hægt að tryggja
fasteign eða lausamuni. Skógur er
hvorugt. Vinna við þessa breytingu
er hafin og vonandi verður málið
tekið upp á haustþingi,“ segir Björn.
Handbók um eld og varnir
Á vormánuðum kemur út á vegum
Brunamálastofnunar handbók fyrir
slökkvilið, skógareigendur og aðra
sem tengjast skógrækt um bruna,
eldvarnir og fleira.
„Það er hart að segja það, en það
verða eldar í íslenskum skógum á
næstu árum. Á síðustu árum hafa
orðið slíkir brunar, t.d. í Þjórsárdal
og við sumarhús í Þrastaskógi. Öfl-
ug slökkvilið komu í báðum tilvikum
í veg fyrir stórtjón. Við erum að
vinna að því að tryggja það að ef
eldur kemur upp séum við í stakk
búnir til að ráða við hann.“
Skógakort á næstu árum
Í síðustu viku var samið um að
skógarkort yrði sett inn í korta-
grunn Neyðalínunnar. Með því
verða skógarreitir bænda um allt
land og leiðir að þeim og innan
þeirra sett inn í kortagrunn 112 á
næstu árum. Ef slys verður í skógi
verður aðkoma sjúkrabifreiðar eða
slökkviliðs auðveldari og öruggari
en áður með aðstoð síma og skóg-
arkortsins.
Fyrstu skógarbændurnir eru
komnir með ítarlegar áætlanir um
brunavarnir í sínum skógum. Þar er
búið að setja inn á kort viðkomandi
jarðar aðkomu- og útgönguleiðir,
næsta vatnstökustað og annað sem
nauðsynlegt er til að tryggja sem
best aðkomu og aðgerðir í skóginum
ef slys verður, hvort sem um er að
ræða bruna í skóginum eða slys á
fólki.
Flókið að tryggja
Skógarbændur vinna að öryggismálum
Skógarreitir inn í kortagrunn Neyðarlínunnar
Vaskir Skógarhöggsmenn unnu í síðustu viku við grisjun í Haukadalsskógi á Suðurlandi á vegum Skógræktar ríkisins. Skógurinn var gróðursettur fyrir
tæplega hálfri öld. Svæðið var síðast grisjað fyrir 10 árum og því var mikil þörf á að grisja það á ný, að því er segir á skogur.is. Eftirspurn eftir íslenskum
skógarafurðum hefur aukist á undanförnum mánuðum og er grisjunarátakið sem nú stendur yfir meðal þeirra stærstu sem Skógrækt ríkisins hefur ráðist í.