Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009 Það eina raunverulega við efna-hagsbóluna, sem nú er sprung- in með látum, voru bónusarnir, sem allir voru greiddir út. Samning- arnir, sem voru á bak við bónusana og yfirgreiðslurnar, reyndust hins vegar einskis virði. Þetta var nið- urstaða fréttaskýringar, sem ný- verið birtist í The New York Times um góðærið og fjármálahrunið.     Ofurlaunbankamanna eru nú víða til umræðu. Fréttir um að bankinn Lloyds á Bret- landi ætlaði að greiða 120 millj- ónir punda í bón- usa vakti mikla reiði í gær og sögðu bæði stjórn- arliðar og stjórnarandstaða að yf- irmenn ættu ekki að fá eyri. Hneykslunin leyndi sér ekki.     Í Bandaríkjunum er umræðan meðsvipuðum hætti. Yfirgreiðslur til bankamanna á jötu ríkisins þykja ekki koma til greina.     Í Þýskalandi sagði Angela Merkelkanslari slíkar greiðslur óskilj- anlegar og Frank-Walter Stein- meier varakanslari kvaðst hvað eft- ir annað sleginn yfir „veruleikafirringu og kaldhæðni“ margra forustumanna í fjár- málaheiminum.     Í nýjasta tölublaði Der Spiegel erfjallað um ofurlaun bankamann- anna. „Hinir óskammfeilnu,“ stend- ur á forsíðunni og er gefið fyrirheit um lýsingar innan úr „óforbetr- anlegu gildi“ bankamannanna. Á fundi 20 helstu iðnríkja heims í apríl á að taka á ofurlaununum og leita leiða til að spyrða greiðslur við raunverulegan árangur, en ekki loftkastala.     Voru bónusarnir það eina raun-verulega við íslenska fjármála- ævintýrið? Bónusar og bankamenn                      ! " #$    %&'  (  )                     *(!  + ,- .  & / 0    + -                          12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (       !    " #  $     "     :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? %   % % %! % !% %!  % % % !% !% !% % % %   !%                          *$BC                   ! "#   $ %  &' !  *! $$ B *! & '  ( ) )' )   * <2 <! <2 <! <2 & ( + ), #-).+ /  D8- E                  <7  #   ( )* +   ,     <      - - ) " #  %   ,  6 2        + $ $, .     %                    01++) ) 22 + )  )3  ), # Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR KATRÍN Jakobsdóttir menntamálaráðherra seg- ist styðja áform um nýbyggingu fyrir Listaháskóla Íslands en svigrúm til framkvæmda sé ekki mikið í dag. Málið sé ennfremur í skipulagsferli hjá Reykjavíkurborg og biðstöðu vegna óvissu um eignarhald á Samson Properties, félaginu sem hafði tekið að sér að reisa og reka húsið. „Það þarf að byggja yfir skólann en það er einnig ljóst að svigrúm til þess er ekki mikið núna. Við er- um einnig að reyna að koma tónlistarhúsinu í gagn- ið,“ segir Katrín. Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskólans, segir málið einnig vera í biðstöðu. Hann lítur svo á að samningur, sem gerður var við menntamála- ráðuneytið á síðasta ári um fjármögnun verksins, sé enn í fullu gildi en útlit sé fyrir að byggingin tefj- ist um ár. Framkvæmdir áttu að hefjast í vor og ný- bygginguna átti að taka í notkun haustið 2011. Það verður þá í fyrsta lagi árið 2012 sem byggingin rís en skólinn er í dag til húsa á þremur stöðum í borg- inni. Að sögn Hjálmars er einnig beðið eftir því að eignarhald skýrist á fasteignafélaginu Samson Properties, sem tók að sér að reisa skólann, nú Novator Properties. Áform eru um að nýbyggingin rísi í miðbænum; við Laugaveg og Frakkastíg, og hefur skipulagsráð Reykjavíkur haft verkið til umfjöllunar. Stjórnend- ur skólans hafa hafnað þeim kosti að reisa skólann í Vatnsmýrinni, eins og til stóð um tíma. „Breytt til- laga okkar hefur fengið góðan hljómgrunn hjá borgaryfirvöldum og ég reikna með að hún verði samþykkt,“ segir Hjálmar en skipulagsráð hefur viljað bíða eftir því að eignarhald á Novator Pro- perties skýrist, sem og hver vilji stjórnvalda um fjármögnunina sé. Vonast Hjálmar til að málið skýrist á næstu vikum. bjb@mbl.is Nýbygging LHÍ í biðstöðu Þarf að byggja yfir skólann en svigrúmið lítið í dag, segir nýr menntamálaráðherra BLAÐAMANNAFÉLAG Íslands birti um helgina tilnefningar til blaða- mannaverðlaunanna 2008. Þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, mbl.is, Jóhann Hauksson, DV, og Sigrún Davíðs- dóttir, Ríkisútvarpinu, eru tilnefnd til Blaðamannaverðlauna ársins. Verða verðlaunin veitt 21. febrúar nk. Þóra Kristín var tilnefnd fyrir vandaðar fréttir á mbl.is þar sem hún nálgaðist frumlega málefni líðandi stundar og netmiðillinn var nýttur með nýjum hætti í íslenskri fjöl- miðlun. Jóhann var tilnefndur fyrir fréttaskrif og umfjöllun um mikilvæg þjóðfélagsmál sem báru vitni um mik- il tengsl, reynslu og skilning, og voru iðulega fyrstu fréttir af málum. Sig- rún var tilnefnd fyrir pistla þar sem nýjum hliðum á fjölda mála var velt upp. Tilnefningar fyrir rannsóknar- blaðamennsku hlutu Atli Már Gylfa- son og Trausti Hafsteinsson, DV, fyr- ir umfjöllun um kynþáttafordóma meðal ungs fólks á Suðurnesjum, Brynjólfur Þór Guðmundsson og Erla Hlynsdóttir, DV, fyrir greiningu á eftirlaunum ráðamanna og áhrifum eftirlaunafrumvarpsins, og Sigurjón M. Egilsson, Mannlífi og Bylgjunni, fyrir greinar og útvarpsþætti um ís- lenskt efnahagsástand og þjóðmál. Tilnefndir fyrir bestu umfjöllun ársins eru Baldur Arnarson, Morg- unblaðinu, fyrir greinaflokkinn Ný staða í norðri, þar sem farið var yfir þær náttúrufarslegu, efnahagslegu, félagslegu og pólitísku breytingar, sem hlýnun andrúmslofts og breytt staða á norðurslóðum hefur í för með sér, Brjánn Jónasson, Fréttablaðinu, fyrir skrif um framboð Íslands til ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna, og Ragnar Axelsson og Önundur Páll Ragnarsson, Morgunblaðinu, fyrir umfjöllun um virkjunarkosti á Ís- landi. Morgunblaðið/RAX Tilnefning Skrif Morgunblaðsins um virkjanaáform voru tilnefnd. Morgunblaðið með þrjár tilnefningar Blaðamannafélagið kynnir tilnefningar til Blaðamannaverðlaunanna 2008

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.