Morgunblaðið - 16.02.2009, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 16.02.2009, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009 Anna K. Kristjánsdóttir | 14. febrúar 2009 Svaf ágætlega yfir Júróvisjón Ég ákvað að vera þjóðleg á laugardagskvöldið og ákvað að horfa á Júróv- isjón, reyndar í fyrsta sinn þennan veturinn því undankeppnin hafði alveg farið framhjá mér. Meira: velstyran.blog.is Jenný Anna Baldursdóttir | 15. febrúar 2009 Í losti Ég er eiginlega máttlaus af skelfingu eftir að hafa horft á fréttir áðan. Ég hélt satt að segja að það væri varla hægt að hreyfa við blóðinu í mér núorðið, svo vön er ég orðin vondum fréttum síðan í haust. En það sem gæti verið okkar versta mar- tröð, sko okkar sem viljum sjá ný vinnu- brögð og nýtt Ísland … Meira: jenfo.blog.is ÞAU áföll sem geng- ið hafa yfir íslenskt samfélag á und- anförnum mánuðum eiga sér ekki fordæmi. Jafnvel þó að þau séu sett í samhengi alþjóð- legrar fjármálakreppu og heimskreppu í víðum skilningi er óhjá- kvæmilegt annað en að horfast í augu við að hér á landi höfum við gert mistök. Hér er ekki um að ræða ein eða tvenn mistök sem eru afmörkuð við einstök atriði og ákveðna tímapunkta heldur er um mörg mistök að ræða sem spanna langt tímabil. Þau eru misstór og höfðu mismikil áhrif, sum jafnvel þannig að ekki er augljóst að um mistök hafi verið að ræða nema vegna aðstæðna sem sköpuðust en voru illfyrirsjáanlegar. Af þessu leiðir að margir hafa átt sinn þátt í þessum mistökum: Ráðherrar, rík- isstjórn, Alþingi, Fjármálaeftirlit, Seðlabanki, forseti Íslands, stjórn- endur gömlu bankana o.fl. Hið sama á við stjórnmálaflokkana alla, hvern á sinn hátt. Við sjálf- stæðismenn eigum að sjálfsögðu að gangast við því. Þó var ekki allt sem gert var þessu marki brennt og margt af því sem vel var gert mun hjálpa okkur út úr vandanum fyrr en annars hefði orðið. Að mínu mati var eitt stærsta vanda- málið fólgið í því að við bjuggum við við- skiptalíf þar sem þrjár viðskiptablokkir réðu ríkjum. Hver þeirra átti sinn banka og hver þeirra átti sitt fjölmiðlaveldi. Í krafti þessa byggðist upp banka- kerfi af stærð sem engin leið var að ríkið gæti varið með sinn litla gjald- miðil og við þær aðstæður sem sköpuðust hér og annars staðar í heiminum þegar leið á síðasta ár. Það sem skiptir mestu máli nú er að draga réttar ályktanir af því sem gerðist til þess að við getum með breyttum áherslum og breyttum farvegi fyrir stefnu Sjálfstæð- isflokksins mótað framtíðarstefnu sem nýtist við lausn á þeim vanda sem samfélagið okkar er í. Skýr markmið Það er tvennt sem við þurfum í meginatriðum að gera: Í fyrsta lagi að marka okkur skýra framtíð- arstefnu í mikilvægum málaflokkum með skýrum tölusettum og mæl- anlegum markmiðum sem unnt verður að ná á ákveðnum tímabil- um. Í öðru lagi þarf að verða hug- arfarsbreyting hvað varðar nálgun okkar gagnvart þremur stórum málaflokkum. Málaflokkum sem að sumu leyti ganga þvert á aðra mála- flokka. Við þurfum að setja okkur skýr markmið í umhverfis- og eldsneyt- ismálum, velferðarmálum og menntamálum, byggðamálum, gjaldmiðilsmálum og hvar við ætl- um í framtíðinni að sjá okkur stað- sett í samfélagi þjóðanna. Hugarfarsbreyting Hjá okkur þarf að verða hug- arfarsbreyting hvað varðar atvinnu- mál. Við þurfum áfram að byggja á grunnatvinnuvegum þjóðarinnar sjávarútvegi og landbúnaði en að auki halda áfram uppbyggingu ferðaþjónustu, nýtingu orkuauð- linda til orkufreks iðnaðar og við þurfum að halda áfram uppbygg- ingu nýrra greina og samkeppn- isiðnaðar. Við búum nú við verulegt atvinnuleysi og skuldir þannig að áhersla verður að vera á fleiri og verðmætari störf með því að ganga lengra en áður í frekari vinnslu, full- vinnslu sem skapar meiri verðmæti og skilar betur launuðum störfum og meiri gjaldeyristekjum. Við þurf- um jafnframt að nýta orkuna til meiri verðmætasköpunar en áður. Framleiðsluhagkerfið mun skipta höfuðmáli við endurreisn þjóðabús- ins. Eitt af því sem brást hjá okkur var regluverkið og eftirlitið. Trú- verðugleika þess þarf að endurreisa með breyttu hugarfari. Kerfið þarf að fara úr meðvirkni í virkni. Skuld- sett eignarhaldsfélög, óheftar skort- sölur, krosseignarhald og innherja- viðskipti eru hlutir sem verða að heyra sögunni til. Þetta gerist með meira gegnsæi og meiri umfjöllun. Sumt af þessu eru alþjóðleg vanda- mál og þarf að takast á við í sam- starfi við aðrar þjóðir, en við erum vel fær um það. Þriðja atriðið hvað varða breytt hugarfar og ekki það veigaminnsta snýr að breyttu gildismati. Við meg- um ekki ganga út frá því að græðgisvæðing og flottræfilsháttur síðustu ára sé það sama og að sýna framtakssemi eða vilja til að bæta stöðu sína og hlúa vel að sér og sín- um. Án frjáls framtaks og krafts einstaklinganna munum við ekki komast út úr vandanum. Við þurfum hins vegar að gæta hófs og virða gömul gildi og gæta þess að fara ekki yfir þau strik sem ofbjóða um- hverfinu. Samskipti við nágranna eiga ekki að vera í formi keppni um hver eigi stærsta garðinn eða stærsta bílinn. Við eigum að leitast við að láta okkur líða vel saman í okkar umhverfi og sýna hvert öðru meiri umhyggju. Takist okkur að gera þessar breytingar á markmiðum okkar og stefnumörkun munum við að lokum komast vel frá vandanum innan ekki mjög langs tíma. Þessar breytingar eru ekki kollsteypa – en færa okkur í farveg hófs og skynsemi og byggja um leið á þeim krafti og framtaki sem við nauðsynlega þurfum. Eftir Árna M. Mathiesen » Takist okkur að gera þessar breytingar á markmiðum okkar og stefnumörkun munum við að lokum komast vel frá vandanum innan ekki mjög langs tíma. Árni Mathiesen Höfundur er alþingismaður. Gerum breytingar ÍSLENDINGAR tóku um síðustu áramót við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Sumum kann að virðast það ærið verkefni fyrir litla þjóð að leiða svo umfangsmikið svæðasamstarf á sama tíma og hún er að vinna sig út úr mestu fjár- málakreppu sem á henni hefur dun- ið. En þá ber að líta til þess að marg- ir eru til að lyfta undir byrðar þegar á reynir, því Norðurlandasamstarfið stendur á sterkum stoðum og er svo samofið allri starfsemi norrænu rík- isstjórnanna. Íslendingar hafa því fullan hug á því að framfylgja eins vel og þeim er unnt metnaðarfullri formennskudagskrá á árinu og koma forgangsverkefnum sínum að í ráðum og nefndum, enda er ávinningurinn ótvíræður eins og margoft hefur sýnt sig. Frumkvöðlar á öllum skólastigum Meginstefnumið Íslendinga voru ákveðin með tilliti til stefnuyfirlýsingar norrænu for- sætisráðherranna fyrir norrænt samstarf frá árinu 2007 um sóknarfæri fyrir Norðurlönd í ljósi hnattvæðingar. Stefnt er að því að styrkja samkeppnisstöðu Norðurlanda, m.a. með því að efla rannsóknir og nýsköpun, ekki síst á sviði loftslags- og umhverfismála. Engin ástæða þykir til að slá af þessum markmiðum þótt á móti blási í efnahagsmálum hjá öllum norrænu þjóðunum, þær ætla sér að vera áfram í forystu í umhverfismálum og hafa meðal annars á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar sem er í beinu samhengi við áherslur í norrænu samstarfi og forgangsverkefni Ís- lendinga á formennskuári. Sjálfbær þróun er hugmyndafræði með félagslegri, efnahagslegri og umhverfispólitískri vídd, hugmyndafræði sem getur vísað okkur veg við nauðsynlega endurskoðun á gildismati. Ný framkvæmda- áætlun um sjálfbæra þróun tekur gildi í nor- rænu samstarfi á formennskuári Íslendinga og verður hún rauður þráður í starfsemi allra fag- nefnda. Meginverkefnið er að stemma stigu við loftslagsbreytingum og ætla Íslendingar m.a. að hafa frumkvæði að ýmsum verkefnum sem stuðla að kolefnisbindingu, s.s. skógrækt og endurheimt skemmdra vistkerfa. Samstarf í vesturvegi Það felast því mörg tækifæri í norrænu og norður-evrópsku samstarfi þótt verulega blási á móti í efnahagsmálum um þessar mundir. Virk þátttaka í Norðurlandasamstarfi er bæði leið til endurreisnar og til að hafa áhrif til góðs í samstarfi við grannþjóðir. Á fundi norrænu samstarfsráðherranna í desember sl. kom fram skýr vilji til að aðstoða Íslendinga á erfiðleikatímum. Fram- kvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar og vinnuhópur mun setja fram tillögur um til- högun þessarar aðstoðar sem miðar að því að íslensk ungmenni geti verið virk í norrænu samstarfi og notið þeirra gæða sem það hefur skapað. Við skulum því hafa það hugfast að við stöndum ekki ein – við erum hluti af hinni nor- rænu fjölskyldu og þar hjálpumst við að. Þar erum við ekki síður veitendur en þiggjendur með hugmyndaauðgi, sérþekkingu og reynslu. að vera grundvöllur fyrir samhæfðar við- bragðsáætlanir komi til umhverfisslysa á haf- svæðunum á milli Noregs, Færeyja, Íslands og Grænlands. Brýn þörf er á slíku vákorti í ljósi aukinna siglinga með hættulegan farm á norð- lægum hafsvæðum og vaxandi ásóknar í nátt- úruauðlindir á norðurslóð. Gert er ráð fyrir að vinnu við vákortið verði lokið í árslok 2010. Annað verkefni af öðrum toga en ekki síður mikilvægt, er samanburðarrannsókn á til- högun fæðingar- og foreldraorlofs á Norð- urlöndum. Á vettvangi ESB er nú horft til Norðurlanda og sérstaklega Íslands hvað varðar fyrirkomulag þessara mála. Það segir sína sögu að Íslendingar munu leiða þessa rannsókn, því hér á landi er bæði til sérþekk- ing og mannauður til fræðastarfs í jafnrétt- ismálum. Mörgum öðrum þverfaglegum verkefnum verður ýtt úr vör á formennskuári og jafnframt verður efnt til fjölmargra viðburða, ráðstefna, málþinga og sýninga. Frekari upplýsingar um formennskuáætlunina eru á www.norden.2009. Sjálfbær þróun Verkefnaskrá nýrrar ríkisstjórnar byggist frumkvæði á alþjóðavettvangi í baráttunni gegn loftslags- breytingum og annarri um- hverfisvá. Unnið er að því á vegum Norrænu ráðherra- nefndarinnar að tveggja ára samningaferli um nýjan al- þjóðlegan loftslagssáttmála ljúki með nýjum sáttmála á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í árslok. Í ljósi hnattvæðingarstefn- unnar munu Íslendingar leit- ast við að styrkja þverfaglegt samstarf stjórnvalda, stofnana og fyrirtækja til að stuðla að rannsóknum og frumkvöðlastarfsemi. Frjó hugsun, áræði og sköpunargleði er forsenda sprotastarfs í at- vinnulífi. Því ætlum við að beita okkur fyrir þverfaglegu samstarfi sem miðar að því að efla frumkvöðlamenningu á öllum stigum skóla- kerfisins. Sjónum verður sérstaklega beint að gildi listmennta og mikilvægis þess að skapa flæði milli listgreina og hefðbundinna fræði- greina til að kveikja hugmyndir og búa til far- veg fyrir frumkvöðla úr skólakerfinu og út í at- vinnulífið. Metnaðarfull verkefni Á formennskuári verður m.a. ráðist í tvö metnaðarfull verkefni sem snúa að sameig- inlegum hagsmunamálum norrænna þjóða. Fyrst ber að nefna að vinna hefst við að setja saman vákort fyrir Norður-Atlantshafið sem á Eftir Kolbrúnu Halldórsdóttur » Við stöndum ekki ein – við erum hluti af hinni nor- rænu fjölskyldu og þar hjálp- umst við að. Þar erum við ekki síður veitendur en þiggj- endur. Höfundur er umhverfis- og samstarfsráðherra. Aflvaki á erfiðum tímum Kolbrún Halldórsdóttir BLOG.ISÁrni Sæberg Við Níuna Fangelsisvist er ekkert gamanmál en þátttakendur í söguferð Birnu Þórðardóttur um Reykjavík virtust skemmta sér vel yfir frásögnum hennar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.