Morgunblaðið - 16.02.2009, Síða 19

Morgunblaðið - 16.02.2009, Síða 19
hún ætíð í hjarta sér og í sveitinni leið henni best, innan um skepnur og haga. Lífsganga Gunnu var öll á brattann, hennar bestu eiginleikar voru oft hennar verstu gallar. Ákvarðanir voru oftar en ekki teknar í fljótræði; þær voru hennar og með þeim stóð hún og féll. Stuttu eftir að hún greindist með krabbamein lést eiginmaður hennar. Áfram hélt hún kramin á hjarta og sál. Bætti við sig prófgráðum, kenndi sjúkraliðanem- um á Akranesi, hvatti og styrkti börnin sín til náms. Var vakin og sof- in yfir framgöngu þeirra og velferð allt til hinstu stundar. Svartar fjaðrir sár þau hylja, sem þú hlaust að drottins vilja Þungt er að lifa, en þyngra að skilja, þrautir og örlög sín. Svo segir í ljóði Davíðs Stefánsson- ar sem hún hélt mikið upp á. Elsku systir mín, ég kveð þig í þeirri full- vissu að nú hafir þú loks öðlast þann frið sem þú svo lengi leitaðir, laus við þær þrautir sem á þig voru lagðar. Við systkinin munum halda utan um gullmolana þína og gæta þeirra. Í sorginni okkar sálir mætast. Seinna okkar draumar rætast. Katrín. Guðrún Jóna, elskuleg mágkona mín, er látin aðeins 51 árs að aldri. Hún er laus undan þeim óbærilegu kvölum sem hún hefur mátt þola síð- ustu vikur og mánuði. Vonin um sigur í baráttunni var sterk og lífsviljinn var sterkur, viljinn til að eiga einn dag enn með börnunum sem voru henni allt. Síðustu ár hafa verið Gunnu erfið. Glíman við krabbamein- ið, missir eiginmanns og ýmiss konar mótlæti í starfi og félagslífi gekk mjög nærri henni. Byrðunum og mót- lætinu í þessu lífi er sannarlega mis- skipt, en Gunna fékk meira af slíku en hægt er að ætlast til að ein mann- eskja rísi undir. En með persónuleg- um styrk og einstökum stuðningi og elsku barna sinna sýndi Gunna æðru- leysi og vilja til að halda áfram, hvernig sem á móti blés. Gunna var skarpgreind og mikill dugnaðarforkur. Hún var hjúkrunar- fræðingur að mennt og unni því starfi afar heitt. Hún var fær og góður hjúkrunarfræðingur og sinnti sínu starfi af alúð og umhyggju fyrir skjól- stæðingum sínum. Þörfin og löngun- in til að auka þekkingu sína og færni var mikil. Hún lét sig ekki muna um að ljúka meistaranámi með glæsi- brag samhliða rúmlega fullu starfi. Jafnvel eftir að hún greindist með krabbameinið hóf hún annað meist- aranám. Hún gerði miklar kröfur til sín og mig grunar að einkunnin 9 hafi verið lágmarkseinkunn í hennar huga. Hún naut þess líka að miðla öðrum af þekkingu sinni og kennslan við Fjölbrautaskóla Akraness síðustu árin gaf henni mikið. Hún naut fé- lagsskaparins við nemendur sína enda hafði hún mikla ánægju af sam- skiptum við annað fólk. Síminn var vel nýttur á kvöldin til langra símtala við vini og vandamenn. Síðustu mán- uði fækkaði þeim góðu símtölum en Gunna notaði bloggið þeim mun meira til að koma skoðunum sínum á framfæri. Og á þeim lá hún ekki, við mismiklar vinsældir eins og gengur. Hún var góður penni og greiningar hennar á stöðu stjórnmálanna og ein- stökum þáttum þjóðmála voru hnit- miðaðar og áhugaverðar. Hún eign- aðist fjölda vina í gegnum bloggið og stuðningur bloggvina gaf henni mikið í veikindunum síðustu mánuði. En nú er Gunna laus undan ómanneskjuleg- um þrautum sem leiddu af krabba- meininu. Gullmolarnir hennar, eins og hún kallaði gjarnan Haffa og Kötu, véku ekki frá sjúkrabeði móður sinnar síðustu vikurnar. Gagnkvæm virðing og væntumþykja móður og barna var einstök. Gunna var líka óendanlega stolt af börnunum sínum. Þau sjá nú á eftir elskaðri móður sinni allt of snemma en lífsgildin sem hún innrætti þeim munu verða þeirra styrkur í lífinu. Ég bið góðan guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg. Blessuð sé minning Guðrúnar Jónu. Elsa B. Friðfinnsdóttir. Mig langar að hafa nokkur þakkar- og minningarorð um kynni mín við einstaka konu sem er fallin frá langt um aldur fram. Það er ekki orðum ofaukið að segja að Gunna hafi verið einstök. Hún var það á svo marg- slunginn og eftirtektarverðan hátt. Það vita þeir sem þekktu hana. Þó að okkar kynni hafi ekki verið löng þá voru þau á margan hátt sér- stök. Ég hafði í nokkurn tíma hlakk- að til að hitta hana og var ekki svikin þegar ég fékk svo tækifæri til að kynnast henni. Mér leið alltaf vel í nærveru hennar. Enda gaf hún ætíð mikið af sér og við náðum vel saman og urðum fljótt góðar vinkonur. Þarna var, svo ekki verður um villst, reynslumikil kona með hlýtt hjarta og margt að gefa. Ég mun hugsa hlý- lega til hennar, oft og mikið. Mér er sannur heiður að hafa tengst henni og fengið tækifæri til að verja tíma mínum með henni, deila „quality- stundum“, ferðast, skiptast á skoðun- um og raða inn í minningabankann samverustundum og uppákomum sem seint munu gleymast. Eitt er víst að líf mitt er ríkara fyrir vikið og ég hef lært margt, ekki síst um eljusemi og seiglu. Mér verður hollt og farsælt að halda hennar merkjum á lofti á mörgum sviðum í lífinu. Mig langar að enda á bæn sem okkur þótti báðum svo falleg: Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt, sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér, því veit mér feta veginn þinn, að verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson) Ég minnist hennar í kærleika, af virðingu og með þakklæti. Guð blessi minningu hennar. Ragnheiður Helga Sæmunds- dóttir (Heiða). Guðrún Jóna Gunnarsdóttir var ráðin kennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands í ágúst 2004. Hún var starfsmaður skólans til dauðadags. Guðrún Jóna kenndi hjúkrunarfræði og aðrar sérgreinar á sjúkraliðabraut og skipulagði auk þess vinnustað- anám sjúkraliðanema. Þetta voru fjölbreytt og krefjandi verkefni. Á þessum tíma var tekin upp ýmiss konar nýbreytni í sjúkraliðanáminu með það markmið í huga að koma til móts við mismunandi þarfir nemenda og ólíkar aðstæður þeirra. Sem dæmi má nefna að á haustönn 2006 var sjúkraliðanámið skipulagt með nýj- um hætti. Nemendur sem þá innrit- uðust á sjúkraliðabrautina stunduðu fjarnám með staðbundnum lotum. Nýtt skipulag krafðist nýrra vinnubragða og var Guðrún Jóna fljót að laga sig að þeim með góðum árangri. Um miðja þessa önn kenndi Guðrún Jóna sér fyrst þess meins sem hún hefur nú lotið í lægra haldi fyrir. Hún gekkst undir erfiða aðgerð í kjölfar þess og var frá vinnu út skólaárið. Hún kom til starfa aftur í ágúst 2007 staðráðin í að ná heilsu og starfsorku á nýjan leik. Því miður fór heilsan að gefa sig aftur undir lok þess skólaárs. Á stuttum starfstíma sínum í Fjöl- brautaskólanum sýndi Guðrún Jóna mikinn dugnað í erfiðum aðstæðum. Guðrún Jóna hafði mikla reynslu sem hjúkrunarfræðingur sem hún gat miðlað af til nemenda sinna og var alla tíð mjög dugleg við að afla sér viðbótarmenntunar. Hún hafði mik- inn faglegan metnað sem kennari og gerði miklar kröfur til nemenda sinna. Fyrir hönd starfsfólks Fjölbrauta- skóla Vesturlands sendi ég börnum Guðrúnar Jónu og öðrum ættingjum hennar innilegar samúðarkveðjur. Hörður Ó. Helgason, skólameist- ari Fjölbrautaskóla Vesturlands. Minningar 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009 Jón Stefánsson fé- lagi minn er látinn. Kannski kom það engum á óvart, í hans lífi hafa orðið áföll sem stuðlað hafa að vanlíðan. Jón brenndist mikið um borð í Akur- eyrinni fyrir nokkrum árum og var lengi að ná sér og tókst það held ég aldrei að fullu. Ég var ungur þegar ég kynntist Jóni, þá kom hann á heimili for- eldra minna með frænku minni Ástu í Pétursborg sem var kærasta hans og frá upphafi tókst með okk- ur vinátta sem stóð þennan tíma. Það hjálpaði mikið til að við vorum báðir kratar og áttum auðvelt með að tala um pólitík. Jón var tónelsk- ur maður og hafði góða söngrödd. Hann söng hér áður fyrr með hljómsveitum á sveitaböllum og Höllinni í Vestmannaeyjum, hann lærði líka múrverk og var laginn í þeirri iðngrein. Ég hafði gaman af að heimsækja þau hjón og gerði það eins mikið og hægt var, en það var frekar á sumrin, þá var yf- irleitt farið norður og var komið við bæði þegar þau bjuggu á Sval- barðseyri og Akureyri. Mamma Ástu bjó hjá þeim í mörg ár við gott atlæti og hugsaði Jón vel um tengdamóður sína. Fyrir örfáum árum var ég að spila golf á vellinum við Þverá í Eyjafirði tók ég þá eftir manni á vellinum sem fór hægt yfir en var að reyna að slá bolta. Þegar ég spilaði að honum sá ég hver þetta var, þar var kominn Jón vinur minn. Þegar hringnum lauk náði ég aðeins tali af honum, Ásta kom líka þarna að og við tókum tal saman. Jón var góður heimilisfaðir, þótti vænt um börnin og vildi þeim vel í allri þeirra göngu í leik og starfi og einhvern veginn var það að þau komu í sama orðinu Jón og Ásta. Ég vil þakka þessa vináttu, kæri félagi, það var virkilega gaman að eiga með þér stundir í rabbi um daginn og þá sérstaklega pólitík og veginn. Ásta mín, ykkur öllum færi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur frá okkur Jóhönnu og Imbu systur og Ingó. Guðjón H. Finnbogason. Látinn er Jón Stefánsson, félagi í Lionsklúbbi Akureyrar. Með hon- um er genginn einn af máttarstólp- um klúbbsins undanfarin ár. Hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörf- um fyrir klúbbinn og leysti þau öll af hendi með einstakri prýði. Jón gekk í Lionsklúbb Akureyr- ar í maí 1994 og var þar til ævi- loka. Hann varð strax mjög virkur félagi og örvandi fyrir félagslífið í klúbbnum. Hann var tvívegis formaður klúbbsins ár í senn og gegndi Jón Stefánsson ✝ Jón Stefánssonfæddist á Ak- ureyri 7. júní 1937. Hann lést á heimili sínu, í Skessugili, 30. janúar síðastliðinn. Útför Jóns fór fram frá Akureyrarkirkju 10. febrúar sl. fjölda nefndarstarfa, m.a. var hann mjög virkur í fjáröflunum og var í 3 ár formað- ur verkefnanefndar. Nú kveðjum við kæran og glaðværan félaga með söknuði og um leið sendum við eftirlifandi eigin- konu hans, Ástu Hall- varðsdóttur, og öllum afkomendum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Lions- klúbbs Akureyrar, Valdimar Brynjólfsson. Jón Stefánsson, múrarameistari frá Akureyri, er farinn yfir móðuna miklu, langt fyrir aldur fram. Ég kynntist Jóni þegar við Auður syst- ir hans hófum sambúð og stofn- uðum heimili í Vestmannaeyjum 1971. Við fyrstu kynni virkaði Jón frekar hrjúfur, en þegar komið var inn fyrir skrápinn kom í ljós mann- kostamaður með létta lund, og leiftrandi húmor. Hann vildi hvers manns vanda leysa og spurði þá ekki alltaf um laun fyrir vinnu sína. Nutum við Auður góðs af hjálp- semi hans, en hann sá um múrverk við íbúð okkar í Eyjum og síðar við hús okkar á Þórshöfn. Ekki var ná- kvæmt bókhaldið við vinnustund- irnar hans og ekki hagnaðist hann á þessari vinnu. Hugarfar Jóns var á þá leið að innan fjölskyldunnar væri skylt að rétta hjálparhönd án þess að spyrja um laun. Þannig hugsandi fólki fækkar stöðugt í okkar þjóð- félagi og er það miður. Með Jóni er genginn góður drengur með ríka réttlætistilfinn- ingu og viðkvæma lund, pólitískur á köflum og fór ekki leynt með krataástina. Á vinafundum var hann hrókur alls fagnaðar og þótti ekki mikið til mannfunda koma væri ekki lagið tekið og það hressi- lega. Hafði hann mjög gaman af söng enda alinn upp á heimili þar sem tónlist var í hávegum höfð og Stefán faðir hans var sjálfmennt- aður tónlistarmaður og var um ára- bil organisti og þjálfaði einnig kóra og söngkvartetta. Eftir eldgosið í Eyjum fluttu Jón og Ásta til Akureyrar og bjuggu þar lengst af síðan. Auk þess að vinna við múrverk stundaði Jón sjómennsku á skipum Samherja og var um árabil á aflahæstu skipum Íslandsmiða. Átti sjómennska vel við hann og hefur kannski hentað honum betur heilsufarslega en múrverkið sem er ákaflega slítandi vinna. Síðustu árin átti Jón við van- heilsu að stríða og naut þá umönn- unar Ástu sem alltaf hefur staðið eins og klettur úr hafinu við hlið hans. Ástu, Höllu, Ragnheiði, Stefáni, Sonju, Jónu Brynju og fjölskyldum þeirra votta ég samúð mína. Far þú í friði vinur, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Ágúst Marinósson. prófessor við lyflækningadeild Landsspítalans. Eftir að ég lauk framhaldsnámi gerðist ég læknir á deild hans og kynntist honum vel. Sem prófessor gróf hann sig ekki ein- göngu ofaní fræðslurit um kennslu- efnið, þó hann væri áhugasamur um nýjungar og rækti sín störf mjög vel sem kennari. Ég rak mig fljótlega á að hann var vakandi og áhugasamur um áhrif og tengsl samfélagsþróunar við orsakir og gang sjúkdóma. Ár- vekni og framsýni hans varð til þess að Hjartavernd var stofnuð. Hann var frumkvöðull í baráttu við krans- æðasjúkdómafaraldurinn er lagði að velli miðaldra fólk í fullu starfi. Langa sögu má stytta. Á hálfri öld hefur dánartíðni 35-75 ára karla og kvenna vegna kransæðissjúkdóma fallið um helming og má fullyrða að starf Hjartaverndar hafi stuðlað að þeim góðu breytingum. Spor Sigurð- ar verða ekki afmáð. Innilegar kveðjur til ekkju hans og barna. Inga Ólafsson og Ólafur Ólafsson fyrrverandi landlæknir. Sigurður Samúelsson var kjark- mikill baráttumaður hugsjóna sinna. Hann var í forystuhlutverki þeirra manna, bæði lækna og leikmanna, sem stóðu að stofnun Hjartaverndar 1964 en markmið samtakanna eins og Sigurður lýsti þeim á stofnfundinum var: 1) „Fræðsla og upplýsingastarf- semi um hjarta- og æðasjúkdóma“, 2) „Rannsóknir á almenningi eða hinu svokallaða hrausta fólki“, 3) „Eftirlit með hjartasjúkdómum og byggingu hælis eða endurhæfingarstöðvar fyr- ir þá“, 4) „Í fyrsta lagi að stuðla að því að komist á öruggari nákvæmari greining hjartasjúkdóma hér á landi með aukinni menntun lækna á þessu sviði og bættum útbúnaði og vinnu- skilyrðum á sjúkrahúsum“. Sigurður var formaður samtakanna frá stofn- un þeirra og allt til ársins 1992 þegar hann lét af störfum 81 árs gamall, og nú þegar hann er allur hafa öll þessi markmið náðst og árangurinn er sá að nú deyja nærfellt helmingi færri úr hjarta- og æðasjúkdómum miðað við íbúafjölda en gerðu við stofnun Hjartaverndar. Þrem árum eftir stofnun samtak- anna hófst svo Hóprannsókn Hjarta- verndar (Reykjavíkurrannsóknin svokallaða) sem staðið hefur í meira en 30 ár en núverandi öldrunarrann- sókn er framhald þeirrar rannsókn- ar. Rannsakaðir hafa verið yfir 30 þúsund Íslendingar og er þetta stærsta faraldsfræðilega rannsókn sem gerð hefur verið á Íslandi og hef- ur vakið heimsathygli, ekki bara vegna umfangs og lengdar þessarar rannsóknar heldur fyrst og fremst vegna gæða og áreiðanleika. Fram- hald þessarar rannsóknar er enn í gangi og margvísleg verkefni hennar eru nú unnin í samvinnu við Heil- brigðisstofnun Bandaríkjanna (NIH). Ég minnist þess fyrir allnokkrum árum þegar rætt var um hvernig unnið skyldi úr rannsóknargögnum þeim sem voru í vörslu Hjartavernd- ar að Snorri Páll Snorrason læknir sem lengi var í forystusveit samtak- anna benti á að gögn þessi hefðu ekki aðeins ómetanlegt vísindalegt gildi heldur væru hér mikil peningaleg verðmæti. Þetta hefur reynst vera rétt og satt og starfsemin í dag er að stórum hluta fjármögnuð í formi margvíslegra erlendra styrkja og greiðslna. Þetta hefur gert Hjarta- vernd kleift að reka vísindastofnun á heimsmælikvarða sem veitir ungu fólki störf við vísindarannsóknir í samvinnu við virtar alþjóðlegar rann- sóknastofnanir. Það hefur því sýnt sig að draumur þeirra manna sem stóðu að stofnun Hjartaverndar hefur ekki aðeins ræst heldur lagt undirstöðu að út- flutningi þekkingar og vísinda byggða á íslenskum grunni. Fyrir það ber að þakka og ekki síst prófess- or Sigurði sem svo lengi var í forystu- hlutverki. Magnús Karl Pétursson. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.