Morgunblaðið - 16.02.2009, Side 21
Það eru margar dýrmætar minn-
ingar sem koma upp í hugann þegar
maður horfir yfir farinn veg á
kveðjustund. Ferðirnar í Munaðar-
nes með ömmu og afa. Bíltúrarnir á
sunnudögum með ömmu og afa. Að
taka upp kartöflur með ömmu og
afa. Kókópuffs í morgunmat. Hrær-
ingur í eftirmat – og hlusta á frétt-
irnar um leið. Að þvo bílinn með afa
í sólinni. Að liggja í laut við hliðina á
honum og finna stráin kitla andlitið,
með lokuð augu að tala um heims-
mál. Að borða ís aftur í brúna saab-
inum. Að finnast maður vera aðeins
nær einhverju almætti uppi á þaki á
Tollarahúsinu. Eða kannski var það
bara nærvera afa. Það er ekki hægt
að komast hjá því að bros læðist
fram á varirnar þegar maður leiðir
hugann að þessum stundum.
Afi talaði alltaf við mann eins og
fullorðinn einstakling. Hann var
vandvirkur og virðulegur, hreyfing-
arnar nákvæmar og nærgætnar. Afi
gat opnað jólagjafirnar án þess að á
pappírnum sæist. Á seinni árum tók
hann upp á því að sjá um uppvaskið,
af sinni einstöku natni. Hann var
alltaf góðlegur og oftast glettinn.
Hann talaði rólega og var alltaf
kurteis til seinasta dags, brosmildur
og blíður. Innan um afa var erfitt
annað en að bera virðingu fyrir
sjálfum sér líka.
Afa var alla tíð annt um börn og
umhugað um að þeim liði vel. Hann
lét ömmu um mest af því praktíska,
en augu hans hvikuðu aldrei langt.
Það var iðulega hann sem tók fyrst-
ur eftir því ef kláraðist úr glasi eða
hætta var á að barn dytti. Hann hélt
sig til hlés en nærveran var sterk og
hlý. Umhyggja hans og einlæg gleði
þegar börn voru nærri réð enn ríkj-
um þegar langafabörnin komu í
heimsókn í Sóltún. Þá sat afi bros-
andi og leit ekki af þeim eitt augna-
blik meðan þau skottuðust um og
þáðu súkkulaði. Og allir sem hafa
verið börn í Bogahlíð vita að hjá
engum var betra að vera.
Samvera ömmu og afa einkennd-
ist alla tíð af virðingu, vináttu og
kærleika. Og fyrir okkur, sem erum
þeirra, hefur sú einlæga ást, sem
enn var sýnileg í hversdagslegum
eldhúskossum, kveðjustrokum og
spjalli yfir tebollum, verið innblást-
ur. Það er erfitt að kveðja góðan afa.
Og það er erfitt að horfa á góða
ömmu kveðja lífsförunaut. En minn-
ingin lifir og við heiðrum hana með
því að vera kurteis, fylgin okkur og
koma fram við hvert annað af virð-
ingu.
Málfríður og Sigurveig.
Við mágkonur og svilar Jóns
Mýrdal viljum minnast hans með
nokkrum kveðjuorðum að leiðarlok-
um. Vegferð hans var löng, en ill-
skeyttur sjúkdómur gerði erfiðan
síðasta spölinn. Jón Mýrdal var
óvenju traustur samferðamaður.
Hann var maður einstaklega ná-
kvæmur og samviskusamur. Mátti
aldrei vamm sitt vita í neinu. Fastur
fyrir. Vann öll störf, sem honum var
treyst fyrir, af einstakri trú-
mennsku, hvort heldur það var á
vinnustað eða í félagsstarfi.
Hann var af sjósóknurum kominn
og hlaut að gjalda Ægi konungi hinn
dýra toll. Faðir hans var togaraskip-
stjóri og fórst á besta aldri með
skipi sínu. Fráfall hans lagði þungar
byrgðar á herðar ungum manni, en
hann reis undir þeim og brást ekki.
Þrátt fyrir þessi ógnvænlegu kynni
af hættum hafsins nam hann loft-
skeytafræði og gerðist um tíma loft-
skeytamaður á togurum. Eftir að
sjómennsku sleppti vann hann tíma-
bundið sem loftskeytamaður hjá
Veðurstofunni. Lengst starfaði
hann þó hjá Tollstjóraembættinu í
Reykjavík og naut þar einstaks
traust og virðingar, jafnt samstarfs-
manna, yfirmanna og viðskiptavina
vegna traustrar þekkingar sinnar,
nákvæmni, samviskusemi og sam-
starfsvilja.
Hann var félagslyndur og tók þátt
í ýmsum félögum, þar á meðal
Skátahreyfingunni, Kiwanishreyf-
ingunni og Hjartaheill. Honum voru
falin þar ýmis trúnaðarstörf og
hófst jafnvel til æðstu metorða,
þrátt fyrir meðfædda hógværð og
lítillæti. Jón Mýrdal var ákaflega
hlýr maður og góðviljaður, en frem-
ur hlédrægur. Hann naut þess að
ferðast um og skoða landið eins og
gömlum og góðum skáta sæmir.
Um leið og við þökkum þér allar
góðu samverustundirnar og sam-
fylgdina kveðjum við þig með sárum
söknuði og felum þig algóðum Guði
á vald og biðjum hann að vernda og
blessa ástvini þína.
Gerða og Árni,
Auður og Jóhannes,
Gíslína og Henry.
Nú þegar æskuvinur minn er far-
inn heim, eins og við skátar segjum,
er margs að minnast og margt kem-
ur upp í hugann af minnisverðum
samverustundum um langt árabil.
Við Jón gengum um svipað leyti í
Skátafélagið Væringja eða árið 1936
og störfuðum þar áratugum saman.
Við vorum fyrst í 2. deild Væringja
undir stjórn Björns Jónssonar, síð-
ar flugstjóra. Ég minnist fyrstu úti-
legunnar í Lækjarbotnsskálanum
þar sem við æfðum skátastörf bæði
úti og inni. Síðan leið tíminn og við
Jón tókum að okkur forystustörf í
skátaflokknum. Við stofnuðum for-
ingjaflokk sem fékk nafnið Nætur-
galar. Flokkurinn starfaði í meira
en 70 ár. Við fórum í útilegur (ferða-
lög) á hverju hausti, fórum saman í
leikhús og á eftir til skiptis hver
heim til annars.
Eiginkonur okkar voru alltaf með
í starfi Næturgalanna. Það sem ein-
kenndi þennan hóp var einlæg vin-
átta og samskipti í anda skátalag-
anna sem þessi Næturgalahópur
lifði lífi sínu eftir. En lífið hefur sinn
gang og nú erum við frændur, Gísli
á Grund og ég, einir eftir. Með
þakklæti í huga kveð ég minn kæra
vin um leið og ég færi Sigurveigu,
konu Jóns, börnum og fjölskyldu
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Páll Gíslason.
Með Jóni Mýrdal aðaldeildar-
stjóra er genginn maður sem segja
má að hafi verið nestor íslenskra
tollvarða. Hann var einstakur mað-
ur, viðfelldinn, traustur, virtur for-
ingi fyrir sínu liði hjá Tollstjóra-
embættinu og óumdeildur
yfirburðamaður á sínu sviði toll-
fræðanna. Skyldurækinn var hann
með afbrigðum, samviskusamur og
ósérhlífinn. Jón Mýrdal var fylginn
sér, ef honum bauð svo við að horfa,
og kunni að feta þann vandrataða
veg að beita valdinu, sem starfa
hans fylgdi, af bæði hófstilltri festu
og réttsýni. Um hann má segja, líkt
og segir um Njál í bókinni sem við
hann er kennd: Hann var vitur mað-
ur, heilráður og góðgjarn, hógvær
og drenglyndur og leysti hvers
manns vandræði er á hans fund
kom.
Jón Mýrdal var trúr sínu starfi og
trúr sjálfum sér. Öll hin vandasömu
störf sem honum voru falin leysti
hann af hendi þannig að ekki verður
betur gert. Hann skilaði óvenju far-
sælu starfi fyrir Tollinn og fyrir
samfélagið og lagði drjúga hönd á
plóginn í félags- og kjaramálum toll-
varða. Það var mitt lán að fá að
starfa náið með honum síðustu árin
hans í Tollinum. Hann var frábær
vinnufélagi og ég á ekkert nema
góðar minningar um samstarf okkar
og um öll okkar samskipti. Mér
fannst meira til hans koma en
flestra annarra manna sem ég hef
kynnst. Að leiðarlokum kveð ég
þennan mæta mann með djúpri
virðingu og þakklæti fyrir allt og
allt. Hann hvíli í friði.
Eftirlifandi eiginkonu Jóns Mýr-
dals og öðrum aðstandendum votta
ég innilega samúð.
Hermann Guðmundsson.
Eitt sinn skáti ávallt skáti. Þessi
orð koma upp þegar sest er niður og
Jóns Mýrdal er minnst, hann er far-
inn heim eins og við skátar segjum.
Hann gerðist skáti ungur, varð
flokksforingi, sveitarforingi og
deildarforingi. Hann var virkur
þátttakandi í því að halda skátahug-
sjóninni á lofti með því að vera ávallt
viðbúinn að vinna fyrir og með ung-
um skátum.
Á áttunda áratug síðustu aldar
man undirrituð hann sem aðstoðar-
skátahöfingja í stjórn Bandalags ís-
lenskra skáta. Mér sem ungum for-
ingja á þeim tíma kom hann fyrir
sjónir sem hægur og prúður maður,
virðulegur sem sýndi mikla yfirveg-
un og talaði ekki á fundum nema
þegar þess þurfti. Þá lagði unga
fólkið við hlustir. Hann var vinnu-
samur og nákvæmur, traustur liðs-
maður sem ávallt var tilbúinn að
styðja við skátastarfið þegar þurfti
á að halda. Í seinni tíð voru hann og
eiginkona hans áhugasöm að fylgj-
ast með því sem ungir skátar voru
að gera, og voru dugleg að heim-
sækja skátamót og ýmsa viðburði.
Þú ert skáti horfinn heim,
himinn, jörð, ber sorgarkeim.
Vinar saknar vinafjöld,
varðar þökkin ævikvöld.
Sérhver hefur minning mál,
við munum tjöld og varðeldsbál,
bjartan hug og brosin þín,
þau bera ljósið inn til mín.
Kveðjustundin helg og hlý,
hugum okkar ríkir í.
Skátaminning, skátaspor,
skilja eftir sól og vor.
(H.Z.)
Um leið og skátahreyfingin minn-
ist góðs foringja og þakkar áratuga
hollustu sendum við eiginkonu og
fjölskyldu hans allri samúðarkveðj-
ur við fráfall hans.
Með skátakveðju,
Margrét Tómasdóttir,
skátahöfðingi.
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Fundarboð
Boðað er til fundar í Fulltrúaráði Samfylking-
arinnar í Reykjavík mánudaginn 16. febrúar
kl. 20.30. Fundarstaður er Grand Hótel.
Dagskrá fundarins:
1. Ákvörðun um prófkjör í Reykjavík
2. Kosningabaráttan framundan
3. Önnur mál
Stjórn Fulltrúaráðs
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Félagslíf
MÍMIR 6009021619 III°
HEKLA 6009021619 IV/V H&V
GIMLI 6009021619 I
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is, www.theta.is
Húsnæði í boði
Íbúð til leigu!
Falleg 70 fm íbúð til leigu á Njálsgötu
nær Klapparstíg. Verðhugm. 120.000,
innifalið rafm., hiti, hússj. Uppl.
dyrfjord@hotmail.com eða sími
694-9333. Laus eftir samkomulagi.
Atvinnuhúsnæði
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu er atvinnu- og skrifstofuhús-
næði á tveimur hæðum, samtals 257
fm á Fiskislóð. Rými á neðri hæð er
132 fm, í salnum er 42 m³ kælir
(frystir), húsnæðið uppfyllir kröfur
heilbrigðiseftirlits um matvæla-
vinnslu, stórar innkeyrsludyr, góð
aðkoma, gott plan og leyfi fyrir
gámastöðu. Á efri hæð 125 fm, er
8 m³ frystiklefi og annar 7 m³, einnig
er á efri hæð loftræstiháfur fyrir stór
eldhús (matvælaframleiðslu) ásamt
skrifstofuaðstöðu.
Frekari uppl. í síma 866 1844.
Sumarhús
Örfá gestahús 20 m²
til sölu á gamla genginu.
Verð kr. 790.000.
Spónasalan ehf.
Smiðjuvegi 40, gul gata,
s. 567 5550.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Iðnaðarmenn
Rafvirkjar
Rafverktaki getur bætt við sig
verkefnum. Nýlagnir, viðgerðir og
breytingar. Sími 893 5214.
Námskeið
Frábært, rafrænt námskeið í
netviðskiptum. Notaðu áhugamál
þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að
skapa þér góðar og vaxandi tekjur á
netinu. Við kennum þér hvernig!
Skoðaðu málið á
http://www.menntun.com
Þjónusta
Plexiform og bólstrun 555 3344.
Framleiðsla á stöndum fyrir blöð,
nafnspjöld o.fl. Fartölvustandar,
póstkassar, húsnúmer og skilti
Bólstrun og viðgerðir á sætum í
faratækjum sjá plexiform.is
Fyrir fyrirtæki, heimili
og stofnanir
Gerðu heimilið
og vinnustaðinn
öruggari.
Sterkar sérsmíðað-
ar gluggagrindur
varna innbrotum.
Gerum tilboð í smíði
og uppsetningu.
Vélsmiðja Heiðars ehf.
S. 554 2570/895 5584.
INNBROTSVÖRN
Ýmislegt
People wanted for photography
project. Must be available at week-
ends. Aged 21-100, all people wel-
come. tony@icelandaurora.com
Salur
fyrir fermingarveislu
Okkur bráðvantar sal fyrir
fermingarveislu sem verður
sunnudaginn 5. apríl,
Pálmasunnudag frá kl. 16.
Salurinn verður að rúma 60 +.
Uppl. í síma 865 0952 eða
848 6547.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla .
8921451/5574975.Visa/Euro.
Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Þarftu að breyta eða bæta heima
hjá þér?
Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni?
Við erum til í að aðstoða þig við alls-
konar breytingar. Við erum til í að
brjóta niður veggi og byggja upp nýja,
breyta lögnum, flísaleggja eða
parketleggja og fl. Bjóðum mikla
reynslu og góð vinnubrögð.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Einkamál
Stefnumót.is
Stefnumót.is er vandaður og
siðprúður vefur fyrir fólk sem leitar
nýrra kynna með félagsskap, vinskap
eða varanleg kynni í huga.
Vertu ævinlega velkomin/n.