Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 27
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ varð ljóst á laugardagskvöldið
að lagið „Is it true“ eftir Óskar Pál
Sveinsson í flutningi Jóhönnu Guð-
rúnar Jónsdóttur yrði framlag Ís-
lands í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í Rússlandi í maí.
Jóhanna Guðrún sagðist ekki hafa
búist við sigri þegar blaðamaður sló
á þráðinn til hennar í gær.
„Ég reyndi að halda mér á jörð-
inni. Ég er mikil keppnismanneskja
og ef ég tapa þegar ég er búin að
ákveða að vinna verð ég rosalega fúl.
Þannig að ég hugsaði með mér að
þetta yrði frábært hvernig sem færi.
Auðvitað vonaði maður innst inni að
vinna en þorði ekki að búast við því,“
segir Jóhanna sem var ekki að fagna
sigrinum langt fram eftir nóttu. „Ég
er ekki mikill djammari í mér en ég
kíkti nú í Eurovision-partí Páls Ósk-
ar á Nasa og tók lagið einu sinni þar.
Svo fór ég bara heim.“
Jóhanna er á því að tilgerðarleysi
„Is it true“ hafi ráðið miklu um að
það vann. „Þetta lag er alvöru, ein-
lægt og fallegt. Ég held að á þessum
tímum vilji fólkið í þjóðfélaginu bara
eitthvað svoleiðis, en svo veit maður
aldrei hvað aðrir hugsa.“
Engir skautadansarar
Tæpir þrír mánuðir eru í loka-
keppnina í Moskvu og segir Jóhanna
að þau sem að laginu koma fari fljót-
lega að skipuleggja lokaorrustuna.
Hún gerir þó ekki ráð fyrir að mikl-
ar breytingar verði á laginu, það
bjóði ekki upp á það. „Lagið verður
samt örugglega fínpússað eitthvað
en atriðið verður líklega látið halda
sér nokkuð svipað,“ segir Jóhanna
sem sér ekki fyrir sér að hún verði
með dramatíska skautadansara með
sér á sviðinu.
Kjólarnir, svartur og hvítur, sem
Jóhanna klæddist í undankeppninni
og úrslitunum voru báðir gerðir af
Selmu Ragnarsdóttur kjólameist-
ara. Hún segir að þær ætli að halda
áfram að vinna saman og gera einn
geggjaðan kjól fyrir lokakeppnina.
Úrslitakeppni Eurovision fer fram
í Moskvu í Rússlandi 12., 14. og 16.
maí. 43 lönd taka þátt og keppa 38
þeirra í tveimur undankeppnum sem
fara fram 12. og 14. maí. Ísland verð-
ur í fyrri undankeppninni. Tíu lönd
komast svo áfram úr hvorri und-
ankeppni í úrslitin.
Jóhanna hefur ekki komið til
Rússlands áður og kveðst spennt
fyrir þeirri ferð.
Tilgerðarlaust lag
Bleikur Páll Óskar klikkaði ekki á stuðinu á Nasa síðar um kvöldið og dansaði fólk fram að morgunmjaltatíma.
Morgunblaðið/Eggert
Sæl og glöð Jóhanna Guðrún með
fjölskyldunni að lokinni keppni.
Annað sæti Ingó og félagar bíða
eftir úrslitunum á sviðinu.
Rokk Elektra með Hara-systrum í
farabroddi kom fram á Nasa.
Sigurvegari Jóhanna Guðrún
flutti lagið aftur eftir að hún var
krýndur sigurvegari.
Stanslaust stuð Páll Óskar hélt uppi stuðinu í græna herberginu.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI
UNDIRBÚÐU ÞIG UNDIR SVEFNLAUSAR NÆTUR
ÞVÍ HANN HLÍFIR ENGUM.
ATH. ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
HRIKALEGASTI FJÖLDAMORÐINGI SÖGUNNAR
ER KOMINN AFTUR!
MAÐURINN MEÐ HOKKÍ GRÍMUNA – JASON!
SÝND MEÐ Í
SLENSKU
OG ENSKU
TALI
HANN ELSKAR ATHYGLI
HANN ER VINSÆLL MEÐAL KVENNA
NÝJASTA FJÖLSKYLDUGRÍNMYND
WALT DISNEY SEM VAR TVÆR VIKUR
Á TOPPNUM Í USA
SAMbio.is
Reykjavík • Akureyri • Keflavík • Selfoss
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
13
M.A.
BESTA MYND
BESTI LEIKSTJÓRI -
D. FINCHER
BESTI LEIKARI -
BRAD PITT
BESTA HANDRIT
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA,
NEWYORK POST
WALL STREET JOURNAL
100/100
PREMIERE
TIME
100/100
“...HEILLANDI OG MINNIS-
STÆÐ. BENJAMIN BUTTON
ER MYND SEM ÞÚ MÁTT
EKKI MISSA AF!”
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
„SAGAN ER ÓTRÚLEGA
SKEMMTILEG, HARMRÆN
OG FALLEG Í SENN.“
„...HELDUR MANNI SÍFELLT
SPENNTUM MEÐ FRÁBÆRRI
SÖGU OG MIKILLI
SKÖPUNARGLEÐI...“
- S.V. ,MBL.
- L.I.B.,TOPP5.IS
BEVERLY HILLS ... kl. 6 LEYFÐ
FRIDAY THE 13TH kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
ROLE MODELS kl. 6 B.i. 12 ára
BENJAMIN BUTTON kl. 8 B.i. 12 ára
BEVERLY HILLS ... kl. 8 m/ísl. tali LEYFÐ
VILTU VINNA ... kl. 10 B.i. 12 ára
DOUBT kl. 8 LEYFÐ
UNDERWORLD 3 kl. 10:10 B.i. 16 ára
BEVERLY HILLS kl. 8 ísl. tal LEYFÐ
TAKEN kl. 10:10 B.i. 16 ára
SEVEN POUNDS kl. 8 LEYFÐ
UNDERWORLD 3 kl. 10:30 B.i. 16 ára
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI SELFOSSIKEFLAVÍK
FRIDAY THE 13TH kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 16 ára
BEVERLY HILLS ... kl. 6D m/ísl. tali LEYFÐ DIGITAL
BENJAMIN BUTTON kl. 8D - 10:10D B.i. 12 ára
MY BLOODY ... kl. 83D - 11:103D B.i. 7 ára 3D-DIGITAL
BOLT m/ísl. tali kl. 63D LEYFÐ 3D-DIGITAL
FRIDAY THE 13TH kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
BEVERLY HILLS ... kl. 5:50 m/ísl. tali
BEVERLY HILLS ... kl. 10:20 enskt tal/ekki ísl texti LEYFÐ
BENJAMIN BUTTON kl. 6D- 9:10D B.i. 16 ára D
BENJAMIN BUTTON kl. 6 - 9:10 LEYFÐ VIP
DOUBT kl. 8 LEYFÐ
HOTEL FOR DOGS kl. 5:50 LEYFÐ
ROLE MODELS kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
BEDTIME ... kl. 5:50 LEYFÐ
ROCKNROLLA kl. 10:20 B.i. 16 ára
YES MAN kl. 8 B.i. 7 ára
„IT‘S KILLER FUNNY“
- ROLLING STONE
„FARÐU Á ROLE MODELS
EF ÞÚ VILT HLÆJA“
- USATODAY
„ROLE MODELS HRISTIRAF
SÉR SKAMMDEGIÐ Í JANÚAR
OG SETUR ÖLL VIÐMIÐ SEM
GRÍNMYNDIN ÁRIÐ 2009 OG
FÆR FÓLK TILAÐ HLÆJA
UPPHÁTT“.
- EMPIRE – IAN FREER
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRIAKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
SÝND Í KRINGLUNNIKRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
SÝND Í ÁLFABAKKA
5ROLLING STONECHICAGO SUN-TIMES TIMES.V. MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!
SÝND Í ÁLFABAKKA
EKKI MISSA
AF ÞESSARI! SÝND Í ÁLFABAKKA
EKKI MISSA
AF ÞESSARI! SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND MEÐ Í
SLENSKU
OG ENSKU
TALI
L.I.B. – FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA
Það er ljóst að „Is it true“ er
ótvíræður sigurvegari Söngva-
keppni Sjónvarpsins 2009 með
rúmlega átta þúsund fleiri at-
kvæði en lagið sem lenti í öðru
sæti, eða 19.076 atkvæði sam-
tals.
Samtals voru greidd 69.009
atkvæði í símakosningunni.
Fjögur efstu lögin fengu sam-
tals um 50.000 þeirra atkvæða,
restin, 19.330 atkvæði, skiptist
svo á milli hinna laganna fjög-
urra. Það kostaði 99,90 kr. að
kjósa í gegnum símann og mið-
að við atkvæðamagn má sjá að
landsmenn eyddu í heildina um
sjö milljónum í að reyna að
koma sínu uppáhaldslagi til
Moskvu í maí.
Fjögur efstu lögin:
1. sæti: Is it true
Höfundur: Óskar Páll Sveinsson
Flytjandi: Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir
Atkvæðafjöldi: 19.076
2. sæti: Undir regnbogann
Höfundur: Hallgrímur
Óskarsson
Flytjandi: Ingó
Atkvæðafjöldi: 10.696
3. sæti: Got no love
Höfundur: Örlygur Smári
Flytjandi: Elektra
Atkvæðafjöldi: 10.214
4. sæti: I think the world of you
Höfundur: Hallgrímur
Óskarsson
Flytjandi: Jógvan Hansen
Atkvæðafjöldi: 9.693
Hin lögin fjögur voru
í stafrófsröð:
„Easy to Fool“ eftir Torfa
Ólafsson í flutningi Arnars,
Edgars, Sverris og Ólafs.
„Lygin ein“ eftir Albert G.
Jónsson í flutningi Kaju
Halldórsdóttur
„The Kiss We Never Kissed“
eftir Heimi Sindrason í
flutningi Edgars Smára.
„Vornótt“ eftir Erlu Gígju
Þorvaldsdóttur í flutningi Hrein-
dísar Ylvu Garðarsdóttur Holm.
69 þúsund
atkvæði greidd