Morgunblaðið - 16.02.2009, Page 32

Morgunblaðið - 16.02.2009, Page 32
MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 47. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Áherslan á ódýrari lyf  Heilbrigðisráðuneytið gerir ráð fyrir að ná fram eins milljarðs króna sparnaði með breytingum á lyfja- útgjöldum sjúkratrygginga. »4 Veðlánin öll  Tilgangslítið er að ganga frá greiðsluaðlögun sem ekki tekur öll veðlán með, segir Árni Páll Árnason alþingismaður. En frumvarp ríkis- stjórnarinnar um greiðsluaðlögun hefur verið sent allsherjarnefnd Al- þingis. »2 Staða formannsins  Skiptar skoðanir eru um þau um- mæli Jóns Baldvins Hannibalssonar að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eigi að víkja sem formaður Samfylking- arinnar. »6 Engir nýir bílar keyptir  Alkul er í bílasölu, meira en 90% samdráttur er milli ára í sölu nýrra fólksbíla eftir bankahrunið. »11 Hunsaði viðvaranir  Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, á nú mjög í vök að verjast. Er hann sagður hafa hunsað viðvaranir vegna bankanna, en hann var fjár- málaráðherra í áratug. »12 SKOÐANIR» Frjálshyggja í blindgötu Veiðiráðgjöf Samfylkingarinnar Aukin menntun er svarið … Á svig við sannleikann UMRÆÐAN» Staksteinar: Bónusar og bankamenn Forystugreinar: Aðþrengdir í Afg- anistan | Lægri lyfjakostnaður Pistill: Það á allt að gerast Ljósvakinn: Í fótspor Barbí Heitast 8 °C | Kaldast 2°C Suðlæg átt, víða 5-10 m/s og rigning, eink- um s- og v-lands. Snýst í suðvestan 10-15 síð- degis. »10 Sýning JBK Ransu í Turpentine spyr áleitinna tilvist- arspurninga um ein- staklinginn og listina. »25 MYNDLIST» Tilvistar- spurningar FLUGAN» Það var flogið víða um helgina. »26 Midnight Club: Los Angeles setur ný viðmið í kappakst- ursleikjum og fær glimrandi dóma á leikjasíðum. »29 TÖLVULEIKIR» Góður Mid- night Club FÓLK» Stormasamt hjá Lohan og Ronson. »28 KVIKMYNDIR» Frost/Nixon er rúmlega þriggja stjarna. »31 Menning VEÐUR» 1. Aldrei of blönk til að hugsa 2. Hver er pabbinn? 3. Lagið Is it true til Moskvu 4. Bál kveikt á Lækjartorgi »MEST LESIÐ Á mbl.is FRANSKA út- gáfan af bók El- ínar Pálmadóttur Fransí biskví, Frönsku Ís- landssjómenn- irnir er tilnefnd til hinna virtu bókaverðlauna L’Academie de la marine í Frakklandi. Verðlaunin eru veitt nýútkomnum bókum er varða hafið. „Ég geri mér ekki neinar vonir en er ákaflega stolt yfir að vera valin í svo virðulegan bókmenntaflokk í Frakklandi,“ segir Elín. | 24 Tilnefnd í Frakklandi Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur sigrunerna@mbl.is EFNAHAGSMÁLIN eru þema borgarafundar ung- menna sem haldinn verður í dag. Ungt fólk hefur mik- inn áhuga á þjóðmálunum og fylgist vel með þjóð- félagsástandinu en umræðuvettvang hefur skort. Lítið tillit tekið til ungmenna ,,Ungt fólk finnur fyrir mikilli gremju yfir að skilja ekki hvað er í gangi og hvernig þetta gat gerst,“ segir Hildur Inga Sverrisdóttir, 17 ára, sem situr í Reykja- víkurráði en hún er ein þeirra sem standa að fundinum. Verið sé að taka ákvarðanir er varða framtíð þeirra en ungt fólk fái þó lítið að vita. ,,Stjórnvöld þurfa að átta sig á að það erum við sem sitjum í súpunni ef það verða teknar rangar ákvarðanir,“ segir Hildur. „Við viljum því fá að taka þátt í umræðunni.“ Hún segir umfjöllun um kreppuna fyrst og fremst beinast að kjósendum en lítið sé talað beint til unga fólksins. Spurningar þess séu oft ekki hinar sömu og hjá þeim eldri. Það sé líka vandamál að fréttaflutn- ingur sé oft í æsifréttastíl og sumir af yngri kynslóðinni taki hlutunum bókstaflega. ,,Við höfum til dæmis heyrt af krökkum sem hafa áhyggjur af því að matur sé að klárast í landinu vegna frétta af hamstri,“ segir Hildur. Mikil óvissa um sumarvinnu Umræða um kreppuna er mikil meðal ungs fólks sem hefur miklar áhyggjur. Allt er að hækka og litla sem enga vinnu að fá. Þúsundir sjá fram á að fá enga sum- arvinnu. ,,Þetta tekur mikið á andlega hjá sumum og það er oft erfitt að ráða fram úr hlutunum. Á mörgum heim- ilum ríkir hræðsla því annað foreldrið eða jafnvel bæði hafa misst vinnuna og foreldrarnir eru kannski ekki í standi til að setjast niður og ræða málin. Það er því nauðsynlegt að aðrir aðilar komi inn,“ segir Hildur. Eftir fundinn verða helstu spurningar gesta teknar saman og athugað hvort þörf er á fleiri fundum. Þungar áhyggjur  Ungmenni hafa miklar áhyggjur af efnahagsástandinu  Umræðuvettvang skortir  Lítið talað til unga fólksins Morgunblaðið/Árni Sæberg Umræða Snorri Rafn Hallsson, Hildur Inga Sveinsdóttir, Kjartan Orri Þórsson og Freyja Dís Karlsdóttir. Ungmenni halda borgarafund AURATELJARI fór ásamt fjöl- skyldunni í Háskólabíó í vikunni. Myndin sem varð fyrir valinu var verðlaunamyndin The Reader sem Græna ljósið kynnir og því var ekki laust við að tilhlökkunin væri ívið meiri en gengur og gerist. Eftir að hafa keypt hefðbundið bíósnakk fyrir nokkur þúsund krónur settist fjölskyldan niður í sal 1 og beið átekta. Myndin hófst að loknu löngu auglýsingafargi en þá birtist nokkuð sem bíógestir bjuggust ekki við. Yfir breiðtjaldið mitt gaf að líta græna línu sem skar myndflötinn í tvennt. Undirritaður gekk fram í sjoppuna og spurði hvort sýning- arstjórinn ætlaði ekki að ganga í málið. Honum var þá tjáð að á film- unni væri rispa og að svona yrði þetta út alla myndina. Undirritaður átti ekki til orð. Af hverju var hon- um ekki sagt frá þessu í miðasöl- unni þegar hann borgaði 1.100 krónur fyrir miðann? Stúlkan í sjoppunni yppti öxlum. Ekki henn- ar mál. Miðaverðið fékkst endur- greitt en kvöldið var ónýtt sem og allt poppið og kókið sem flattist út í sal 1. Aurateljari mun í framtíðinni hugsa sig tvisvar um áður en hann sækir myndir Græna ljóssins í Há- skólabíói. hoskuldur@mbl.is Auratal SUDDEN Weat- her Change hefur verið sýndur áhugi erlendis. „Við erum að vinna með Storme WG sem hefur haldið utan um tónleikaferðir fyrir Sigur Rós, CSS og Bloc Party,“ segir Benjamin Mark Stacey. Bandið leggur nú lokahönd á frumraun sína er kemur út í byrjun apríl. Í burðarliðnum eru tónleika- ferðir til Evrópu yfir páskana og svo Bandaríkjatúr í september. | 28 Áhugaverðir RAKEL Sjöfn Hjartardóttir var aðeins sex ára þegar hún greindist með svokallaða sóragigt. Núna er hún þrettán ára en fær stundum svo slæm gigtarköst að hún á erfitt með að standa upp úr stól og ganga upp og niður tröppur. Falinn sjúkdómur „Það eru fáir sem vita að börn fá gigt. Þetta er falinn sjúkdómur,“ segir Linda Bragadóttir, móðir Rakelar og formaður Barnahóps innan Gigtarfélags Íslands. Hóp- urinn vill vekja athygli á því að börn greinast líka með gigt og hef- ur því gefið út bækling og dreift í leik- og grunnskóla sem og á heilsugæslustöðvar. „Ég er með verki á hverjum degi þegar köstin koma en mismunandi mikla. Þess á milli er ég stundum með verki en ég er næstum því alltaf stirð,“ segir Rakel. | 13 Morgunblaðið/Golli Hefur glímt við alvarlegan gigtarsjúkdóm frá sex ára aldri Gigt Rakel tekur krabbameinslyf til að draga úr einkennum gigtarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.