Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 1

Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 1
Sérblað um FERÐASUMAR 2009 fylgir Morgunblaðinu í dag GLEÐI 300 akureyrskra leikskólabarna var einlæg í heimsókn á slökkvi- stöð bæjarins í gær en þá lauk árlegu fræðsluátaki um eldvarnir í leik- skólum. Gestirnir skoðuðu ýmis tæki og tól liðsins og fengu m.a. að prófa að sprauta úr alvöru brunaslöngum. Það var mikil upplifun fyrir suma, en vinsælast af öllu var þó að fá að hlaupa undir væna vatnsbunu sem slökkvi- liðið galdraði fram. Og leikskólakennararnir höfðu ekki síður gaman af! Sprett úr spori undir bununni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson F Ö S T U D A G U R 1 5. M A Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 130. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is « LHASA DE SELA TVENNIR TÓNLEIKAR Á NASA Í KVÖLD «PÁLL HAUKUR BJÖRNSSON DREKKUR BJÓR Á LAUNUM Í FENEYJUM Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is GYLFI Magnússon efnahagsráð- herra telur svigrúm til vaxtalækk- ana, þvert á skoðun fulltrúa Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Ögmundur Jón- asson heilbrigðisráðherra veltir því fyrir sér „hvort Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn andi ekki köldu ofan í háls- málið á mönnum“, í Seðlabankanum, sem á að taka sjálfstæða afstöðu til vaxtastigsins. Franek Rozwadowski, sendi- fulltrúi AGS, sagði í gær að aðstæð- ur væru ekki fyrir hendi fyrir frekari lækkun stýrivaxta Seðlabankans umfram þá lækkun sem þegar væri orðin. Þetta fer þvert gegn yfirlýs- ingu Seðlabankans um umtalsverða stýrivaxtalækkun í júní verði ákveðnar forsendur uppfylltar. Gylfi segir að Seðlabankinn og AGS muni eflaust ræða málið sín á milli. „Ég hef sjálfur talið svigrúm til vaxtalækkana í ljósi þess hve verð- bólgan fer hratt niður og reyndar af öðrum ástæðum.“ Hann hafi þó ekki heyrt rök AGS og segir ekkert óeðli- legt að peningastefnunefnd Seðla- bankans hlusti eftir þeim. „En ef hún telur rétt að lækka vexti þá einfald- lega gerir hún það.“ Hann vill þó ekkert spá um hvort líklegt sé að af vaxtalækkun verði í júní. Ekki náðist í fjármálaráðherra í gær en Ögmundur Jónasson heil- brigðisráðherra segir beinlínis þjóð- hættulega stefnu að halda vöxtunum uppi. Hann segist munu taka málið upp á vettvangi ríkisstjórnarinnar. „Við eigum ekkert að sitja undir ein- hverju tilskipunarvaldi ef það er byggt á ranglæti og ranghugsun.“ Hann telji stöðuga ástæðu fyrir end- urskoðun samkomulagsins við AGS. „Og mér finnst þessi hávaxtastefna vera tvímælalaust tilefni til að setja fram spurningar og fá svör.“ Eigum ekki að sitja undir einhverju tilskipunarvaldi Ekki tilefni til frekari vaxtalækkana, telur AGS Heilbrigðisráðherra segir sjóðinn anda köldu Efnahagsráðherra vill ekki spá um vaxtalækkun „NIÐURSTAÐA mín í lok dags er sú að það ber lítið í milli þeirrar samþykktar sem landsfundur Framsóknarflokks- ins samþykkti á sínum tíma og þessarar tillögu eins og hún er fram sett og efnis greinargerðarinnar. Alveg ljóst er hins vegar er að það er stærri vík á milli tillögudraganna og afstöðu Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Össur Skarphéð- insson utanríkisráðherra um fundi með fulltrúum stjórn- arandstöðuflokkanna um drög að þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Össur segir að í greinargerð með tillögunni sé talað um Evrópunefnd og að í samtölum stjórnarliða við stjórnar- andstöðuleiðtogana hafi vel verið tekið í þá hugmynd. „Þingið tekur væntanlega afstöðu til þess með hvaða hætti það samráð verður haft við nefndina.“ | 22 Það er lengra til sjálfstæðismanna Össur Skarphéðinsson  VEIKING á gengi krónunnar er meginskýringin á fimm króna hækkun bensínlítrans og þriggja króna hækkun dísilolíu. Einnig hef- ur hækkun á heimsmarkaðsverði áhrif. Algengt verð á bensíni er nú 162,40 kr. og 164,80 kr. á dísilolíu. Munurinn á milli eldsneytistegunda er minni en lengi hefur verið. Magnús Ásgeirsson, innkaupa- stjóri hjá N1, segir að heimsmark- aðsverð á bensíni hækki gjarnan á þessum árstíma vegna aukinnar eftirspurnar en fleira komi til að þessu sinni. Hann vonast til að verð á mörkuðum lækki upp úr miðju ári. helgi@mbl.is Lækkun á gengi krónunnar hækkar bensínverðið  ALDAMÓTAÞORP sem bera mun andblæ og yfirbragð tímabils- ins 1880-1940 verður byggt í gömlu frystihúsi á Eyrarbakka. Framkvæmdir eru nýlega hafnar og vinnur við þær m.a. fólk sem var á atvinnuleysisskrá. Stefnt er að því að opna fyrri áfanga þorpsins 11. maí næsta vor og síðari áfanga vor- ið 2011. »14 Aldamótaþorp í gömlu frystihúsi á Eyrarbakka Líkan sýnir vel hvernig fortíðin verður endurgerð í gamla frystihúsinu.  ALDREI fyrr hafa jafnmargir ný- ir þingmenn sest á Alþingi og gerist við þingsetningu í dag. „Ekki einu sinni 1845,“ sagði Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, og vísaði þar til fyrstu kosninga til endurreists Alþingis. „Þá komu bara 25 nýir.“ Í dag setjast 27 nýir þingmenn á þing og hafa 20 þeirra aldrei áður setið á Alþingi. Það er óvenjustór hópur. Nýju þingmennirnir vinna drengskaparheit í dag. »8 Aldrei fyrr hafa jafnmargir nýliðar sest á þing og í dag Án hvíts sykurs Án sætuefna Með agavesafa KE A skyrdrykkur – fyrir heilbrig ðan lífsstíl Nýjung með bláberjum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.