Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 ✝ Kári Þórir Kára-son fæddist í Vest- mannaeyjum 9. maí 1924. Hann lést á líkn- ardeild Landspítala í Kópavogi að morgni sunnudagsins 10. maí síðastliðins. For- eldrar hans voru Kári Sigurðsson, útvegs- bóndi og formaður í Vestmannaeyjum, f. í Selshjáleigu í Vestur- Landeyjum 12. júlí 1880, d. 10. ágúst 1925, og kona hans, Þórunn Pálsdóttir, f. í Vesturhúsum í Eyjafjallasveit 12. nóvember 1879, d. 5. mars 1965. Kári Þórir var 16. í röðinni af 17 systkinum. Hinn 4. apríl 1952 kvæntist Kári Þórir Önnu J. Eiríksdóttur ljós- móður frá Dröngum, f. 19. júlí 1924, Svala, f. 1963, maki Pálmi Þ. Ív- arsson, börn Bergþór Smári, f. 1989, Rósanna Dröfn, f. 1993, Vikt- or Jarl, f. 1996, og Helena Eik, f. 1998. Kári lauk sveins- og meist- araprófi í múraraiðn frá Iðnskól- anum í Reykjavík og hélt síðan til Svíþjóðar í tæknifræðinám. Hann var múrarameistari og vann sem slíkur lengst af eða þar til þau hjón- in fluttust til Noregs 1980–1982. Eftir að hann kom heim vann hann hjá Fasteignamati ríkisins. Kári var í múrarameistarafélaginu og einnig var hann virkur skáti, allt til dauða- dags. Hann var líkast til í elsta skátaflokki landsins, Útlögum, er stofnaður var 1942 og er enn starf- andi. Einnig var hann mikill áhuga- maður um bridds, var liðtækur spil- ari og hitti vikulega og spilaði við briddsfélaga sína. Útför Kára verður gerð frá Digraneskirkju í dag, 15. maí, og hefst athöfnin kl. 15. Meira: mbl.is/minningar dóttur hjónanna Ei- ríks Guðmundssonar og Karítasar Ragn- heiðar Pétursdóttur Söbeck. Kári og Anna eignuðust fimm börn: 1) Þórunn Hvasshovd, f. 1951, maki Stein Hvasshovd, sonur Kári Þórir, f. 1971, d. 2002, barnabörn Al- exander Máni, Sig- ursteinn Snær og Aþena Sól. 2) Að- alstein Freyr, f. 1954, sonur Brynjar, f. 1985. 3) Bergþór Njáll, f. 1957, maki Guðríður Jónsdóttir, börn Daníel Pétur, f. 1993 og Linda Rún, f. 1994. 4) Berglind Anna, f. 1958, maki Sigurður H. Árnason, börn Anna Margrét, f. 1985 og Atli Gunnar, f. 1988. 5) Ragnheiður Kær móðurbróðir minn, Kári, hefur nú gengið sitt æviskeið. Minn sterki, trausti og skemmtilegi frændi setur nú ekki framar svip sinn á fjölskyldufundina með gam- ansemi sinni og glaðværð. Kári var mikill uppáhaldsfrændi og traustur hlekkur í fjölskyldutengslunum. Í Njörvasundi 23 bjuggu um árabil Rakel, móðursystir mín, og Þorkell á efri hæðinni og Kári og Anna á neðri hæðinni og svo Þórunn amma í kjallaranum. Fyrir mig sveita- strákinn var þetta eins og ein fjöl- skylda og ég var jafn velkominn til skemmri eða lengri dvalar hjá hvorri fjölskyldunni sem var og nýtti ég þá gestrisni óspart á yngri árum. Þær voru ófáar heimsóknirnar sem Kári og fjölskylda áttu að Borg, æskuheimili mínu og oft bauð hann okkur krökkunum í bíltúr um nágrennið sem var alltaf kærkomin tilbreyting. Oft hringdum við úr sveitinni í Kára og báðum hann að útvega ýmislegt og senda með rút- unni. Hann hafði náttúrlega ekki annan tíma en matartímann til út- réttinga en reyndi að sinna óskum frændfólksins eftir því sem hann gat. Kári gaf okkur heima jólatré sem hann bjó sjálfur til, listavel gert tré, sem við notuðum árum saman og undir þetta tré setti ég jólapakka frá Kára sem bárust trú- fastlega á jólum löngu eftir að flest- ir aðrir ættingjar voru hættir þeim sendingum. Svona gæti ég haldið lengi áfram með gamla tímann en alla tíð gat ég treyst á Kára sem hollvin. Kári var að eðlisfari gætinn mað- ur og því farsæll í störfum en jafn- framt athafnamaður með góða sam- skiptahæfni. Ég var svo heppinn að kynnast múrarameistaranum Kára í starfi, hann var hamhleypa til vinnu og mjög vandvirkur og á að baki langan og farsælan feril sem bygg- ingarverktaki. Þeir lærlingar sem nutu leiðsagnar hans útskrifuðust sem góðir fagmenn. Kári sótti styrk sinn í kristna trú og var kirkjurækinn og mamma hans lagði þann grunn með uppeldi í bæn og kristnum gildum. Amma var í heimili hjá Kára og Önnu sem önnuðust hana af alúð og vil ég færa Önnu minni sérstakar þakkir fyrir umönnun hennar við ömmu en þau Kári innréttuðu fyrir hana litla íbúð í kjallaranum sem hún var stolt af og þar leið henni vel. Kári naut ekki uppeldis föður síns sem dó 1925 og var því amma hans stóri forsjáraðili í uppvextin- um. Í fáum kveðjuorðum verður ekki á allt minnst og vil ég ljúka þeim með stuttri frásögn. Ég spurði ömmu Þórunni eitt sinn að því hvort þeir væru líkir Kári, sonur hennar, og pabbi hans, Kári afi minn. „Nei“, sagði amma, en svo bætti hún við, „þeir eru nú ekki ólíkir í sér“. Síðan hef ég átt auðveldara með að skapa mér mynd af afa, að minnsta kosti hvað mannkosti varðar. Elsku Anna mín, þú hefur verið Kára tryggur förunautur í blíðu og stríðu, hann taldi alltaf sitt mesta lán að finna þig. Við Eygló vottum þér og börnum ykkar Kára innilega samúð og biðjum öllum aðstandend- um Guðs friðar. Ársæll Þórðarson. Kveðja frá Útlögum Enn fækkar í litla hópnum okkar, skátabræðranna frá Vestmannaeyj- um, sem héldu ungir úr heimahög- unum til náms og starfs í höfuð- staðnum í miðju stríðsáranna. Til að hnýta betur vinaböndin var stofn- aður skátaflokkur í Reykjavík 1942 og nefndur Útlagar. Í dag kveðjum við hinstu kveðju einn félagann, Kára Þóri Kárason. Hann kom í hópinn fyrir jólin 1945 og var þar á meðan heilsa og kraft- ar entust, óslitið í 64 ár. Kári var jafnan hrókur alls fagn- aðar, rómsterkur og náði til allra með söng, sögum og skátahrópum. Það fór ekki fram hjá neinum þegar hann kvaddi sér hljóðs. Jafnan ríkti eftirvænting þegar Kári bauð okkur félögunum til fund- ar á heimili sínu eða annars staðar. Hann hafði lag á að koma mönnum á óvart. Í bók flokksins „Útlagar í 60 ár“ má finna fjölmörg dæmi þessa í fundargerðum og frásögn- um. T.d. þetta í nóv. 1952: „Eftir setningu fundar tilkynnti Kári að næsti fundur Útlaga myndi nefnast sviðafundur. Þar með væri tekinn upp ævaforn og góður siður frá þeim tíma, þegar það taldist til íþrótta að kýla jafnt vömb sína sem óvini. Kári var tregur til frekari upplýsingar, en hver maður skyldi leggja með sér hálfan rolluhaus hið minnsta. Og svo var þetta ekki rætt frekar. Og framhaldið má finna á næsta fundi 5. des.: „Hálfsmánaðar dul var rofin er Útlagar settust inn í rútubíl við Skátaheimilið við Snorabraut og settu kúrsinn á Lækjarbotna. Sviða- messan átti að fara fram í skála, sem Gvendur gamli skraddari léði eftir mikla ásókn. Þéttir á velli og þéttir í lund stilltu menn saman strengi sína með hrópum og söng. Og þegar komið var í ríki Gunnars í Von brýndi Kári raustina og söng dúett með sjálfum sér. Þetta geta ekki nema bestu menn, enda steypti stemningin stömpum niður brattar hlíðar Lækjabotna. Framundan reis skáli Gvendar orpinn töfraljóma í tunglskininu, stór og fagur. Foringi sveif nú þúfu af þúfu og hugðist ganga í þessa töfrahöll, en mikið var fall flokksins sonar. Ári minn Kári, hver fjári, lykillinn gekk ekki í skrána. Var nú læðst að húsabaki. Þar var kofaræfill og þar reyndist vera réttur lykill.“ En Kári var ekki einn í heim- inum. Við hlið hans stóð jafnan hans góða eiginkona. Á einum stað í fyrr- nefndri bók er þetta: „Anna hús- freyja bar nú fram hinar myndar- legustu veitingar og er það mála sannast að borð svignuðu undir lost- fögrum kökutegundum, sem báru nöfn upp á frönsku. Útlagar lögðu ótrauðir til orrustu og áður en yfir lauk mátti sjá nær hroðið borðið. Þessu næst var setið enn um stund við mas og kjafthátt. Þegar á leið kvöldið var á borðum bjór og smurt brauð og ropvatn fyrir hina fana- tískustu. Þegar liðið var mjög að miðnætti var haldið á brott.“ Nú hefur Kári lokið vegferð sinni, er genginn fyrir ætternisstapann, „farinn heim“. Við drúpum höfði og minnumst hans með virðingu. Við leiðarlok vil ég fyrir hönd okkar félaga flytja Önnu og fjöl- skyldunni samúðarkveðjur og þakk- ir fyrir liðnar stundir. Minningin um góðan félaga og vin lifir í huga okkar allra. Óskar Þór Sigurðsson. Kári Þórir Kárason Við Halldór Rafnar ólumst báðir upp á Baldursgötunni, en kynntumst ekki fyrr en við settumst haust- ið 1937 saman í fyrsta bekk Menntaskólans, þá í hópi tutt- ugu og sjö þrettán til fjórtán ára unglinga sem hleypt var inn í þá æruverðugu stofnun eftir inntöku- próf það árið. Ég hafði þó fyrir löngu veitt athygli þessum hávaxna dreng með mikið, snarhrokkið, ljóst hár og einkennileg augu, þar sem hann var oftast á göngu eftir Bald- ursgötunni með foreldrum sínum, en sá hann hins vegar sjaldnast taka þátt í ærslaleikjum með öðrum krökkum götunnar. Ég vissi ekki fyrr en síðar að hann hafði átt við mjög skerta sjón að stríða frá fæð- ingu sem ekki hafði tekist að ráða bót á, þótt foreldrar hans leituðu honum lækninga bæði utan lands og innan. Þegar í Menntakólann kom, leið ekki á löngu áður en hann var orð- inn einn af mínum bestu og nánustu félögum, glaðlyndur, vel lesinn og fróðleiksfús. Þótt ekki dyldist að sjónin væri honum fjötur um fót bæði í leik og námi, kom strax fram það æðruleysi, bjartsýni og jákvæða hugarfar sem átti eftir að einkenna allt hans líf og gefa honum styrk til að takast á við þá örðugleika sem hann átti eftir að mæta á lífsleiðinni og vera um leið öðrum til fyrir- myndar og uppörvunar. Halldór var víða heima, en mest- an áhuga hafði hann ætíð á hvers konar sagnfræðiritum og episkum bókmenntum. Var það þessum Halldór Sveinn Rafnar ✝ Halldór SveinnRafnar fæddist í Reykjavík 20. janúar 1923. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 1. maí sl. og fór útför hans fram frá Grafarvogskirkju 7. maí. áhuga hans öðru fremur að þakka að við nokkrir bekkjar- bræðurnir stofnuðum með okkur lestrar- klúbb, þar sem við komum saman að vetrarlagi í viku hverri í nærri hálfa öld til að lesa upphátt góðar og uppbyggi- legar bókmenntir. Eftir stúdentspróf las Halldór lögfræði og gerðist síðan fulltrúi við embætti borgarfógeta og loks borgarfógeti. Af því embætti varð hans hins veg- ar að láta rétt orðinn fimmtugur, þegar hann varð fyrir því mikla áfalli að missa skyndilega og með öllu þá litlu sjón sem hann átti eftir. Honum var þó síst í huga að leggja árar í bát, heldur dreif sig til Eng- lands, þar sem hann sótti námskeið ætluð nýblindu fólki og kynnti sér séstaklega störf blindra lögfræð- inga. Eftir að heim kom var Halldór þess albúinn að hefja nýjan starfs- feril, þar sem hann gæti nýtt reynslu sína og þekkingu í þágu blindra og annarra öryrkja. Hóf hann fyrst störf sem lögfræðilegur ráðunautur Öryrkjabandalagsins, en einnig var hann fljótlega kosinn formaður Blindrafélagsins og varð síðar framkvæmdastjóri þess. Veit ég að hann vann mikið og óeig- ingjarnt starf að þessum málum það sem eftir var starfsævinnar, en sýndi um leið með fordæmi sínu, hve mikils virði það er hverjum manni að fá notið hæfileika sina og geta lagt sitt af mörkum til sam- félagsins þrátt fyrir líkamlega fötl- un. Halldór var gæfumaður í einka- lífi, giftist ungur einu konunni sem hann elskaði, bjó með henni í meira en sex áratugi, átti með henni þrjár glæsilegar dætur og fjölda annarra afkomenda sem voru honum blind- um sem sólargeislar á löngu ævi- kvöldi. Öll kveðja þau nú ásamt vin- um og gömlum félögum óvenjulega heilsteyptan mannkostamann. Jóhannes Nordal. Þegar ég var barn þá hlakkaði ég alltaf mikið til þegar ég fékk að gista hjá afa og ömmu. Oftar en ekki var farið í bíltúr, keypt Hraun og lakkrísrör, og svo haldið heim og horft á Derrick. Fyrir háttinn sett- umst við afi oft inn í eldhús og spjölluðum um heima og geima. Reglulega sagði afi mér söguna af Búkollu með miklum tilþrifum og að því loknu skreið ég inn í rúm, kúrði mig ofan í gulu rúmfötin með góðu lyktinni og knúsaði Maríu dúkku þar til ég hvarf inní drauma- landið. Afi Halldór hefur alltaf verið stór partur af mínu lífi. Hann var merki- legur maður. Það var til að mynda mjög áhrifamikið að heimsækja hann í vinnuna. Þar sat hann við skrifborð á stórri skrifstofu. Engir pappírar, engin tölva, ekkert nema sími og blindraklukka. Þannig sinnti hann starfi sínu. Talaði í síma og hitti fólk. Afi Halldór missti sjónina skömmu áður en ég fæddist og við náðum því aldrei að horfast í augu. Þrátt fyrir það hef ég alltaf greint sterka og góða strauma milli okkar. Sennilega vegna þess að við erum bæði Vatnsberar. Vorum næm á fólkið og umhverfið í kringum okk- ur. Ég man eftir því að þegar ég var spurð hverra manna ég væri þá reyndi ég að skjóta inn hver afi minn væri, þar sem ég var svo af- skaplega stolt af því að eiga hann að. Afi hefur alltaf sýnt öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur mikinn og einlægan áhuga. Hvort sem það hefur verið nám, starf, barnaupp- eldi eða annað. Sterkustu minningarnar eru hversu falleg ást ríkti á milli afa og ömmu. Svo falleg og sterk að tím- inn stóð stundum í stað þegar ég heyrði þau tala saman. Afi passaði alltaf upp á að ömmu liði sem best. Hvatti hana til ferðalaga innanlands sem utan, jafnvel þótt hann væri of slappur til að fara með. Svo óeig- ingjarn, og fallega hugsandi. Alltaf samgladdist hann ömmu ef eitthvað stóð til, elsku ömmu sem alltaf hef- ur staðið eins og klettur við bakið á honum, sama hvað á hefur dunið. Hann afi var jafn fallegur að innan sem utan. Hjartahlýr, jákvæður, skemmtilegur, snyrtilegur, æðru- laus og tignarlegur. Aldrei sagði hann styggðaryrði um nokkurn ein- asta mann og kenndi hann mér að allir hefðu eitthvað gott fram að færa. Ég tel það algjör forréttindi að hafa alist upp með afa Halldór mér við hlið. Þvílíkur öðlingur, þvílík perla, þvílíkt gæðablóð. Yndislegur í alla staði. Svo flottur í frakkanum sínum með dökku gleraugun og blindrastafinn. Hjartað mitt fyllist stolti þegar ég hugsa um hann. Elsku besti afi. Að leiðarlokum vil ég þakka þér af einlægni allt það sem þú varst mér. Allar góðu minn- ingarnar mun ég geyma í hjartanu mínu þar til við hittumst á ný. Við fjölskyldan munum veita ömmu all- an okkar styrk og umhyggju. Afi, þú ert hetjan mín. Þín elskandi dótturdóttir Bergljót. Kveðja frá Blindrafélaginu Þegar Halldór Rafnar kom úr 10 vikna endurhæfingu í Torquay í Bretlandi var hann fullur af lífs- þrótti og stálvilja. Fljótlega var hann kjörinn í stjórn Blindrafélags- ins. Varð formaður þess árið 1978 til 1986. Með komu Halldórs opn- aðist það mjög og almenningur vissi meir um þennan þjóðfélagshóp. Á þessum árum urðu gríðarlegar við- horfsbreytingar til blindra og sjón- skertra. Halldór átti þátt í að hrinda mörgum hugmyndum í framkvæmd eða studdi þær með ráðum og dáð. Má nefna að Blindra- félagið hóf samstarf við Borgar- bókasafn Reykjavíkur um fram- leiðslu hljóðbóka. Þá átti Halldór sæti í nefnd sem vann að stofnun Blindrabókasafns Íslands og varð svo stjórnarformaður þess. Sjón- stöð Íslands tók til starfa á þessum árum. Blindrafélagið varð ásamt Blindravinafélagi Íslands aðili að byggingu elli- og hjúkrunarheimilis- ins Eirar og sambýli blindra og sjónskertra við Stigahlíð varð til. Þá hóf Blindrafélagið útgáfu hljóðtímaritsins Valdra greina sem enn er gefið út. Árið 1990 var tölvu- tæknin æ meira að ryðja sér til rúms. Halldór nýtti sér lítið þá tækni en það kom ekki í veg fyrir að hann ynni ásamt fleirum að því að Morgunblaðið tók að huga að út- gáfu blaðsins á tölvutæku formi fyr- ir blinda og sjónskerta. Þar nýtti Halldór persónuleg sambönd sín til hins ýtrasta sem komu sér oft afar vel í baráttunni. Halldór var mjög vakinn yfir aukinni vinnu og mennt- un blindra og sjónskertra. Hann var óþreytandi að sannfæra al- menning um getu blindra og sjón- skertra og að þeim væru allar leiðir færar, væru skapaðar réttar að- stæður. Þegar fyrsta stjórn Blindrabókasafnsins var skipuð varð Halldór stjórnarformaður. Fljótlega reyndi svo á hann þar að fáir myndu hafa staðist þá raun. Blindum manni var hafnað í stjórn- unarstöðu þar þrátt fyrir menntun og þekkingu, en Halldór stóð einn eins og klettur á móti allri stjórn safnsins. Leikar fóru svo að þáver- andi forsætisráðherra hjó á hnút- inn. Þá varð Halldór fyrirvaralaust framkvæmdastjóri Blindrafélagsins sumarið 1985. Þáverandi fram- kvæmdastjóri félagsins varð uppvís að stórfelldum fjárdrætti. Halldór sýndi og sannaði að það borgar sig margfalt að hafa æðstu stjórnendur félagasamtaka úr röðum þeirra sem viðkomandi félög þjóna. Þá tók Halldór mikinn þátt í Norðurlanda- samstarfi blindrafélaganna og varð tvisvar sinnum formaður samstarfs- nefndar þeirra. Hann var mjög virt- ur á þeim vettvangi. Félagar hans annars staðar á Norðurlöndunum höfðu á orði að hann segði ekki margt á fundum en þegar hann tók til máls var eftir því tekið. Hann var sagður hlusta, fá hugmyndir, færi svo til Íslands og framkvæmdi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.