Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 39
SÝNINGIN Huldufólk og
talandi steinar í myndheimi
Sveins Björnssonar, verður
opnuð í Sveinshúsi í Krýsu-
vík á sunnudag, í tengslum
við vormessuna í Krýsuvík-
urkirkju sem hefst kl. 14.
Að messu lokinni verður
boðið upp á messukaffi í
Sveinshúsi og sýningin
opnuð samtímis. Sveinssafn
í Krýsuvík er opið fyrsta
sunnudag í hverjum mánuði yfir sumartímann
(júní-september) frá kl. 13 til 17 en einnig á
öðrum tímum samkvæmt samkomulagi fyrir
hópa fólks.
Myndlist
Huldufólk og
talandi steinar
Mynd Sveins
af Otto Wathne
INGIRAFN Steinarsson
sýnir verkið Rauð teikning
á VeggVerki, Strandgötu 17
á Akureyri í dag. Verkið er
teikning unnin með „kalk-
línu“; frjálsflæðandi strang-
línu og tækniteiknun sem
myndar óskiljanlegt þekk-
ingarform. Ingirafn Stein-
arsson útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla
Íslands 1999 og frá Listahá-
skólanum í Málmey í Svíþjóð árið 2006. Hann
vinnur með innsetningar og hluti, sem oft eru
tilraunir til að velta fyrir sér fagurfræði og
virkni þekkingar.
Myndlist
Frjálsflæðandi
stranglína
Ingirafn
Steinarsson
UM 50 strákar í 9. og 10.
bekk í Vallaskóla á Selfossi
og Barnaskólunum á Eyr-
arbakka og Stokkseyri hafa
verið á dansnámskeiði und-
anfarna daga og ætla að
sýna skólasystkinum sínum
afraksturinn kl. 12 á hádegi
í dag í íþróttasalnum við
Vallaskóla á Selfossi. Verk-
efnið er hluti af samstarfi Íslenska dansflokks-
ins og sveitarfélagsins Árborgar og byggist
meðal annars á því að efla áhuga stráka á dansi
og gefa þeim möguleika á að upplifa dansinn
sjálfir frá fyrstu hendi. Eftir faglega leiðsögn
dansara ÍD sömdu piltarnir dansa sína sjálfir.
Dans
Árborgarstrákar
sýna nútímadans
Í NÝÚTKOMNUM Skírni
er spurt: „Lifum við nýja
Sturlungaöld?“ en þar er
vitnað í grein Guðrúnar
Nordal í tímaritinu. Sturl-
unga kemur víða við sögu
að þessu sinni: Úlfar Braga-
son skrifar um lýsingu
Sturlu Þórðarsonar á
Flugumýrarbrennu, sem
var viðfangsefni Einars Kárasonar í Ofsa, sem
Dagný Kristjánsdóttir ritdæmir. Einar Már
Guðmundsson skrifar um alþjóðlegu fjár-
málakreppuna og Páll Skúlason um lífsgildi Ís-
lendinga. Að vanda er margt fleira for-
vitnilegra greina í Skírni.
Bókmenntir
Sturlunga og
kreppan í Skírni
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞAÐ er krefjandi og gaman að
vera í þessum kór. Við tökumst á
við stöðugt erfiðari verk og erum
alltaf að læra eitthvað nýtt. H-moll
messan er stærsta verkið sem við
höfum ráðist í og ég held að það sé í
fyrsta sinn sem Tumi stjórnar því,“
segir Þorgerður Aðalgeirsdóttir,
söngvari í kammerkórnum Vox
Academica. Tumi heitir Hákon
Leifsson og er stjórnandi kórsins
og stofnaði hann árið 1996 með
fyrrverandi félögum úr Há-
skólakórnum. „Í dag er þetta öðru
vísi. Í kórnum er fólk úr öllum geir-
um þjóðfélagsins og það er gaman
hvað það er margbreytileg flóra,“
segir Þorgerður.
Sýnisbók þess besta í barokki
H-moll messan eftir Jóhann Seb-
astian Bach er af mörgum talin
mesta verk tónskáldsins að anda-
gift og listfengi og hún markar há-
punkt á ferli Bachs. Verkið er eins
konar sýnisbók í stílbrigðum þessa
meistara barokktónlistarinnar.
„Ég kann vel við Bach. H-moll
messan spannar alls konar tónlist
og það er mjög spennandi að glíma
við hana. Það sem dregur mig í kór-
starfið er ánægjan af því að syngja
og mér finnst gaman að vera í
blönduðum kór; held að ég gæti
ekki hugsað mér að vera í kvenna-
kór. Það er líka nauðsynlegt að
eiga sér áhugamál og félagsskap-
urinn í kórnum skiptir mig miklu
máli.“
Tónleikarnir verða á laugardag
kl. 16 í Langholtskirkju. Einsöngv-
arar með kórnum verða Hlín Pét-
ursdóttir Behrens, Ingunn Ósk
Sturludóttir, Gissur Páll Giss-
urarson, Ágúst Ólafsson og Jóhann
Smári Sævarsson. Kammersveitin
Jón Leifs Camerata leikur með.
Stærsta verkið sem
við höfum ráðist í
Vox Academica flytur H-moll messu Bachs
Þorgerður „Það er krefjandi og gaman að vera í þessum kór.“
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
VÍKINGUR Heiðar Ólafsson er
fyrsti íslenski píanóleikarinn sem
heldur einleikstónleika í Há-
skólabíói. Þetta fullyrða þeir sem
best til þekkja í íslensku tónlistarlífi.
Víkingur leikur einleikstónleika þar
á Listahátíð, sunnudagskvöld kl. 20.
Þó verður að hafa þann fyrirvara
á, að Vladimir Ashkenazy hefur leik-
ið einn á sviði Háskólabíós, og hann
er að sönnu íslenskur ríkisborgari,
þrátt fyrir langdvalir erlendis.
Píanóleikararnir Gísli Magnússon
og Halldór Haraldsson héldu á sín-
um tíma tónleika með verkum fyrir
tvö píanó á sviði Háskólabíós, en
hvorugur hélt þar einleikstónleika.
„Ég hef engar forsendur til að
fullyrða þetta, en það er gaman ef
rétt er, og það stefnir í að það verði
uppselt,“ segir píanóleikarinn sjálf-
ur, Víkingur Heiðar Ólafsson. „Ég
renndi alveg blint í sjóinn með það
að halda einleikstónleika í Há-
skólabíói, það er rúmlega þrefalt
stærra en Salurinn. En svo virðist
vera sem fólk sé spennt fyrir að
heyra þessi íslensku lög.“
Á efnisskránni eru íslensk sönglög
sem Víkingur hefur sjálfur umritað
sem einleiksverk fyrir píanóið.
„Þessar melódíur sumar sem við eig-
um tel ég að séu með því fegursta
sem hefur verið samið,“ sagði Vík-
ingur Heiðar í samtali við Morg-
unblaðið fyrr í vetur. „Tökum sem
dæmi Ave Maríu eftir Kaldalóns,
sem ég er búinn að útsetja fyrir
löngu, hún er ótrúlegt tónverk.
Fræðilega séð er alveg brilliant
strúktúr á þessari einföldu laglínu.“
Fyrstur íslenskra píanista með einleikstónleika í Háskólabíói
Víkingur Heiðar brýtur blað
Morgunblaðið/Ásdís
Víkingur Heiðar Spilar sönglög.
Menning 39FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„HUGMYND þessa safnara er að
kynna verkin mín í Suður-Ameríku
og á Spáni. Hann ætlar að sýna allt
safnið og er með ákveðna staði í huga.
Hann hefur líka áhuga á því að kaupa
farandsýningu mína, Horizons, sem
er á ferð um Bandaríkin um þessar
mundir. Það er tólf verka innsetning,
útiverk, en það er ekki búið að ganga
frá þeim kaupum ennþá“ segir Stein-
unn Þórarinsdóttir myndlistarmaður.
„Það var í desember að þessi mað-
ur, sem ég þekkti ekki neitt, hringdi í
mig. Ég mátti varla vera að því að
tala við hann þar sem ég var að fara
til útlanda um nóttina, en hleypti hon-
um þó á vinnustofuna til að skoða
verkin. Þegar ég kom heim aftur
hafði hann samband og kvaðst hafa
áhuga á að safna verkum af öllum
ferli mínum. Hann kom svo aftur ný-
verið til að ganga frá þessu.“
Steinunn segir kaupandann ekki
vilja láta nafns síns getið en hann er
athafnamaður og fagurkeri og safnar
verkum ákveðinna listamanna mark-
visst. Hann býr á Spáni en flyst senn
til Mexíkó. Hann hyggst einnig gefa
út bók um verk Steinunnar, m.a. með
verkum úr hans eigin safni.
Varð að hugsa mig mjög vel um
„Þetta er heljarinnar mál og ekki
einfalt fyrir mig að missa svona mörg
börn í einu,“ segir Steinunn, „ég varð
að hugsa mig mjög vel um, bæði
vegna þess að þetta eru mörg verk og
sum eru mikilvæg fyrir minn feril.“
Steinunn segir keyptu verkin af
öllum gerðum, lítil og stór. Eitt
þeirra, það stærsta í safninu, er óunn-
ið en það verður smíðað í Kína. „En
eins og með mín verk öll er ákveðinn
þráður í þeim. Það sem hann valdi
voru góð verk af mínum ferli og ég
var mjög ánægð með hans val. Það
skiptir máli ef sýna á verkin sem
heild eða yfirlit yfir mína list. Mér
fannst það traustvekjandi að sjá
hvernig hann valdi.“
Spurð um hvað svo stór sala hafi að
segja fyrir hana segir Steinunn mik-
ilvægt fyrir sig að finna að góður
safnari skuli taka hana upp á arma
sína á þennan hátt. „Svo á eftir að
koma í ljós hvernig úr þessu vinnst og
hver þróunin verður. Þetta er stór
pakki og mikilvægt að samstarf sem
þetta sé reist á traustum grunni.“
Mexíkóskur fagurkeri kaupir 19 verk af Steinunni Þórarinsdóttur
Ekki einfalt að missa
svo mörg „börn“ í einu
Ljósmynd/Sigurgeir Sigurjónsson
Steinunn og börnin „Þetta er stór pakki og mikilvægt að samstarf sem
þetta sé reist á traustum grunni,“ segir Steinunn Þórarinsdóttir.
Ba
rn
af
öt
C O N C E P T S T O R E
Laugavegi 7 • 101 Reykjavík
Sími 561 6262 • www.kisan.is
Bonpoint, Petit Bateau,
Simple Kids,
Muchacha,
Fred & Ginger, Zorra,
Hartford,
Oona l'Ourse,
Makie, Zef ...
Opið til kl. 19:30
á föstudögum