Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Heitt vatn sem fannst ílandi Hoffells og Mið-fells í Hornafirði ergrundvöllur stórhuga áforma fjölskyldunnar á Hoffelli II um uppbyggingu baðstaðar og jarð- fræðisýningar við rætur Hoffellsjök- uls. Hjónin, börn þeirra og tengda- börn, vinna að Jöklaveröld, hvert á sínu sérsviði. Leitað hefur verið að heitu vatni í Hornafirði og nágrenni í hálfan ann- að áratug. Rannsóknir sýndu að Arnarbæli í landi Hoffells og Mið- fells væri vænlegt og þar hafa verið boraðar 26 holur. Rannsóknin bar þann árangur fyrir tveimur árum að upp komu 3,5 sekúndulítrar af 57 gráða heitu vatni. Fyrirhugað er að rannsaka svæðið áfram og hefur Ra- rik hug á því að reyna að ná þaðan heitu vatni fyrir Höfn og nágrenni. „Ég gat ómögulega horft á vatnið renna út á aur og setti upp fiskeld- isker og notaði sem heitan pott,“ segir Þrúðmar Þrúðmarsson á Hof- felli. Hann bætti síðar aðstöðuna með því að setja upp fimm heita potta og fallegar hleðslur í kring. Þrúðmar og Ingibjörg Steins- dóttir, kona hans, reka lítið gistihús og skipuleggja hvataferðir og bjóða gestum sínum að nota pottana. Þeir eru einnig nokkuð notaðir af ferða- fólki enda standa þeir við fjölfarinn ferðamannaveg inn að Hoffellsjökli. Þá kemur fólk víðar úr héraðinu til baða, sérstaklega eftir að það frétt- ist að vatnið gæti haft góð áhrif á fólk með húðsjúkdóma. „Það koma sex til átta einstaklingar með psori- asis hingað reglulega til að halda sér góðum af sínu sjúkdómi,“ segir Þrúðmar. Þau hjónin á Hoffelli II eru að hefja samstarf við Heilsu- gæsluna og Háskólasetrið á Höfn um vísindalega rannsókn á lækningamætti vatnsins. Lesa jarðsöguna í landinu Ýmsar hugmyndir hafa kviknað um nýtingu þeirrar aðstöðu sem vatnið skapar. Ingibjörg fór í þriggja ára ferðamálanám í Háskól- anum á Hólum og þróaði hugmynd sem gekk út á það að leiða heitt vatn að rótum Hoffellsjökuls og gera bað- stað við jökullónið og gerði við- skiptaáætlun fyrir hana. Ekki var ráðist í framkvæmdir vegna að- stæðna í þjóðfélaginu en í staðinn er verið að teikna upp baðstað með til- heyrandi í Arnabæli, þar sem vatnið kemur upp, og gera viðskiptaáætlun fyrir verkefnið. Ingibjörg og Þrúð- mar vinna að þessu ásamt börnum sínum og tengdabörnum. Dóttir þeirra er arkitekt og sér um hönn- ina, önnur dóttir þeirra er í ferða- málafræði og vinnur að við- skiptaáætlun, svo dæmi séu nefnd. Auk aðstöðu fyrir baðstaðinn hugsa þau sér að koma upp veit- ingastað í húsinu. Þá hefur verið að þróast hugmynd um jarðfræðislóð í Hornafirði í samvinnu ferðaþjón- ustuaðila og Háskólasetursins á Höfn. Þrúðmar og Ingibjörg hafa áhuga á að koma upp sýning- araðstöðu í húsinu og segja frá jarð- fræðinni í máli og myndum. Síðan geti fólk farið út og séð jarðlögin með eigin augum. Hugmyndin um jarðfræðisýn- inguna helgast af aðstæðum á jörð- inni. „Hér er jarðsagan opin í land- inu. Hægt er að sjá hvernig landið mótaðist, hvernig jöklarnir hafa þróast og vatnaganginn,“ segir Þrúðmar og getur þess að jarðvís- indamenn komi oft með hópa til að sýna þeim jarðsöguna í klettinum við heitu pottana. Fleiri hugmyndir eru uppi um nýtingu hússins og allir styðja þeir við rekstur þess. Þarf aukna afþreyingu Þrúðmar hefur mikinn áhuga á að framkvæma hugmyndina og er bjartsýnn á að það takist, jafnvel að hægt verði að hefjast handa með haustinu. „Hér í Hornafirði er mikið gistirými en það þarf afþreyingu sem hægt er að ganga að vísri allt árið til að halda fólkinu lengur. Jöklaveröldin er liður í því,“ segir Ingibjörg. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Pottar Heita vatnið sem kom upp í Arnabæli varð til þess að settir voru upp fimm heitir pottar og nú eru Ingibjörg Steinsdóttir og Þrúðmar Þrúðmarsson með hugmyndir um mikla uppbyggingu heilsu- og menningarferðaþjónustu. Skoða jarðsöguna úr heitu pottunum Hjónin á Hoffelli II í Hornafirði undirbúa frekari uppbyggingu bað- aðstöðu og jarðfræðisýn- ingar. Ingólfur Ómar Ármansson hefurnokkrar áhyggjur af þjóðfélags- ástandinu: Óbærilegt þykir það þegar verðlag hækkar; launin ávallt standa í stað störfum óspart fækkar. En eitt ornar hann sér við í kreppunni, sem bregst aldrei: Auðgast megi íslenskt mál andann gleðja og næra, veitir fróun, vermir sál, vísan yndiskæra. Heimir L. Fjeldsted sendi kveðju í Vísnahornið: „Gamall kunningi kom að máli við mig með mikinn harm í huga eftir farir sínar með hinu mjúka og milda. Í hans orða- stað setti ég saman limru: Giftist ég Guðrúnum tveim, gaman var oftast með þeim, en það tók að kárna og mér fór að sárna er yxna þær hurfu á sveim. Stefán Sveinsson frá Hóli í Svart- árdal, síðar fornbókasali í Reykja- vík, orti í sinni tíð: Lífs þó fenni ljórann á ligg ég enn og stari. Í mér brennur óljós þrá eftir kvennafari. Af limru og kvennafari VÍSNAHORN pebl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.