Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 10

Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 Það er gömul og góð hefð að fyr-ir setningu Alþingis hlýða þingmenn á messu í Dómkirkjunni. Þeirri hefð verður enn viðhaldið í dag, er Alþingi kemur saman.     Sú hefð er ekki sízt til marks umað löggjafarvaldið stendur á kristnum merg. Til kristindómsins, sem þorri landsmanna aðhyllist, sækir þingið sína siðferðislegu kjölfestu.     Í ár bregður svovið að Sið- mennt, félag sið- rænna húm- anista, býður þingmönnum upp á „valkost við guðsþjónustuna“ fyrir þing- setningu.     Jóhann Björnsson heimspekingurætlar á sama tíma að flytja „hugvekju um mikilvægi góðs sið- ferðis í þágu þjóðar“. Siðmennt býður alþingismenn velkomna á „samverustund óháð öllum trúar- setningum“.     Forvitnilegt verður að sjá hvortog þá hvaða alþingismenn kjósa að rjúfa hina gömlu hefð.     Jóhann Björnsson er flokksmaðurog fyrrverandi frambjóðandi VG til Alþingis í kosningunum 2007.     Vinstri græn eru ekki hrifin aftrúarbrögðum; samþykktu á síðasta landsfundi sínum að að- skilja ætti ríki og kirkju og vilja af- nema ákvæði almennra hegning- arlaga um guðlast, sem banna fólki að smána trúarbrögð annarra.     Ætli þingmenn VG hlusti á séraHelgu Soffíu Konráðsdóttur eða Jóhann félaga sinn fyrir þing- setningu í dag? Jóhann Björnsson Hvar fer VG í messu? „ALMENNT er talið að það taki lengri tíma að sjá hvort um sé að ræða breytingar á afbrotatíðni í kjölfar efnahagskreppu, en við verðum vakandi yf- ir því hvernig þróunin verður,“ segir Guðbjörg S. Bergsdóttir, félagsfræðingur við embætti Ríkis- lögreglustjóra. Að beiðni Fangelsismálastofnunar hefur Guðbjörg tekið saman upplýsingar um tíðni afbrota síðan kreppan hófst á Íslandi, sem kynnt- ar verða í dag á morgunverðarfundinum Út úr fangelsi – inn í kreppuna. „Niðurstaðan er í rauninni sú að við merkjum fjölgun í hegningarlagabrotum, en það má aðal- lega rekja til fjölgunar í þjófnuðum og innbrotum. Öðrum hegningarlagabrotum hefur almennt ekki fjölgað en það getur líka verið of snemmt að segja til um það, það getur komið fram síðar,“ segir Guðbjörg, en bendir á að ólíkar kenningar séu um samhengi milli efnahagskreppu og fjölda afbrota. Lögreglan þarf nú að hafa afskipti af fleiri ein- staklingum en áður vegna innbrota og þjófnaða. Sú fjölgun ákvarðast ekki við ákveðna aldurs- hópa eða kyn. Guðbjörg segir varasamt að draga of miklar ályktanir. „Enn sjást engar breytingar í málum eins og eignaspjöllum og líkamsárásum. Eins skoðaði ég tilkynningar um heimilisófrið og í janúar 2009 virðist það ná hámarki miðað við árin tvö á undan en lækkar svo aftur þannig að ég get ekki merkt fylgni þar.“ una@mbl.is Kreppan birtist ekki enn í afbrotum Í HNOTSKURN »Séu borin saman fimm mánaða tímabilmilli ára sést að frá október 2007 til mars 2008 voru tæplega 470 einstaklingar kærðir fyrir þjófnaði og innbrot, en á sama tímabili ári síðar voru 773 einstaklingar kærðir. »Athygli vekur að líkamsárásum ferfækkandi frá síðari hluta árs 2008 m.v. árin á undan, en erfitt er þó að draga álykt- anir út frá þeim tölum um varanlega þróun. Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 11 léttskýjað Lúxemborg 16 þrumuveður Algarve 25 heiðskírt Bolungarvík 15 heiðskírt Brussel 18 skúrir Madríd 18 léttskýjað Akureyri 15 léttskýjað Dublin 12 skýjað Barcelona 17 þoka Egilsstaðir 11 léttskýjað Glasgow 16 léttskýjað Mallorca 19 skýjað Kirkjubæjarkl. 10 léttskýjað London 18 alskýjað Róm 25 heiðskírt Nuuk -2 skýjað París 18 skýjað Aþena 23 heiðskírt Þórshöfn 9 skýjað Amsterdam 19 léttskýjað Winnipeg 0 skýjað Ósló 12 heiðskírt Hamborg 17 heiðskírt Montreal 16 alskýjað Kaupmannahöfn 12 skýjað Berlín 16 heiðskírt New York 14 alskýjað Stokkhólmur 11 heiðskírt Vín 9 súld Chicago 17 léttskýjað Helsinki 10 heiðskírt Moskva 10 alskýjað Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 15. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4.15 1,1 10.17 2,9 16.12 1,2 22.42 3,1 4:12 22:38 ÍSAFJÖRÐUR 6.13 0,5 12.00 1,5 17.55 0,6 3:52 23:08 SIGLUFJÖRÐUR 1.54 1,2 8.23 0,3 14.35 1,0 20.17 0,5 3:34 22:51 DJÚPIVOGUR 1.17 0,8 6.59 1,6 13.09 0,7 19.39 1,8 3:35 22:13 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á laugardag, sunnudag, mánudag, þriðjudag og mið- vikudag Austlæg átt, 3-10 m/s. Sums staðar þokuloft við ströndina, einkum austan til, en annars bjart að mestu. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast um landið vestanvert. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12 Í DAG Suðaustan 10-15 m/s suðvest- anlands í fyrstu, en annars suð- austlæg átt, 5-10. Skýjað að mestu við suðausturströndina, hætt við þokulofti við austur- ströndina, en annars bjart að mestu. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast norðan og vestan til.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.