Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 STANGVEIÐI Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „ÞETTA var rosalega gaman – svona fisk fær maður bara einu sinni,“ sagði Ágúst J. Elíasson sem í upphafi vikunnar setti í og land- aði 22 punda urriðatrölli við Vatns- kot á Þingvöllum. Fiskurinn sem var hængur, 94 cm langur, tók maðk. Nokkuð margir veiðimenn voru þetta kvöld í þjóðgarðinum að reyna við urriða, en frést hafði af góðri veiði í vatninu í liðinni viku. Á meðal veiðimannanna voru Ágúst og eiginkona hans, Hrafn- hildur Sigurhansdóttir. Þau hafa haldið reglulega til veiða síðustu ár og fengið tveggja, þriggja punda silunga, sá stærsti var sex pundari sem Hrafnhildur fékk í fyrra. „Þessi tók strax vel í. Það voru ekki mikil læti í honum en hann var þungur. Æddi út með línuna. Ætli ég hafi ekki verið með hann á í svona 20 mínútur,“ segir Ágúst. „Adrenalínið var á fullu. Ég ætlaði að sporðtaka hann en gat það ekki, stirtlan er svo þykk. Þetta er ofboðslega fallegur fisk- ur.“ Ágúst segist gera ráð fyrir að urriðinn verði stoppaður upp. Bleikju fer fækkandi Á ársfundi Veiðimálastofnunar á dögunum kom fram að á síðasta ári voru um 43.000 urriðar og sjóbirt- ingar skráðir í veiðibækur. Um 5.300 þeirra var sleppt aftur. Veiði á urriða hefur verið nokkuð stöðug síðustu ár. Um 28.500 stangaveidd- ar bleikjur voru skráðar og var um 2.000 sleppt aftur. Bleikjan er held- ur að dala hér á landi. „Okkur sárvantar betri upplýs- ingar um af hverju þetta stafar en sérstaklega hefur sjóbleikjan átt undir högg að sækja,“ sagði Guðni Guðbergsson fiskifræðingur. „Svona fær maður bara einu sinni“ Draumafiskurinn Ágúst J. Elíasson hampar 22 punda urriðahængnum, 94 cm löngum, sem hann veiddi síðla kvölds í þjóðgarðinum á Þingvöllum.  Ágúst J. Elíasson landaði 22 punda urriða við Vatnskot á Þingvöllum  Sjóbleikjan á undir högg að sækja meðan urriðaveiði stendur í stað NÝR beinþéttnimælir var formlega tekinn í notkun á Sjúkrahúsinu á Akureyri í gær. Þá var í gær skrifað und- ir samning um að öll legháls- og brjóstakrabbameinsleit á Eyjafjarðarsvæðinu fari fram í húsnæði FSA. Í mörg ár hefur leit að leghálskrabbameini hjá konum farið fram á Heilsugæslustöðinni á Akureyri einn dag í viku. Með tilkomu nýrrar stafrænnar brjóstaröntgen- myndavélar, sem Krabbameinsfélag Íslands hefur komið fyrir á myndgreiningardeild FSA, sköpuðust aðstæður til endurskipulagningar á krabbameinsleit kvenna og verð- ur hún nú öll á sama stað. Beinþéttnimælingar hófust á FSA 1997 þegar keyptur var fimm ára gamall beinþéttnimælir frá Landspítala. Rannsóknartími hverrar beinþéttnimælingar styttist nú um helming, afköstin verða meiri og rannsóknin enn auð- veldari fyrir þann sem gengst undir hana. Öll úrvinnsla fer nú fram með stafrænum hætti, sem gefur möguleika á að sækja eftir sérfræðiþekkingu um beinþynningu út fyr- ir FSA. Úrlestur gagna fer fram í Reykjavík og er jafnan lokið samdægurs með ítarlegri sérfræðingsráðgjöf. Nýr beinþéttnimælir form- lega tekinn í notkun á FSA Samið um að krabbameinsleit fari öll fram á spítalanum LÖG um tímabundna greiðsluaðlög- un fasteignaveðkrafna á íbúðar- húsnæði taka gildi í dag. Með lög- unum getur eigandi íbúðarhúsnæðis leitað eftir greiðsluaðlögun vegna skulda sem tryggðar eru með veði í húsnæði hans, ef hann sýnir fram á að hann sé og verði um einhvern tíma ófær um að standa í fullum skilum á greiðslum. Ráðgjafarstofa um fjár- mál heimilanna hefur tekið að sér að annast upplýsingagjöf um úrræðið. Áður en einstaklingur óskar eftir tímabundinni greiðsluaðlögun fast- eignaveðkrafna verður hann að hafa leitað annarra tiltækra greiðsluerf- iðleikaúrræða sem í boði eru hjá lána- stofnunum og sýna fram á að þau úr- ræði hafi reynst ófullnægjandi. Sé svo getur hann óskað eftir greiðsluað- löguninni með því að senda skriflega beiðni til héraðsdómstóls í því um- dæmi þar sem hann á lögheimili. Taki héraðsdómari beiðnina til greina skal hann skipa umsjónarmann með greiðsluaðlöguninni. Viðkomandi greiðir þá aðeins þær greiðslur af lán- um sem talið er að hann geti staðið straum af. Frestað er greiðslu þess hluta skuldbindinga sem eftir eru svo lengi sem greiðsluaðlögun stendur, sem getur verið í allt að fimm ár. Nánari upplýsingar um lögin og markmið þeirra er að finna á vef Ráð- gjafarstofu um fjármál heimilanna www.rad.is. Tekur á erfiðum málum Lög um greiðslu- aðlögun taka gildi ÓVENJUBJART var yfir landinu í gær og létt- skýjað víðast hvar, eins og þessi gervitunglamynd frá Veðurstofu Íslands sýnir. Skýin undan landinu vestanverðu eru skilin frá lægð vestan við landið, að sögn Óla Þórs Árnasonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Á móti lægðinni er hæð norð- austur af landinu, en hún sést ekki. Skýin austur af landinu eru lág ský, frekar athafnalítil. Upp af fjöllum, t.d. við Vatnajökul og Holtavörðuheiði, eru svokallaðir vindskaflar, sem flugmenn óttast meira en aðrir. Framundan eru hægari austlægar áttir og hlýnar suðvestan til. Hæð og lægð valda rokinu á landinu sunnanverðu Heiðskírt yfir Íslandi Ljósmynd/brunnur.vedur.is GJAFIR og framlög velunnara FSA hafa haft gífurlega þýð- ingu fyrir vöxt hans og viðgang í gegnum tíðina, að sögn for- ráðamanna spít- alans. Á síðasta ári bárust gjafasjóði samtals 82 milljónir í gjafaframlög sem öllum verður varið til kaupa á tækjabúnaði. Stærsta einstaka framlagið kom frá Góðtemplarareglunni á Akureyri sem gaf 50 milljónir til kaupa á tækjum og búnaði til greiningar og með- ferðar hjartasjúkdóma. Í yfirliti um gjafir og framlög til Gjafasjóðs FSA frá 1986, sem birt er í ársskýrslu FSA sem kom út á ársfundi spítalans í gær, kemur í ljós að framlög á þessu árabili nema samtals um 360 milljónum króna á verðlagi ársins 2008. 360 milljónir í gjafasjóð Orri Einarsson forstöðulæknir sýnir beinþéttnimælinn í gær. TVÍTUGUR piltur var í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær dæmdur til að greiða Tryggingamiðstöðinni tæplega 1,7 milljónir vegna tjóns sem varð á bifreið sem hann ók á miklum hraða vestur Miklubraut í febrúar 2006. Hafði TM greitt tjón- ið á bifreiðinni en faðir piltsins, og eigandi bifreiðarinnar, var með hana í kaskó hjá TM. Jafnframt hafði TM greitt tjón sem varð á ljósastaur sem pilturinn hafði ekið á. Piltinum er jafnframt gert að greiða 300 þúsund í sakarkostnað. Segir í niðurstöðum að nægar sannanir séu fyrir því að hann hafi ekið bifreiðinni á miklum hraða og sýnt af sér stórkostlegt gáleysi við akstur. Það tjón sem hlaust af við óhappið verði rakið til þeirrar hátt- semi piltsins, sem var nýlega orðinn sautján ára er óhappið varð. Greiði TM tjónakostnað Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir. Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is 31 vatnasvæði vítt og breitt um landið fyrir aðeins 6000 krónur Þú ákveður svo hva r og hvenær þú veiðir veidikortid.is Hver seg ir að það sé d ýrt að veiða ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.