Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 27
Léttari greiðslu-
byrði verðtryggðra
húsnæðislána
SEM fram-
kvæmdastjóri hjá litlu
sprotafyrirtæki hef ég
á undanförnum mán-
uðum oft verið spurð-
ur að því hvernig
gangi eiginlega í
kreppunni. Svarið við
þeirri spurningu er
einfalt. Sprotafyr-
irtæki hafa alltaf verið
í kreppu svo það hefur
ekki mikið breyst hjá
þeim.
Oft á tíðum hefur þurft að fresta
greiðslum, semja við lánadrottna um
greiðslur, geyma að borga eigin laun
o.s.frv. Það er á forsendum þessarar
reynslu sem ég kem fram með hug-
mynd sem gæti nýst öllum íbúðar-
eigendum með verðtryggð húsnæð-
islán. Hún er byggð á hugmyndum
sem áður hafa komið fram (Mbl. 8.
febrúar 2009, Guðlaugur og Magn-
ús) en með breyttu ívafi. Þessi hug-
mynd þýðir jafnframt að bankar
þyrftu að taka á sig aukna ábyrgð á
skuldum svo einhvers jafnræðis sé
gætt milli skuldara og skuldaeig-
anda.
Vandinn
Þrátt fyrir að greiðslubyrði verð-
tryggðra lána hafi ekki breyst nærri
eins mikið og myntkörfulána þá
stöndum við frammi fyrir því að þús-
undir fjölskyldna í þessu landi sjá
ekki fram á að geta greitt af lánum
sínum vegna annarra ástæðna s.s.
atvinnumissis að hluta eða öllu leyti,
óverðtryggðra skulda eða bílalána
eða vegna ábyrgðar á þriðja aðila.
Sú greiðsluaðlögun sem núverandi
ríkisstjórn hefur boðið upp á er ekki
aðgengileg nema fyrir örlítið brot af
fjölskyldum í greiðsluvanda og er
bæði tímafrek, kostnaðarsöm og nið-
urlægjandi fyrir viðkomandi. Þá hef-
ur þessi takmarkaða aðstoð það í för
með sér að þessar fjölskyldur eyða
litlu sem engu í annað en afborganir,
svo sú nauðsynlega velta sem þarf
að vera til staðar í þjóðfélaginu
hrynur.
Dæmi
Svo ég taki nú vinsælar persónur
sem dæmi, þá skuldar Gylfi honum
Magnúsi smið 700 þús. vegna nauð-
synlegrar þakviðgerðar. Gylfi getur
hins vegar ekki borgað honum þar
sem allt hans ráðstöfunarfé og rúm-
lega það fer í afborganir og nauð-
synjar fyrir fjölskylduna. Magnús
smiður skuldar Tryggva blikkara
120 þús. fyrir hans aðkomu að þak-
viðgerðinni, hann skuldar Þór sem
flutti inn þakjárnið 180 þús. og svo
skuldar hann Herberti vörubílstjóra
40 þús. Tryggvi, Þór og Herbert
eiga svo það allir sameiginlegt að
skulda bankanum afborganir lána.
Þegar Gylfi kemur í bankann til að
fá lán til að borga Magnúsi þá fær
hann þau svör að hann sé ekki borg-
unarmaður né með veðhæfi fyrir
meiri lánum. Þrátt fyrir að hann fari
í þau greiðslujöfnunarúrræði sem
eru til staðar þá nægja þau rétt svo
til að endar nái saman og allur
kostnaður við greiðslujöfnunina
lendir á endanum á
honum. Hann er því
ekki borgunarmaður
fyrir skuldinni við
Magnús. Á sama tíma
fær bankinn ekki borg-
að frá Tryggva, Þór og
Herberti af sömu
ástæðu. Hvað myndi
Gylfi þá gera ef gamli
Volvo-inn hans tæki
upp á því að bila?
Hagkerfið í gang
Til að rjúfa þessa
hringavitleysu og koma
hagkerfinu í gang aftur þarf að auka
ráðstöfunartekjur heimilanna í land-
inu m.a. með léttari afborgunum
húsnæðislána. Það gæti til skemmri
tíma þýtt örlítið meiri verðbólgu en
eðlilegt hagkerfi á hvort sem er að
búa við 1-3% verðbólgu, ekki verð-
hjöðnun. Engin verðbólga og hag-
kerfið er deyjandi, verkefnaskortur
verður viðvarandi og innkoma í rík-
issjóð minnkar að sama skapi.
Eftirfarandi legg ég til að verði
gert og það verði í leiðinni fyrsta
skref til að afnema verðtryggingu á
Íslandi:
Lausnin
Skuldurum verði gert kleift að
flytja allt að 1/4-1/3 (1/2 ?) höfuðstóls
verðtryggðra húsnæðislána (og af-
borgana í vanskilum) 10 til 25 ár
fram í tímann. Sá hluti lánsins sem
fluttur er verði gerður að óverð-
tryggðu kúluláni með hámarks-
vöxtum (vaxtaþaki) upp á 5-7%. Það
yrði jafnframt samkeppnisþáttur
milli lánastofnana hversu langt und-
ir vaxtaþaki þær gætu boðið lán.
Aukakostnaður vegna verðbólgu og
vaxta umfram vaxtaþakið leggst á
bankann en ekki skuldarann eins og
nú er. Þannig hefjum við smátt og
smátt afnám verðtryggingar með
þeim afleiðingum að lánastofnanir
þurfa að fara að taka jafn mikla
ábyrgð á verðbólgu í þjóðfélaginu og
skuldaeigendur. Það er kominn tími
til að lánastofnanir taki á sig hluta
þess kostnaðar sem fellur til við
svona aðgerðir en haldi ekki áfram
að moka öllum kostnaði yfir á lán-
takendur. Það má gera ráð fyrir að á
þeim tímapunkti sem kúlan kemur
til greiðslu verði lánið í heild sinni
orðið óverðtryggt með vaxtaþaki ef
vel er haldið á málum í ríkisrekstri.
Gylfi væri með þessari breytingu
að borga mun lægri afborganir af
lægri höfuðstól. Magnús smiður,
Tryggvi, Þór og Herbert ættu líka
að vera sáttir við þessa lausn.
Eftir Hans Guttorm
Þormar
Hans Guttormur
Þormar
» Tillaga að léttari
greiðslubyrði verð-
tryggðra húsnæðislána
með hagsmuni fjöl-
skyldna og efnahagslífs-
ins í fyrirrúmi.
Höfundur er framkvæmdastjóri og
einn af stofnendum sprotafyrirtæk-
isins Lífeindar ehf. Að ljúka dokt-
orsnámi frá HÍ. Hefur sinnt kennslu
bæði við HÍ og HR.
Umræðan 27BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009
BJARNI Benediktsson, Þor-
gerður Katrín og Illugi Gunn-
arsson hafa skrifað og látið hafa
eftir sér ummæli og greinar í blöð
um nauðsyn þess að ganga í ESB
og taka upp evru sem gjaldmiðil
fyrir Ísland. Snögg umskipti
þeirra urðu varðandi þennan mála-
flokk eftir landsfund Sjálfstæð-
isflokksins í vetur þar sem öld-
ungaráðið í flokknum tróð svo
rækilega blautri tusku upp í túl-
ann á þeim að þau hafa ekki enn
losnað við óbragðið úr munninum.
Benda má á það að þessir tusku-
túla-troðarar koma ekki til með að
stjórna Sjálfstæðisflokknum í
framtíðinni, flokknum verður ekki
stjórnað frá Grund, heldur úr Val-
höll.
Bjarni, Þorgerður Katrín og Ill-
ugi! Rekið af ykkur slyðruorðið,
það eruð þið sem ráðið, standið nú
við stóru orðin
og hreinsið ræki-
lega til í flokkn-
um. Stefnuleysi
flokksins í ESB-
málum fyrir
kosningar í vor
og hugmyndir
um einhliða upp-
töku evru í sam-
vinnu við AGS
voru blásnar út
af borðinu og urðu aðhlátursefni.
Plástur á sárið korteri fyrir kosn-
ingar var hallærisleg tilraun til að
breiða yfir væntanlegt fylgishrun.
Skora ég á þremenningana að láta
til sín taka svo um munar, vera
samvisku sinni trú og standa við
öll stóru orðin. Flokksklíkan geng-
ur ekki fyrir þjóðarhag, hollt er
þeim að muna það.
SIGURJÓN GUNNARSSON,
matreiðslumeistari
Afturhvarf til fortíðar
Frá Sigurjóni Gunnarssyni
Sigurjón
Gunnarsson
ÞANN 6. maí sl. barst framhalds-
skólakennurum boðskapur stjórn-
ar og samninganefndar Félags
framhaldsskólakennara þess efnis
að gert hefði verið samkomulag
við ríkisvaldið um að framhalds-
skólakennarar afsöluðu sér 15
þúsund kr. eingreiðslu sem samið
var um í síðustu samningum ef
ekki væri búið að gera fullgildan
kjarasamning fyrir 1. apríl sl.
Nú er það svo að framhalds-
skólakennarar, eins og flestir aðr-
ir, hafa orðið fyrir kjaraskerðingu
í því efnahagsfári sem gengið hef-
ur yfir þjóðina og þeir, eins og
aðrir, geta gert ráð fyrir því að
frekari byrðar verði á þá lagðar
næstu misserin. Það er hins vegar
ekki sama á hvern hátt það verður
gert. Það sem einkum er ámæl-
isvert við áðurnefnda aðgerð
stjórnar og samninganefndar Fé-
lags framhaldsskólakennara er að
kjarasamningum var breytt án að-
komu félagsmanna. Það voru fé-
lagar í F.F. sem samþykktu þessa
samninga í allsherjaratkvæða-
greiðslu og það eru einungis þeir
sem geta breytt samningunum.
Hin rétta málsmeðferð hefði verið
að bera breytinguna undir fé-
lagsmenn en það var ekki gert
heldur tók samninganefndin sér
það bessaleyfi að breyta kjara-
samningi án samráðs við fé-
lagsmenn sem er fyrir það fyrsta
siðlaust og að öllum líkindum
einnig ólöglegt.
Á næstunni mun launþegahreyf-
ingin ekki aðeins standa frammi
fyrir stórfelldri kjaraskerðingu
heldur munu ríkisvald og atvinnu-
rekendur nýta sér atvinnuleysi og
dapurt efnahagsástand til að af-
nema eða rýra ýmis þau réttindi
sem launþegar hafa áunnið sér
undanfarna áratugi. Það er mun
hættulegri þróun en tímabundin
kjaraskerðing því það mun kosta
harða baráttu að ná aftur töpuðum
réttindum. Það skýtur því skökku
við að stjórn og samninganefnd
launþegasamtaka hafi forgöngu
um að ganga á samningsrétt fé-
lagsmanna sinna eins og for-
ystumenn Félags framhaldsskóla-
kennara hafa gert með þessari
undirritun. Slíkt verður að stöðva
og losa sig við forystu sem gengur
svo berlega gegn hagsmunum fé-
lagsmanna sinna.
GUÐMUNDUR J.
GUÐMUNDSSON,
framhaldsskólakennari.
Í höndum hverra er samn-
ingsréttur launþega?
Frá Guðmundi J. Guðmundssyni
NÚ UM nokkurt skeið hafa staðið yf-
ir deilur vegna vegagerðar á sunn-
anverðum Vestfjörðum en þar var
ákveðið að heimila vegagerð sem fel-
ur í sér að þvera firðina Gufufjörð og
Djúpafjörð og leggja veg í gegnum
hinn merka Teigsskóg. Landsvæði
sem um ræðir er að miklu leyti
óbyggt og náttúrufegurð er þar mik-
il. Fuglalíf er fjölbreytt og mikið og
gróðurfar all sérstakt. Teigsskógur
er kjarrskógur þar sem mikið er af
reynivið innan um birkið og töluvert
af hávöxnum víðirunnum. Skóg-
arbotninn er vel gróinn og þar má
finna sérstakar og sjaldgæfar plöntu-
tegundir, t.d. hina friðlýstu plöntu
ferlaufung og skógarplöntuna kross-
jurt. Í Teigsskógi eru músarrindlar
óvenju algengir varpfuglar en þar er
einnig mikið af skógarþröstum,
hrossagaukum, auðnutittlingum og
rjúpum. Firðirnir eru hluti af Breiða-
fjarðarfriðlandi. Fuglalíf er mikið og
hafa margir vaðfuglar þar viðkomu,
t.d. rauðbrystingar á leið sinni til og
frá Grænlandi vor og haust. Varp-
fuglar á Vestfjörðum nýta sér mikið
leirurnar í fjörðunum, t.d. tjaldur,
heiðlóa, stelkur og sendlingur. Haf-
ernir eru tíðir og hafa hér heppileg
skilyrði til veiða og varps. Þveranir
fjarðanna myndu augljóslega hafa í
för með sér óafturkræf náttúruspjöll
og spilla lífríki fjarðanna um alla
framtíð. Fuglaverndarfélag Íslands,
Náttúruverndarsamtök Íslands og
landeigendur hafa barist fyrir því
undanfarin ár að fallið verði frá þess-
ari afar slæmu hugmynd um vega-
gerð. Í þeim málarekstri létum við
kanna möguleika á öðrum kostum í
vegagerð á svæðinu. Vegagerð rík-
isins lagðist upphaflega gegn um-
ræddri leið og lagði til að núverandi
vegur yrði ýmist lagfærður eða nýr
gerður, svo sem yfir hinn lága
Ódrjúgsháls, sem er aðalfarartálm-
inn á núverandi vegi. Sá kostur sem
við teljum öðrum fremri er gerð veg-
ar sem færi um fjarðarbotna Gufu-
fjarðar og Djúpafjarðar með jarð-
göngum undir Hjallaháls og
Gufudalsháls. Þessi vegagerð mundi
hafa í för með sér afar lítil nátt-
úruspjöll og hlífa fjörðunum og
Teigsskógi við vegagerð. Vegurinn
yrði 8 km styttri en leiðin sem nú er
deilt um. Umferðaröryggi myndi
aukast mikið enda styttist leiðin
ásamt því að í jarðgöngum er hvorki
hálka né snjór á vetrum. Kostnaður
við jarðgangaleiðina mun vera svip-
aður eða jafnvel minni en kostnaður
við hina vondu leið sem nú er uppi
hjá stjórnvöldum, og ávinningurinn
augljós. Málaferli hafa verið í gangi
undanfarin ár til að fá hnekkt
ákvörðun umhverfisráðherra, sem
sneri við úrskurði Skipulagsstofn-
unar og heimilaði vegagerðina, en
hún er í andstöðu við umhverfismat
og álit allra sérfræðinga, stofnana og
náttúruverndarfélaga. Málið vannst
fyrir héraðsdómi en fer fyrir Hæsta-
rétt vegna áfrýjunar Vegagerðar rík-
isins. Vonandi fellur sá dómur á sama
veg náttúru, umhverfi og mannlífi til
bóta. Fuglavernd hefur viðrað þá
hugmynd að svæðið yrði gert að
þjóðgarði sem mætti vel tengja sam-
an við friðlönd í Vatnsfirði og á
Rauðasandi og Látrabjargi. Í dag er
enginn þjóðgarður á Vestfjörðum, en
þjóðgarðar sameina náttúruvernd
við ferðaþjónustu og töluverða at-
vinnuuppbyggingu og væri kjörið
tækifæri fyrir framtíðarvöxt mann-
lífs á Vestfjörðum í sátt við umhverf-
ið.
EINAR ÓLAFUR
ÞORLEIFSSON,
náttúrufræðingur.
Djúpifjörður, Gufufjörður og Teigs-
skógur – Vegagerð á villigötum
Frá Einari Ólafi Þorleifssyni
HREIÐAR Þór Sæmundsson heitir
maður sem skrifar oft greinar um átök
Ísraela og þeirra þjóða sem eru svo
ólánsamar að hafa þá sem nágranna.
Af einhverjum mér óskiljanlegum
ástæðum hefur Hreiðar tekið að sér að
vera gjallarhorn árásarhers Ísraels
hér uppi á Íslandi. Hlutverki sínu trúr
skrifar hann í Morgunblaðið 12. maí
um árásina á Gaza um jól og áramót.
Hann vitnar í skýrslu Ísraelshers sem
sýnir auðvitað að allt tal um stríðs-
glæpi og fjöldamorð þeirra á íbúum
Gaza er bull og vitleysa. Hreiðar skrif-
ar að „Einu fjöldamorðin sem framin
voru á Gaza voru fjöldamorð Palest-
ínu-hlutdrægra fjölmiðla á æru Ísr-
aelsríkis“.
Samt skrifar hann að skýrslur hers-
ins sýni að a.m.k. 89 börn voru drepin
– og þá eru ótaldir nokkur hundruð
óbreyttir borgarar. En þetta eru ekki
fjöldamorð skv. mælistiku Hreiðars
Þórs.
Þar sem ég er á förum til kvik-
myndatöku á Gaza-svæðinu vill Hreið-
ar leggja mér línur um hvað ég eigi að
kvikmynda svo honum líki afrakst-
urinn. Mér sýnist að úr verði mjög
fróðleg mynd um ástandið í Palestínu
þar sem áherslan er á hið mikla upp-
byggingarstarf sem Ísraelar hafa unn-
ið fyrir Palestínumenn. M.a. telur
Hreiðar upp heilbrigðiskerfi og
menntunarátak sem sýnir hversu annt
ísraelskum stjórnvöldum er um fólkið í
Palestínu. Ég veit ekki hvernig mér
tekst að vinna verkið skv. þessari leið-
sögn en ég er tilbúinn að reyna. Aðal
tilgangur ferðarinnar er að koma til
skila gervilimum sem Össur Krist-
insson og hans aðstoðarfólk framleiða
og setja á Palestínumenn sem misst
hafa útlimi vegna stríðsins. Þennan
leiðangur kvikmyndum við og klippum
saman í heimildamynd. Þegar því er
lokið getum við svipast um eftir vitn-
isburði um umfangsmikla góð-
mennsku Ísraela sem Hreiðar lýsir af
svo mikilli innlifun. Nærtækast er að
spyrja Gaza-búa og biðja þá um að
sýna okkur einhver ummerki góð-
mennskunnar. Það ætti ekki að vera
erfitt ef trúa má Hreiðari varðandi
umfangið og helstu vitnin eru auðvitað
Palestínumenn sem eru þeir sem „lífs-
kjarabyltingin“ (að sögn Hreiðars)
beinist að.
HJÁLMTÝR V. HEIÐDAL
kvikmyndagerðarmaður.
„Lífskjara-
byltingin“
á Gaza
Frá Hjálmtý V. Heiðdal:
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út-
gáfudaga aðsendar umræðugreinar
frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt
til að hafna greinum, stytta texta í
samráði við höfunda og ákveða hvort
grein birtist í umræðunni, í bréfum
til blaðsins eða á vefnum mbl.is.
Blaðið birtir ekki greinar sem eru
skrifaðar fyrst og fremst til að
kynna starfsemi einstakra stofnana,
fyrirtækja eða samtaka eða til að
kynna viðburði, svo sem fundi og
ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Formið er undir liðnum „Senda
inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is.
Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Móttaka aðsendra greina