Morgunblaðið - 28.05.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.05.2009, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 8. M A Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 143. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «STAR TREK EÐA STAR WARS EINS OG TVENN ÓLÍK TRÚARBRÖGÐ «SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG ÞAÐ ER FRAMTÍÐ Í FISKINUM HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK R E Y K J A V Í K U N I V E R S I T Y VERKFRÆÐI TÆKNIFRÆÐI IÐNFRÆÐI Umsóknarfrestur er til 31. maí W W W .H R .I S HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úrskurðaði í gær ræningjana tvo, sem brut- ust inn í einbýlishús við Barðaströnd á Seltjarnarnesi á mánudagskvöldið var, í gæsluvarðhald til 3. júní. Þriðja mannsins, sem talinn er hafa verið í vitorði með þeim, var enn leitað í gær. Vitað er hver hann er. Mennirnir tveir voru yfirheyrðir í gær. Ekki fengust upplýsingar hjá lögreglu um hvað þar kom fram. Lögreglan handtók ræningjana tvo síð- degis í fyrradag. Þeir eru báðir fæddir 1989 og hafa áður komist í kast við lögin. Þýfið hafði ekki fundist síðdegis í gær, að sögn lögreglunnar. | 4 Ræningjarnir verða í gæsluvarðhaldi til 3. júní Morgunblaðið/Eggert  Gylfi Magnús- son viðskipta- ráðherra segir að með núver- andi gjaldeyr- isforða Seðla- bankans og lítið innstreymi gjald- eyris sé engin von til að halda genginu föstu. Það myndi enda með ósköpum, eins og í síðustu til- raun sem entist ekki daginn. Hins vegar finnst honum koma til greina að skoða þetta sem framtíð- arlausn. Meðal þeirra hugmynda sem stjórnvöld og aðilar vinnumark- aðarins hafa rætt í viðræðum um nýja þjóðarsátt, eða stöðugleika- sáttamála, er að festa gengi krón- unnar. Hefur verið miðað við að gengisvísitalan, sem nú er í um 227 stigum, fari niður í 160 til 170 stig, og evran gæti farið úr 177 krónum í um 125 krónur. »13 Fastgengisstefnan sem rætt er um ekki raunhæf við núverandi aðstæður Gylfi Magnússon  Þingflokkar Samfylking- arinnar og Vinstri grænna funduðu fram á kvöld í Þjóð- minjasafninu í gær og var þar rætt um nauðsyn- legar aðgerðir í ríkisfjármálum. Þar á meðal þarf að ráðast í niðurskurðaraðgerðir og skattahækkanir til að brúa um 20 milljarða bil á þessu ári. Reiknað var með um 150 milljarða halla á þessu ári en að óbreyttu verður hann 170 milljarðar. »2 Skera þarf niður til að brúa 20 milljarða bil á árinu Steingrímur J. Sigfússon  Heimildir herma að enginn ís- lenskur sérfræðilæknir starfandi erlendis vilji koma til starfa á Ís- landi eins og sakir standa. Nýlega var auglýst staða geðlæknis á Landspítalanum, en enginn sótti um. Hingað til sýnir reynslan að 80% af þeim sem fara út í sérnám koma aftur, en nú eru heimturnar að sögn verri en nokkru sinni fyrr. »6 Íslenskir sérfræðilæknar koma ekki heim í ástandinu Að Lífeyrissjóði verzlunarmanna undanskildum hafa engar manna- breytingar orðið í stjórnum stærstu lífeyrissjóða landsins þrátt fyrir af- komuna í fyrra. VIÐSKIPTI Litlar breytingar á stjórnum sjóða Bakkabræður telja aðgerðir skila- nefnda gömlu bankanna og Nýja Kaupþings gegn Exista ekkert ann- að en skemmdarverk. Hugsað sé meira um persónur en hagsmuni. Bankarnir beiti Exista ofbeldi Skilanefnd Glitnis mun leggja nýju félagi sem hefur verið stofnað um starfsemi Sjóvár til fjármagn. Þór Sigfússon hættir sem forstjóri og sest Hörður Arnarson í stól hans. Sjóvá fær nýtt fé og Þór hættir Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is SJÁLFSTÆÐIS- og framsókn- armenn náðu í gær samkomulagi um að leggja fram þingsályktunartillögu um Evrópusambandið (ESB) í sam- einingu. Með henni vonast þeir til þess að fá stuðning frá a.m.k. hluta þingflokks Vinstri grænna. Meginatriði tillögu sjálfstæðis- og framsóknarmanna, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins, er að utanrík- ismálanefnd Alþingis verði falið það hlutverk að tryggja að meginhags- munir Íslands í aðildarviðræðum við ESB hafi fengið fullnægjandi umfjöll- un áður en endanleg ákvörðun um að- ildarumsókn er tekin. Þá er lagt til að nefndin setji saman greinargerð um mikilvægustu hagsmuni Íslands vegna aðildarviðræðna við ESB og vinni vegvísi sem taki til umfjöllunar helstu álitamál. Vinnunni skal vera lokið fyrir 31. ágúst, samkvæmt til- lögunni. Í vegvísinum skal fjalla um aðkomu þjóðarinnar að aðildar- umsókn og staðfestingu samnings, hvernig viðræðunefnd við ESB skuli skipuð, með hvaða hætti upplýsingar berist til Alþingis á meðan aðild- arviðræður standa yfir og hvaða stjórnarskrárbreytingar séu nauð- synlegar í tengslum við inngöngu í ESB. Þá segir einnig í tillögunni að tilgreint skuli hvernig opinberum stuðningi við kynningu á niðurstöðum viðræðna við ESB skuli háttað, og áætlun um kostnað liggi fyrir. Tillagan verður lögð fram í dag. Össur Skarphéðinsson utanrík- isráðherra mun einnig tala fyrir þingsályktunartillögu um ESB í dag sem ríkisstjórnin hefur samþykkt. Ljóst er þó að hluti þingflokks Vinstri grænna mun ekki styðja þá tillögu. Þreifingar um þennan möguleika hafa átt sér stað á milli formanna flokkanna, Bjarna Benediktssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, alveg síðan niðurstaða ríkisstjórn- arinnar í Evrópumálum varð ljós. Vilja stuðning frá VG  Sjálfstæðis- og framsóknarmenn vilja að utanríkismálanefnd Alþingis undirbúi mögulega umsókn í ESB  Freista þess að þingmenn VG styðji tillöguna Bjarni Benediktsson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.