Morgunblaðið - 28.05.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.05.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 42 04 0 04 .2 00 8 JÓHANNA ÁR hélt frá Njarðvíkurhöfn síðastlið- inn þriðjudag til hrefnuveiðanna. Á innan við sólarhring höfðu skipverjar veitt þrjú dýr í Faxaflóa. Kjötið verður komið í verslanir í síð- asta lagi á morgun, að því er Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Félags hrefnuveiði- manna, greinir frá. Hann kveðst hafa fengið margar hringingar frá verslunum. „Þær bíða spenntar,“ segir hann. Kílóverðið verður 1.498 krónur út úr búð, að sögn Gunnars. „Hrefnukjötið verður selt úr kjöt- borði. Það verður einnig hægt að fá það marín- erað í lofttæmdum umbúðum en það er nýjung. Kjötinu munu svo fylgja leiðbeiningar um mat- reiðslu.“ Skipverjar á Jóhönnu ÁR veiddu þrjár hrefnur í fyrsta túrnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Hrefnukjötið verður komið í verslanir fyrir helgi „Við erum að skoða í verkfærakass- ann. Við erum hvorki að boða til greiðsluverkfalls né sérstakra að- gerða, heldur skoða mögulegar að- gerðir. Þær eru fjölmargar,“ segir Friðrik Ó. Friðriksson, stjórnarmað- ur í Hagsmunasamtökum heimil- anna og framsögumaður á fundi þeirra í gærkvöld um aðgerðir. Að sögn Friðriks eru þrír hópar líklegastir til þess að taka þátt í að- gerðum samtakanna. „Það eru þeir sem eru hreinlega komnir í þrot og það fjölgar ört í þeim hópi. Síðan er það hópur sem hefur verið falinn í kerfinu. Það eru þeir sem eru með gengistryggð lán í frystingu. Þau teljast í skilum en þegar þau þiðna stendur fólk frammi fyrir svo gríð- arlegri skuldsetningu að því dettur ekki í hug að reyna að borga.“ Þriðji hópurinn er fólk á fimm- tugs- og sextugsaldri auk töluverðs hóps úr millistétt, að sögn Friðriks. „Réttlætiskennd þessa hóps er of- boðið. Fólk segist ekki lengur taka þátt í þessu. Það neitar að láta hækka hjá sér höfuðstólinn og taka á sig skuldbindingar sem það kom engan veginn að. Þetta fólk virðist einnig vera tilbúið í aðgerðir,“ segir Friðrik. Mögulegar aðgerðir auk greiðslu- verkfalls eru að sögn Friðriks m.a. uppsögn á ákveðinni þjónustu, flutn- ingur viðskipta, minnkun veltu og neyslu, fjármagnsflutningar, mót- mæli, áskoranir og kærur. Friðrik leggur áherslu á að Hags- munasamtök heimilanna hafi aldrei talað um niðurfellingu skulda, held- ur að verðbótaþátturinn verði leið- réttur miðað við hámarksviðmið Seðlabankans, það er 4 prósent. ingibjorg@mbl.is Millistétt einnig ofboðið Hagsmunasamtök heimilanna fund- uðu um aðgerðir Í HNOTSKURN »Hagsmunasamtök heim-ilanna voru stofnuð í jan- úar síðastliðnum. Þau eru frjáls og óháð hagsmuna- samtök á neytendasviði. »Samtökin hafa það meðalannars að markmiði að knýja fram leiðréttingu verð- tryggðra og erlendra húsnæð- islána og jafna ábyrgð milli lántakenda og lánveitenda, að því er segir á heimilin.is. EINUNGIS 6% bera traust til Fjármálaeftirlits- ins og bankakerf- isins samkvæmt nýrri könnun MMR. Traust til banka og FME eykst þó frá könnuninni í des- ember. Þá sögð- ust 80,2% bera lít- ið traust til Fjármálaeftirlitsins en 70,1% nú og 80,1% sagðist bera lítið traust til bankakerfisins en 71,6% nú. Um síma- og netkönnun var að ræða og tóku 845 einstaklingar þátt í henni 7.-14. maí 2009. 6% treysta FME en traustið vex frá desember FME Lítið traust á FME en eykst þó. SLÖKKVILIÐIÐ á Bíldudal var kallað að bænum Otradal í gær vegna sinubruna. Þegar slökkvilið- ið kom á staðinn hafði ábúanda tekist að slökkva eldinn. Þá var slökkviliðið á Egilsstöðum kallað að Miðhúsum á Héraði vegna sinubruna. Þar er skógrækt og var talin hætta á að eldurinn gæti skað- að hana, að sögn lögreglu. Greið- lega gekk að slökkva eldinn og urðu engar skemmdir á skóginum. Enn brennur sina Vel tókst að slökkva í sinunni. Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is STJÓRNVÖLD munu grípa til stór- felldra aðhaldsaðgerða á næstu misserum, auk þess sem skattar verða hækkaðir til að freista þess að brúa um 20 milljarða bil á þessu ári. Gert var ráð fyrir rúmlega 150 millj- arða halla á þessu ári en útlit er fyrir að hann verði um 170 milljarðar að óbreyttu. Því er þörf á aðgerðum hið fyrsta. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra og Indriði H. Þorláks- son fjölluðu um stöðuna í ríkisfjár- málum og áætlanir sem eru framundan á fundi með þingflokkum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í Þjóðminjasafninu í gær. Tillögur um niðurskurð og skatta- hækkanir verða kynntar stjórn- arandstöðunni á næstunni. Vonast er til þess að hægt verði að kynna langtímaáætlun um stefnu í rík- isfjármálum snemma í næsta mán- uði. Fyrir liggur að mikill nið- urskurður verður í ríkisrekstri á næsta fjárlagaári. Vinnu við stefnumótun í ríkisfjár- málum hefur verið hraðað að und- anförnu, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, til þess að flýta fyr- ir því að skilyrði til stýrivaxtalækk- unar geti skapast. Stýrivextir eru nú 13 prósent en peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur sagt að vextir kunni að lækka í næsta mán- uði, náist markmið um skýrari sýn í efnahagsmálum, þar á meðal í rík- isfjármálum. Indriði sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að stefnan í ríkisfjár- málunum væri að taka á sig skýra mynd, en verkefnið framundan væri erfitt. Því myndi fylgja „sársauki“ en það væri ekki óyfirstíganlegt. Ráðast þarf strax í niðurskurð Þingflokkar stjórn- arflokkanna funduðu Langtímaáætlun í ríkisfjármálum Verkefnið ekki óyfirstíganlegt  Stjórnvöld þurfa að brúa um 20 milljarða króna bil á þessu ári til að halda áætlun  Mikill nið- urskurður á næsta ári  Útlit fyrir 170 milljarða króna halla á þessu ári en reiknað var með 150 Morgunblaðið/Golli Fundað í Þjóðminjasafni Þingmenn stjórnarflokkanna funduðu í Þjóðminja- safninu í gærkvöldi og fóru yfir hvar skera bæri niður í ríkisfjármálum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.