Morgunblaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2009 ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 46 50 6 06 .0 9 • Á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkurwww.or.is er ítarlegt fræðslu og upplýsingaefni sem vert er að kíkja á. www.or.is Sérstök athöfn kl. 13:00 Af þessu tilefni mun borgarstjóri Reykjavíkur, Hanna Birna Kristjánsdóttir, afhjúpa fyrsta minningarskjöldinn sem borgaryfirvöld hafa ákveðið að setja á sögufræg hús og byggingar í Reykjavík. Athöfnin hefst á horni Laugavegar og Vatnsstígs kl. 13:00. Dagskrá • Slökkviliðið kemur á svæðið með 2 bíla, einn gamlan og annan nýjan • Brasssveitin spilar nokkur lög • Götuleikhúsið með gjörning • Ávarp borgarstjóra og afhjúpun merkisins • Borgarstjóri snýr sveif og skrúfar frá vatninu í brunahananum með aðstoð slökkviliðsins • Brasssveitin spilar tvö lög • Dagskrá lýkur Allir velkomnir. Hreint og kalt vatn í 100 ár Á morgun, 16. júní 2009, eru liðin 100 ár síðan vatni var hleypt á fyrstabrunahanann í Reykjavík. Þar stendur brunahani enn, við Kirkjuhúsið á horniLaugavegar og Vatnsstígs. Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is MENN frá Rannsóknarnefnd sjó- slysa könnuðu í gær tildrög þess þegar skútan Renus, með átta manns um borð, steytti á skeri inn- arlega á Breiðafirði í gærmorgun. Skútan var á leiðinni inn til Búð- ardals þegar þetta gerðist og var þá í svokallaðri Hvammsfjarðarröst. Vegna vélarbilunar varð skútan stjórnlaus í mikum straumi. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð kl. 10.46 í gærmorgun. Ekki kom strax fram hvar báturinn var.Við nánari athug- un reyndist hann vera á milli Norð- ureyjar og Kjóeyjar, um sjö sjómílur norðaustur af Stykkishólmi. Kall- aðar voru út allar björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á svæðinu auk þyrlu Landhelgisgæsl- unnar. Einnig var kallað til báta á svæðinu. Skemmtibáturinn Axel Sveinsson dró Renus inn til hafnar og var þangað kominn um hádegisbil. Kaf- ari kannaði botn skútunnar þar sem kom í ljós að brotnað hafði upp úr kili hennar en að öðru leyti eru skemmdir ekki miklar og átta manns sem voru um borð í skútunni sakaði ekki. Að sögn lögreglunnar í Stykkis- hólmi er talið að skipstjóri skút- unnar hafi verið utan merktrar sigl- ingaleiðar þegar þetta gerðist og því lent upp á hinu skaðvænlega skeri. Stjórnlaus skútan steytti á skeri í Hvammsfjarðarröstinni Ljósmynd/Þorsteinn Garðarsson Í höfn Skútan var dregin til hafnar í Stykkishólmi. Skemmdir voru litlar. UM 80% þeirra 498 nemenda sem brautskráð- ust frá Háskól- anum í Reykjavík og ætla sér út á vinnumarkaðinn eru þegar komn- ir með vinnu. Þetta kom fram við brautskrán- ingu frá skól- anum á laugardag. Alls 147 braut- skráðust með meistaragráðu, 282 með bakkalárgráðu, 46 með dip- lómapróf og 23 með frumgreina- próf. Karlar voru 54% braut- skráðra nema að þessu sinni. sbs@mbl.is 80% brautskráðra úr Háskóla Reykja- víkur með vinnu Rektor Svafa Grönfeldt JÓHANN Örlygsson og Hafdís Skúladóttir fengu hæstu styrkina, eina milljón króna, þegar úthlutað var úr Háskólasjóði KEA á laug- ardag. Jóhann fékk styrk til kaupa á gasaðgreiningartæki og Hafdís til að fjármagna kaup á kennsluhermi. Þeir Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhentu styrkina. Þetta er í sjöunda sinn sem út- hlutað er úr Háskólasjóði KEA. Veittir eru námsstyrkir, styrkir til rannsókna, búnaðarkaupa og sérverkefna og veitt eru verðlaun vegna árangurs til nemenda í við- skipta- og raunvísindadeild. Úthlutað úr Háskólasjóði KEA Styrkhafar KEA veitti styrki fyrir 7,6 milljónir króna. ÞINGFLOKKUR VG á að beita sér gegn því að frek- ari skref verði stigin í átt til Evrópusam- bandsaðildar og hafna þings- ályktunartillögu Samfylking- arinnar um að- ildarviðræður. Það er áskorun Félags Vinstri- hreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði. Félagið minnir á sam- þykktir flokksins og yfirlýsingar fyrir nýliðnar alþingiskosningar þar sem Evrópusambandsaðild sé alfarið hafnað og ítrekar að hags- munum Íslendinga sé best borgið utan sambandsins. Vinstrimenn í Skagafirði gegn ESB Fjármálaráðherra Skora á Steingrím.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.