Morgunblaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2009 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó SÝND Í SMÁRABÍÓI ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 750kr. 750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA Terminator: Salvation kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Angels and Demons kl. 5:30 - 8:30 B.i. 14 ára Night at the museum 2 kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ X-Men Origins: Wolfe... kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára Angels and Demons kl. 8 - 10:40 B.i.14 ára Boat that rocked kl. 8 - 10:40 B.i.12 ára Draumalandið kl. 6 LEYFÐ Ghosts of Girlfriends Past kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára Terminator: Salvation kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára Gullbrá og birnirnir þrír kl. 6 LEYFÐ 750kr. 750k r. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Vinsælasta myndiní heiminum í dag SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Ó.H.T., Rás 2 -M.M.J., kvikmyndir.com -T.V., - kvikmyndir.is - S.V., MBL 3 viku r á toppn um 750kr. Frábær ævintýra gamanmynd í anda fyrri myndar! Toppm yndin á Íslan di í da g 750kr. Ghosts of Girlfriends Past kl. 5:50 - 8 - 10:00 B.i. 7 ára Terminator Salvation kl. 8 - 10:10 B.i.12 ára Gullbrá og birnirnir þrír kl. 5:50 LEYFÐ 750 kr almennt 600 kr börn FRÁBÆR GAMANMYND Í ANDA WEDDING CRASHERS Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Frábær teiknimynd fyrir alla fjöl- skylduna með íslensku tali. Þetta er hið klassíka ævintýri um Gullbrá og birnina 3 í nýrri og skemmtilegri útfærslu. SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI Ó.H.T., Rás 2 -M.M.J., kvikmyndir.com -T.V., - kvikmyndir.is - S.V., MBL Þær koma ekki tilgerðar-legri og fyrirsjáanlegri ennýjasti McConaughey-súkkulaðibúðingurinn. Ghosts of Girlfriens Past hefur af litlu öðru að státa en titli – sem gef- ur góðar en falskar vonir. Enda enginn Dickens í sjónmáli. Mead Connor (McConaughey) er kominn aftur heim á æskuslóðirnar í Massachusetts til að vera svara- maður í brúðkaupi bróður síns. Mead er þekktur, miðaldra tísku- ljósmyndari og kvennagull sem virðist hafa náð rjóma kvenþjóð- arinnar úr brókunum og er hvergi nærri hættur. Aumingja Mead, kvensemin sem er að ríða honum að fullu, stafar af því að hann óttast skuldbindingar og flúði af hólmi morguninn eftir að hann komst yfir æskuástina, Jenny (Garner). Síðan hefur hann verið með trollið úti og orðspor hans farið víða. Allt breytist til hins betra í brúð- kaupinu, vitinu er komið fyrir kvennabósann – og það úr ólíkleg- ustu átt – að handan. Í móttöku- nefndinni eru nokkrir uppvakn- ingar; Wayne sálugi frændi hans (Douglas) og fáeinar kærustur sem hann hafði niðurlægt á lífsleiðinni. Þær sýna honum hvers konar skít- hæll hann er og hann iðrast og skælir og einhvers staðar býr bið- lund með æskuástinni, hún vissi nefnilega alla tíð að undir bósagrím- unni slær göfugt en viðkvæmt hjarta valmennisins. Myndin er gerð í kringum boru- bratta persónu McConaughey, í hlutverki hins ómótstæðilega kvennagulls – sem hann telur greinilega sjálfan sig vera. Myndin sannar hinsvegar aðeins það sem löngu er ljóst, að McConaughey er takmarkaður leikari á hraðbyri nið- ur á við. Hér gefur einnig að líta Michael Douglas og Ann Archer, sem léku á sínum tíma saman í Fatal Attraction (’88), frábærri mynd sem ég bendi fólki á að sjá frekar en þennan dans í kringum McConaughey. Hér bregður einnig fyrir Robert Forster (í döpru hlut- verki tengdapabba) og Garner er glæsileg sem fyrr. Ekkert er til sparað í leiktjöldum, búnaði og tökustöðum í velsældinni á Nýja Englandi þar sem Dom Per- ignon flýtur úr hverju glasi, en því miður stendur innihaldið engan veg- inn undir umgjörðinni. Af og til stingur upp kollinum ádeila á inni- haldsleysi og vansæld þess sem ger- ir sér að leik að troða á tilfinningum annarra, en því miður er hún oftast of djúpt undir froðunni og týnist gjörsamlega í meðförum McCon- augheys. saebjorn@heimsnet.is Froða „Myndin sannar hinsvegar aðeins það sem löngu er ljóst, að McCo- naughey er takmarkaður leikari á hraðbyri niður á við,“ segir meðal annars í dómi gagnrýnanda. Bósinn bætir ráð sitt Sambíóin Ghosts of Girlfriends Past bbnnn Leikstjóri: Mark Waters. Aðalleikarar: Matthew McConaughey, Jennifer Garn- er, Breckin Meyer, Lacey Chabert, Ro- bert Forster, Anne Archer, Michael Dou- glas. 102 mín. Bandaríkin. 2009 SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Einn af þeim rosknu leikurum sem eiga að gefa Girls… ein- hverja vigt, er Robert Forster. Hann átti athyglisverðan feril á tímabili sem hófst með Reflec- tion in a Golden Eye (’67), fá- séðri en magnaðri mynd Johns Huston um dulda samkyn- hneigð herforingja (Marlon Brando.) Afskipt eiginkona hans var leikin af Elizabeth Tay- lor, en Forster brokkaði um landareign þeirra hjóna á Adamsklæðum einum. Myndin vakti athygli á hinum unga og gjörvilega Forster, sem fékk fljótlega hlutverk í vestra Pakula, The Stalking Moon og Medium Cool, gagnrýnni mynd Haskells Wexler um hið sögu- fræga, mislukkaða ársþing demókrata í Chicago ’68. Forster er minnisstæður sem sjónvarpstökumaðurinn og var búist af miklu af honum, en For- ster féll smám saman í skugg- ann af nýjum stjörnum en hefur verið vinsæll í sjónvarpsþáttum og -myndum síðustu 40 árin. Hann átti sterka endurkomu í Jacky Brown (’97), sem hann getur þakkað Tarantino. Síðan hafa sjónvarp og B-myndir tekið yfirhöndina á nýjan leik. Robert Forster Augnablikin hans Forsters TALIÐ er að um 400 manns hafi mætt til útfarar leikarans Davids Carradine, sem lést sem kunnugt er í Bankok á dög- unum. Meðal þeirra sem fylgdu Carra- dine voru kollegar hans Jane Seymo- ur, Tom Selleck, Daryl Hannah og Lucy Liu, en þær tvær síðastnefndu léku meðal annars með honum í Kill Bill-myndum Tarantinos. Mikil öryggisgæsla var við útför- ina og gættu verðir þess að enginn óboðinn kæmist inn. Meðal laga sem leikin voru við útförina voru „Let It Be“ Bítlanna og „Requiem for a Fall- en Hero“ eftir Beethoven. Dánarorsök óljós Rannsókn á andláti Carradine, sem var 72 ára, stendur enn yfir, en sjálfsvíg hefur verið útilokað sem dánarorsök. Carradine var kvæntur Annie Bierman og áttu þau fjögur börn. Hann lék í yfir 100 kvikmyndum á ferlinum en var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Kwai Chang Caine í sjónvarpsþáttunum Kung Fu. Reuters Minning Fjöldi fólks hefur lagt blóm við stjörnu David Carradine á frægðarstéttinni í Hollywood. Carradine borinn til grafar David Carradine

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.