Morgunblaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 19
Umræðan 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2009
Vesturtún 49a
225 Álftanes
Mjög fallegt og tignarlegt parhús
Stærð: 148,1 fm
Fjöldi herbergja: 4
Byggingarár: 1997
Brunabótamat: 33.445.000
Bílskúr: Já
Verð: 38.900.000
Mjög barnvænt hverfi stutt í skóla, sundlaug og aðra þjónustu Eignin skiptist sem hér segir: Neðri hæð :
Flísalögð, rúmgóð forstofa með skápum. Innaf forstofu er stórt parketlagt barnaherbergi . Gott eldhús
með fallegri innréttingu og borðkrók. Samliggjandi stofa og borðstofa , parket á gólfi. Baðherbergi með
sturtu, flísalagt. Gott þvottahús með innréttingu. Innaf þvottahúsi er innangengt í bílskúrinn
.Stórt,parketlagt barnaherbergi . Hjónaherbergi með fataherbergi og skrifstofuhorni.
Lind
Þórarinn Jónsson
Lögg. fast. hdl.
Hannes
Steindórsson
S:
thorarinn@remax.is
hannes@remax.is
Opið
Hús
Mánudaginn 15.júní frá 18:30 -19:00
RE/MAX Lind - Bæjarlind 14-16 - 201 Kópavogur - Sími: 5209500 - www.remax.is
699 5008
Ertu að taka þátt
í ljósmyndakeppni
mbl.is & canon?
Prentaðu myndina þína
á striga fyrir aðeins
4.950 kr.
með heimsendingargjaldi.
HINN 22. maí sl.
boðaði umhverf-
isráðneytið og Nátt-
úrufræðistofnun Ís-
lands til fundar þar
sem umræðuefnið var
ágengar framandi teg-
undir. Þar gáfu fjórir
sérfræðingar yfirlit
um stöðu mála hér-
lendis og nýr umhverf-
isráðherra boðaði að-
gerðir. Þetta var á degi sem
helgaður er baráttunni um verndun
líffræðilegrar fjölbreytni. Sú
ískyggilega mynd sem fyrirlesarar
drógu upp af innrásartegundum
(invasive species) og þróun mála
hérlendis kom eflaust mörgum á
óvart. Við blasir af hálfu íslenskra
stjórnvalda og opinberra stofnana
áratuga aðgerðaleysi og brot gegn
lagafyrirmælum og alþjóðlegum
skuldbindingum. Nú reynir á nýja
ríkisstjórn og ráðherra að bregðast
hart við og samræma aðgerðir.
Lagarammi og
skuldbindingar
Seytján ár eru liðin frá und-
irritun alþjóðasamningsins um
verndun líffræðilegrar fjölbreytni á
ráðstefnunni í Rio de Janeiro 1992.
Í honum segir m.a. að aðilum að
samningnum beri „að koma í veg
fyrir að fluttar séu inn erlendar
tegundir sem ógna vistkerfum, bú-
svæðum eða tegundum, að öðrum
kosti stjórna þeim eða uppræta
þær“. (grein 8.h) – Athygli vekur að
á upplýsingavef umhverfisráðuneyt-
isins hefur íslensk þýðing samn-
ingsins ekki verið aðgengileg þótt
hana megi finna í Stjórnartíðindum.
Við endurskoðun laga nr. 44/1999
um náttúruvernd var tekið inn
ákvæði um innflutning, ræktun og
dreifingu lifandi lífvera (41. grein).
Samkvæmt henni skal umhverf-
isráðherra kveða á um skráningu,
innflutning, ræktun og dreifingu lif-
andi framandi lífvera hérlendis og
skipa sérfræðinganefnd stjórnvöld-
um til ráðgjafar um þessi efni. Ráð-
herra gaf ári síðar á grundvelli lag-
anna út reglugerð varðandi
útlendar plöntutegundir (Rg.583/
2000) og setti jafnframt á fót sér-
fræðinganefnd um þau efni. Hlið-
stæðar reglugerðir hafa enn ekki
verið út gefnar um aðra lífveruhópa
en þó er til ráðgjafanefnd um inn-
flutning dýra.
Áfellisdómur
Ríkisendurskoðunar
Í janúar 2006 kom út á vegum
Ríkisendurskoðunar skýrsla undir
heitinu „Samningurinn
um líffræðilega fjöl-
breytni – Umhverf-
isendurskoðun“
(http://www.rikisend-
urskodun.is/files/
skyrslur_2006/
liffraedileg.pdf ). Þar
var að frumkvæði
stofnunarinnar fjallað
um áhrif og stöðu
þessa alþjóðasamnings
á grundvelli heimildar
í 9. grein laga nr. 86/
1997 um Ríkisend-
urskoðun þar sem segir: „Þá getur
hún [Ríkisendurskoðun] kannað
hvernig stjórnvöld framfylgja áætl-
unum, lagafyrirmælum og skuld-
bindingum á sviði umhverfismála.“
Í skýrslunni kemur glöggt fram
það fádæma tómlæti og vanræksla
sem þjóðréttarsamningur þessi
hafði fram að þeim tíma sætt af
hálfu íslenskra stjórnvalda. Þó
höfðu nokkrir alþingismenn með
fyrirspurnum á Alþingi ítrekað
vakið athygli á fálæti um þennan
mikilvæga alþjóðasamning. Í
skýrslunni segir m.a.: „Að öllu sam-
anteknu telur Ríkisendurskoðun að
aðild Íslands að samningnum hafi
haft mjög takmörkuð áhrif á ís-
lenska löggjöf og opinbera stefnu á
sviði líffræðilegrar fjölbreytni. …
Sérstaka athygli vekur hve tak-
mörkuð áhersla virðist lögð á nátt-
úrufræðilegar rannsóknir hér á
landi. … Æskilegt er að Alþingi og
stjórnvöld skoði hvort tilefni kunni
að vera til að fela tilteknu stjórn-
valdi sérstaklega það hlutverk að
fylgjast með hvernig staðið er að
verndun og varðveislu líf-
fræðilegrar fjölbreytni á Íslandi.
Að hluta til sinna Náttúru-
fræðistofnun Íslands og Umhverf-
isstofnun slíku verkefni, en þarna
skortir engu að síður almenna yf-
irsýn. Þá virðist líka skorta virkan
formlegan vettvang til að eðlilega
verði staðið að innleiðingu og fram-
fylgd samningsins hér á landi.“ Á
heildina litið var skýrsla Ríkisend-
urskoðunar orð í tíma töluð og ef-
laust varð hún til þess að ýta við
stjórnvöldum sem loks í ágúst 2008
samþykktu fyrstu stefnumörkunina
um framkvæmd samningsins.
Samstilla verður kraftana
Hér er ekki rúm til að fjalla um
það sem sérfræðingar drógu fram
um fjölda aðfluttra lífvera jafnt
dýra og plantna á nýafstaðinni ráð-
stefnu. Flestir sem gefa gaum að
íslenskri náttúru þekkja dæmi um
þróunina á þessu sviði og minkur
og lúpína hafa lengi verið á allra
vitorði sem vágestir. Alþekkt er að
vistkerfi einangraðra eyja eru við-
kvæmust fyrir innflutningi og
dreifingu framandi lífvera og þar er
Ísland engin undantekning. Yf-
irstandandi loftslagsbreytingar
grípa róttækt inn í þessa þróun og
þörfin á greiningu og vöktun er
þeim mun brýnni. Af reynslu er-
lendis frá má margt læra þótt að-
stæður í hverju landi séu sér-
stæðar. Nefna ber sérstaklega
Nobanis-verkefnið um framandi
ágengar tegundir (http://nob-
anis.slu.se) en tengiliður þess hér-
lendis er Sigurður H. Magnússon á
Náttúrufræðistofnun. Þá er á veg-
um Norrænu ráðherranefndarinnar
unnið að alþjóðlegu átaki til að
stöðva fyrir árið 2010 tap á líf-
fræðilegri fjölbreytni („Niðurtaln-
ing 2010“) en Ísland er þar ekki
formlegur aðili. – Bág staða á
þessu sviði hérlendis helgast m.a.
af því að opinberar stofnanir eins
og Skógrækt ríkisins og Land-
græðslan hafa unnið gegn mark-
miðum samningsins þótt ekki séu
þar allir undir sömu sök seldir. Á
því verður vonandi breyting fyrr en
seinna undir forystu umhverfis- og
auðlindaráðuneytis.
Verndun líffræðilegrar
fjölbreytni í mótbyr hérlendis
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Við blasir af hálfu
íslenskra stjórn-
valda og opinberra
stofnana áratuga
aðgerðaleysi og brot
gegn lagafyrirmælum
og alþjóðlegum
skuldbindingum.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
ER ÞAÐ svona mikilvægt,
eins og af er látið, að ganga end-
anlega frá efnahagsreikningum
nýju bankanna og aðgreina þá
endanlega frá þeim gömlu? Á
ekki ríkið þetta allt? Ég sé a.m.k.
ekki að þetta skipti miklu fyrir
rekstur nýju bankanna. Við-
skiptaráðherra á að krefjast þess
fyrir hönd eigenda, að nýju
bankarnir séu reknir með hagn-
aði í hverjum mánuði og reka
bankastjóra ef tap myndast þrjá
mánuði í röð. Bankinn verður að
haga innláns- og útlánsvöxtum
sínum með hliðsjón af þessu.
Hvort viðskiptavinir færist milli
ríkisbanka skiptir engu í þessu
samhengi. Þetta kemur vaxta-
leikjum Seðlabankans ekkert við,
enda er sá banki áhrifalaus með-
an gjaldeyrishöft eru hér og eitt-
hvað lengur.
Nú um mundir er það einvörð-
ungu framboð og eftirspurn pen-
inga sem á að ráða vöxtum og
gerir það ef bankastjórum leyfist
ekki að velta hvaða tapi sem er
yfir á ríkissjóð. Menn geta verið
í tölvuleikjum með efnahags-
reikninga nýju bakanna, en nið-
urstaðan breytir engu fyrr en
farið verður að selja þá. Meira
máli skiptir hvernig til tekst með
gömlu eignirnar. Mér sýnist að
samkomulag ríkisvaldsins í Ice-
save-deilunni geti orðið þol-
anlegt, ef Alþingi samþykkir að
krefjast skaðabóta af Efnahags-
bandalaginu fyrir eyðileggingu
eigna gömlu bankanna með beit-
ingu gallaðra reglna bandalags-
ins og misbeitingu valds ein-
stakra aðildarríkja. Eitthvert
slíkt mótvægi við erlendar kröfur
verður að vera til staðar.
Halldór I. Elíasson
Bankarekstur
Höfundur er prófessor emeritus..
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út-
gáfudaga aðsendar umræðugrein-
ar frá lesendum. Blaðið áskilur
sér rétt til að hafna greinum,
stytta texta í samráði við höfunda
og ákveða hvort grein birtist í um-
ræðunni, í bréfum til blaðsins eða
á vefnum mbl.is.
Blaðið birtir ekki greinar, sem
eru skrifaðar fyrst og fremst til að
kynna starfsemi einstakra stofn-
ana, fyrirtækja eða samtaka eða
til að kynna viðburði, svo sem
fundi og ráðstefnur.
Þeir sem þurfa að senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Formið er undir liðnum
„Senda inn efni“ ofarlega á for-
síðu mbl.is. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/senda-
grein.
Ekki er lengur tekið við grein-
um sem sendar eru í tölvupósti.
Móttaka
aðsendra greina
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100