Morgunblaðið - 15.06.2009, Síða 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Heilsa
Smart Motion hlaupastíls-
námskeið
Viltu læra að hlaupa á léttari máta?
Með minna álagi á fætur, liði og
mjóbak? Komdu á hlaupastíls-
námskeið. www.smartmotion.org
s. 896 2300.
Húsnæði óskast
Vantar íbúð til leigu í Vesturbæ
90 þús. Ung barnlaus hjón óska eftir
íbúð til langtímaleigu í Vesturbæ
Reykjavíkur. Svæði 101/107/170.
Hámarksleiga 90 þús. Góð umgengni
og tryggar greiðslur. Hafið samband
við Kristinn í síma 898 5040.
Atvinnuhúsnæði
Húsnæði fyrir bónstöð
Óska eftir að leigja húsnæði sem
hentaði fyrir bónstöð. Upplýsingar í
síma 862 5844, bv@vortex.is
HAFNARFJÖRÐUR -
Hagstæð leiga
Skrifstofur - vinnustofur - verslun.
30 m² 35.000 kr.
105 m² með sérinngangi 125.000 kr.
20 m² 24.000 kr. Sími 898 7820.
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu eignarlóðir Möðruvöllum 1
(Norðurnes) í Kjós. Upplýsingar í síma
561 6521 og 892 1938.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum til sölu
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Óska eftir
KAUPI GULL
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, er að kaupa gull,
gullpeninga og gullskartgripi og
veiti ég góð ráð og upplýsingar.
Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og
illa farið. Upplýsingar hjá
demantar.is og í síma 699-8000,
eða komið í Pósthússtræti 13.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari getur bætt við sig
verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Málningarvinna og múrviðgerðir
Getum bætt við okkur inni- og
útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og
góð umgengni. Tilboð eða tímavinna.
Lítið Mál ehf. S. 896-5758.
Ýmislegt
James Burn
International
Allt efni og vélbúnaður til
járngormainnbindingar.
Allt efni og vélbúnaður frá Fujifilm til
plasthúðunar.
Klöckner
pentaplast
Kápuplastefnið vinsæla rispfrítt - og
engin fingraför.
Vönduð vara frá viðurkendum
framleiðundum á mjög góðu verði.
Skútuvogi 1,G. sími 533-3535
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
Til sölu, 20 tommu felgur með
nýjum dekkjum ( Continental) 275
/ 35 R20. í . Passar fyrir Audi og Benz.
Verð 195.000 þús. Upplýsingar í síma
847- 1373.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Tjaldvagnar
Til sölu Camp-let, árgerð 1995,
Í góðu standi. Upplýsingar í síma:
892- 8379 og 568 -6086.
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Einkamál
Chat.is
Við spjöllum saman og kynnumst
nýju fólki á Chat.is. Það kostar ekk-
ert, og vefurinn er í boði á fjölda
tungumála.
Þrekhjól óskast
Óska eftir að kaupa þrekhjól.
Uppl. í síma 899 2757.
✝ Hermann Valdi-mar Sigfússon
fæddist á Blönduósi
29. júní 1937. Hann
lést á heimili sínu
sunnudaginn 7. júní
2009. Foreldrar Her-
manns Valdimars
voru Sigfús Berg-
mann, f. 5.12. 1911, d.
22. 1. 1997 og Þórunn
Sigurjónsdóttir, f.
1.9. 1915, d. 10.2.
2000. Þau slitu sam-
vistum. Systkini Her-
manns Valdimars,
samfeðra, eru Sigríður Helga, f.
1946, Ingibjörg Elín, f. 1949, Þor-
steinn, f. 1953 og Jóhann Guð-
mundur, f. 1954. Systkini Her-
manns Valdimars sammæðra eru
Brynhildur, f. 1940, Guðrún, f.
1942, Indíana Margrét, f. 1945,
Sigríður, f. 1949, d. 2004, Sig-
urlaug Jónína, f. 1950 og Björn, f.
1953. Hermann Valdimar ólst upp
hjá móður sinni á Blönduósi til sjö
ára aldurs en fluttist þá til Ísa-
Theodóra Sigurðardóttir, f. 1986.
2) María, f. 1960, maki Stefán
Rowlinson, f. 1958, börn þeirra eru
Guðjón Sigurður, f. 1978 og Jóna
Kristbjörg, f. 1990. 3) Guðjón Sig-
urður, f. 1962, d. 1977. 4) Hermann
Óskar, f. 1966, maki Margrét Birna
Sigurbjörnsdóttir, f. 1965, synir
þeirra eru Guðjón Sigurður, f.
1990 og Kristinn Ari, f. 1998. 5)
Þorsteinn Friðgeir, f. 1970, maki
Alda Björk Larsen, f. 1974, börn
þeirra eru Pálmi Larsen, f. 1999 og
María Ósk, f. 2009. Fyrir átti Þor-
steinn Friðgeir Írisi Leu, f. 1994 og
Alda Björk Önnu Valgerði, f. 1993.
6) Þórunn, f. 1974, maki Jóhann
Steinar Helgason, f. 1979, synir
þeirra eru Helgi Steinar, f. 2002 og
Hermann Valdimar, f. 2005. Fyrir
átti Þórunn Harald Geir, f. 1992.
Barnabarnabörn eru átta.
Hermann Valdimar og Sigríður
Ósk hófu búskap á Ísafirði en árið
1971 fluttist fjölskyldan suður.
Hermann Valdimar starfaði sem
bílstjóri á Ísafirði en fyrir sunnan
stundaði hann sjómennsku til árs-
ins 1995. Þá hóf hann sjálfstæðan
atvinnurekstur og keyrði sendibíl
allt fram á síðasta dag.
Útför Hermanns Valdimars
verður gerð frá Garðakirkju á
Álftanesi í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
fjarðar til föður síns
og fósturmóður Guð-
bjargar Salome Þor-
steinsdóttur, f. 8.1.
1919.
Hinn 29. mars 1959
kvæntist Hermann
Valdimar Sigríði Ósk
Óskarsdóttur frá Ísa-
firði, f. 23.10. 1939.
Foreldrar hennar
voru Óskar Að-
alsteinn Guðjónsson,
f. 1.5. 1919, d. 1.7.
1994 og Sigfríður
María Guðbjarts-
dóttir, f. 6.2. 1920, d. 30.10. 2008.
Hermann Valdimar og Sigríður
Ósk eignuðust sex börn. Þau eru:
1) Guðmundína Margrét, f. 1958,
maki Jón Benedikt Einarsson, f.
1953, börn þeirra eru Sigríður
Ósk, f. 1975, maki Róbert Magn-
ússon, f. 1973, Einar Kristján, f.
1979, Margrét Guðrún, f. 1981,
maki Magnús Brynjólfur Þórð-
arson, f. 1979, og Hermann Valdi-
mar, f. 1985, unnusta Ingibjörg
Í dag kveð ég minn ástkæra eig-
inmann með söknuði. Frá fyrstu
kynnum okkar hefur þú verið klett-
urinn í lífi mínu. Þegar við kynnt-
umst var ég nýbúin að ganga í gegn-
um erfiðan missi. En þú hjálpaðir
mér að finna gleðina og birtuna með
kærleika þínum í minn garð. Þú
bjóst yfir sterkum, rólegum og yf-
irveguðum persónuleika sem ein-
kenndi þig fram á síðasta dag.
Við hófum okkar búskap á æsku-
heimili mínu ásamt föðurbræðrum
mínum tveimur. Fljótlega eignuð-
umst við fyrsta barnið okkar en alls
urðu börnin sex. Þú varst alla tíð
vinamargur fyrir vestan og naust þín
alltaf vel í góðra vina hópi. Okkur
leið alltaf vel á Ísafirði en ákváðum
að breyta til og flytja suður.
Síðustu árin eftir að börnin fluttu
að heiman og við fórum að hafa meiri
tíma saman hafa böndin orðið sterk-
ari á milli okkar og við orðið miklir
vinir og félagar. Eftir lifir minningin
um góðan, traustan eiginmann og
skemmtilegan vin.
Elsku Hermann ég þakka þér fyr-
ir samfylgdina, þú munt verða með
mér í hjartanu mínu þó þú hafir
kvatt þennan heim eftir að hafa skil-
að stóru og miklu dagsverki.
Þín augu mild mér brosa
á myrkri stund
og minning þín rís hægt
úr tímans djúpi
sem hönd er strýkur mjúk
um föla kinn.
Þín minning björt
(Ingibjörg Haraldsdóttir.)
Þín,
Ósk.
Elsku pabbi, nú er komið að
kveðjustund sem ekkert okkar óraði
fyrir. Daginn sem þú kvaddir þenn-
an heim fórst þú að sofa að loknu
dagsverki en vaknaðir ekki aftur.
Við söknum þín svo mikið, við sem
áttum eftir að gera svo mikið saman,
en það er okkur huggun að hugsa til
þess að nú ert þú hjá Guðjóni bróður.
Á stund sem þessari streyma
minningar fram í huga okkar. Við
eigum svo margar góðar bernsku-
minningar því þú varst svo natin við
að skapa okkur tækifæri til að upp-
lifa náttúruna til leikja og gleði-
stunda. Þær voru ófáar ferðirnar
sem við fórum á skíði og skauta,
veiðiferðirnar inn í djúp voru líka
alltaf fastir liðir í tilverunni og ferða-
lögin um landið. Þá undirbjugguð þið
mamma ferðirnar alltaf vel og verka-
skiptingin var skýr. Áður en lagt var
af stað fyllti mamma kökuboxin af
heimabökuðum kleinum, snúðum og
vínarbrauðum, en þú hugsaðir fyrir
öllu varðandi bílinn og útilegudótið.
Þú varst svo handlaginn og natni
þín hafði engin takmörk. Þú lagðir
mikla áherslu á að hafa snyrtilegt í
kringum okkur. Það var sama hvað
var, alltaf gast þú gert við og lagað
það sem þarfnaðist viðgerðar. Við
strákarnir minnumst þess hvað þú
kenndir okkur margt um bíla og bíla-
viðgerðir. Þegar við systkinin stofn-
uðum heimili og leituðum til þín eftir
aðstoð við flísa- og parketlögn eða
annað viðhald varst þú boðin og búin
að hjálpa allt til síðasta dags. Í huga
okkar systkinanna varst þú heimsins
besti og klárasti pabbi. Þú gafst okk-
ur svo mikið og varst okkur alltaf svo
góð fyrirmynd sem hefur verið okk-
ur gott veganesti út í lífið.
Á þessari erfiðu stundu yljum við
okkur við ljúfar minningar og er
okkur þá ofarlega í huga gullbrúð-
kaup ykkar mömmu í mars síðast-
liðnum. Þá kom öll fjölskyldan sam-
an og þar varst þú í essinu þínu og
hafðir gaman af að rifja upp gamlar
minningar. Elsku pabbi, nærveru
þinni er ekki lokið því við vitum að þú
vakir yfir okkur. Minningin um
traustan og góðan föður mun lifa
með okkur um ókomin ár. Þökk fyrir
allt og allt.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
heimvon góð í himininn.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Hjartans kveðjur,
Guðmundína, María, Hermann,
Þorsteinn og Þórunn.
Þær voru þungbærar og nánast
óskiljanlegar fréttirnar sem bárust
mér um hádegi 7. júní, þær að ást-
kær tengdafaðir minn Hermann V.
Sigfússon, væri látinn. Hann sem var
svo hress og í fullri vinnu þrátt fyrir
að vera tæplega 72 ára.
Undanfarnir dagar hafa verið erf-
iðir en góðar minningar hafa þó yljað
okkur öllum sem þekktu Hermann.
Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi
að vera hluti af fjölskyldu hans í um
25 ár og minningarnar því margar.
Ég man þegar við Hemmi yngri vor-
um bara unglingar og vorum að hefja
líf okkar saman og hve velkomna í
fjölskylduna Hermann eldri lét mig
mér finnast. Ég man sjómannadags-
böllin þegar þeir feðgar voru saman
á Otri og Hermann eldri tók ekki
annað í mál en að fá að dansa við
tengdadóttur sína og sneri mér með
þvílíkum krafti á dansgólfinu að ég
mátti hafa mig alla við að halda í við
hann. Ég man brúðkaupsdag okkar
Hemma yngri, þegar þeir stóðu sam-
an upp við altarið og horfðu á mig og
föður minn ganga inn kirkjugólfið.
Ég man hversu góður afi hann var
sonum mínum. Ég man þegar Her-
mann eldri ætlaði að æfa golf og fór
með kúlu og kylfu út í garð. Hann
skaut kúlunni í gegnum tvær rúður í
bíl nágranna síns og ég held að hann
hafi ekki tekið kylfurnar upp eftir
þetta. Ég man þegar við fórum á
ættarmót á Blönduósi, hve glaður
hann var að hitta ættingja sína og
hve stoltur hann var þegar hann
kynnti börnin sín og fjölskyldur
þeirra. Ég man þegar hann sagði
mér að ég væri uppáhalds tengda-
dóttir hans. Hann átti reyndar bara
eina á þeim tíma enda fylgdi lúmskt
glottið með þessum orðum. Ég man
hve lævísan húmor hann hafði og
glettnina í augum hans þegar enginn
nema ég virtist skilja broddinn í því
sem hann sagði. Ég man hve vel
hann gerði upp ferðabílana og hve
gaman Guðjón sonur minn hafði af
því að fara með ömmu og afa í ferða-
lag. Ég man hversu umhugað honum
var um heimili sitt og hversu mikla
vinnu hann lagði í að hafa það alltaf
fallegt og snyrtilegt. Ég man hversu
hlýjar móttökurnar voru þegar við
komum í heimsókn og ég man þegar
hann kom síðast í heimsókn til okkar
og fékk sér kaffi við eldhúsborðið.
Ég man hversu glaður og ánægður
hann var þegar börnin hans héldu
veislu í tilefni 50 ára brúðkaupsaf-
mælis foreldra sinna. Minningarnar
eru óteljandi og mun ég geyma þær
með mér um alla framtíð. Með inni-
legu þakklæti fyrir allt og þungum
trega kveð ég minn yndislega
tengdaföður og veit að það hefur ver-
ið vel tekið á móti honum þar sem
hann dvelur nú. Sjáumst seinna.
Elsku Ósk mín, Hemmi minn,
Munda, Maja, Steini og Þórunn.
Ykkur öllum og fjölskyldum ykkar
votta ég mína dýpstu samúð.
Margrét.
Elsku afi, það voru óvæntar sorg-
arfréttir sem við fengum sunnudag-
inn 7. júní á Spáni um að þú værir dá-
inn. Ekki grunaði okkur að þú færir
svona fljótt og snögglega án þess að
við gætum kvatt þig og kysst. Við
spyrjum okkur ótal spurninga en
fáum fá svör. Af hverju fengum við
ekki fleiri stundir með þér? En þá er
gott að hugsa um allar gömlu minn-
ingarnar sem við áttum með þér í
æsku og standa upp úr ferðalögin
sem við fórum í með ykkur ömmu.
Okkur er líka minnisstætt þegar þú
eignaðist upptökuvélina sem var svo
flott í þá daga og myndaðir okkur við
hvert tækifæri. Þú varst duglegur,
vinnusamur og allt sem þú tókst þér
fyrir hendur gerðir þú vel. Þín verð-
ur sárt saknað.
Förunauta áttum við, sem gáfu heim-
inum líf,
segðu aldrei um þá að þeir séu horfnir
– vertu þakklátur yfir að hafa notið
nærveru þeirra og hlýju.
(Gamalt máltæki.)
Elsku amma, við biðjum góðan
Guð að styrkja þig í sorginni.
Ósk, Margrét og Hermann.
Hermann Valdimar
Sigfússon
SJÁ SÍÐU 24