Morgunblaðið - 15.06.2009, Page 29
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Ekki missa af Djúpinu, aðeins þrjár sýningar eftir!
Við borgum ekki (Nýja sviðið)
Uppsetning Nýja Íslands.
Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust.
Djúpið (Litla sviðið)
Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone!
Lau 20/6 kl. 19:00 stóra svið
Lau 27/6 kl. 19:00 stóra svið
Fös 3/7 kl. 19:00 stóra svið Lau 11/7 kl. 19:00 stóra svið
Fös 4/9 kl. 19:00 U
Lau 5/9 kl. 19:00 Ö
Sun 6/9 kl. 19:00 Ö
Mið 9/9 kl. 19:00 U
Fim 10/9 kl. 19:00 Ö
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Fim 18/6 kl. 20:00 Fös 19/6 kl. 20:00 Sun 21/6 kl. 20:00
Fim 18/6 kl. 20:00
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
4
4
9186 / AKRANES
• Við leggjum okkur fram um að veita þér persónulega þjónustu.
• Við förum yfir kjörin sem þér bjóðast og svörum spurningum þínum.
• Við veitum einstaklingum og fyrirtækjum aðstoð við að skipuleggja fjármálin.
María gengur á Akrafjallið
einu sinni í viku.
Hún og 15 aðrir taka vel á
móti þér á Akranesi.
Komdu við í útibúinu að Þjóðbraut 1 á Akranesi
eða hringdu í okkur í síma 410 4000.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2009
Helgi Þórsson hlýtur aðlæða einhverjumundra-eter út í rab-arbaravínið sem hann
bruggar norður í Kristnesi. Í yfir
tuttugu ár hefur hann ásamt
bræðrum sínum og frændum rekið
hina einstöku sveit Helga og hljóð-
færaleikarana, helstu költ-sveit
landsins en auk þessa skrifar Helgi
bækur, heldur listsýningar, sinnir
búi og börnum og klæðskerasaum-
ar föt í miðaldastíl ásamt konu
sinni, Beate Stormo, sem er járn-
smiður. Fyrir grátónaðan borg-
arbúann er líf Helga sveipað töfr-
um; það er einhver óendanlegur
rómans bundinn í allt sem hann og
hans fólk gerir. Nýjasta uppátækið
er svo þessi metnaðarfulli söng-
leikur, byggður á Grænlendinga
sögu og Eiríks sögu rauða. Þar
stefnir Helgi í raun öllu sínu marg-
háttaða sýsli saman í einn bing.
Hér segir af ævintýrum Eiríks
rauða, Þórhalls veiðimanns og Þor-
finns karlsefnis. Sagan gerist í
upphafi á Grænlandi en svo færast
leikar til Vínlands þar sem „Græn-
lendingarnir“ komast í kynni við
skrælingja en þau kynni hafa á
endanum voveiflegar afleiðingar.
Fleiri persónur leika allstórar rull-
ur, svosem þrællinn Tyrkir, Frey-
dís dóttir Eiríks, Guðríður kona
Þorfinns o.fl.
Helgi hefur unnið handrit upp
úr sögunum sem býr yfir allvíðu
tilfinningarófi. Það er drama, gam-
an og hasar í bland sem er svo
reglulega brotið upp með tónlist og
er hún að sama skapi fjölbreytt;
ballöður, þjóðlagapönk, hefðbundið
„söngleikjarokk“, millistef og
meira að segja reggí, allt eftir því
hvaða stemning er í gangi. Leik-
myndin er mikil listasmíð, praktísk
og úthugsuð og búningarnir ein-
stakir. Víkingalegir já, en saum-
aðir sumpart í æsilegt latex sem
rokkar þá vel upp. Sjón er sögu
ríkari.
Einna hressilegast við sýn-
inguna var hversu „mannlegar“ og
breyskar aðalpersónurnar voru.
Ákveðin gróteska, velkomin gró-
teska, gáraði undir allri framvind-
unni. Á sviðinu voru ekki stál-
slegnar hetjur sem hoppuðu hæð
sína í loft upp í fullum herklæðum.
Þvert á móti var nokkuð slarksamt
í Vínlandi, sem bar þannig nafn
með rentu. Það rann t.a.m. ekki af
Þórhalli veiðimanni allan tímann
og Þorfinnur karlsefni var tauga-
veiklaður foringi með allt niður um
sig. „Karlmennin“ hugsuðu mest
um að fá á broddinn og brennivínið
var ávallt innan seilingar. Eiríkur
rauði, uppstökkt stertimenni, vék
sér undan Vínlandsferðinni og laug
til um krankleika. Konurnar voru
hins vegar sterkar og ákveðnar og
komu mönnunum oftar en einu
sinni niður á jörðina. Það hefur
semsagt lítið breyst í áranna rás!
Heilt á litið var þetta afar til-
komumikil sýning og í raun ótrú-
legt hverju hægt er að áorka með
litlu öðru en heilnæmum áhuga,
trú og einurð. Eðlilega voru þó
einhver merki um að þetta væri
áhugamannasýning. Leikur var
misjafn og hugsanlega hefði mátt
stytta einhver atriðin. Svo ég tíni
nú til einhverjar ambögur.
Hljómsveitin stóð til hliðar við
sviðið og lék, uppdubbuð í til-
hlýðileg föt. Það var magnað að
fylgjast með höfundinum, Helga,
þar sem hann sat með augun lukt
aftur á meðan atriðin voru í gangi
og var greinilega að fara með texta
leikaranna í huganum. En hann
var líka með hlýlegt, styrkjandi
bros á vörum, sem og aðrir í sveit-
inni. Þessi andi sveipaði sýninguna,
þar sem allir lögðust á eitt um að
koma henni heilli í höfn. Gegnheil
ástríðan skein úr hverjum andlits-
drætti í uppklappinu og það mátti
greina gleðirík hamingjuöskur alla
leið úr búningslefanum eftir að
tjaldið var fallið. Vínlendingar áttu
sviðið þetta kvöld – og voru full-
komlega vel að því komnir.
Morgunblaðið/Eggert
Víkingar á Vínlandi „Leikmyndin er mikil listasmíð, praktísk og úthugsuð og búningarnir einstakir.“
Heimilisleg brjálsemi
Þjóðleikhúsið
Vínland Rokksöngleikurinn Vínland eftir Helga
Þórsson, sem hefur verið sýndur í
Freyvangsleikhúsinu í Eyjafjarðarsveit
við miklar vinsældir, var valinn athygl-
isverðasta áhugaleiksýning ársins af
Þjóðleikhúsinu. Sýning var því sett upp
þar síðastliðinn föstudag.
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
LEIKLIST
EINS og sagt var frá fyrir helgi hef-
ur bandarískt framleiðslufyrirtæki,
Reveille Productions, tryggt sér rétt-
inn á endurgerð hinnar alíslensku
Næturvaktar fyrir bandarískt sjón-
varp.
Reveille Productions hefur á fer-
ilskránni þætti á borð við Ugly Betty
og The Office.
Það er því trúlega ekki tilviljun að
Næturvaktin skyldi hafa höfðað til
hæstráðenda þar á bæ, allavega
sagðist framleiðandinn Howard
Owens sjá talsverð líkindi með Næt-
urvaktinni og hinni bandarísku út-
gáfu The Office.
„Okkur fannst kominn tími til að
ráðast í aðra gamanþáttaröð sem
gerist á vinnustað,“ sagði hann og
bætti við að húmorinn í þáttunum
ætti eftir að þýðast vel yfir til banda-
rískra sjónvarpsáhorfenda.
„Það er þessi kaldhæðni gáfu-
mannahúmor sem ég veit að svo
margir leita eftir í sjónvarpsþáttum.“
Menn geta svo haft gaman af því
að finna sameiginlega eiginleika
Georgs Bjarnfreðarsonar í Næt-
urvaktinni og skrifstofustjórans
Michael Scott (sem hét David Brent
á hinni bresku skrifstofu) í The Of-
fice.
Enn meira
vinnustaðagrín
Verður hin bandaríska Næturvakt
látin leysa The Office af hólmi?
Yfirmenn dauðans Hvorn myndir þú frekar vilja hafa sem yfirmann þinn,
Georg Bjarnfreðarson eða Michael Scott?